Morgunblaðið - 12.01.1978, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. JANUAR 1978
Lítil eftirspum enn
eftir loðnuafurðum
LtTIL hreyfing er enn komin á
sölumál loðnuafurða, að þvf er
Gunnar Petersen hjá Bernharð
Petersen og co. sagði f samtali við
Morgunblaðið f gær. Kvaðst
Gunnar ekki hafa haft fregnir af
neinum fyrirframsölum héðan
undanfarið.
Hvað snerti verðið á erlendum
markaði sagði Gunnar, að hann
vissi til þess að í Danmörku hefði
lýsi tilsvarandi loðnulýsi verið
selt á 410—419 dollara. Hvað
Grímsey:
Hver íbúi
fer 18 sinn-
umáárium
flugvöllinn
Grfmsey. 11. janúar
MJÖG rysjótt tið hefur verið
hér i vetur, ýmist stormur,
frost eða þýða. Þá þykir okkur
rétt að geta þess vegna frétta
frá Vopnafirði fyrr í vetur um
að hver íbúi færi að meðaltali
þrisvar sinnum um flugvellinn
hjá þeim á ári, að hjá okkur er
þessi tala mun hærri eða sem
svarar til þess að hver íbúi
Grímseyjar fari 18 sinnum um
flugvöllinn á ári hverju, en
þrátt fyrir þessa miklu tfðni
fáum við ekkert fjármagn til
að gera öryggisaðstöðuna á
flugvellinum þolanlega.
Heilsufar hefur verið mjög
gott hjá okkur og jól og áramót
gengu mjög vel fyrir sig með
því, að mikill dansleikur var
fimmtán mínútur yfir tólf á
gamlárskvöld og dansað fram á
nótt.
Að lokum má geta þess að
hér er mjög snjólétt og allir
vegir færir. Alfreð.
— Gatnagerð-
argjöld
Framhald af bls. 2
baggi. Ef þau t.d vilja stækka við
sig kemur þetta mjög illa niður á
þeim. Gjaldið er trúlega um eitt
þúsund krónur á rúmmetra í húsi
og getur því orðið allt að 10%
byggingarkostnaðar. Allir sem
gatnagerðargjöld greiða bera sig
illa og kvarta undan þeim. Ekki
er hægt að leggja þau alveg niður,
en verði þau aftur á móti tekin í
formi lóðarleigu þá verða þau
ekki eins tilfinnanleg fyrir at-
vinnureksturinn. Þannig dreifast
þessar greiðslur á miklu lengri
tíma og standa ekki í vegi fyrir
byggingum og stækkun fyrir-
tækja.“
mjölið áhrærði mætti ætla að
unnt væri að selja lítið magn i
einu á um 7.15 dollara hverja
einingu en sennilega væri verðið
lægra ef um meira væri að ræða. 1
fyrra við upphaf vertíðar hefði
aðalsamningurinn verið við Pól-
verja og þar verið samið um
7.15—7.19 dollara, þannig að
verðið nú væri heldur lakara.
Hins vegar væri enn sem komið
er sáralitil eftirspurn eftir mjöli á
venjulegum mörkuðum okkar, og
því erfitt að meta horfurnar.
— 3 skipstjórar
á fund for-
sætisráðherra
Framhald af bls. 36.
sem var ákveðin með atkvæðum
kaupenda og oddamanns eins og
fram hefur komið, en ekkert
hefði stoðað. Sögðu þeir ennfrem-
ur, að ósennilegt væri að unnt
yrði að breyta þessari verðákvörð-
un þar sem hún væri bundin lög-
um þar til hún rynni úr gildi þann
15. febrúar nk.
Það kom fram hjá fnönnum á
fundinum, að þeim fannst furðu-
legt að afkoma verksmiðjanna
hefði ekki batnað meira á síðasta
ári en tölur Þjóðhagsstofnunar
sýna, miðað við það, að hráefni til
þeirra jókst um helming.
