Morgunblaðið - 15.09.1977, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 15.09.1977, Blaðsíða 29
Sextugur MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1977 29 Ragnar Elíasson bifreiðastjóri Menn verða af mörgu rikir, en auður er í eðli sínu margbreyti- legur. Sumir eru ríkir af velvild og bróðurþeli, af hógværð og hrein- skilni og eru látlausir í tímanum. Aðrir eru rikir af auði og ails- nægtum, metorðum og metnaði. Og það eru til þeir, sem eiga dálít- ið af þessu öllu saman. En eins og Predikarinn segir: „Öllu er afmörkuð stund og sér- hver hlutur undir himninum hef- ir sinn tima.“ og „að geyma hefir sinn tima“. Þegar tíminn geymir sex tugi ára eins manns þá getur á stundum verið erfitt að muna. Nútiðin verður alltaf þátiðinni sterkari en framtíðin fegurst og bezt. Þegar Ragnar er nú sextugur, veit ég að hann skynjar það sem auðlegð og efni þvi að hann hefir aldrei verið andófsmaður tímans heldur ljúfur vinur hans. Árin hafa styrkt hann og stælt hvar sem leiðin hefir legið. Eg minnist Ragnars fyrst á stúdentsárum minum þegar velsældin var ekki hin sama og nú. Hann var fátæk- ur og fatlaður, lamaður af lömun- arveiki, en kjarkaður og kraft- mikill. Aldrei heyrði ég æðru- eða önuglyndis orð frá honum. Og ár- in liðu og búið og börnin blómg- uðust. Tíminn vann alltaf með Ragn- ari og Olgu systur minni. Alltaf var jafn gott að koma til þeirra. Góðvildin alltaf sú sama og gleðin alltaf inni. Ragnar er Skaftfellingur að ætterni, mun fæddur i Mýrdaln- um og hefir skaphöfn, frá þeim slóðum. Mærð er ekki manninum gefin, hávaði ekki heldur, svo að Ragnar var kynlegur kvistur þeg- ar hann kvæntist inni fjölskyldu mina, svo ólíkur er hann okkur i skapi. En við metum öll að verð- leikum skaplyndi hans í dag enda búbót bægslagangi. Ragnar, þö að auðugur maður verði ekki talinn, er eigandi að mörgu. Hann er að minum dómi óvenjulega áhugasamur um marga hluti. í ræðu er hann alltaf leitandi, spyrjandi um allt sem í umhverfinu vekur athygli hans. Og hann dæmir ekki, heldur dreg- ur sínar ályktariir, leitar skýringa og skilnings, en þeir, sem það gera eiga meira en margur maður og þeim fylgir ró og friður. Það er ekki ætlan mín að rekja lifshlaup Ragnars með þessum línum enda ekki allt, heldur senda honum á þessum timamót- um kveðju mína og minna. Ragnar mágur minn á marga vini. Eg veit að margir munu heimsækja hann í dag, en hann verður heima enda ekki vanur að flýja undan timanum, heldur lifa með honum og i honum. Þeir verða ekki rótlausir sem láta reyna á, ekki hamingjulausir sem hvika hvergi. Það er kveðjan og hamingjuósk- in til Ragnars i dag, að hann sextugur njóti verka og vinnu og megi heill heilsu hefja nýjan ára- tug, lifa áfram i tímanum. Brynleifur H. Steingrímsson Landbúnað- arsýning á Selfossi n.k. sumar STJÖRN Búnaðarsambands Suðurlands hefur ákveðið að minnast 70 ára afmælis sam- bandsins með landbúnaðarsýn- ingu á Selfossi næsta sumar. Kjartan Ölafsson ráðunautur, sem sæti á i sýningarnefnd- inni, sagði í gær að ekki væri búið að taka ákvörðun um fyrirkomulag sýningarinnar en þarna yrði þó um að ræða alhliða landbúnaðarsýningu og varðandi húsnæði fyrir sýning- una kæmi helzt tvennt til greina. Annars vegar væru það húsakynni Sláturfélags Suður- lands á Selfossi eða Gagn- fræðaskólinn á Selfossi. Arið 1958 var haldin á Selfossi land- búnaðarsýning í tilefni af 50 ára afmðli Búnaðarsambands- ins og var hún haldin við slát- urhús SS. Hárgreiðslustofa Helgu Jóakims hefur nýlega verið opnuð aflur í nýjum húsakýnnum að Reynimel 34, en Helga Jóakimsdóttir, eigandi stofunnar, hefur starfrækl hárgreiðslustofu í Reykjavík um 15 ára skeið, undanfarin ár á Reynimel 59. — Auk hárgreiðslunnar er í stofunni „Snyrtihorn", þar sem ýmsar snyrtivörur eru á boðstólum. — Meðfylgjandi mynd sýnir starfsstúlkur fyrirtækisins að vinnu. TANINGA HÚSGÖGNIN Ny gerd af Norskum svefnsófum, bordum og sto/um á Skeifu-verdi og skilmálum , KJÖRGARÐI, SlMI 16975. SMIÐJUVEGI 6 SlMI 44544 Iðnkynning í Reykjavík gefur þér kost á að heimsækja nokkur iðnfyrirtæki og kynnast framleiðslu þeirra og störfum. Farið verður í 20 manna hópum á eftirtalda staði: Hópurl: 19/9— 21/9 — 22/9, kl. 13:00 Sportver h/f, Harpa h/f, Sól h/f, Smjörlíki h/f. Hópurll: 20/9 — 28/9 — 29/9, kl. 13:00 Gamla Kompaníið, Plastprent h/f, Glit h/f. Hópur III: 20/9 — 21/9 — 22/9 kl. 13:00 Kristján Siggeirsson h/f, Kjötiðnaðarstöð SÍS, Kassagerð Reykjavíkur. Skrásetning: Þátttakendur vinsamlega láti skrá sig í síma 24473 — með góðum fyrirvara, þar sem aðeins er hægt að bjóða takmörkuðum f jölda. Ferðast verður í strætisvögnum Iðnkynningar, sem hefja ferðinar í Lækjargötu við happdrættishúsið, stundvíslega kl. 13:00 IÐNKYNNING I REYKJAVÍK.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.