Morgunblaðið - 15.09.1977, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1977
Hampiðjan selur 30
tonn af netum tilKanada
FJÖGUR íslenzk fyrirtæki tóku
þátt I fiskveiðitækjasýningunni
World Fishing Exhibition I Hali-
fax I Kanada fyrir skömmu og sá
Útflutningsmiðstöó iðnaðarins
um skipulagningu vegna sýning-
arinnar. fslenzka framleiðslan
vakti mikla athygli á sýningunni
og má nefna að Hampiðjan er nú
að senda 30 tonn af netaefni vest-
ur um haf. Þá var pantað mikið af
trollhlerum frá Jósafat Hinriks-
syni og Elliði Noarðdahl Guðjóns-
son gekk frá samningum á tölu-
verðu magni af handfæravindum,
neta- og Ifnuspilum.
„Þessi sýning i Halifax hjálpaði
BYRJAÐ er að lagfæra hið nýja
hús Rannsóknarlögreglu rfkisins
við Auðbrekku í Kópavogi og
vinna að innréttingum fyrir hina
nýju stofnun.
Að sögn Eiríks Tómassonar, að-
stoðarmanns dómsmálaráðherra,
okkur mjög mikið við að komast
inn á kanadiska markaðinn og
okkur virðist að net frá Hampiðj-
unni eigi mikla möguleika á þess-
um markaði, sem er mun stærri
en allur islenzki markaðurinn og
fer nú sistækkandi eftir að Kan-
adamenn færðu fiskveiðilögsögu
sína út í 200 sjómilur," sagði
Magnús Gústafsson forstjóri
Hampiðjunnar þegar Morgun-
blaðið ræddi við hann í gær.
Magnús sagði, að Hampiðjan
hefði selt útgerðarfyrirtækinu
Fisheries products, sem á yfir 40
togara, þar af 34 skuttogara, þrjá-
tiu tonn af netaefni og ætti það að
byrjaði verkið seinna en áformað
var þannig að húsið verður seinna
tilbúið en vonir stóðu til. Atti það
að verða tilbúið um áramótin en
líklega verður ekki hægt að taka
það í notkun fyrr en um mánaða-
mótin janúar-febrúar 1978.
afhendast fyrir áramót. „Við
bindum miklar vonir við viðskipt-
in við þetta stóra útgerðarfyrir-
tæki, en þess má geta að hver
togari fer með 5—6 tonn af netum
að meðaltali á ári,“ sagði Magnús.
Þá sagði hann :ð einn starfs-
manna Hampiðjunnar, Guðmund-
ur Gunnarsson, færi til Kanada og
myndi hann hafa eftirlit með sam-
setningu netanna og skurði
þeirra, því þær ætluðu sér að
fylgja Kanadamarkaðinum fast
eftir.
Að sögn Magnúsar er gert ráð
fyrir að Hampiðjan framleiði um
1100 tonn af veiðarfærum og
skyldum vörum á yfirstandandi
ári. Mest af veiðarfærunum fara á
íslenzka markaðinn, en á undan-
förnum árum hefur Hampiðjan
náð sifellt betri fótfestu á erlend-
um mörkuðum.
1 fréttatilkynningu, sem
Morgunblaðinu barst I gær frá
Utflutningsmiðstöð iðnaðarins
segir, að auk áðurgreindra fyrir-
tækja hafi Sjóklæðagerðin h.f. og
Hilda h.f. sýnt sameiginlega á
sýningunni I Halifax alls konar
sjóklæði. Markmið þessara fyrir-
tækja hafi einungis verið að
kynna vörurnar, og athuga hvort
þær hentuðu kanadíska markað-
inum, hvort þær væru sam-
keppnisfærar og athuga með
hugsanlega dreifiaðila.
Sýningarsvæði íslenzku fyrír-
tækjanna var um 80 fermetrar og
var Utflutningsmiðstöðin einnig
með sýningarbás, þar sem gefnar
voru upplýsingar um Islenzka út-
flytjendur svo og almennar upp-
lýsingar um Island, en sýninguna
Framhald á bls. 22.
