Morgunblaðið - 22.01.1978, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 22.01.1978, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. JANUAR 1978 Soffía Karls! Hvar hefur hún haldið sig allan þennan tíma? sögðu margir sjón- varpsáhorfendur, sem komnir eru af barnsaldri, þegar Soffía birtist á skjánum í spurninga þætti. Þeir minntust Soffíu í Bláu stjörnunni og ýmiskonar revíum og gamanþáttum. Þeir yngri hafa að vísu oft heyrt hana syngja af plötum „Það er draumur að vera með dáta" og „Ég býð þér upp i dans" í þáttum i útvarpinu, en tengja það lítt við þessa grannvöxnu, kviku og hressi- legu konu. Þetta varð tilefni þess, að undirritaður blaða- maður sat einn góðan veður- dag í stofunni hjá Soffiu á Faxabraut i Keflavík, þar býr hún með manni sinum, Jóni H. Jónssyni, framkvæmda- stjóra hjá Verktökum Suður- nesja, og þar hafa þau alið upp börnin sin tiu. — Það eru orðin 25 ár síðan ég hætli að skemmta. svaraði Soffia fyrstu Soffia og Jón H. með átta af tíu börnum sínum. Standandi frá vinstri: Kristin G. B., Karen, Heba, Dagný Þórunn, Jón H. yngri, Helga Sif og Sólveig. Sitjandi frá vinstri: Ragnheiður Elfa, Soffia, Jón H. og Halldóra Vala. Tvær dætur vantar á myndina. Önnur er i Þýzkalandi og hin býr i Borgarfirði. Andrésson hringdi. Hann hafði séð hana á sviði, og nú vildi hann fá hana i Bláu stjörnuna. — Ég sló til. Þetta var auðvitað gullið tækifæri, segir Soffia. En hvað var Bláa stjarnan? Það voru reviusýningar, sem þeir voru með Har- aldur Á. Sigurðsson, Alfreð Andrés- son, Indriði Waage og Tómas Guð- mundsson. — Þó man ég þetta ekki. segir Soffía. Um leið og ég brenndi brýrnar að baki mér, hætti ég að hugsa um þetta og muna það. En við vorum þrír fastir leikarar þessi 7 ár, sem ég var með, Haraldur, Alfreð og ég. Stundum var Brynjólfur Jóhannesson og einhverjir fleiri. Og iðulega voru fengnir útlendingar til að skemmta spurningunni. — Já, skrúfaði alveg fyrir. Það var samkomulag milli okkar hjónanna, þegar við giftam okkur, að ég færi aldrei upp á svið aftur. Þá gerði ég það, sem ég hefði í raun aldrei átt að gera Ég brenndi öllum textunum, sem ég hafði látið semja fyrir mig. Sumt af þessu voru dýrmætir textar eftir góða höfunda, og mikið safn Ég brenndi þeim og öllum finu kjólunum, sem ég hafði komið mér upp til að koma fram i. — Þetta voru heilmargir textar og höfðu kostað mig mikið. Þá fékk ég 1 50 kr. fyrir kvöldið i Bláu stjörnunni og 500 kr. fyrir að koma fram á skemmtun á kvöldin, en hver texti, sem saminn var fyrir mig, kostaði 500 kr. Og stundum kom fyrir að ég gat ekki notað þá þegar til kom Ég hafði ekki úr miklu að spila, varð að vinna á daginn í búð. Ég man að ég fékk stundum leyfi hjá Innflutningskrifstof- unni fyrir svolitlu af erlendum pening- um og fékk stráka á millilandaskipun- um til að kaupa fyrir mig kjóla, því hér fékkst ekkert Strákarnir voru mjög smekklegir og það gekk allt vel. Text- ana fékk ég úr ýmsum áttum Til dæmis var Loftur Guðmundsson mjög duglegur við að semja. Stundum feng- um við senda texta utan af