Morgunblaðið - 17.02.1978, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 17.02.1978, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. FEBRUAR 1978 Ávarp „lýðræðissinnaðra kommúnista” í Austur-Þýzkalandi 3. hluti í þessum hluta hins víðamikla ávarps stjórnar- og flokksandstöðunnar í Austur-Þýzkalandi er haldið áfram hvassri gagnrýni á þjóðfélagsástandið í Ráð- stjórnarríkjunum, en í 10. lið ávarpsins draga andófs- mennirnir saman helztu punktana í kröfum sínum um gagngerðar pólitískar endurbætur og nýsköpun á hin- um svonefndu sósíalísku þjóðfélögum Austur-Evrópu, — og þá alveg sérstaklega á hinu austur-þýzka þjóð- félagi, sem Flokkurinn Eini, SED, hefur leitt á vægast sagt vafasamar brautir, að dómi gagnrýnendanna. Landbúnaðar- stórveldið Allt frá því októberbyltingin var geró hefur engin ný fram- úrskarandi visindaleg eða tæknileg uppgötvun komið frá Ráðstjórnarríkjúnum. Þetta land, sem á dögum keisaranna var stórútflytjandi land- búnaðarafurða, er nú á dögum háð innflutningi á hveiti frá Bandaríkjunum og Kanada. F’úsk manna á borð við Lyssenko, sem tókst að gjör- eyðileggja allar frostþolnar vetrar-korntegundir í öllu Rúss- landi, sýnir glögglega hin skað- Iegu áhrif „marxisma- leninismans,, á visindin. Hinar forneskjulegu trúarkreddur hans kæfa alla skapandi hugs- un og dáð. Það er sama, hvort um er að ræða afstæðiskenning- una, vistfræði, gerviefni eða rafeindaiðnaðinn, sovétmenn stjórnarríkin framleiða nú eins og alltaf áður á gamaldags hátt og með alltof miklum tilkostn- aði, — og sovétmenn eru að auki stoltir af þessu. Sámtímis velta Ráðstjórnarríkin hinum þungu byrðum, sem íþyngja þeim vegna skakkrar fram- leiðslustefnu, í sívaxandi mæli yfir á hin kommúnistaríkin með stöðugum verðhækkunum á sovézkum útflutningsvörum. Ráðstjórnarríkin setja allt sitt traust á þyngd og magn, í stað- inn fyrir gæðin, sem fyrir löngu hefðu átt að marka framleiðslu- stefnuna. Hin ráðandi sovézka stétt 9. Þær miklu andstæður sem eru á milli mögulegrar fram- leiðnigetu og framleiðsluskil- yrða í Ráðstjórnarríkjunum krefjast bráðrar úrlausnar. Kúgunin á þegnum þessa þjóð- Pólitískt Skurðgoðadýrkun marxisma-leninismans ... ... orðin að opinberum trúarbrögðum í Þýzka alþýðulýðveldinu. þrotabú únista, sósíalista og jafnaðar- manna í Þýzkalandi, Evrópu og um víða veröld. Við erum ekki fylgjendur fyrsta flókks sósíal- ískra alþjóðasamtaka en annars flokks alþjóðasamtaka öreig- anna, heldur aðhyllumst við al- þjóðasamtök kommúnista eins og þau birtust á Berlínar- ráðstefnunni. Gamall klofningur Við berjumst fyrir því, að bundinn verði endir á hinn óheillavænlega klofning innan verkalýðshreyfingarinnar, en það voru einmitt rússneskir flokksleiðbeinendur, sem ýmist komu skriði á þennan klofning eða þá að þeir beittu allsherjar þvingunum til þess að koma honum í kring. Ónothæf flokksdrög Við lítum svo á, að þau stefnumarkandi drög, sem Len- in lagði til að flokkurinn, lýð- ræðið og sjálft ríkið grundvöll- uðust á, séu með öllu ónothæf og einskis nýt. Ef til vill hefði hann getað notað þessi drög á farsælan hátt í Ráðstjórnarríkj- unum. Við hér í Þýzkaiandi verðum að taka mið af þeim stáðreyndum og þeirri reynslu okkar, sem sagan hefur sýnt, að á beinlínis við okkur. Viljum frelsi Við erum fylgjandi lögvernd- uðu frelsi, sem grundvallað sé í stjórnarskránni — raunveru- legu og ótvírætt tryggðu frelsi til fundahalda, til stofnunar samtaka, til útgáfu blaða, og trúfrelsi. Þjónustumenn ríkis- ins mega ekki hlaupa eftir geð- þóttafullum metnaðarmálum fákæns flokksformanns, heldur apa einfaldlega nú sem áður eftir allt hið nýjasta í gæða- framleiðslu vestrænna landa. Stoltir af mistökunum 8. Sovétmann básúna