Það kom einnig mjög til um-
ræðu á fundinum að senda full-
trúa sjómanna og útgerðarmanna
til Færeyja og jafnvei víðar til að
kynna sér rekstur fiskimjölsverk-
smiðja og m.a. var margrætt að
verksmiðjan í Fuglafirði greiddi
nú krónur 15.29 á hvert loðnukíló
á sama tíma og loðnuverð á ís-
landi væri 12,90 þegar allt væri
tekið með eins og útflutnings-
gjöld og fleira. Sögðu sjómenn að
þeir myndu ekki beygja sig fyrr
en leiðrétting á þessu hefði feng-
izt.
A fundinum kom fram, að öll
stéttarfélög sjómanna styðja
heilshugar, að bræðsiuskipið
Norglobal komi hingað til lands i
vetur og töldu menn þau mótmæli
sem fram hefðu komið gegn leigu
skipsins órökstudd. Voru menn
beðnir að greiða atkvæði með eða
móti leigu á skipinu. Allir réttu
upp hönd til samþykktar utan
tveir sem voru á móti. Eftirfar-
andi tillaga var samþykkt á
fundinum f Nýja-biói: „Fundur
loðnuveiðimanna haldinn 4 Nýja-
bíói á Akureyri 11. janúar 1978
samþykkir að kjósa þriggja
manna nefnd til að fara á fund
forsætisráðherra á morgun til að
fá svar við því, hvort hægt sé að fá
endurskoðun á loðnuverði þvi
sem auglýst var 10. janúar s.l.
Loðnuveiðisjómenn munu ekki
fara út til veiða fyrr en þessi
nefnd kemur til baka og hefur
skýrt svör þau er hún kann að fá
frá forsætisráðherra á fundi hér á
Akureyri. Það verður síðan að
taka afstöðu um framhald þessa
máls.“
Fundurinn í Nýja-bíói hófst
klukkan 16 í gær og yfirfylltist
húsið strax, þannig að fjöldi
manna stóð í göngum. Umræður
voru mjög fjörugar allt til klukk-
an 19 að gert var hlé til klukkan
20, en áður en fundarhlé var gert
var kosin sérstök sjö manna
nefnd til að leggja fram ákveðna
tillögu er fundur hæfist að nýju
klukkan 20. Það var þessi nefnd
sem lagði til að kosnir yrðu full-
trúar sjómanna til að fara á fund
forsætisráðherra. Fundinum lauk
síðan um klukkan 20.30. Fundar-
stjóri á fundinum i gær voru þeir
Jónas Þorsteinsson og Guðjón
Jónsson og fundarritarar þeir
Gunnar Arason og Baldvin
Þorsteinsson.
— Guðmundur
Skaftason
Framhald af bls. 2
anum til stuðnings kæru bank-
ans á hendur fyrrverandi for-
stöðumanni ábyrgðadeildar.
Þessi gögn hefur endurskoð-
unardeild bankans unnið fyrir
Rannsóknarlögregluna að
hennar fyrirsögn og nú hefur
Ölafur Nilsson endurskoðandi
tekið við umsjón þessarar
vinnu innan bankans, eins og
fram hefur komið í Mbl. Ólafur
var tilnefndur til þessa verk-
efnis af Hallvarði Einvarðssyni
eftir að ósk hafði komið um það
frá bankaráði og bankastjórn
Landsbankans ð hann tilnefndi
óháðan löggiltan endurskoð-
anda til þess að hafa umsjón
með rannsókninni innan bank-
ans til þess að taka af allan vafa
um, að rétt væri að henni staðið
af hálfu bankans.
Bæði Guðmundur Skaftason
og Ólafur Nilsson hafa mikla
reynslu af bókhaldsstörfum og
athugunum á bókhaldi. Guð-
mundur hefur bæði lokið við-
skipta- og lögfræðiprófi frá Há-
skóla Islands og hann er löggilt-
ur endurskoðandi. Hann hefur
gegnt mörgum trúnaðarstörf-
um og mun m.a. hafa verið um
árabil ráðunautur ríkissaksókn-
araembættisins í bókhaldsmál-
um. Guðmundur gegndi
embætti skattrannsóknarstjóra
á árunum 1964—‘67 en Ólafur
tók við þvi embætti af Guð-
mundi og gegndi því til ársins
1975. Ólafur er viðskiptafræð-
ingur að mennt og iöggiltur
endurskoðandi.
