Morgunblaðið - 15.09.1977, Síða 40
u <;i.ysin<;asiminn er:
22480
Jíloreuntlnöiö
fíMHWWaííHÍÍi*
au(;i,Vsin(;asíminn er:
22480
JHoit0tmiíl«tiií>
FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1977
„Allt að 84% hærra
verð fyrir milli-
þorsk í Færeyjum”
segir Oskar Vigfússon for-
seti Sjómannasambands Islands
Þær voru hýrar telpurnar, sem fundu hina miklu fjárupphæð, þegar ljósm. Mbl., Kristinn Ólafsson,
smellti þessari mynd af þeim á heimili þeirra I gær, en hér sitja þær með föður slnum, Olgeiri
Jóhannssyni. Frá vinstri eru Olga Hrönn, Gyða Björg, Þórhildur Tr og Sigrfður Birna.
,,ÉG VARÐ mjög skelkaður
þegar ég uppgötvaði að ég hafði
týnt veskinu, þvi í því voru
rniklir peningar. Ég hringdi
strax á lögreglustöðina og mér
létti mikið þegar sagt var þar að
veskið væri fundið og komið
þangað. Mikið er ég þakklátur
stúlkunum sem fundu veskið“.
Þannig mælti Öfeigur Guð-
björn Jóhannesson frá Horna-
firði í viðtali við Morgunblaðið
í gærkvöldi, en Öfeigur varð
fyrir því óláni að tapa veski
sinu með mikilli fjárhæð í, 560
Litlar telpur fundu 560
þúsund kr. á gangstétt
— þakklátur stúlkunum fyrir
fundinn sagði eigandinn
þúsund krónum, síðdegis í
gær.
Ófeigur varð peningatapans
var um kl. 18 í gær er hann kom
inn á bílasölu hér í borg og
hugðist kaupa bíl. Lét hann
þegar vita um tapið á Lögreglu-
stöðina, en þar var honum tjáð
að peningarnir væru komnir,
Framhald á bls. 22.
Mikil aukning hvera-
virkni í Bjarnarflagi
—Leirgos hefur verið í Leirhnúk frá því á sunnudag
„ÞAÐ liggur ljóst fyrir sam-
kvæmt staðreyndum sem við höf-
um aflað okkur um fiskverð frá
Færeyjum að samanburður sá á
fiskverði í Færeyjum og á tslandi
sem SH birti f Mnrgunblaðinu
fyrir skömmu er óraunhæfur og
stenzt ekki“, sagði Óskar Vigfús-
son, forseti Sjómannasambands
tslands, í samtali við Morgunblað-
ið í gærkvöjdi. „Það var m.a. sagt
að fiskverð á tslandi væri allt að
43% hærra en fiskverð í Færeyj-
um, en staðreyndin er hins vegar
sú að t.d. miðað við millistærð af
þorski sem er stærstur hluti
þorskafla tslendinga, þá er fisk-
verðið fyrir þann afla allt að 84%
hærri f Færeyjum en á tslandi og
segir það mikla sögu.“
Þá sagði Öskar að það væri
fáránlegt í slikum samanburði að
greinargerð SH miðaði annars
vegar við smáþorsk sem ekki er
leyfilegt að landa á Islandi og
hins vegar stórþorsk sem ekki er
Útvarpsstjóri:
Svart-hvítu
tækin óleyst
vandamál
AFNOTAGJÖLD vegna sjónvarps
eru bundin ákveðnum tækjum.
Þetta kerfi hefur í för með sér að
um leið og litaviðtækjum fjölgar
fjölgar jafnframt svart-hvítum
tækjum sem innsigluð verða, þar
sem menn telja sér ekki hag f því
að greiða tvöfalt afnotagjald.
Fjöldi innsiglaðra tækja f land-
inu af þessum sökum mun vera
orðinn um 3 þúsund, enda er end-
ursala tækjanna erfiðleikum
hundin, vegna þess að flestallir,
sem eru að fá sér sjónvarpsvið-
tæki, fá sér littæki.
