Morgunblaðið - 15.09.1977, Blaðsíða 1
40 SIÐUR
204. tbl. 64. árg.
FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1977
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
142 atkvæði og
Nordli hélt velli
Ósló, 14. september,
einkaskeyti til
Morgunblaðsins frá AP
1 KVÖLD hafði ekkert komið
fram, sem benti til þess að frekari
breytingar yrðu á hinum hnff-
jöfnu kosningaúrslitum I Noregi
og virtist Ijðst að Oddvar Nordli
yrði forsætisráðherra næstu
fjögur ár með 76 þingmenn
Verkamannaflokksins og 2 þing-
menn vinstri sósfalista sér til full-
Oddvar Nordli heyrir kosninKaúrslit
tingis gegn 77 þingmönnum
borgaraflokkanna. Hinar óvæntu
fréttir um úrslitin f Nordland,
þar sem frambjóðandi Vinstri
sósfalista vann við endurtalningu
eitt sæti af frambjóðanda Hægri
flokksins með aðeins 142
atkvæðum, bárust Nordli
örstuttri stundu eftir að Hans
Rossbach, formaður frjálslynda
flokksins Venstre, hafði gengið á
Framhald á bls. 22.
Bert Lance.
„Slúður
og sögu-
sagnir”
Washinton, 14. sept. — AP
BERT I.ance fjárlaga- og hag-
sýslustjóri Bandarfkjanna
sagði við fréttamenn f
Washington f dag að hann yrði
fyrir ósanngjörnum árásum
sem byggðar væru á slúðri og
sögusögnum. Sagði Lance að
illa væri komið fyrir Banda-
rfkjunum ef menn teldu að
Framhald á bls. 22.
rn&mi
Símamynd AP
Bonn 1 hers höndum
Brynvagnar, fallbyssubátar og hermenn eru gráir fyrir járnum á verði
Bonn, 14. sept. — AP.
HÖFUÐBORG Vestur-Þýzkalands er í hers höndum vegna ótta manna
við frekari árásir skæruliðasamtakanna sem hafa Hanns-Martin
Schleyer, formann v-þýzka vinnuveitendasambandsins og forseta fé-
lags iðnrekenda þar f landi, á sfnu valdi. Ilermenn gráir fyrir járnum
voru á verði á götum Bonn við heimili allra helztu stjórnmálamanna
landsins bak við sandpokavirki og gaddavírsgirðingar, fallbyssubátar
sigldu upp og niður Rfn og brynvarðar hifreiðar óku um götur
borgarinnar.
haldi og þeim leyft að fara úr
landi í fylgd tveggja manna, sviss-
neska lögfræðingsins Denis
Payots og séra Martin Niemöllers.
Þar að auki verði greitt 1.1 millj-
ónar marka lausnargjald. Ræn-
ingjarnir höfðu hötað að taka
Schleyer af lifi á miðnætti aðfara-
nótt þriðjudags og einnig mið-
vikudags, en í kvöld sagði Payot i
tilkynningu til fjölmiðla i Genf að
þeir teldu sig hafa nægilegar
sannanir fyrir því að Schleyer
væri enn á lifi. Lofaði hann að
gera allt sem í hans valdi stæði til
að ljúka giftusamlega þessu
mannúðarverkefni.
Skæruliðarnir, Siegfried
Hausnerhópurinn, vill fá helztu
forsprakka Baader- Mein
hofhreyfingarinnar lausa úr
haldi. Herma óstaðfestar blaða-
fregnir að þeir krefjist þess að
flogið verði með þá til S-Yemen
eða N-Kóreu.
Algert fréttabann rikisstjórnar
Helmut Schmidts heldur mönn-
um i óvissu um hvað farið hefur á
milli yfirvaida og ræningja
Schleyers, sem krefjast þess að 11
félögum þeirra verði sleppt úr
Vöruskipti
í ágúst hag-
stæð um 316
milljón pund
London 14. sept. — AP — Reut-
er.
BRETAR fengu í dag einhvcrjar
bcztu cfnahagsfréttir sem þeir
hafa fengið sl. 5 ár, er brezka
rfkisstjórnin tilkynnti að vöru-
Framhald á bls. 22.
Mikið umrót er í V-Þýzkalandi
vegna ránsins á Schleyer og eru
uppi háværar raddir um stórauk-
ið lögreglulið, að dauðarefsingu
verði komið á fyrir hryðjuverk og
öryggi hert innanlands. 1 dag
samþykkti v-þýzka stjórnin 376
milljóna dollara aukafjárveitingu
til öryggismála næstu 4 árin og á
að nota féð til að fjölga lögreglu-
mönnum og styrkja landamæra-
vörzlu. Framhald á bls. 22.
FALLBYSSUBATAR sigla nú
upp og niður Rín fyrir framan
þinghús V-Þýzkalands í Bonn og
brynvagnar með lögreglumenn
gráa fyrir járnum eru allt um-
hverfis þinghúsið og aðrar opin-
berar byggingar í borginni.
SANDPOKAVIRKI gaddavírs-
girðingar og lögreglumenn vopn-
aðir vélbyssum gæta heimila ráð-
herra og annarra mikilvægra
opinberra starfsmanna í höfuð-
borginni og sést hér lögreglumað-
ur á verði fyrir framan hús Franz
Josef Strauss, fyrrum varnar-
málaráðherra landsins, afgirt
gaddavír.
Frakkland:
Vinstribandalag-
ið að splundrast?
París, 14. sept. — Reuter.
□-----------------------------------------------------------------□
(sjá grein á bls. 19)
□-----------------------------------------------------------------□.
Stjórnarandstöðubandalag vinstrimanna í Frakklandi virtist vera að
splundrast í kvöld eftir að viðræður leiðtoga kommúnista, sósfalista og
Róttæka flokksins um endurskoðun á stefnumótun flokkanna fyrir
kosningarnar f marz nk. fóru út um þúfur. Gorbert Fabre leiðtogi
Róttæka flokksins rauk út af fundinum f kvöld og sagði að tillögur
kommúnista um þjóðnýtingu stefndu frjálsu atvinnulífi í Frakklandi í
hættu.
Klofningurinn i kvöld kemur i I ar vikur milli sósíalista og
kjölfar biturra deilna undanfarn- | kommúnista um fjölmörg málefni
allt frá stefnu i launamálum til
varnarmála. Þrátt fyrir þetta hafa
vinstrimenn enn vinninginn i
skoðanakönnunum yfir hægri- og
miðflokkasamsteypu Giscards
D’Estaings Frakklandsforseta, en
i kvöld virtist sem bezta tækifæri
vinstrimanna i 20 ár til að ná
völdum i Frakklandi væri að
renna þeim úr greipum vegna
innbyrðis deilna.
Framhald á bls. 31