Loks er þess að geta, að nokk-
ur fyrirtæki hafa lígt fram
gögn vegna málsins að ósk og
eftir fyrirsögn Rannsóknarlög-
reglu ríkisins.
— Ritstjóri
Framhald af bls. 17
miðnætti þar sem biskupinn
Manuel Salazar Mendosa flutti út-
fararræðu. Lík hins 53 ára gamla
ritstjóra, sem hæfður var 22 skot-
um f andlit, háls, bringu og hand-
leggi, var flutt I höfuðstöðvar
andstæðinga Somozastjórnarinn-
ar og var síðan flutt til blaðsins,
sem hann ritstýrði, La Prensa,
þar sem líkið lá á viðhafnarbörum
áður en það var aftur flutt til
heimilis hans i gærdag. Fréttir
herma að syrgjendur standí fyrir
utan hús fjölskyldu hans og muni
gera svo þar til jarðarförin fer
frarp á fimmtudag. Heimildir
segja að jarðarförin verði sú
viðhafnarmesta sem farið hefur
framlengi.
Þegar lik ritstjórans var flutt
frá spítalanum til heimilis hans á
þriðjudag voru í fremstu röð
syrgjenda 50 blaðasölustrákar frá
La Prensa.
Fremstu blaðamenn Mið-
Ameríku hafa lýst óhugnaði sín-
um yfir morðinu á ritstjóranum.
Utanríkisráðuneytið í Washing-
ton sagði að stjórn Carters mundi
ekki láta frá sér yfirlýsingu
varðandi morðið fyrr en meiri
upplýsingar fengjust.
Vitni segja að bifreið með
þremur mönnum hafi króað bif-
reið ritstjórans af á þriðjudag og
hafið skothrfð á hann.
— Barátta gegn
reykingum
Framhald af bls. 1
safnað í fjórtán ár,“ sagði
Califano. „Reykingar eyði-
leggja heilsuna. Reykingar
drepa.“
Þessi herferð er mjög víðtæk
eins og Califano greindi og frá,
að hert verður á opinberum
aðgerðum gegn reykingum, tek-
ið verður til athugunar að
hvetja fólk til að hætta reyking-
um með aðgerðum í skattamál-
um og auknar verða rannsóknir
á tengslum milli reykinga og
sjúkdóma.
— Iðngarðar
í Breiðholt?
Framhald af bls. 2
verkfræðing til að fræðast frekar
um þetta mál. Hann sagði:
— Hugmyndin er að iðngarðar
rísi á svæði fyrir norðan
Krummahóla í Breiðholti III. Til
er skipulag að iðnaðarsvæði þar,
eftir á þó að koma í ljós hvort það
skipulag henti iðngörðum. Rætt
er um að allt að ár taki að undir-
búa framkvæmdir í þessu máli.
Þannig verður rætt við samtök
iðnaðarins um þessi mál áður en
byggingarframkvæmdir verða
hafnar. Búast má við miklu sam-
starfi við samtök iðnaðarins í
þessum efnum, enda hafa þeir
sjálfsagt ákveðnar hugmyndir um
hvernig að þeim skuli staðið
o.s.frv.
Hugmyndin er að iðngarðar
verði sjálfstætt fyrirtæki sem
leigi út húsnæði til iðnaðar. Ekk-
ert hefur þó á þessu stigi málsins
verið ákveðið um hvort borgin
fjármagni þessar framkvæmdir
eða hvernig þær verða fjármagn-
aðar. Þá á t.d. eftir að athuga
hvort þessar framkvæmdir séu
iðnaði, sérstaklega nýiðnaði, hvati
eða ekki.
