Morgunblaðið - 07.02.1978, Page 31

Morgunblaðið - 07.02.1978, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGURFEBRtJAR 1977 31 „Velad verki staðið hjá Landsvirk jun ’ ’ — segir íslenzkur sérfræðingur hjá AEG-Telefunken „ÉG TEL að mjög vel hafi verið staðið að opnun tiiboða I Hraun- eyjafossvirkjun. Það er fágætt I löndum þar sem ég þekki til að bjóðendum sé gefinn kostur á að sjá hvernig þeirra eigin tilboð standa I samanburði við önnur sem fram koma eða áætlun út- boðshaldara. Aætlun Landsvirkj- unar er, að ég hygg, raunhæf og nákvæm, en það sem fyrst og fremst vekur traust bjóðenda er að hér er heiðarlega að farið og ekki farið f launkofa með neitt,“ sagði Garðar Guðmundsson, raf- magnsverkfræðingur, í viðtali við Mbl. f gær. Garðar er annar af tveimur tslendingum, sem unnu að og settu fram tilboð af hálfu erlendra fyrirtækja er Lands- virkjun opnaði tilboð f rafhluta og vélaútbúnað Hrauneyjafoss- Garðar Guðmundmundsson, ann- ar tveggja lslendinga, er unnu tilboð f Hrauneyjafossvirkjun fyrir v-þýzk fyrirtæki. virkjunar sl. föstudag. Báðir eru tslendingarnir búsettir f Þýzka- landi og starfar Garðar við fyrir- tækið AEG-Telefunken I Fran- furt en hinn Guðmundur Péturs- son við Brown Boveri & Cie AG. Samkvæmt opnberum tölum Landsvirkjunar var AEG- telefunken með annað og þriðja lægsta tilboð f vélar og rafbúnað á eftir sænska fyrirtækinu A.S.E.A. AB. Með 3.228 milljarða lægra tilboð. „Það er gífurieg vinna, sem liggur að baki slíkri tilboðsgerð," sagði Garðar Guðmundsson. „Sem vísbendingu get ég nefnt að þau pappírsgögn, sem ég hafði með- ferðis að utan varðandi verk þetta vega um 109 kíló. Þetta er flókin og margþætt vinna." Hann kvaðst hafa starfað hjá AEG-fyrirtækinu í u.þ.b. 6 ár og á þeim tima m.a. unnið við tilboð í Sigölduvirkjun. „Mitt aðalstarf felst í tilboðsgerð og að fylgja þeim eftir“ sagði hann ,,og hef ég unnið á vegum xrirtækisins um allan heim.“ Hann sagði að sitt stærsta verk- efni fjögur siðastliðin ár hefði verið við risatórt vatnsorkuver i Júgóslavíu — en það ver væri meira að vöxtum en allar virkjan- ir á tslandi samaniagðar. Að- spurður um stærð AEG- Telefunken fyrirtækisins kom fram hjá honum að starfsliðið tel- ur um 173000 manns og er árs- veltan nærri 13 og hálfur miil- jarður þýzkra marka. Bætti hann við að fyrirtækið eyddi á ári hverju um 773 milljónum marka til rannsóknarstarfa. Garðar sagði AEG-Telefunken eina fyrirtækið af þeim 20, sem boð gerðu, er lagt hefði fram fleiri tilboð en eitt. Hins vegar væri oftast venja að tvö fyrirtæki ynnu saman um túrbínur og raf- vélar. Hann sagði að AEG- Telefunken hefði þó sérstöðu að því leyti að það hefði boðið túr- bínur frá fjórum mismunandi fyrirtækjum og væri tilboðið því mjög flókið. „Aðalmarkmiðin, sem við sett- um okkur með þessu tilboði“ sagði Garðar „voru tvö. Annars vegar að hluti Islendinga yrði sem stærstur; að þeir ættu hlut í upp- setningu og flutningi og hins veg- ar að það væri sem lægst“. Sagði hann að ef AEG-Telefunken yrði hlutskarpast, væri ætlunin að ís- lenzk verkfræðiskrifstofa tæki að sér hönnun verksins. Kom einnig fram hjá honum að AEG- Telefunken byði lægst í erlendum gjaldeyri i túrbínu og vélarhluta eða 37.4%. Hann benti hins vegar á að yfirleitt yrði að reikna með erlendum aðilum til að fá lágt tilboð enda væri AEG-Telefunken með eitt hæsta tilboðið í þennan hluta verksins. „Það væri skemmtilegt að vinna eftir is- lenzkri útboðslýsingu" sagði Garðar „og ég tel að hér á landi séu nægir starfskraftar og sér- þekking til að vinna slikt verk“. Þótt munað hefði meira en 250 milljónum á tilboð A.S.E.A. og AEG-Telefunken kvað Garðar Furken ekki fullvfst hverjum verkið yrði dæmt. Röðin gæti allt- af breytzt þar eð ekki hefði enn