Morgunblaðið - 17.02.1978, Qupperneq 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. FEBRUAR 1978
iHpööur
2. sunnudag
í föstu
GUÐSPJALL DAGSINS:
Matt.: 15 Kanverska konan
LITUR DAGSINS:
Grænn, litur vaxtar og
þroska
DÓMKIRKJAN Skátamessa kl.
11 árd. Séra Hjalti Guðmunds-
son. Föstumessa kl. 2 síðd. Séra
Þórir Stephensen.
LANDAKOTSSPITALI Messa
kl. 10 árd. Séra Þórir Stephen-
sen.
ARBÆJARPRESTAKALL
Barnasamkoma í Arbæjarskóla
kl. 10:30 árd. Guðsþjónusta í
skólanum kl. 2. Séra Guðmund-
ur Þorsteinsson.
BREIÐHOLTSPRESTAKALL:
Sunnudagaskóli kl. 11 árd.
Messa kl. 2 e.h. í Breiðholts-
skóla. Séra Lárus Halldórsson.
BOSTAÐAKIRKJA Barnasam-
koma kl. 11. Guðsþjónusta kl. 2.
Altarisganga, barnagæzla.
Organisti Guðni Þ. Guðmunds-
son. Séra Ólafur Skúlason,
dómprófastur.
DIGRANESPRESTAKALL
Barnasamkoma í safnaðar-
heimilinu við Bjarnhólastíg kl.
11. Guðsþjónusta í Kópavogs-
kirkju kl. 11. Séra Þorbergur
Kristjánsson.
FELLA- OG HÓLAPRESTA-
KALL Barnasamkoma í Fella-
skóla kl. 11 árd. Guðsþjónusta í
safnaðarheimilinu að Keilufelli
1 kl. 2 síðd. Séra Hreinn
Hjartarson.
GRENSASKIRKJA Barnasam-
koma kl. 11. Guðsþjónusta kl. 2,
altarisganga. Organisti Jón G.
Þórarinsson. Séra Halldór S.
Gröndal.
HATEIGSKIRKJA Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Séra Tómas
Sveinsson. Messa kl. 2. Séra
Arngrímur Jónsson. Síðdegis-
guðsþjónusta og fyrirbænir kl.
5. Séra Tómas Sveinsson.
DOMKIRKJA Krists konungs
Landakoti. Lágmessa kl. 8.30
árd. Hámessa kl. 10.30 árd. Lág-
messa kl. 2 síðd. Alla virka daga
er lágmessa kl. 6 síðd., nema á
laugardögum þá kl. 6 síðd.
SIGFOS Þorleifsson, fyrrver-
andi utgerðarmaður á Dalvfk,
varð áttræður mánudaginn 30.
janúar. I tilefni afmælisins
kom Sigfús til Reykjavíkur til
dvalar með börnum sfnum, sem
búsett eru syðra, um mánaðar-
skeið. Morgunblaðið náði tali
af Sigfúsi og ræddi við hann
stuttlega um ævi hans og störf.
„Ég er fæddur í Syðra-Holti í
Svarfaðardalshreppi árið
1898“, sagði Sigfús „Foreldrar
mínir voru Þorleifur Sigurðs-
son bóndi þar og Kristín Gunn-
laugsdóttir. Ég var einbirni frá
seinna hjónabandi föður míns,
en átti fimm hálfsystkini. Ég
ólst upp í heimahúsum til 16
ára aldurs að ég hélt til
Akureyrar að læra járnsmíði.
Þar var ég síðan í fjögur ár og
hugðist þá snúa aftur til Dal-
víkur og setja upp járnsmíða-
verkstæði. Það kom þó snemma
f ljós að ekki myndi ég lifa af
því svo brátt sneri ég mér að
útgerð.
I þá daga varð maður að
byrja smátt og minn fyrsti
bátur var fjögurra tonna tré-
bátur. Nokkrum árum síðar eða
um 1930 keypti ég svo stærri
bát, u.þ.b. 10 tonn og kostaði
hann á þeim tíma 5200 krónur.