út. að þeir hafi náð Bandaríkjunum í sfal-og sementframleiðslu. Um leið útbreiða þeir þær fréttir, að Bandaríkjamenn hafi alls ekki nýtt framleiðslugetu sína í þessum iðngreinum. Ef í hart færi gætu bandaríkjamenn þvi framleitt 50 sinnum meira en sovétmenn. Þessi tonna-trú ber vitni um fullkomið skilningsleysi á þróuninni til efnisbreytinga, svo og til breytinga á uppbygg- ingu og áhrifamætti í nútíma þjóðarbúskap vesturlanda. Ráð- félags, vegna þjóðernis eða trúarskoðana er hneisa fyrir flokk, sem kallar sig kommún- ískan, og þykist vinna í þágu almenningsheilla. ... rotin inn aö merg Skýr yfirlýsing okkar er: All- ar þær þjóðir, sem búa innan Ráðstjórnarríkjanna, njóta fullrar samúðar okkar, — en við hina ráðandi sovézku valda- stétt, rotin eins og hún er alveg inn að merg, viljum við ekkert eiga saman að sælda. Hið sama gildir um leppa þeirra í Austur- Þýzkalandi, sem nota tilveru sína nær eingöngu til að auðga sig sjálfa með myndarlegum stórgjöfum til sjálfra sín á kostnað vinnandi manna í Aust- ur-Þýzkalandi. Raunverulegt lýðræði 10. Við erum fylgjandi gjör endurbættum kommúnisma, bæði að því er varðar hinar fræðilegu kenningar og stjórn- málastefnu í framkvæmd, við erum fylgjandi kommúnisma, sem spannar yfir allt hið bezta, sem mannkynnið hefur áorkað hingað tii eftir daga Lenins. Við erum þess vega • gegn einræði eins flokks, en það er einræði klíkunnar kringum formann F'lokksins og flokksstjórnina. • gegn einræði öreiganna, sem í reynd er einræði skrif- finnanna yfir öreigunum og er beint gegn þjóðinni í heild. 0 fylgjandi kerfi margra- flokka, því frelsi er, svo vitn- að sé í Rósu Luxemburg, alltaf frelsi þeirra manna, sem hugsa öðru vísi. 0 fylgjendur sjálfstæðis, óháðs þings, sem kjörið er af kjósendum með frjálsri ákvörðun þeirra. 0 fyljgandi óháðum hæstarétt- ardómstóli, þar sem þegn- arnir geti borið fram kærur sínar vegna misbeitingar á valdi. Jafnvel í Prússlani gat hvaða Múller sem var unnið mál gegn konunginum. I „raunverulegum sósíalisma" okkar verður hinn valda- lausi mannsandi að beygja sig fyrir andlausri valdbeit- ingu, án þess að njóta nokk- urrar verndar laganna. 0 fylgjendur sjálfsta'ðrar ríkisstjórnar, sem sé laus undan áhrifum steinrunn- innar miðstjórnar- flokksbrodda. 0 fylgjandi því, að svokölluð „lýðræðisleg miðstjórn" innan Flokksins og í þjóð- félaginu í heild verði lögð niður, þar sem hún er í reynd miðstjórnun gegn raunverulegu lýðræði. Við erum fylgjandi tengslum sem fela í sér samvinnu, og byggjast á gagnkvæmu trausti, milli lýðræðissinnaðra komm- verða þeir að vera skuldbundn- ir til að þjóna lögunum og al- menningi í landinu. Marx yrði líflátinn Við erum fylgjandi því, að hin opinberu ríkistrúarbrögð, marxismi-leninismi, verði lögð niður. Það má ekki setja skorð- ur við eðlilega framþróun í vís- indum, listum, bókmenntum, né yfirleitt öllu andans lífi. Mannsandinn má ekki lúta ómanneskjulegri skriffinnsku, hin ómannlega skriffinnska verður að lúta mannsandanum. Á vorum dögum hefði hinn hugmyndafrjói Karl Marx fyrir löngu verið búinn að kasta fyrir róða kenningum franskra sósí- alista um stéttarbaráttuna og sömuleiðis sínum eigin kenn- ingum um alræði öreiganna, sem hverju örðu úreltu fjasi. Það má telja fullvist, að sú lítilsvirðing, sem Karl Marx sýndi „yfirvalda-hjátrú hinna sjálfskipuðu foringja“ fyndi nú á dögum hafa kostað hann handtöku, fangelsisdóm eða líf- lát. ■ Framleiðsiuaðferðir f Ráðstjórnarríkjunum eru ekki einungis gamaldags og tilkostnaðurinn við framleiðsluna allt of mikill, heldur eru sovétmenn aukin heldur stoltir af þessu óhagkvæma og dýra fyrirkomulagi, segja Austur-Þjóðverjar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.