verið gengið frá samþykkt skil- mála. Hann itrekaði að lokum að það væri afar sjaldgæft að tilboð i slik verk væru gerð opinber jafn skjótt og þau kæmu fram. Vildi t.d. allt of oft bera við i nýríkum löndum þar sem hann þekkti til að hrossakaup og baktjaldamakk væri látið ráða ferðinni. „Hér vita menn nákvæmlega hvar þeir eru í sveit settir og þessi hreinlegu vinnubrögð Landsvirkjunar eru vissulega góðra gjalda verð“ sagði þessi ungi, sænsk-menntaði sér- fræðingur úr önundarfirði að lok- um. Þrátt fyrir itrekaðar tilraunir tókst ekki að ná sambandi við fulltrúa BB&C, Guðmund Péturs- son, í gær. Dýralæknafélag Islands: Yfir dýralæknisem- bættið taki við sauð- fjárveikivörnum VEGNA fréttatilkynning- ar fulltrúa Sauðfjárveiki- varna í sjónvarpinu 31. jan. s.l. þar sem mótmælt er sjónvarpsviðtali við for- mann Dýralæknafélags ís- land, vill stjórn D.í. taka eftirfarandi fram: 1. Varnir gegn smitandi búfjár- sjúkdómum yrðu bæði öruggari og ódýrari, ef yfirdýralæknis- embættið tæki við sauðfjárveiki- vörnum. 2. Blóðprufutaka og skoðun á sauðfé á Snæfellsnesi þessa dagana vegna gruns um garna- veiki þjónar engum tilgangi. Ein- asta leiðin er að bólusetja féð og það hefði átt að vera gert fyrir löngu, enda mikill hluti kindanna bólusettur gegn garnaveiki. 3. Fyllsta ástæða er til að benda fólki á spóluorm i hundum og láta ormahreinsa hundana, auk lög- boðinnar hundahreinsunar, en stjórn D.t. telur að umræða um það mál falli ekki undir sauðfjár- veikivarnir. 4. Stjórn D.l er tilbúin að ræða þessi mál hvar og hvenær sem er og itreka rétt sinn og annarra til frjálsra skoðanaskipta. „Engin samstæð löggjöf fyrir vidskiptabanka” Afgreiðslustaðir innlánsstofnana hátt á annað hundrað Landsbanki Islands: afgreiðsla I aðalnanka. Qlafur Jóhannesson: ÓLAFUR Jóhannesson, ráð- herra bankamála, mælti I gær f efri deild Alþingis fyrir stjórn- arfrumvarpi um viðskipta- banka I eigu rfkisins. Hann boðaði jafnframt frumvarp um hlutafélagabanka og sparisjóði, sem lagt yrði fram innan skamms. Frumvörp þessi næðu til innlánsstofnana, sem haft hefðu 95% heildarinnlána, en auk rfkisbanka, einkabanka og sparisjóða teldust innlánsdeild- ir samvinnufélaga, söfnunar- sjóðir og póstgfróstofa til inn- lánsstofnana, þó þetta frum- varp næði ekki til þeirra. Ráðherrann sagði að heildar- löggjöf um bankastofnanir hefðu vantað hér á landi. Til staðar væru heildarlöggjöf um Seðlabanka Islands frá árinu 1961, en engin samstæð iöggjöf væri fyrir hendi varðandi við- skiptabanka. Þeir störfuðu eft- ir sérstökum lögum, hver og einn, sem bæði „eru ósamstæð ogófullkomin". Um sparisjóði giltu almenn lög frá 1941. Þau vóru fullnægjandi á sínum tíma, sagði ráðherra, en eru nú mjög úrelt orðin. Ráðherra sagði eðlilegt að bankar sættu réttmætri gagn- rýni. Hitt væri engum til góðs aðnýta einstök áföll, þótt alvar- leg væru, til að veikja almanna- traust á bankakerfinu. Tryggja þurfi hins vegar sem beztan rekstur bankastofnana. Þau frumvörp, sem ég hefi minnst á, sagði ráðherra, eru ekki sam- in vegna einstakra atburða í bankamálum, en margt er þó í þeim, sem stuðlar að öryggi og auknu heilbrigði í banka- rekstri. Ráðherra rakti þróun banka- starfsemi í landinu rúma öld aftur í tímann, er sparisjóðir fóru að hasla sér völl í þjóðlíf- inu. I kjölfar þeirra hefði fyrsti bankinn, Landsbankinn, verið opnaður 1886. Sá banki var op- inn tvo tima tvo daga í viku fyrst i stað. Nú eru í landinu 7 viðskiptabankar, fjöldi banka- útibúa og umboðsskrifstofa, 43 sparisjóðir, inniánsdeildir o.fl. Alls munu afgreiðslustaðir inn- lánsstofnana vera hátt á 2. hundrað. E.t.v. hefur vöxtur i bankakerfinu verið um of, en hafa verði í hyggju, að þróun atvinnulifs, sem víðast hafi tek- ið aldir, hafi orðið