Morgunblaðið - 15.09.1977, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1977
37
igBPywp*
B&itihíi
§ 2 1« í í 'í ' 1
nðæ.
F A!
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
í 0100 KL. 10 — 11
' FRÁ MANUDEGI
Borizt hefur athugasemd frá
Halldóri Guðmundssyni, blaða-
fulltrúa sýningarinnar Heimilið
‘77:
M Misskilningur
,,Vegna bréfs Margrétar Sig-
hvatsdóttur i dálki þínum laugar-
daginn 10. september, viljum við
taka fram eftirfarandi:
Tizkusýningu klukkan 16 föstu-
daginn 2. september var ekki af-
lýst, þar sem ekki hafði verið gert
ráð fyrir henni og hún því aldrei
auglýst eða kynnt, og hvað Ríó-
tríóið snertir þá var heldur aldrei
ráð fyrir gert að þeir skemmtu
umræddan föstudag, hvorki
klukkan 18 né á öðrum tíma.
Föstudaginn 2. sept. var tízku-
sýning klukkan 20.45 og var það
annar tveggja daga, er aðeins var
eitt atriði á tízkusýningar- og
skemmtipalli.
Þá 17 daga er sýningin stóð
voru samtals 50 tizkusýningar og
skemmtiatriði- eða að meðaltali 3
atriði á dag.
Það sem kann að hafa valdið
misskilningi er sú staðreynd að
timasetningar tizkusýninga og
skemmtiatriða voru mismunandi
— og skal fúslega viðurkennt að
æskilegast hefði verið að hafa
atriðin á sama tima alla sýningar-
dagana.
Fyrstu 3 daga sýningarinnar
var við tæknileg vandamál i
magnarakerfi að stríða og urðu af
því tafir á flutningi Ríó-triós —
eru þeir sem biðu og urðu fyrir
óþægindum af þeim sökum hér
með beðnir velvirðingar á því.
Hins vegar þurfti ekki að fella
niður neitt atriði sem kynnt og
auglýst hafði verið, svo ekki verð-
ur með réttu sagt að um svik við
sýningargesti sé að ræða — hitt er
aftur á móti leitt til að vita ef
mismunandi tímasetningar hafa
valdið misskilningi — og munu
aðstandendur sýningarinnar
draga nauðsynlegan lærdóm af
því.
Með þökk fyrir birtinguna.
Fyrir hönd sýningarinnar
Heimilið ‘77
Halldór Guðmundsson,
blaðafulltrúi."
# Seinleg
gatnagerð
„Malbikun hefur viða farið
fram á götum Reykjavíkur í sum-
ar þótt mikið sé eftir. Ein er sú
gata sem hefur orðið útundan,
þótt margoft sé búið að segja frá i
blöðum og útvarpi að það eigi að
malbika hana í sumar. Þetta er
Sætúnið, en svo einkennilegt er
það nú, að fyrir mánuði var gjört
klárt undir malbikun frá benzín-
stöð Esso við Kringlumýrarbraut
að Sætúni og olíu sprautað á. Þó
hefur þetta ekki verið klárað og
það eina sem sjá má er að menn
sitja í bílum beggja vegna vegar-
ins heilu dagana. Þeir eru sjálf-
sagt að hugsa um hve gaman það
væri að sjá malbikið renna yfir
veginn. Svona vinnubrögð á ekki
að líða og ég er hræddur um að í
tið Bjarna Benediktssonar hefði
þetta verið tekið fastari tökum.
Borgarstjóra ber að fylgjast með
svona vinnubrögðum og tala um
fyrir þeim er að þessu standa.
Þessi gatnagerð er búin að standa
yfir í 3 ár og er mál til komið að
henni ljúki.
Sendibílstjóri.“
Án efa liggja til þess gildar
ástæður að svo hægt gengur sem
raun ber vitni, en ekki veit Vel-
vakandi betur en unnið sé að
framkvæmdum þarna um þessar
mundir.
0 Uppeldisáhrif
Morgunstundar
barnanna
„Einn afkastamesti barna-
bókahöfundur landsins les þessa
dagana eina sögu sína í útvarp kl.
8 árdegis fyrir börnin. Föstudag
9. sept. s.l. er svo komið, að sögu-
hetjunni hefur borizt hvolpur að
gjöf frá vinkonu i sveitinni. Fram
hefur komið i sögunni að hunda-
hald er bannað í Reykjavík. Barn-
ið ber málið upp við föður sinn
sem svarar: Ég þekki lögreglu-
fulltrúann og trúi því ekki að
hann banni dóttur minni að ala
upp hund ...