Andrés Björnsson útvarpsstjóri
var í gær spurður um þetta mál,
en tæknilegur möguleiki er að
Framhald á bls. 21.
Laxárvirkjun:
TALSVERÐ óvissa ríkir nú um
það, hve mikil orka fæst úr gufu-
aflstöðinni við Bjarnarflag.
llreinsun stöðvarinnar lýkur nú í
dag eða á morgun, en síðan er
búið að endurvinna eina holu við
Kröflu og verið er að endurvinna
aðra. Er enn ekki Ijóst, hvað þess-
ar holur gefa og hvort þær muni
brúa það bil, sem tapast ef Bjarn-
arflagsstöðin kemst ekki f full
afköst, en hún gaf í fyrra 3 mega-
wött. Knútur Ottersted, fram-
kvæmdastjóri Laxárvirkjunar,
sagði í samtali við Mbl. f gær, að
allt útlit væri fyrir að næstu tveir
mánuðir yrðu erfiðir f raforku-
málum Laxárveitusvæðisins, en f
desember kæmi svo í gagnið svo-
nema hluti af heildar þorskaflan-
um á meðan milliþorskurinn er
um 60% alls aflans.
Óskar kvað sama hvernig litið
væri á málið, fiskverð í Færeyjum
væri mun hagstæðara til sjó-
manna þar en það fiskverð sem
íslenzkir sjómenn fá greitt fyrir
sinn afla. Sjá nánar viðtal við
Óskar Vigfússon á bls. 18 og töflu
yfir gildandi fiskverð í Færeyj-
um.
HM unglinga í skák:
Jón efstur og
auk þess með
heldur hag-
stæða biðskák
i---------------------□
Sjá nánar á hls 20
□----------------------□
JÓN L. Arnason heldur ennþá
forystunni í heimsmeistara-
móti unglinga f skák f Canges f
Frakklandi. Jón hefur 514
vinning og biðskák þegar 7
umferðum er lokið Kasparov
frá Sovétríkjunum hefur 514
vinning og Negulescu frá
Rúmenfu hefur 5 vinninga og
biðskák. Jón mætir Kasparov í
dag.
1 gærmorgun tefldi Jón bið-
skákína við Þjóðverjann
Kappe úr 6. umferð og mjög
óvænt tókst Jóni að snúa nán-
ast töpuðu tafli upp í ævintýra-
lega vinningsskák. Er hún birt
á bls 20. 1 7. umferð tefldi Jón
við Negulescu og fór skákin í
bið og hefur Jón heldur betra
tafl að sögn Margeirs Péturs-
sonar fréttamanns Mbl.
Jón hefur nú unnið fimm
skákir í röð. Fimm af sex síð-
ustu skákum hans fóru í bið og
er Jón orðinn mjög þreyttur.
Hins vegar ætlar hann að berj-
ast til þrautar og takmarkið er
að verða heimsmeistari ungl-
inga í skák. Mótið er alls 11
umferðir.
kölluð byggðalína og ætti erfið-
leikunum þá að linna.
Ef Bjarnarflagsstöðin verður
óstarfhæf, höfum við aðeins vatn-
ið og vararafstöðvarnar hér á
Akureyri — sagði Knútur i sam-
tali við Mbl. Knútur kvað slæmt
að missa Bjarnarflagsstöðina, ef
þetta ástand yrði varanlegt. Tæki-
færið hefur verið notað' nú til
þess að hreinsa Bjarnarflagsstöð-
ina, en hún verður tilbúin til
reksturs í dag eða á morgun. Allt
er þó óvist með gufu fyrir stöðina,
þar sem aðeins ein hola er virk og
í gangi eins og er. Hins vegar hafa
verið í Bjarnarflagi 5 virkar hol-
ur, sem bæði Kísiliðjan og gufu-
aflstöðin hafa notað. Þessi eina
UNDANFARNA daga hafa breyt-
ingar orðið á háhitasvæðinu við
Bjarnarflag og hefur hveravirkni
auki/.t talsvert og var orðin nokk-
uð mikil í gær. Samfara þessum
breytingum á Bjarnarflagssvæð-
inu hefur undanfarna tvo daga
verið leir- og gufugos i Leirknúk.
t gær ágerðist mjög tfðni smá-
skjálfta á svæðinu og landris hef-
ur lítið sem ekkert verið frá því
er jarðeldurinn slokknaði norðan
við Leirhnúk. Páll Einarsson
hola, sem nú er virk, er í notkun
fyrir Kísiliðjuna og er varla fuil-
nægjandi fyrir hana.
