Morgunblaðið - 07.02.1978, Síða 21
Hþróltlrl
„Þetta var svo
sem ágætt"
ÍSFIRÐINGURINN Sigurður Jónsson blandaði sér
öllum á óvart í hóp helztu skfðamanna í heimi er
hann á sunnudaginn varð f 13. sæti f stórsvigskeppni
heimsmeistaramóts skfðafólks í V-Þýzkalandi. Skaut
Sigurður mörgum frægum köppum aftur fyrir sig,
en alls hófu liðlega 100 skíðamenn stórsvigskeppn-
ina. — Þetta var svo sem ágætt, sagði Sigurður
Jónsson er Morgunblaðið hafði samband við hann á
sunnudaginn. Vildi hann ekki gera mikið úr þessu
afreki sínu og hélt fullkomlega eðlilegri ró sinni. *
Sigurður, sem er 18 ára gam-
all, hafði rásnúmer 46 i fyrri
ferðinni, en keyrði þá mjög vel,
auk þess sem mörgum hlekktist
á og urðu að hætta keppni. Eft-
ir fyrri ferðina hafði Sigurður
14. bezta tímann og í seinni
ferðinni var hann ræstur
númer 14. Sagði Sigurður að
allt annað og betra hefði verið
að fara brautina i seinni ferð-
inni, hún hefði verið betri í alla
staði. Náði hann þá að bæta enn
stöðu sína og endaði i 13. sæti
eins og áður sagði.
Fékk Sigurður samanlagðan
tíma 1:45.75, 54:77 i fyrri ferð-
inni og 50.98 í þeirri síðari.
Tími sigurvegarans Ingemars
Stenmark var samanlegt
1:39.54. Tveir aðrir Islendingar
voru meðal keppenda í stórsvig-
inu, þeir Haukur Jóhannsson
og Hafþór Júlíusson. Hlekktist
þeim báðum á í fyrri ferðinni
og voru þar með úr leik.
— Þessi árangur minn núna
er sá bezti sem ég hef nokkurn
tímánn náð á svona stóru móti,
sagði Sigurður á sunnudaginn.
— Eg reiknaði alls ekki með
að þetta gengi svona vel, þar
sem ég er rétt búinn að jafna
mig eftir meiðsli og byrjaði t.d.
ekki að skíða á nýjan leik fyrr
en fyrir einum mánuði. Ég er
/alveg orðin góður af meiðslun-
um, en á ekki að vera kominn í
neina æfingu.
— Þessi árangur gefur mér
töluvert af FlS-punktum, sem
gefa mér betri rásnúmer á mót-
um hér i Evrópu. Þá ætti að
reynast auðveldara að komast
að á stórmótum með þetta sem
vegarnesti. Núna eru framund-
an hjá mér nokkur mót í Sví-
þjóð og Noregi, en síðan aftur
mót hér niðri í Evrópu, sagði
Sigurður að Iokum.
Hákon Ólafsson, formaður
Skfðasambands íslands, var í
sjöunda himni er Morgunblaðið
talaði við hann á sunnudaginn.
— Þetta er frábær árangur hjá
stráknum og vekur örugglega
mikla athygli hjá þeim sem
mest og bezt fylgjast með skíða-
íþróttinni úti i heimi. Það kæmi
mér ekki á óvart þó tilboð um
aðstoð og aðstöðu streymdu til
Sigurðar eftir þessa frammi-
stöðu. Þá gerir þetta okkur hjá
Skiðasambandinu auðveldara
fyrir í samskiptum við erlenda
aðila, sagði Hákon Ólafsson, og
var hinn ánægðasti.
Beinar sjónvarpssendingar
voru i sjónvarpsstöðvum viða í
Evrópu frá keppninni. I Sví-
þjóð var þess sérstaklega getið
er Sigurður hafnaði í 13. sætinu
að hann væri nú í rauninni
sænskur, hann æfði a.m.k. með
sænska landsliðinu. V-þýzka
sjónvariið gat Sigurður líka sér-
staklega og talaði um hann sem
þann skíðamann, sem mest
hefði komið á óvart í þessari
keppni. Þarna væri mikið efni á
ferðinni.
— áij.
