Morgunblaðið - 17.02.1978, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. FEBRUAR 1978
21
Jón GústafSkúla-
son — Minning
Fæddur24. ágúst 1953.
Dáinn 12. febrúar 1978.
Ef færóar hefðu verið sönnur á
máltækið — þeir deyja ungir sem
guðirnir elska — hefði lát Jóns
Gústafs Skúlasonar ekki átt að
koma neinum sem hann þekktu á
óvárt. Hann var maður góðvildar
og heiðarleika, gekk að hverju
verki með jákvæðu hugarfari og
litaði umhverfið með lífsgleði
sinni. Það er erfitt að vera sam-
mála þeim guði sem vill taka frá
okkur slíka menn en hver veit
nema þeir áorki meiru á sínum
fáu árum en hinir sem lengpr lifa.
Það kann að hljóma undarlega
að Jón hafi verið lífsglaður maður
því óneitanlega lagði lífið fleiri
hindranir í veg hans en flestra
annarra. En sjálfsagt er það eins
með lífið og allt annað, að það
verður þeim mun verðmætara
sem meira er fyrir því haft. Sjálf-
sagt er það líka rétt sem sagt er,
að erfiðleikarnir geri menn að
betri mönnum. Að þvi er Jóni
viðvíkur þá kom hann sterkari út
úr hverri raun. Hann var á undan
jafnöldrum sinum að þroska og
bjó yfir undraverðum sjálfsaga.
Ég heyrði hann aldrei kvarta þótt
eitthvað gengi öfugt við það sem
hann óskaði. Hins vegar þótti hon-
um það sjálfsögð skylda að hlaupa
undir bagga í erfiðleikum ann-
arra.
Menn á hans aldri eru sjaldan
ýkja hugulsamir. Hugulsemi er
eitthvað sem ég set í samband við
gamlar góðhjartaðar konur sem
lifa utan við streitu nútímans og
hafa tima til að vera manneskjur.
En Jón átti furðu margt sameigin-
legt með þessum gömlu góðhjört-
uðu konum sem í mínum huga
eru ímynd margs hins besta í
mannlegum samskiptum. Smáatr-
iði sem hjá flestum gleymast í erli
dagsins lagði hann á minnið.
E.t.v. atriði sem virtust litlu máli
skipta en gátu verið mikilvægari í
annarra augum.
Ég hef víst verið á öðru ári en
Jón á þriðja þegar ég fluttist með
foreldrum mínum í íbúð í húsi
foreldra hans. I nokkur ár vorum
við leikfélagar en síðan rofnaði
kunningsskapurinn að mestu um
nokkurra ára skeið. í gagnfræða-
skóla lágu leiðir okkar saman aft-
ÞU AUGLYSIR UM
ALLT LAND ÞEGAR
ÞÚ AUGLÝSIR í
MORGUNBLAÐINU
VUGLYSINGA-
SÍMINN KR:
22480
ur, aðallega í samstarfi við hljóm-
sveitir en það samstarf varði í
fjögur ár. Þá hóf Jón eftir eins
vetrar dvöl í Lýðháskólanum í
Skálholti, nám í póstfræði. Hann
lauk prófi í þeirri grein og
starfaði hjá Pósti og síma til
dauðadags. Síðast sem gjaldkeri á
Bögglapóststofunni í Reykjavík.
Það kom vel í ljós í samstarfi
okkar hvað Jón var orðheldinn og
traustur, þó held ég að í gegnum
vináttu okkar i einkaiífi hafi ég
kynnst þessum kostum enn betur.
Vinátta hans var einstök. Ef allir
legðu sömu merkingu í orðið vin-
átta væri ólíkt gæfulegra um að
litast. Hann létti mönnum daprar
stundir og gladdist með glöðum
og var alltaf sami góðviljaði og
sterki persónuleikinn. Það er víst
um það að slíkir menn lifa ekki til
einskis.
Vinátta hans var ekki auðunn-
in. Hann var tortrygginn gagn-
vart fólki og sú tortryggni átti því
miður rétt á sér. Þótt flestum hafi
verið hlýtt til hans voru þeir til
sem fundu út að hann lægi vel við
höggi og töldu ekki eftir sér að
særa hann. Hafi þeir haldið sig
ráðast á garðinn þar sem hann var
lægstur fóru þeir villur vegar. Al-
menningur þekkir sjaldan sína
bestu menn. Kannski þekkjast
þeir best á því að þeim er sýnd
minni nærgætni og skilningur en
öðrum.
Mig grunar að þeir séu fáir sem
þekktu Jón svo nokkru næmi.
Hann átti marga kunningja en fáa
vini og að fjölskyldu hans frátal-
inni voru það þessir fáu vinir sem
vissu hvern mann hann hafði að
geyma. Þó framkoma hans við
hvern og einn væri til fyrirmynd-
ar var það aðeins við nánari kynni
sem hans innri maður kom í ljós.
Hann var dulur, flikaði ekki til-
finningum sínum en faldi þær
bak við grímu hressileikans.
Það er stundum sagt að menn
hafi hjarta úr gulli. I minum
augum er gull lítils virði saman-
borið við mannkosti hans. Hann
er og verður mér sem tákn alls
þess besta sem mannssálinni er
gefið.
Ég votta foreldrum Jóns og
systkinum samúð mína og veit að
það er þeim huggun í harmi að
eiga minninguna um góðan
dreng.
Selfossi, 16. feb. 1978
Ómar Þ. Halfdórzzon
Binatone leiðandi fyrirtæki
í gerð sjónvarpsleiktækja
*A»
Knattspyma
HLJÓÐ
ROFI
HRAÐI
HORN
STÆRÐ
MANNA'
GEFA
INNSTUNGUR
VAL 4
LEIKJA
FJARSTYRING
Binatone sjónvarpsmeistarinn Mk IV
Þegar kemur að sjónvarpsleiknum,
reiknaðu þá með Binatbne skrefi
framar.
Binatone sjónvarpsmeistarinn býður
upp á allt en er samt ódýrastur.
Þessi jól mun alla í fjölskyldunni
langa i sjónvarpsleik og þá er Bina-
tone siónvarosmeistarinn bestur.
Missið ekki af lestinni,
með frá byrjun
í sjónvarpsleiknum.
verið
Verð kr.
26.920,-
i-. i
w-wmpTHm %
' (flPVÍM^|v
aa iooær
j_r
Ármúla 38, sími 311 33
(Gengið inn frá Selmúla).
WlHÍNATONt
Biantone International
ELDRI BORGARAR
MALLORKAFERÐ/R
7. APRÍL 3 VIKUR VERÐ KR: 107.700,- + 3.000,- BROTTFSK.
28. APRÍL 3 VIKUR VERÐ KR: 117.700,- + 3.000,- BROTTFSK.
Þátttakendur í Mallorkaferð haustið
1977.
Kynningarfundur
Kynningarfundur verður haldinn vegna Mallorka-
ferðanna í Norðurbrún 1 mánudaginn 20 febrúar kl
16 30 Sýndar verða litskuggamyndir Allir þeir
sem áhuga hafa eru hvattir til að koma.
FELAGSMALASTOFNUN
REYKJAVÍKUR
★ Dvaliö á Hotel Columbus
í St. Ponsa.
★ Gisting í tveggja manna
herbergjum.
★ Innifalið: Fullt fæði.
Allar nánari upplýsingar gefur:
FERDASKRIFSTOFAN
URVAL
Eimskipafélagshúsinu simi 26900