Heimiluð veiði á
5500 lestum af
rækjum í vetur
Rannsóknarlögregla ríkisins:
Nýja húsið seinna til-
búið en áformað var
viss að þetta á eftir að verða
skáklifinu hérna mikil lyfti-
stöng. Hinir ötulu forystumenn
skákmála hér á landi hafa stöð-
ugt verið að færa út „skákkvi-
arnar" á undanförnum árum en
löngu er ljóst orðið að núver-
andi húsnæði hefur staðið efl-
ingu skákhreyfingarinnar fyrir
þrifum. Með þessum kaupum
er bætt úr brýnni nauðsyn og
mér sýnist í fljótu bragði að
þetta húsnæði henti vel þegar
litið er til framtíðarþarfa skák-
sambandsins. Ég lýsi þvi yfir
ánægju minni með þetta fram-
tak.
Á hitt vil ég benda svona í
leiðinni, vegna þess að mér hef-
ur virzt það geta gefið tilefni til
misskilnings, að varla er heppi-
legt né timabært að blanda
höfuðstöðvum FIDE mikið inn i
þetta mál enda engan veginn
„Anægður með kaupin
en tel ekki tímabært
að blanda Fide í málin”
—segir FriðrikÓlafsson um fyrir-
huguð húsakaup Skáksambandsins
MORGUNBLAÐIÐ hafði i gær
samband við Friðrik Ölafsson
stórmeistara vegna fyrirhug-
aðra húsakaupa Skáksambands
Isiands og innti eftir áliti hans,
en samkvæmt blaðafréttum
kemur til greina að höfuðstöðv-
ar FIDE verði þarna til húsa, ef
Friðrik nær kjöri.
— Ég hlýt að sjálfsögðu að
fagna þeirri ákvörðun stjórnar
Skáksambands Islands að ráð-
ast i kaup á þessu húsnæði að
Laugavegi 71. Ég er þess full-
útséð um það hverjar lyktir
framboðs míns kunna að verða.
Ef málin skipast á þann veg að
framboð mitt næði fram að
ganga kæmi auðvitað til álita að
hýsa höfuðstöðvarnar í húsi
Skáksambandsins en sú ákvörð-
un hlýtur fyrst og fremst að
ráðast af mati á öllum aðstæð-
um þegar þar að kemur. Þá
getur að sjálfsögðu þurft að
taka tillit til fjölmargra atriða,
sem ekki eru ljós þessa stund-
ina.
RÆKJÚVEIDAR hefjast upp úr
næstu mánaðamótum I Arnar-
firði, Húnaflóa og Öxarfirði og
nokkru stðar I Isafjarðardjúpi.
Heimiluð hefur verið veiði á 5550
lestum af rækju á þessari vertfð á
fjórum veiðisvæðum.
Jón B. Jónasson deildarstjóri í
sjávarútvegsráðuneytinu sagði I
samtali við Morgunblaðið í gær,
að leyft yrði að veiða 600 lestir í
Arnarfirði og þar hefðu 9 bátar
sótt um heimild til veiða. Veiðar
þar byrja 8. oktöber.
I Isafjarðardjúpi verður leyft
að veiða 2300 lestir, en þar hafa
45 bátar sótt um leyfi til veiða og
hefja veiðar þann 21. október. 1
Húnaflóa byrja rækjuveiðar þann
10. október og þar hafa 27 bátar
sótt um leyfi til að veiða 2000
lestir. I Öxarfirði hefur verið
heimilað að veiða 650 lestir og
hafa 12 bátar sótt um leyfi til
veiða þar. 1 Öxarfirði byrja
rækjuveiðar 1. október.
Borgarritari um fjármál Reykjavíkur:
„Vanskil opinberra
gjalda meginvandinn”
Ákveðið að stofna
samstarfsnefnd til
vemdar Kísiliðjunni
STJÖRN Kfsiliðjunnar hf. hefur
ritað iðnaðarráðuneytinu bréf
með ósk um að stofnuð verði
samstarfsnefnd til að leita úr-
ræða til að vernda verksmiðjuna
gegn náttúruhamförum.
Magnús Jónsson stjórnar-
formaður Kísiliðjunnar tjáði Mbl.
að iðnaðarráðuneytið hefði tekið
vel í málið og væri það í af-
greiðslu. Að sögn Magnúsar er
hugmyndin að allir þeir aðilar,
sem þarna eigi hlut að máli, eigi
sæti í nefndinni, t.d. fulltrúar frá
Kisiliðjunni, iðnaðar- og fjármála-
ráðuneyti, almannavörnum og
sveitarstjórn Mývatnssveitar.
„Þarna eru mikil verðmæti í
húfi og brýnt að finna leiðir til að
koma í veg fyrir mikið tjón ef
frekari náttúruhamfarir verða,"
sagði Magnús Jónsson.
