Morgunblaðið - 15.09.1977, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1977
+
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
GUÐRÚN S. ÁRNADÓTTIR,
Stýrimannastig 2.
andaðist þann 1 4 september á Landspítalanum
Otti Pétursson
Helga Pétursdóttir Guðbjartur Kristinsson
og bamabörn.
+
Móðir min
RÓSA SIGURÐARDÓTTIR,
Austurbrún 2
andaðist i Borgarspitalanum þriðjudaginn 1 3 september
Axel Eyjólfsson.
+
Dótturdóttir okkar
BONNIE RENEE MALONEY
andaðist 7 september í Bandaríkjunum
Fyrir hönd foreldra og systkina
Hans Daneliusson, Sólveig Guðmundsdóttir.
+
Útför móður okkar
SESSELJU JÓNSDÓTTUR
sem lést á Landakotsspítala 8 þ m verður gerð frá Stokkseyrarkirkju
laugardaginn 17 september kl 13 30 Þeim sem vildu minnast
hennar er bent á Stokkseyrarkirkju
Laufey Karlsdóttir
Sigmundur Karlsson,
Ársæll Karlsson,
Karl Karlsson,
Jens Karlsson,
Baldur Karlsson.
Faðir okkar, tengdafaðir og afi
HARALDURBJÖRNSSON
fv. aðalféhirðir
Grettisgötu 20
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni föstudaginn 16 september kl 3
e Sjöfn Haraldsdóttir
Lilja Haraldsdóttir Ólafur Vilhjálmsson
Auður Haraldsdóttir Ari Pálsson
og barnaborn
Faðir okkar, tengdafaðir og afi
GUÐMUNDUR JÓHANNESSON
frv. innheimtugjaldkeri
Týsgötu 8
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni föstudaginn 16 september kl
13 30 Jóhann Guðmundsson Rebekka Kristjánsdóttir
Kristín Guðmundsdóttir Rafn Júlíusson
María V. Guðmundsdóttir Viðar Guðjónsson
og barnabörn
+
Faðir okkar, tengdafaðir og afi
HELGI SIGURÐSSON
Bræðraborg, Stokkseyri
verður jarðsunginn frá Stokkseyrarkirkju föstudaginn 1 6 september kl
16 00
Böm, tengdaborn og barnabörn.
+
Innilegar þakkir færi ég öllum þeim sem sýndu mér samúð og vinsemd
vegna andláts eiginmanns míns
BJARNA NIKULASSONAR
Sérstakar þakkirfæri ég læknum og hjúkrunarfólki Vífilsstaðaspítala
Guð blessi ykkur öll
Þórunn Pálsdóttir.
+
Okkar innilegustu þakkir fyrir samúð og vinarhug við fráfall og útför
JÓNU JÓNSDÓTTUR
Suðurgötu 36, Hafnarfirði.
Guðlaugur B. Þórðarson, Lára Janusdóttir,
Þórður Jón Guðlaugsson, Brynhildur Garðarsdóttir,
Janus Friðrik Guðlaugsson, Sigrún Knútsdóttir,
Kristinn Guðlaugsson,
og barnabörn.
Minning:
HaukurHólm
Kristjánsson
Ekki kann ég því vel að ágætur
vinur minn og félagi liggi óbættur
hjá garði, þessvegna vil ég minn-
ast hans með örfáum orðum.
Haukur Hólm Kristjánsson
fæddist á Bíldudal 1/11 1921. For-
eldrar hans voru þau Marta
Eiríksdóttir og Kristján Hólm
Ölafsson. Haukur ólst upp á
Bíldudal hjá ömmu sinni og afa,
þeim Jensínu Jónsdóttur og
Kristjáni Alberti Bjarnasyni til
13 ára aldurs, en fluttist þá til
Hafnarfjarðar, Fór fyrst í Flens-
borgarskóla en síðar á loftskeyta-
skólann í Reykjavik, en átti
heimili í Hafnarfirði æ síðan.
1953 kvæntist Haukur þýzkri
konu, Rósu M. Hinriksdóttur.
Börn þeirra eru Frintann Hólm f.
