Morgunblaðið - 15.09.1977, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1977
17
Ólafur Sigurgelrsson lögfræðingur:
Er neyzla íslenzkra íþróttamanna
á hormónalyfjum staðreynd?
í fimmtudagsblaði Morg-
unblaðsins birti yfirlæknir
Röntgendeildar Borgarspítal-
ans umsögn um likams-
ástand íþróttamanns, er
rannsakaður hafði verið
vegna meiðsla, er hann hafði
hlotið fáeinum dögum áður.
Við myndatöku þar kom í Ijós
mjög óvenjuleg beinagerð, er
yfirlæknirinn segir stafa af
truflun í miðstýringu bein-
myndunan. Orsaka þessarar
truflunar var ekki langt að
leita, þvi „í Ijós kom, að þessi
ungi maður, og reyndar eftir
því sem mér hefur verið sagt,
að margir þeir, sem stunda
þessa íþrótt af einhverju
kappi, muni hafa fengið lyf
sem eigi að örva vöðvaupp-
byggingu, svokallaða anabol
steroida"
Hvernig kom það í Ijós Ás-
mundur? Játaði iþróttamað-
urinn notkun efnanna eða
var framkvæmd ítarleg rann-
sókn á orsök þessara trufl-
ana. Mér vitanlega hefur
enginn islenzkur iþróttamað-
ur játað notkun hormóna-
lyfja, svo ítarleg rannsókn
hlýtur að hafa leitt þetta í Ijós
á þeim fáeinu dögum sem
liðu frá því sjúklingur er
myndaður á Röntgendeild
þar til yfrilæknir hennar lét
birta myndskreytta grein eftir
sig, þar sem henn segir notk-
un hormónalyfja hérlendis
staðreynd.
Ég vil leyfa mér að full-
yrða, að slikt hefur ekki verið
gert, þar sem slík rannsókn
er mjög flókin og var ekki
möguleg fyrr en fyrir 1—2
árum síðan. Auk þess er
rannsókn sem þess ekki
framkvæmanleg hér á landi,
heldur verður að senda sýni
til annarra landa eins og mun
raunar gert i mörgum tilvik-
um, er efnagreiningar er þörf.
Var ekki heiðarlegra fyrir
þig Ásmundur sem læknir að
hafa samband við viðkom-
andi íþróttamann og tjá hon-
um að hann væri sjúkur og-
þyrfti læknismeðhöndlun til
að leita orsaka meinsins, sem
mér skilst á lærðum mönnum
að geti verið margar. Jafnvel
ekki alvarlegri en langvar-
andi erting i lið vegna blóðs
frá sködduðum vöðvavef.
í 2. mgr. 7. gr. 1 . nr.
80/1969 segir, að lækni
beri að vanda umsagnir sínar
sem best og segja það eitt,
sem hann veit sönnur á. í 7
mgr. 18. gr. sömu laga eru
ákvæði um að svipta megi
lækna læknaleyfi, ef þeir
gefa frá sér læknisumsagnir
að órannsökuðu máli. Vegna
þessara ákvæða og annarra
vil ég Ásmundar vegna vona,
að rétt vinnubrögð hafi verið
viðhöfð í þessu máii. Mun
íþróttaforustan í landinu
vafalaust kanna það atriði.
þar sem ætlun hennar er að
fjalla frekar um þetta mál.
Það er sjálfsagt þarfur hlut-
ur, að læknir birti varnaðar-
orð til þeirra, sem neyta lyfja,
hvort heldur eru leikmenn
eða iþróttamenn EN að
beina slíkum varnaðarorðum
einungis til þeirra, er krafta-
íþróttir stunda og telja þjóð-
félagslega nauðsyn bera til
að banna er alls ekki rökrétt,
heldur byggt á fordómum og
vanþekkingu.
Kraftaíþróttir eru meðal
elstu og virtustu íþrótta-
greina sem stundaðar eru.
Rætur þeirra liggja allt til
íþróttaiðkana forn-Grikkja.
enda verið olimpiuiþróttir frá
fyrstu tíð Það er því komin
löng reynsla á jákvæð áhrif
þeirra á líkamlegt heilbrigði.