— Gaullistar
Framhald af bls. 1
reyna ð vega gegn flokki gaullista
víðs vegar um Frakkland. Hann
lét þess þó getið að flokkurinn
mundu styðja samstarfsflokkana
í annarri umferð kosninganna,
þegar kosið verður milli þeirra
tveggja frambjóðenda í hverju
kjördæmi sem flest atkvæði hafa
fengið I fyrri umferðinni. Þessi
ákvörðun gaullista mun hafa það
í för með sér að franskir kjós-
endur munu geta valið um fram-
bjóðendur a.m.k. fjögurra flokka
I fyrri umferð kosninganna, þ.e.
frambjóðanda gaullista, annarra
stjórnarflokka, sósfalista og
kommúnista, en bandalag tveggja
síðastnefndu flokkanna er einnig
farið út um þúfur.
— Víetnam
Framhald af bls. 1
unum í New York í dag þar sem
segir að tvær herdeildir
Kambódíumanna séu enn á viet-
nömsku landsvæði og að aðgerðir
Víetnama séu sjálfsvörn. Sendi-
herra landsins í Hollandi skoraði í
dag á allar vinveittar þjóðir að
beita áhrifum sfnum og reyna að
fá stjórnir landanna tveggja til að
setjast að samningaborði. Víet-
namar hafa æ ofan í æ hvatt til
viðræðna en Kambódíumenn sagt
að útilokað sé að nokkrar viðræð-
ur fari fram fyrr en víetnamskt
herlið sé á brott frá Kambódíu.
Vfetnam og Thailand hafa nú
gert með sér loftferðasamning,
sem meðal annars heimilar flug-
félögum landanna að lenda hvoru
f annars landi. Einnig var samið
um viðskipti milli landanna, en
aðstoðarforsætis- og utanrfkisráð-
herra Víetnams, Nguyen Duy
Trinh, er nú í Thailandi til að
semja um þessi mál. Löndin tvö
tóku upp stjórnmálasamband f
ágúst sl. og er búizt við að þau
muni skiptast á sendiherrum
fljótlega, en andað hefur köldu í
samskiptum þessara tveggja
stærstu ríkja í Suðaustur-Asíu
þar til nú nýlega.
— HungurverkfaU
Framhald af bls. 17
við réttarhöldin í október s.l„ sem
voru þau mestu gegn andófs-
mönnum frá því að mannréttinda-
yfirlýsingin 1977 var undirrituð
fyrir ári síðan.
Hinir þrir ákærðu, sem allir
undirrituðu mannréttindayfirlýs-
inguna, játuðu að hafa reynt að
smygla andófsgreinum til vest-
rænna þjóða en neituðu að hér
væri um undirróður gegn ríkis-
stjórninni að ræða.
Stór hópur þeirra 930 manna,
sem undirrituðu mannréttinda-
yfirlýsinguna, mun fara í hungur-
verkfall á morgun samtímis því er
hæstiréttur fjallar um áfrýjun-
ina.
Lederer og Ornest voru dæmdir
til þriggja ára fangavistar en
andófsmennirnir Pavlicek og
Havel fengu skilorðsbundinn
dóm.
S.l. föstudag stytti hæstiréttur
þriggja og hálfs árs dóm andófs-
mannsins Vladimir Lastuvka um
12 mánuðu.
— Tillögur
borgarstjóra
Framhald af bls. 3.
lega upp til langframa, og með áhrifum
á skipulag svæðanna geta aðilar nýtt
þá tækni betur og byggt ódýrari húsa-
gerðir út frá henni.
Guðmundur J. Guðmundsson
form. Verkamannasambands íslands
og varaformaSur Verkamannafélags
ins Dagsbrúnar: í heild sinni eru til-
lögur borgarstjóra um stefnuskrá í at-
vinnumálum tvimælalaust til bóta og
fagna ég þeim. Mér skilst. að yfirleitt
séu allar tillögurnar til bóta og sumar
til verulegra bóta. Þó er ekki þar með
sagt að ég vildi ekki við þær bæta eða
einhverju breyta.
Verkamenn hafa átt þess kost að tjá
sig um þessi mál með þyi að eiga
fulltrúa í viðræðunefnd um þessi mál,
en sú nefnd var undir forystu borgar-
stjóra. Umræður í þessari nefnd voru
góðar og er það ánægjulegt og til
stórra bóta að verkamenn skuli hafa
verið beðnir um að taka þátt i að móta
tillögur um aðgerðir i atvinnumálum.