1954, tæknifræðinemi í Dan-
mörku. Kristján Hólm, f. 1955,
sjómaður, Kristín f. 1960, nemi í
Flensborgarskóla og Haukur
Hólm f. 1962, nemi.
Það er skemmst að segja, að
vegna sameiginlegra starfa
kynntumst við snemma, eða um
árið 1941, en þá byrjaði hann að
sigla og sigldi það sem eftir var
stríðs, og þarf engum að segja
hver áreynsla það var að koma
beint ÚKskóla og steypa sér strax í
þá baráttu sem þá fór fram á
höfunum. Það þekktu þá þegar
marghertir sjómenn, og vissu að
talsvert þrek þurfti til. Haukur
brást heldur ekki skyldu sinni, en
hélt áfram ótrauður, og sigldi
síðan stanzlaust áfram unz yfir
lauk.
Hann var í sumarfríi sér til
hvíidar þegar dauðann bar
skyndilega að snemma í ágúst, þá
staddur 1 Júgóslavíu.
Haukur sigldi ævinlega hjá
sama félagi, Eimskipafélagi
Islands, og var þar á mörgum
skipum. Siðustu árin á M/s
Bakkafossi. Lengst af fylgdi hann
heiðursmanninum Jónasi
Böðvarssyni unz Jónas lét af skip-
stjórn sökum aldurs. Það fór ein-
lægt vel á með þeim, og heyrt hefi
ég eftir Jónasi að Haukur hafi
verið sá bezti loftskeytamaður
sem hann hafi haft á löngum skip-
stjóraferli. Þetta eru mikil
meðmæli. Sama mátti segja um
þær skipshafnir sem honum voru
samtíða. Var mér það afar vel
kunnugt þar sem ég leysti hann af
í fríum um margra ára bil. Enda
var maðurinn afar skyldurækinn
og prúður, gekk hægt um gleðinn-
ar dyr og auðvitað þeim mun geð-
þekkari fyrir bragðið. Auk þess
var hann með allra færustu
mönnum í sínu fagi, góður í við-
gerðum tækja, fylgdist ákaflega
vel með öllu sem fram fór á öld-
um ljósvakans, góður í morse, og
sendingin það góð að minnti á
tónlist eins og hjá öllum sem ná
góðu valdi á morse-lykli.
Það er furðulegt að þetta staf-
róf samsett úr einungis tveim
merkjum púnkti og striki, skuli
geta orðið það sérkennandi að
hver einstakur þekkist á sending-
unni likt og maður þekktir venju-
lega skrift manna á letri. Góð
Fædd 19. október 1885.
Dáin 4. september 1977.
í dag verður til moldar borin
frá Akureyrarkirkju elskuleg vin-
kona min, hún Júlía Ölafsdóttir.
Ung missti Júlia föður sinn og
þar sem móðir hennar hafði fyrir
fleiri börnunt að sjá varð það
hlutskipti Júlíu að fara til ömmu
sinnar og afa, hjónanna Guðlaug-
ar Ölafsdóttir og Sigurðar
Stefánssonar skipstjóra að Stein-
dyrum á Látraströnd. Þar var hún
um árabil. Er Guðrún frænka
hennar, dóttir Guðlaugar og
Sigurðar, giftist Hallgrími Sig-
urðssyni stýrimanni fluttist Júlía
með henni og alla tið meðan Guð-
rún lifði var ævi þeirra samofin
þó Júlía dveldist öðru hverju í
Hrísey hjá ættingjum, svo og að
störfum víðar.
Þau Guðrún og Hallgrimur
morse-sending er í ætt við tónlist
og Haukur var einn þessara
manna sem náðu þessum ein-
kennilega fögru blæbrigðum, sem
hefðu snortið hvern góðan
tónlistarmann, sem á hefði hlýtt.
Haukur vann undanfarin
sumur í um það bil tvo mánuði á
Reykjavík-Radio hvert sumar
meðan sumarfrí þar stóðu sem
hæst og var hvers manns hugljúfi.
Við kveðjum vin okkar allir
starfsbræðurnir, bæði á láði og
legi og sendum allri fjölskyldunni
dýpstu samúðarkveðjur.
Kristján Jónsson. loftskm.
eignuðust eina dóttur, Sigur-
laugu, sem giftist frænda minum
Brynleifi Töbíassyni. Eftir
skamma sambúð þeirra andaðist
Sigurlaug frá nýfæddum syni.
