Morgunblaðið - 17.02.1978, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 17. FEBRUAR 1978
5
„Leikbrúðuland“ er jafnt fyrir unga sem aldna.
Leikbrúðuland
f er aftur af stað
Lúðrasveitin Svanur leikur
FÝRIRHUGAÐ er að frumsýna
fjóra nýju brúðuleikþætti í
„Leikbrúðulandi" nk. sunnudag,
19. feb. Er þetta 6. árið, sem
„Leikbrúðuland" hefur reglu-
bundnar sýningar á Fríkirkju-
vegi 11, að því er segir í frétt frá
forráðamönnum þess. Jafnframt
eru 10 ár síðan það var stofnað.
1 fréttinni segir að brúðuleik-
hús á Islandi eigi sér ekki langa
sögu, en hafi að undanförnu átt
sívaxandi vinsældum að fagna,
einkum meðal yngstu kynslóðar-
innar. Margt fullorðinna hefur þó
sótt sýningarnar og virðast þeir
ekki skemmta sér síður en yngri
áhorfendurnir. „Vonandi tekst ís-
lenzku brúðuleikhúsi að hasla sér
völl sem leikhús hinna fullorðnu
ekki siður en leikhús barnanna,"
segir í fréttinni.
Allt er á huldu um uppruna
þessarar listgreinar, segir enn-
fremur. Ljóst er þó að hún var
lengi framan af tengd trúariðkun-
um. „Sennilegt er, að vagga henn-
ar sé í Asíu, en þó er ekki víst að
allar tegundirleikbrúða séu þar
upp runnar. Grikkir stunduðu
leikbrúðulistina fyrstir í Evrópu
og þaðan barst hún með Rómverj-
um norður um álfu.“
Fyrsti þátturinn af þeim fjór-
um, er sýndir verða, fjallar um
strák, sem dreymir ferðalag til
Kvennakór
Suðumesja
tíu ára
KVENNAKÓR Suðurnesja var
stofnaður 22. febr. 1968 í Kefla-
vík, af um 40 konum af Suður-
nesjum. Fyrsta stjórnin var skip-
uð þessum konum, form. Jöhanna
Kristinsdóttir, María Bergmann,
Sólveig María Kristinsdóttir, Rósa
Helgadóttir, Kristín María
Waage.
Kórinn hefur haldið árlega vor-
tónleika í Keflavík i þessi 10 ár og
auk þess sungið víða um land,
tekið þátt i alþjóðlegri söng-
keppni á Irlandi og á síðastliðnu
sumri var kórnum boðið að syngja
á Islendingadeginum að Gimli
Manitoba. Söng kórinn viða í Kan-
ada, ennfremur í Seattle i Banda-
ríkjunum.
Söngstjóri hefur verið frá upp-
hafi Herbert H. Agústsson. Undir-
leikari kórsins hefur lengst af
verið frú Ragnheiður Skúladóttir.
Kórinn hefur notið leiðsagnar
þekktra söngkennara sVÖ sem
Snæbjargar Snæbjarnardóttur og
Elíasbetar Erlingsdóttur, núver-
andi raddþjálfari er Hreinn Lín-
dal.
Kórinn heldur afmælistónleika
fyrir styrktarfélaga á afmælisdag-
inn 22. febr. kl. 21 í Félagsbióí í
Keflavík og föstud. 24. febr. kl. 21
á sama stað.