landi — og þá fyrir ekkert Árni Helgason úr Stykk- ishólmi samdi stundum fyrir okkur ( Bláu stjörnunni, en i henni var ég í 7 ár Alltaf var sett upp nýtt stykki á hverju hausti, sum gengu í 50 skipti i Sjálfstæðishúsinu. Ef séð varð að svo yrði, þurfti ekki að endurnýja fyrir vorið Undirbúningurinn var raunar ekki langur, því oft var verið að skrifa fram á siðustu stundu. — En hvenær byrjaðirðu að syngja? Nú hlær Soffia — Ég byrjaði aldrei að syngja, var aldrei söngkona, svarar hún að bragði. Ég kom til Reykjavíkur frá Akranesi 1 6 ára gömul, fór í Leik- skóla Lárusar Pálssonar. Var þar i þrjú ár. Og nú er rétt að fara aftur i ætt og uppruna Soffíu, að góðum íslenzkum sið. Móðir hennzy var Kristin Guð- mundsdóttir, ættuð úr Dýrafirði og Arnarfirði Faðir hennar var Karl O.J. Björnsson, en stjúpfaðir hennar Björn Jónsson frá Brúarlandi á Skagaströnd. Hún á því rætur viða á landinu. Fór hálfs þriðja árs til afa síns og ömmu á Þingeyri og ári siðar til Skagastrandar Fluttist siðan 10 ára gömul með stjúpa sínum og móður tíl Akraness. — Á Skagaströnd var stunduð leik- list, segir hún. Systkini stjúpa mins voru 14 og bæði afi og börn hans tóku þátt i þvi starfi. Pabbi lék aldrei Ég man að ég lá á maganum, þar sem litið bar á og fylgdist með æfingum. Stjúpi minn og systir hans áttu það til að yrkja hvort til annars, ef þau þurftu að eiga orðastað. Og þá var Ólina amma góð kona. Hún var Ijósmóðir á staðn- um Ég er satt að segja alin upp með svo góðu fólki og átti svo góða æsku, að mér dettur alltaf i hug. þegar heima- haga ber á góma, Ijóðið sem byrjar svona. í heiðardalnum er heimabyggð min, þar hefi ég lifað svo glaðar stund- ir . . . 0 Lukkuhringinn vantaði á frumsýninguna — Eftir að ég kom til Akraness á tíunda ári, heldur Soffia áfram, lét kennslukonan mig í skólaleikritið. Ég man að hún sagði: „Þú ert fædd leik- kona." Þá ákvað ég að verða leikkona. En það skrýtna var, að skólinn lánaði mig í leikritin, sem fullorðna fólkið var að setja upp, ef á krakka þurfti að halda. Liklega hefi ég verið 12 ára gömul. þegar ég varð með i einu slíku leikriti, sem ég held að Slysavarnafé- lagið hafi verið að leika Ég var svo fljót að læra textana að ég kunni öll hlut- verkin. Þá gerðist það, eitt sinn að aðalleikarinn mundi ekki það sem hann átti að segja. Ég stóð á sviðinu og fannst þetta ekki ganga nógu veL svo ég sagði honum upphátt hvað hann ætti að segja Þetta þótti ekki nógu gott, og ég var skömmuð fyrir þetta. Eftir að barnaskóla lauk, fór Soffia i kvöldskóla Um enga aðra menntun var að ræða á Akranesi. En árið eftir, 1943, var stofnaður Gagnfræðaskóli Akraness og hún fór i annan bekk í þann bekk settust þeir, sem höfðu farið að heiman í aðra skóla eða verið i vinnu, og því voru sumir í bekknum miklu eldri en hún. Eftir gagnfræða- próf, hélt Soffía til Reykjavíkur til að verða leikkona. — Til að geta verið i leikskóla Lár- usar Pálssonar, sem var dýrasti leik- skólinn í borginni, fór ég í vist, segir Soffia Ég var í vist hjá Sigurði Ólafs- syni, kolakaupmanni, og