Siglaugi. Tók Guðrún tengdamóð-
ir Brynleifs þá sess sem húsmóðir
heimilisins og var Júlfa bróður-
dóttir hennar þar ávallt og hvildu
störfin mikið á henni. Þeim fækk-
ar nú óðum sem muna þá tíma.
Þar var ætíð mikill myndarbrag-
ur á öllu. Heintilið var gestkvæmt
og oft komu gestir með stuttum
fyrirvara; en það skipti engu,
ávallt var hægt að veita af rausn.
í þá daga voru ekki rafmagnstæk-
in, aðeins rafljós og straujárn og
kolaofnar á herbergjum. Má því
fara nærri um þá vinnu sem Júlía
innti af hendi þó stundum væru
þar aðstoðarstúlkur. Hún bar ætið
mikla umhyggju fyrir drengnum
unga, Siglaugi og siðar skylduliði
hans. Börn hans og barnabörn
voru henni öll mjög hjartfólgin.
Ja, hann var orðinn stór barna-
hópurinn hennar Júllu minnar þó
ekki giftist hún né eignaðist börn
sjálf. Siglaugur og hans fólk sýndi
henni líka mikla ræktarsemi sem
hún mat mikils. Hún var þeim
öllum innilega þakklát og hafði
mikla ánægju af að tala um þau.
Minni og sálarkröftum hélt hún
vel, þótt sjón og heyrn væru farin
að daprast. Hún sagði mér frá
blessuðum stúlkunum á Elliheim-
ili Akureyrar, en þar dvaldist
Júlia nú siðustu árin; þsér leiddu
sig um og væru sér svo notalegar
aliir væru svo góðir þar. Einnig
talaði hún oft um sína góðu syst-
urdóttur Öldu sem býr í Hrisey;
hún liti alltaf við hjá sér, þegar
hún væri á ferðinni.
Það er ekki ætlan mín að rekja
æviferil Júllu minnar en mig
langar til að þakka henni alla þá
hjálp, ástúð og umhyggju, sem
hún ætið sýndi mér og mínum
nánustu allt frá því ég kom til
Akureyrar árið 1927. Alla tíð sem
þetta fólk bjó á Eyrarlandsvegi 26
gat ég verið þar sem heima væri,
hjá blessuðu vina- og frændfölki
mínu og á ég þaðan mjög dýrmæt-
ar minningar.
Trygg vinátta Júllu mínnar var
ætíð söm til hinztu stundar. Ég
veit að það er „aldrei mætzt i
síðsta sinni." Við Júlla munum
híttast heilar á landi lifenda og
segja báðar:
„Jesús, f umsjón þinni
Oha‘(( t*r sálu minni'*
Þín Magga.
+
Þökkum innilega alla samúð og kærleik vegna andláts og útfarar
HULDU SIGURÐARDÓTTUR
Eiður Árnason
Davið Eiðsson
Elfar Eiðsson
Sigriður Jónsdóttir
+
Alúðar þakkir sendum við öllum sem auðsyndu okkur samúð og
vinarhug við andlát og útför
GUÐMUNDAR SIGURÐSSONAR
kaupmanns.
Skólavörðustíg 28.
Ósk Sigurðardóttir,
Jóhann Gunnar Sigurðsson,
Böðvar Pétursson.
+
Systir okkar og mágkona
LÁRA G. JÓNASDÓTTIR
Bakka Reyðarfirði
verður jarðsett frá Búðareyrarkirkju laugardaginn 1 7. sept kl 2 e h
Blóm og kransar afþakkað Þeir sem vilja minnast hennar láti Styrktar-
félag vangefinna á Austurlandi njóta þess Gíróreikningur nr 70600
Guðrún Jónasdóttir,
Hallgrimur Jónasson,
Kristína Jónasdóttir,
Bóas Jónasson,
Bjarni Jónasson,
Auður Jónasdóttir,
Systra og bræðrabörn.
Eva Vilhjálmsdóttir,
Geir Jónasson
Jórunn Ferdinantsdóttir,
Björn Gíslason
Júlía Ólafsdóttir
—Minningarorð