„MEGINVANDI Reykjavíkur í
fjárhagsmálum er vegna slælegra
skila hluta borgarbúa á greiðslu
opinberra gjalda“, sagði Gunn-
laugur Pétursson borgarritari í
samtali við Morgunblaðið í gær-
kvöldi.
„Okkar reynsla er sú að aðeins
um 74—75% borgarbúa hafa gert
skil á opinberum gjöldum í árs-
Iok,“ sagði Gunnlaugur, „en hins
vegar er það algengt að bæjar-
félög úti á landi innheimti um og
yfir 90% af sínum gjöldum fyrir
hver áramót. Þó skil borgarbúa á
opinberum gjöldum væru aðeins
10% betri þá riði það baggamun-
inn og þá myndi borgin líklega
ekki vera i skuld við Landsbank-
ann eins og raun ber vitni. Það er
illt að þurfa að segja það að svo
stór hluti borgarbúa sé í hópi
skuldseigustu vanskilamanna
flokkurinn: Undirbúningur próf-
kjörs hafinn í Reykjavík
vegna alþingiskosninga
Á VEGUM fulltrúaráðs Sjálf-
stæðisfélaganna í Reykjavfk er
nú hafinn undirhúningur að próf-
kjöri til framboðs alþingiskosn-
inga á næsta ári. Sérstök kjör-
nefnd, sem skipuð er 15 mönnum,
7 tilnefndum af stjórnum Sjálf-
stæðisfélaganna og 8 kjörnum
skriflegri kosningu meðal full-
trúaráðsmeðlima, skal starfa inn-
an Fulltrúaráðsins. Hefur með-
limum fulltrúaráðs Sjálfstæðisfé-
laganna því verið sent bréf þar
sem óskað er eftir framhoðum til
kjörnefndar og þurfa fimm full-
trúar hið fæsta og ekki fleiri en
tíu að styðja hvert framboð og
frambjóðandi skal skriflega hafa
gefið kost á sér.
Frestur til að skila framboðum
hefur verið ákveðinn 19. septem-
ber og skal þeim skilað til skrif-
stofu fulltrúaráðsins, en ekki
senda í pósti. Berist fleiri fram-
boð en kjósa á og komi því til
kosningar kjörnefndar er gert ráð
fyrir að sú kosning fari fram í lok
september. Þá er einnig stefnt að
því að efna til almenns fulltrúa-
ráðsfundar í lok mánaðarins þar
sem ræða skal prófkjör vegna al-
þingis- og borgarstjórnarkosn-
inga.
landsins varðandi greiðslu opin-
berra gjalda, en hvert prósentu-
stig hjá okkur í innheimtu munar
miklu því hvert prósentustig i út-
svari þýðir 55 millj. kr. og hvert
prósentustig í aðstöðugjaldi þýðir
18 millj. kr. 10% betri innheimta
þýddi því tæplega 1000 millj. kr. í
kassann hjá borgarsjóði. Það er
ástæða fyrir Reykvíkinga að
íhuga þetta, því það er ekki siður
ástæða fyrir þá en aðra þegna
bæjarfélaga að standa vörð um
sitt bæjarfélag og standa i skilum
til þess að reksturinn geti gengið
eðlilega og snurðulaust fyrir sig“.
30-40 manns bíða jafn-
an vistar á afvötmmar-
deild Kleppsspítala
— SKÖRTÚR á afvötnunardeild
fyrir alkóhólista hér á landi er
gífurlegur og má I því sambandi
nefna að mjög oft bíða milli
30—40 manns eftir því að komast
inn á afvötnunardeiid Kleppsspft-
alans, sagði Hilmar Helgason, for-
svarsmaður undirbúningsnefnd-
ar að stofnun Samtaka áhugafólks
um áfengisvarnir, á blaðamanna-
fundi í gær.
— Að okkar mati, sem að þessu
stöndum, er þetta merkilegasta
mál aldarinnar ef vel tekst til, því
áfengisvandamálið er hreint þjóð-
arböl hér á landi. Hér finnst varla
nokkur einasta fjölskylda sem á
einhvern hátt er ekki tengd alkó-
hóli.
— Annars viljum við að okkar
starf verði alveg öfgalaust, því
Framhald á bls. 22.
Undirbúningsnefnd að stofnun Samtaka áhugafólks um áfengisvarnir,
frá vinstri. Edwald Berndsen, Eggert Þorsteinsson, Ililmar Helgason,
Eyjólfur Jónsson og Valur Júlfusson. En á myndina vantar sjötta
mann nefndarinnar en það er Pétur Sigurðsson.