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 1977
VLADO Stenzel var hylltur sem konungur að
loknum leik V-Þjóðverja og Sovétmanna I úrslit-
um HM ( handknattleik I Kaupmannahöfn á
sunnudaginn. V-Þjóðverjar unnu leikinn 20:19 og
ætlaði fagnaðarlátum áhorfenda aldrei að linna.
Var Stenzel borinn fram og aftur um gólf hallar-
innar og á höfuð hans var sett kóróna. Þessi
jógóslavneski undramaður handknattleiksins
sagði að úrslitaleiknum loknum að hann hefði
ekki gert ennað en hann hefði lofað og alltaf vitað
að yrði veruleiki í Danmörku, að V-Þjóðverjar
yrðu heimsmeistarar f handknattleik eins og
knattspvrnunni.
1 opnu blaðsins er greint frá sfðustu leikjunum
I HM og þess má geta að sjónvarpið sýnir úrslita-
leikinn klukkan 18.30 í kvöld.
Skrílslæti
í Garðabæ
MÖNNUM hitnaði mjög í hamsi á
lokamínútum leiks Stjörnunnar og
Fylkis í Ásgarði á sunnudagskvöldið
Einn leikmanna Stjörnunnar. Eyjólfur
Bragason, var rekinn af velli i 2 mínút-
ur og honum likaði þessi ákvörðun
dómaranna svo illa. að hann var útilok-
aður frá frekari þátttöku í leiknum fyrir
Ijótan munnsöfnuð
Gekk i stimabraki að koma Eyjólfi til
búningsklefanna og nokkur töf varð á
þvi að leikurinn hæfist, þvi reiðir áhorf-
endur hentu smápeningum inn á leik-
völlinn Þegar flautað var til leiksloka
kom Eyjólfur á þeysispretti út úr bún-
ingsklefanum og gerði aðsúg að öðr-
um dómaranum og sló m a flautuna
úr^munni hans Leikmenn Stjörnunnar
komu aðvifandi og afstýrðu frekari
vandræðum, eins og meðfylgjandi
mynd sýnir
Hins vegar höfðu áhorfendur ekki
sagt sitt siðasta orð, því einhverjir
þeirra htæktu á dómarana. Guðmund
og Þórð Óskarssyni. er þeir gengu til
búningsklefanna Þeir bræður sögðu
eftir leikinn að þeir mundu kæra fram
komu Eyjólfs til aganefndar HSÍ og á
hann í vændum leikbann og einnig
ætluðu þeir að kæra framkomu áhorf-
endanna, sem var vægast sagt ekki til
fyrirmyndar
At'-simamyna
SONJA Hreiðarsdóttir úr Ægi setti
tvö íslandsmet á Norðurlandamóti
unglinga, sem haldið var i Sarpsborg
um helgina. í 200 metra bringusundi
varð hún 6. á tímanum 2:48.92 og i
100 metra baksundi varð hún 7. á
1:12.53. Báðir þessir tímar hennar
eru ný íslandsmet.
Tvö met,
tvö brons
Hugi Harðarson frá Selfossi
hreppti þrenn bronzverðlaun á mót-
inu. Hann varS þriSji i 200 metra
baksundi á 2:23.39 og i 1 500 metra
skriðsundi á 17:31.89, sem er nýtt
drengjamet. Hugi varS fjórði i 400
metra skriðsundi, Sonja varð sjö-
unda i 200 metra fjórsundi og sjötta
i 100 metra bringusundi Guðný
Guðjónsdóttir. Ármanni, varð 7. i
100 metra skriðsundi og 8. i 100
metra baksundi og 200 metra fjór-
sundi.
Keppendur i kvennasundunum
voru 8, 3—6 i piltagreinunum.
Blakmeistarar
ÞESSAR hressilegu Húsavikurstúlkur komu suður til Reykjavikur um
helgina til keppni i íslandsmótinu i blaki. Norður héldu þær aftur á
sunnudag sem islandsmeistarar i greininni að lokinni sigurferð. Hafa
þær ekki tapað leik i vetur og þó mótinu sé ekki lokið getur ekkert lið
náð þeim að stigum. Þjálfari þeirra er Gisli Haraldsson, en meðal
leikmanna Björg Jónasdóttir, fyrrum landsliðskona ii handknattleik,
sem er þriðja frá hægri i aftari röð.