Guðrúnu Árnadóttur, sem reyndust mér ákaflega vel, 2eins og beztu foreldrar. Ég hafði 300 kr í kaup á mánuði, en skóla- gjaldið var 1 50 kr. Skólinn stóð síð- degis frá 5 til kl. 7 Þá hljóp ég heim, tók til kvöldmatinn og gekk frá og var komin aftur í skólann kl 8. Þar héldum við svo áfram fram eftir kvöldi. Náði þvi? Já, já, blessuð góða, ég var kvo fljót að hlaupa, að ég var ekki nema fimm mínútur frá Vesturgötu 54 og upp í Þjóðleikhús, þar sem skólinn var til húsa, þó að byggingin væri ekki fullbúin. En þetta var mjög góður skóli og margar greinar kenndar. Til dæmis kenndi okkur Brandur Jónsson tal- kennari, Sif Þórs og siðan Sigrlður Ármanns kenndu dans og ballett. Klemens Jónsson skylmingar, og Har- aldur Adolfsson sminkun og margir fleiri. Og okkur var ætlað að lesa heilmikið af bókmenntum heima hjá konu úti í bæ og sálarfræði utan skól- ans. Ég skil nú ekki hvernig mér datt það í hug með öllu þessu Siðan hefi ég alltaf verið að grúska i sálarfræði, sem hefur reynst mér mjög gagnlegt á lífsleiðinni. — Varstu þá ekki farin að leika? — Jú, við lékum auðvitað ýmis hlutverk hjá Lárusi. Min frumraun var hlutverk i Eftirlitsmanninum. En Lárus misreiknaði sig á mér, eins og hann sagði siðar við mig, átfaði sig ekki á týpunni og ætlaði að gera mig að karakterleikara. Hann lét mig æfa dramatísk hlutverk. Ég man að ég var i hlutverki Anitru í Pétri Gaut, þegar norskir leikar komu hingað í heimsókn, þar á meðal Agnes Mowinkel. Þeim þótti skemmtilegt að sjá hvemig við gerðum þetta. því við létum Anitru koma stökkvandi upp úr kistunni — Mjög skemmtilegt atvik gerðist, þegar ég kom í fyrsta skipi fram i Iðnó, þá sem þjónustustúlka Avdotju i rúss- neska leikritinu „Eftirlitsmanninum". Haraldur Björnsson, virtur leikari. sem maður bar mikla virðingu fyrir, var í aðalhlutverki. Hann var mjög sérkenni- legur maður og bar alltaf hring, sem hann taldi einhvers konar verndargrip. Hann var kominn á sviðið, þegar hann sá allt i einu að hringinn vantaði. Hann kallaði þvi þrumandi raustu: Avdotju. komdu hingað! Svo hvislaði hann að mér, að fara niður i búningsklefann og sækja hringinn i skartgripa-skrýnið Eg gerði það. En þetta var þá ekki rétti hringurinn. — Bölvuð vitleysa er þetta, það er aldrei hægt að treysta þessu andskotans þjónustufólki! þrum- aði Haraldur. Og svo geystist aðalleik- arinn út af sviðinu. til að sækja hring- inn sinn. En við stóðum eftir og biðum Það er alveg hræðilegt að lenda i þessu, þegar maður er að „debútera". Soffia segir að Haraldur hafi verið sér mjög góður. Ef flett er upp i ritinu Leikhúsmál frá þeim tima, má sjá að hann nefnir í leikdómi og segir þar: „Soffia Karlsdóttir er ennþá óskrifað blað. Mig mundi ekki undra þótt ekki yrði þess langt að biða að það blað yrði útskrifað." 