Knútur Ottersted sagði að búið
væri að hreinsa eina holu við
Kröflu og óvíst væri, hvort unnt
yrði að fá nokkur megawött út úr
Kröfluvirkjun í vetur. Þessi
hreinsaða hola hefur enn ekki
verið látin blása og er því ekki
vitað hvað hún gefur mikið. Þá er
verið að hreinsa aðra holu á
Kröflusvæðinu. Knútur sagði þó
að menn hefðu ákveðnar vonir
bundnar við þessar holur.
Ein holanna í Bjarnarflagi var
lokuð, þegar jarðhræringarnar
urðu í Mývatnssveit og er ókann-
Framhald á bls. 2?
jarðeðlisfræðingur sagði f gær að
útilokað væri að segja hvort þess-
ar breytingar væru fyrirboði ein
hvers, en eftir jarðeldinn hagai
Kartöflur:
5 kílóa-
pokinn
lækkar um
128 krónur
NVTT verð á kartöflum hefur
verið ákveðið og lækkar verð á
þeim í fimmkflóapokum um
tæp 16% frá þvf verði, sem
nýju fslenzku kartöflurnar
hafa verið seldar á að undan-
förnu. Hvert kfló af kartöflum
f fyrsta verðflokki kostar f
smásölu, pakkað f fimm kflóa
poka, 136,40 krónur og fimm-
kflóa pokinn kostar 682 krón-
ur. Af annars flokks kartöflum
kostar fimm kflóa pokinn 556
krónur. Samkvæmt haustverð-
inu, sem gilt hefur að undan-
förnu, kostaði hver fimmkflóa
poki af kartöflum 810 krónur.
Framleiðendur fá sam-
kvæmt þessu nýja verði 95
krónur fyrir hvert kiló af kart-
öflum í fyrsta verðflokki og 76
krónur fyrir annan verðflokk-
inn, Nemur hækkun á verðinu
Framhald á bis. 21.
svæðið sér nokkuð öðru vfsi en
það hefur áður gert milli um-
brota.
Páll sagði, að þessar breytingar
hefðu hafizt fyrir nokkrum dög-
um og hefði hveravirkni í Bjarn-
arfiagi aukizt stig af stigi en hann
kvað nokkuð erfitt fyrir menn að
fylgjast með svæðinu, þar sem
lítið sæist fyrir gufu. Því væri
ekki unnt að mæla riákvæmlega
hve breytingin væri mikil. Land-
Framhald á bls. 22.
Tapgegn
Svíum
ISLENZKA skáksveitin tapaði
í gær fyrir þeirri sænsku í 6-
landa keppninni í skák, sem
fram fer f Glticksburg f Vestur-
Þýzkalandi.
Svíar höfðu hlotið 314 vinn-
ing, islendingar 114 vinning en
skák Ingvars Asmundssonar
fór í bið og hefur Ingvar lakara
tafl. Guðmundur Sigurjónsson
vann sína skák á 1. borði, Helgi
Ólafsson gerði jafntefli en Ingi
R. Jóhannsson, Ólöf Þráinsdótt-
ir og Jónas P. Erlingsson töp-
uðu sinum skákum.
Svíar hafa tveggja vinninga
forskot í keppninni og aðeins
stórsigur gegn Dönum I siðustu
umferðinni í dag gefur íslenzku
sveitinni von um sigur. Sjá nán-
ar á bls 21
Búast má við raforkuerfið-
leikum næstu tvo mánuðina