Er að undra þó virðing unga
fólksins fyrir lögum og reglum
fari þverrandi?
Löghlýðinn."
Þessir hringdu . . .
% Um kennara
skortinn
Uppalandi:
— Eins og menn muna var
nýlega mikið rætt um kennara-
skort og er reyndar enn, þvi nú
eru skólarnir rétt að hefja starf
og varla er búið að fá alla þá
kennara, sem þarf í þessi störf.
En nú þegar um hægist væri gam-
an að halda þessari umræðu
áfram, og taka þetta nikla vanda-
mál til almennilegrar meðferðar
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pótursson
Á meistaramóti Sovétlýðveldisins
Uzbekistan 1977 kom þesst staða
upp í skák þeirra Múkhins, sem
hafði hvitt og átti leik, og Kans:
27. Hxh5! — gxh5 (38. Dh6+ vofði
hvort eða.var yfir) 28. Dg5+ Kf8
(Eða 28. . .Kh7 29. Dxh5+ Kg7 30.
Dh5+ Kh7 31. Hf3 — Ddl+ 32.
Kf2 — De2+ 33. Kfl — Ddl+ 34.
Rel — Dxf3 35. Rxf3 næst 36.
Rg5) 29. Df6! og svartur gafst
upp, enda er hann mát í næsta
leik.
og afgreiðslu. Okkur, sem sendum
börnin í skóla, þætti fengur að því
að fá að fylgjast með gagnlegri
umræðu um þetta, þvi það snertir
alla landsmenn, en ekki aðeins
kennara.
Sem skýringu á kenn-
araskorti vilja sumir halda fram
lágum launum kennara, lélegri
vinnuaðstöðu og fleiru i þeim dúr,
en ekki skal ég voga mér út i að
útskýra af hverju þessi skortur
er. Heldur vil ég fá fólk til að taka
þátt í frekari umræðu, bæði kenn-
ara og okkur sem eigum börnin i
skólum. Samtök kennara gætu
m.a. staðið fyrir þessum umræð-
um, einnig foreldrafélög, sem
mér skilst að til séu við suma
skóla, svo og hið opinbera sem sér
um að greiða þetta allt saman, þ.e.
með okkar sköttum að sjálfsögðu.
Einkaritaraskólinn
Bókfærsla
fyrir skrifstofufólk og þá sem bókhaldsskyldir eru.
Útskrift reikningá. Sjóðsbók. Færsla viðskiptamannabók-
ar. Sundurliðunarbók. Vinnulaunaskýrslur. Eyðublaða-
form. Bankar. Skattaeyðublöð. Bókhaldslög. Kynning á
lágmarkskröfum til þeirra sem bókhaldsskyldir eru. Tví-
hliða bókfærsla. Tæknilegar aðferðir. Reikningsskil.
Kennsla einu sinni í viku. Þrir tímar í senn. 24 vikur alls.
Mímir
Brautarholti 4 — sími 11109 (kl. 1 —7 e.h.)
Iþróttafélag kvenna
Leikfimi hefst mánudag-
inn 26. sept í Austur-
bæjarskóla.
Rytmisk afslöppun og
þjálfunarleikfimi. Kennt
verður tvisvar í viku
mánudaga og fimmtu-
daga kl. 6.50.
Kennari verður Theó-
dóra Emilsdóttir.
Innritun í símum
14087 og 29056.
HÖFUM OPNAÐ
AÐ REYNIMEL 34
Bjóöum viðskiptavini okkar velkomna
á nýja staðinn
og vekjum athygli á því, að
nú seljum við einnig snyrtivörur í
„Snyrtihorninu”.
snyrtihornið
há rg reiðslustof a
HELGU JÓAKIMS
Reynimel 34, sími 21 732
VINSJELASTA
vasatfilvanH
Vid seljum ekki
ÓDÝRUSTU VASATÖLVUNA
En ertu adeins ad leita ad
því allra ódýrasta?
Er ekki rétt ad athuga vel
hvad er í bodi?
VIO BJÓÐUM:
ÖRYGGI
eins árs ábyrgd
ÞJÖNUSTIJ
stærsta skriftvélaverkstædi
landsins
ESSHÁyi'
kr. 6.200
VARAHLUTI
fullkominn varahlutalager
YIDGERDIR
sérmenntada menn í vidgerdum
elektrónískra reiknivéla
VERÐ frá Kr. 5.000
Kannski verdid sé hagstædast hjá okkur
þegar allt er tekid med í reikninginn
SKRIFSTIFUVELAR H.F.
V/
Sími 20560