Má því ætla að margir hinna
háöldruðu manna, er þessar
íþróttir æfðu ungir rækju upp
stór augu, ef þeir fréttu af
kenningum Ásmundar
Brekkan um hættu á slitgigt
og þeim furðulega process,
að köfnunarefnissambönd
vöðva breittust í Kolefnis-
sambönd fitu.
Um 1 960 er talið að notk-
un íþróttamanna i androgen
efnum hafi byrjað. Siðan þá
hefur árangur i íþróttum tek-
ið stökk fram á við Á þetta
við allar íþróttagreinar ekki
bara kraftaíþróttir, enda
verka lyf þessi almennt á
likamlegt atgerfi manna og
eru ætluð til notkunar jafnt
gegn hrörnunarsjúkdómum
sem náttúruleysi.
Á síðasta ári var skorin upp
herör gegn lyfjum þessum á
erlendum vettvangi og eru
forustumenn allra greina
iþrótta i heiminum sammála
um tilveru þessa vandamáls
og baráttuaðferðir gegn þvi.
Mun þó eflaust einhver tími
líða þar til sigur vinnst.
Ljósm. Friðþjófur.
Frá vinstri: Kári Sigurbergsson, Helgi Valdimarsson, Arni Björnsson,
Eric Allander, Alfred Arnason, W. Watson Buchanan og Jón
Þorsteinsson.
Frá námskeiði um gigtsjúkdóma:
Gigtarsjúkdómar
algengasti en van-
ræktasti sjúk-
dómaflokkurinn
ÍTSALAJI
í FULLU FJÖRI
Um þessar mundir stendur yfir
námskeió um gigtsjúkdóma og er
það námskeiðs- og fræðslunefnd
læknafélaganna og Gitsjúkdóma-
félag íslands er standa að því.
Hófst það á mánudaginn var og
lýkur á morgun, fimmtudag. Um
það bil 100 læknar víðs vegar að
af landinu sitja námskeiðið og
sagði Arni Björnsson, formaður
námskeiða- og fræðslunefndar-
innar, að þetta væri fjölmennasta
námskeið er félögin hefðu staðið
að.
Helztu atriði, sem rædd eru á
námskeiðinu, eru um orsakir og
einkenni gigtar, um útbreiðslu-
þætti gigtarsjúkdóma, um með-
ferð á liðagigt og þvagsýrugigt,
um slitgigt og um endurhæfingu
gigtarsjúklinga. Þá eru tvö mál-
þing, annaö um rannsóknir og hitt
um vöðvagigt. Tveir erlendir fyr-
irlesarar eru á þinginu auk fjöl-
margra innlendra, en þeir eru W.
Watson Buchanan frá Glasgow og
Eric Allander fr Sviþjóð.
Prófessor W. Watson Buchanan
er prófessor i lyflækningum við
háskólann i Glasgow og hefur
hann m.a. skrifað kennslubækur
um gigtarsjúkdóma og fjölmargar
visindagreinar um þau efni. Hann
er og eftirsóttur sem fyrirlesari
og á námskeiðinu fjallaði hann
m.a. um áhrif og útbreiðslu gigt-
sjúkdóma og meðferð á liðagigt.
Sagði hann að gigtarsjúkdómar
væru óðum að verða sá sjúkdóma-
flokkur, sem algengastur væri í
Vestur-Evrópu og dýrastur í með-
förum, en einnig vanræktastur.
Væri það vegna þess að þessir
sjúkdómar þættu ekki fréttnæm-
ir, þetta væri hljóðlát plága er ylli
ómældri raun og þjáningu og
efnahagslegu tjóni. Nokkurrar
breytingar væri að vænta nú á
alþjóðlegu gigtarári, athygli ríkis-
stjórna og almennings beindist að
þessu vandamáli, sem gigtarsjúk-
dómar væru orðnir.
Þá sagði prófessor Buchanan að
langmestur hluti þess fjármagns
er væri varið til rannsókna á gigt-
Framhald á bls. 31
40-80% AFSLÁTTUR
Á ÖLLUM VÖRUM VERZLUNARINNAR.
ATH. NÝJUM VÖRUM BÆTT Á ÚTSÖLUNA í DAG.