0 Var ekki söngkona Eftir að náminu i þessum þriggja ára leiklistarskóla lauk, var ekkert hægt að fá að gera. Soffia tók það til bragðs að halda heim, upp á Akranes. En ekki voru tveir dagar liðnir, þegar Alfreð með okkur. Á bak við man ég eftir Indriða Þorkelssyni, eiginmanni Áróru Halldórsdóttur, Púlla og Jóni Jóns- syni, einum Bakkabræðra I kvikmynd- inni. Ég mætti i Sjálfstæðishúsinu kl. 8 á kvöldin og að sýningu lokinni var dansað til kl. 1. Kostaði 10 kr. inn eftir klukkan 10. — Við lékum mest einþáttunga um menn og málefni, drógum upp „skets- ur", svaraði Soffía, þegar hún var spurð um hlutverk hennar í Bláu stjörnunni. — Nei, ég söng ekki, enda hafði ég aldrei sungið. Ekki einu sinni dottið það i hug. Hafði raunar ekki haft efni á tónlistarnámi. En einn góðan veðurdag komu þeir Haraldur Á. og Alfreð með texta, sem þeir voru búnir að þýða við vinsælt danskt lag. Þeir fengu undirleikaranum Aage Lorange nóturnar og sögðu mér að syngja. Ég varð að gera það. Bragurinn sló i gegn. Þó söng ég lltið í næstu revíum. En þá urðu svo mikil vandræði með erlendan skemmtikraft, konu sem sagðist vera rússnesk og átti að syngja rússnesk lög. að þeir urðu að senda hana til baka i miðju kafi. Ég hafði verið uppi á Akranesi að skemmta og hafði stæit suður-amerisku söngkonuna Carmen Miröndu. sem þá var mjög i tizku. Og það sama kvöld var þessum þætti minum skotið inn i sýninguna i staðinn fyrir rússneska sönginn. Örlygur Sig- urðsson, listmálari, var þá nýkominn frá París. Hann hljóp upp að borð og hrópaði „encore" með bæglsagangi. Lætin voru svo mikil í honum, að hann var að lokum látinn út. Fyrir þetta var hann lengi reiður við mig. En það lagaðist svo vel að hann skreytti bílinn okkar með listaverkum seinna, þegar við Fúsi Halldórs vorum á ferðinni úti á landi með skemmtiatriði. En þarna var ég ákaflega stolt. Listamaður, nýkom- inn frá Parfs, hlaut að vita hvað boðlegt er — Eftir þetta fórum við að skjóta inn í sungnum þáttum. Ég held að sá bezti hafi verið einn, þar sem við sungum saman Haraldur Á. Sigurðs- son, Alfreð Andrésson og Brynjólfur Jóhannesson. Ég var svartklædd og gerð mun eldri en ég var. Bragurinn fjallaði um stjórnmál, og var sunginn undir vögguljóði. Nei, ég veit ekki hvort hann er til. Útvarpið tók töluvert upp á stálþráð, eins og siður var þá. og átti þætti með okkur. En Tage Amen- drup tók upp á plötur þau lög, sem nú eru til. Þá var ég farin að skemmta i kabarettum í Austurbæjarbiói. sem hann var með. Og farin að syngja meira. En aldrei á böllum með hljóm- sveitum. Þegar ég fór út á land með KK-sextettinum, sem var mjög vinsæll, var það til að syngja gamanvísur. Rétt kom fram með hljómsveitinni, meðst til að sýna mig. En söngkona var ég ekki, segir Soffia enn. Hún bætir því við, að hún eigi það mest Pétri Péturssyni útvarpsþul að þakka að plöturnar hennar séu svo mikið spilaðar enn. Hann virðist hafa sérstakt dálæti á þeim. Soffia í hlutverki Avdotju, sem var „stúlka hjá borarstjóra" í leikritinu Eftirlitsmaðurinn eftir Gogol, sem sýnt var hjá Leikfélagi Reykjavíkur. Með henni er Vilhelm Norðfjörð í hlutverki þjónsins. Haraldur Björnsson lék aðalhlutverkið og Soffia segir i þessu viðtali frá skemmtiiegu atviki, sem gerðist i sambandi við Harald.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.