hér á nokkr- um áratugum. Breyttir þjóðlífs- þættir hafi kallað á aukna þjón- ustu í þessu efni. Ráðherra gat þess að í fram- lögðu frumvarpi væri fallið frá þvi að kveða svo á, að bankar skuli styðja tilteknar atvinnu- greinar. Þessi lögbinding sér- hæfingar er óeðlileg, sagði ráð- herra, og ekki i samræmi við meginreglu öruggs banka- rekstrar. I frumvarpinu er tek- fengju og heimild til að setja almennar reglur um lánveiting- ar bankanna að fnginni umsögn bankastjórnar. Ráðherra vék að III. kafla laganna, sem ætti að stuðla að samstarfi ríkisviðskiptabank- anna, með rekstrarhagkvæmni fyrir augum og eðlilega verka- skiptingu milli þeirra. Hins vegar væru ekki f frumvarpinu ákvæði um sameiningu banka (Búnaðar- og Útvegsbanka) sem mætt hefði andstöðu ein- stakra þingmanna á sinni tíð (frumv. i tíð vinstri stjórnar). Nefnd sú, sem frv. fengi til athugunar, gæti hins vegar hugað nánar að þessu efni, ef ástæði þætti til. Tveir ríkisviðskiptabankar, Landsbankinn og Útvegsbank- inn, hafa heimild til gjaldeyris- verzlunar. Seðlabankinn getur hins vegar veitt öðrum bönkum slíkt leyfi, en þetta frv. tekur ekki afstöðu til þess. Persjónu- lega er ég þeirrar skoðunar, sagði ÓlJó, að Búnaðarbankinn eigi að fá leyfi til gjaldeyris- verzlunar. Frv. setur strangar reglur um rétt bankanna til að eiga fast- eignir, hlutabréf, eignarhluta í öðrum fyrirtækjum. Sett eru nákv. reglur um tryggingar fyrir útlánum. Sama gildir um heildarútlán til eins viðskipta- aðila. Auk þingkjörinna endur- skoðenda er lagt til að starfi að endurskoðun viðkomandi banka löggiltur endurskoðandi sem ráðherra skipar. Þá fjallaði ráðherra um ákvæði frumv. um endurskoðunardeildir bank- anna, endurskoðunarskýrslur, arsreikninga og athugasemdir endurskoðenda. Nokkrar umræður urðu um frumvarpið. Ragnar Arnalds (Abl) taldi það ná skammt mið- að við sams konar frumvarp, sem flutt var á timum vinstri stjórnarinnar. Boðaði hann breytingartill. frá Abl. um sam- einingu Búnaðar- og Útvegs- banka. Jón G. Sólnes (S) vakti athygli á því ákvæði i löggjöf nágrannaþjóða, að bankar og sparisjóðir mættu ekki takast á hendur ábyrgðir nema í sam- ræmi við eigið fé. Nauðsynlegt væri að taka upp hliðstætt laga- ákvæði hér. Hitt væri sér ekki sáluhjálparatriði að bankastarf- semin í landinu væri endilega ríkisrekin. JGS taldi það vel farið ef í kjölfar endurskoðaðr- ar löggjafar um bankastarfsemi i landinu yrði hlutur svæðis- bundinna sparisjóða gerður sem mestur. Einnig mætti huga aó hugsanlegri starfsemi er- lendra bankastofnana hérlend- is, undir eftirliti Seðlabanka Is- lands. ið fram að ríkisviðskiptabönk- um sé einum heimilt að reka viðskiptabankastarfsemi nema að lög ákveði annað. Þetta er framsett til að hamla gegn frek- ari fjölgun banka, en nær þó ekki til lánastofnana, sem starf- andi eru i dag, eftir sérstökum lögum. Búnaðarbankinn, sem nú heyrir stjórnarfarslega und- ir landbúnaðarráðherra, færist til þess ráðherra, er fer með bankamál. Sama verður vænt- anlega um iðnaðarbankann, sem i dag heyrir undir iðnaðar- ráðherra. Stofnlánadeild land- búnaðarins heyrir þó áfram undir ráðuneyti landbúnaðar- mála, sem starfa mun á hlið- stæðan hátt og fiskveiðasjóður, hvað snertir tengsl við viðkom- andi banka. Ólafur Jóhannesson, banka- málaráðherra. Ráðherra vék að því nýmæli i frv. að ráðherra gæti hvenær sem er krafið bankaráð og bankastjórn um yfirlit yfir rekstur og hag ríkisviðskipta- banka. Bankaráð gætu einnig, ef frumvarpið verður samþ., ráðið sérstakan starfsmann, er ynni eingöngu i þess þágu að rekstrareftirliti í stofnuninni. Þetta myndi gera bankaráðin, sem í raun væru þingkjörnar nefndir, virkari. Bankaráðin ■rtl AIÞinGI

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.