Efniskrá er fjölbreytt þar kem-
ur fram söngflokkurinn Ekki
Neitt, Hlíf Káradóttir syngur ein-
söng með kórnum og tvísöng með
Sverri Guðmundssyni. Þá verður
frumflutt lag eftir söngstjórann
sem tileinkað er Kvennakór Suð-
urnesja í tilefni af 10 ára afmælis-
ins.
annarra stjarna. Erna Guðmunds-
dóttir gerði brúðurnar og leik-
stýrði, en Guðmundur Guðmunds-
son sá um tónlist og hljóðupp-
töku. Næsti þáttur er byggður á
kvæðinu um litlu Gunnu og litla
Jón eftir Davíð Stefánsson og er
með brúðum Hallveigar Thor-
lacius og leiktjöldum. Þórunn
Magnea Magnúsdóttir syngur
kvæðið en leikstjóri er Hólmfríð-
ur Pálsdóttir. Síðan kemur leik-
þáttur eftir Arne Mykle, sem ætl-
aður er yngstu börnunum. Fjallar
hann um dreka, sem rænir prins-
essu, og hetjuna sígildu, sem
bjargar henni. Leikstjóri er
Hólmfríður Pálsdóttir, en leik-
tjöld eftir Þorbjörgu Höskulds-
dóttur. Síðasti þátturinn er
byggður á ævintrýi Grimms-
bræðra um Eineygu, Tvíeygu og
Þríeygu. Kristján Arnason og
Hólmfríður Pálsdóttir sömdu
leiktexta. Brúður gerði Helga
Steffensen og leikstjöld eru eftir
Þorbjörgu Höskuldsdóttur.
,,Þá hefur „Leikbrúðulandi"
bætzt nýr liðsmaður, gríaffinn
Girfinnur Gírmundsson, kallaður
Gíri. Hann sér um að kynna atrið-
in og samdi Guðrún Helgadóttir
texta hans. Ýmsir kunnir leikarar
hafa ljáð þessari sýningu raddir
sínar en það eru: Bríet Héðins-
dóttir, Guðrún Asmundsdóttir,
Baldvin Halldórsson, Karl Guð-
mundsson, og Þórunn Magnea
Magnúsdóttir.
1 „Leikbrúðulandi" eru: Erna
Guðmarsdóttir, Hallveig Thorlaci-
us og Helga Steffensen. Sýningar
verða á hverjum sunnudegi kl. 3 á
Fríkirkjuvegi 11.
LÚÐRASVEITIN Svanur
heldur tónleika á skemmti-
kvöldi í félagsheimilinu
Festi í Grindavík laugar-
daginn 18. febr. n.k. Hinn
4. mars heldur lúðrasveitin
sína árlegu tónleika í Há-
skólabíói kl. 14. Þá er fyrir-
hugað að sveitin haldi tón-
leika í Stykkishólmi 11.
mars n.k. Einleikarar á
tónleikum lúðrasveitarinn-
ar eru Englendingurinn
Brian Carlile, sem leikur á
Túbu og Norðmaðurinn
Arne Björhei, sem leikur á
trompet. Stjórnandi lúðra-
sveitarinnar er Sæbjörn
Jónsson, en formaður
Eiríkur Rósberg. 1 lúðra-
sveitinni eru 34 hljóðfæra-
leikarar og á meðal þeirra
eru nokkrir unglingar úr
unglingadeild lúðrasveitar-
innar. Þessar upplýsingar
komu frá í fréttatilkynn-
ingu frá lúðrasveitinni.
Þú mátt bara
alls ekki missa af
útsölumarkaðnum
Að Laugavegi 66 2.hæð
Hafir þú gert góö kaup á útsölunni munt þú gera enn betri kaup núna
St. Terelyne buxur frá 5.900
Kakhibuxur frá 3.900
Riflaðar flauels buxur frá 4.900
St. sport jakkar ... frá 1.000
Dömupeysur frá 1.900
skyrtur frá 1.790
Blússur frá 1.790
Bolir frá 500
Kápur frá 6 900
Kjólar frá 3.500
Jakkaföt kakhi og mfl. frá 12.900
LAUGAVEG 66 SÍMI FRÁ SKIPTIBORÐI 28155
! 1 J a A A A A k . . A .11 i i J 4 A A * 1 1 i Í i 11 1 t k A . á
fffw www ' W’ f V* w w WW w w f' f w w w * w w