— Sovétmenn
Framhald af bls. 16
drægjust á langinn. Sagði
Pravda að bardagarnir hefðu
valdið áhyggjum öllum þeim,
sem um langa hríð hefðu haft
samúð með hetjulegri frelsis-
baráttu þjóðanna í Indókína
gegn ásókn heimsvaldasinna,
eins og það var orðað, um leið
og tekið var undir kröfu
stjórnarinnar í Hanoi um að
Kambódíumenn settust að
samningaborði hið fyrsta.
(Fréttaskýring
frá Reuter).
— Indira
Framhald af bls. 16
Indira var kvödd fyrir nefndina
en vitnaleiðslur hófust í septem-
ber sl. Nefndin skipaði Indiru sl.
þriðjudag að útskýra frekar yfir-
lýsinguna um neyðarástandslög-
in, sem gengu i gildi 25. júní 1975,
og handtökurnar sem fylgdu I
kjölfar þeirra.
Frú Gandhi neitaði að útskýra
nokkuð, þar sem hún væri bundin
þagnareiði samkvæmt stjórnar-
skránni.
Þegar Indira gekk út úr hinni
rammbyggðu byggingu voru I
fylgd með henni sonur hennar,
Sanjay, ásamt öðrum fjölskyldu-
méðlimum og beið þeirra lítill
hópur stuðningsmanna.
Fyrirlestur um stjórnmál og
stjórnarskrá Bandaríkjanna
PR0FESSOR Charles L. Black,
Jr., frá Yale-háskólanum í
Connecticut f Bandarfkjunum
flytur opinberan fyrirlestur f
boði lagadeildar Háskóla Islands
föstudaginn 13. janúar nk. Fyrir-
Sænsk dagskrá í
Norræna Húsinu
NÆSTKOMANDI sunnudags
kvöld verður f Norræna húsinu
sænsk dagskrá, en sænski leikar-
inn Ernst-Hugo Járegárd verður
gestur Norræna hússins.
I frétt frá Norræna húsinu
segir að Járegárd sé einn af
fremstu leikurum Svía, hefur
starfað lengi við Dramaten í
Stokkhólmi og leikið í sjónvarpi
og kvikmyndum. Hefur hann m.a.
leikið í leikriti Enquists, Nótt ást-
meyjanna, og hlaut mikið lof
gagnrýnenda og áhorfenda, segir
I frétt Norræna hússins.
Dagskrá Járegárd hefst kl.
21.00 á sunnudagskvöldið.
lesturinn, em nefnist „Politics
and the Constitutron in America
Today“, verður haldinn kl. 11.00 f
stofu 101 I Lögbergi, húsi laga-
deildar.
Prófessor Charles L. Black, Jr„
kemur hingað til lands á eigin
vegum. Auk ofangreinds fyrir-
lesturs heldur hann erindi um
bandarískan sjórétt á fundi Lög-
fræðingafélags íslands fimmtu-
daginn 12. þ.m. kl. 20.30. Verður
erindið flutt á sama stað og há-
skólafyrirlesturinn.
(Frétt frá Háskóla íslands)
Skotbardagi í
Baskahéraðum
Famplona, 11. janúar. Reuter.
TVEIR meintir hryðjuverka-
menn Baska og lögregluforingi
biðu bana í skotbardaga f
Pamplona á Norður-Spáni f dag.
Nokkrir særðust f bardaganum
sem hófst þegar lögreglumenn
fundu felustað liðsmanna sam-
takanna ETA f verkamannahverfi
horgarinnar og leituðu þar. t leit-
inni fundust sprengiefni, vopn og
skilrlki.
Aður hafði lögreglan handtekið
tvo meinta hryðjuverkamenn og
unga konu og fundið vélbyssu,
tvær skammbyssur og hand-
sprengju í ibúð þeirra.
Lögreglan hefur staðið fyrir
umfangsmiklum aðgerðum gegn
hryðjuverkamönnum síðan á
laugardag þegar til skotbardaga
kom skammt frá Pamplona og
einn meintur hryðjuverkamaður
særðist og var tekinn fastur. Mikil
leit var gerð víða í nótt og nokkrir
voru handteknir.