Um þetta leyti fór ég að gera út
KARSNESPRESTAKALL
Barnasamkom» í Karsnesskóla
kl. 11 árd. Guðsþjónusta 1 Kópa-
vogskirkju kl. 2. Séra Árni
Pálsson.
LAUGARNESKIRKJA Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Messa kl. 2,
altarisganga. Æskulýðssam-
koma kl. 20:30. Séra Jónas
Gíslason dósent talar. Þröstur
Eiríksson og Laufey Oddsdóttir
segja nokkur orð. Æskulýðskór
K.F.U.M. og K. syngur. Sóknar-
prestur.
NESKIRKJA Barnasamkoma
kl. 10:30 árd. Guðsþjónusta kl.
2 e.h. Séra Frank M. Halldórs-
son. Barnaguðsþjónusta kl. 5
síðd. Séra Guðmundur Öskar
Ólafsson.
K.F.U.M. Amtmannsstíg 2b.
Sunnudagaskóli fyrir öll börn
klukkan 10.30 árd.
ELLI- og HJtJKRUNARHEIM-
ILIÐ Grund. Messa. Séra Þor-
steinn Jóhannesson. Fél. fyrrv.
sóknarpresta.
HALLGRf MSKIRKJA Messa
kl. 11 árd. Lesmessa n.k. þriðju-
dag kl. 10.30 árd. Beðið fyrir
sjúkum. Séra Ragnar Fjalar
Lárusson.
LANDSPÍTALINN Messa kl.
10 árd. Séra Ragnar Fjalar
Lárusson.
LANGHOLTSPRESTAKALL
Barnasamkoma kl. 10:30 árd.
Guðsþjónusta kl. 2 síðd. Séra
Arelíus Níelsson.
FRtKIRKJAN í Reykjavík.
Barnasamkoma kl. 10.30 árd.
Guðni Gunnarsson. Messa kl. 2
síðd. Séra Þorsteinn Björnsson.
FlLADELFfUKIRKJAN
Almenn guðsþjónusta kl. 8
síðd. Einar J. Gíslason.
SELTJARNARNESSÓKN
Barnasamkoma kl. 11 árd. í fé-
lagsheimilinu. Séra Guðmund-
ur Óskar Ólafsson.
ÁSPRESTAKALL Messa kl. 2
síðd. að Norðurbrún 1. Séra
Grímur Grímsson.
á síld, enda óð hún þá upp í
fjörusteina eins og menn höfðu
sjaldan séð áður. Þá voru í
rauninni ekki enn hafnar síld-
Sigfús Þorleifsson
veiðar frá Dalvík fyrir alvöru.
Við vorum þrir, sem sinntum
þeim þar í byrjun og gerðum út
þrjá báta saman, Júlíus Björns-
son , Loftur Baldvinsson og ég.
Það var hins vegar um og eftir
1935 að farið var að salta síld á
HJALPRÆÐISHERINN
Helgunarsamkoma kl. 11 árd.
Sunnudagaskóli kl. 2 síðd.
Hjálpræðissamkoma klukkan
8.30 síðd. Lautinant Evju.
MOSFELLSPRESTAKALL
Lágaféllskirkja. Barnasam-
koma kl. 10:30 Messa kl. 2 síðd.
Séra Bragi Ásgeirsson.
KAPELLA Stl Jósefssystra
Garðabæ. Hámessa kl. 2 síðd.
FRlKIRKJAN Hafnarfirði
Barnasamkoma kl. 10:30 árd.
Guðsþjónusta kl. 2 síðd. Vænst
er þátttöku fermingarbarna og
foreldra þeirra. Séra Magnús
Guðjónsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA
Barnasamkoma kl. 11 árd. Séra
Gunnþór Ingason. Guðsþjón-
usta kl. 2 síðd. Séra Sigurður H.
Guðmundsson. Þriðjudaginn
21. febr. Bænastund kl. 8.30.
síðd. Séra Gunnþór Ingason.
NJARÐVlKURPRESTAKALL
Guðsþjónusta í Stapa kl. 2 síðd.
Séra Páll Þórðarson.
KEFLAVlKURKIRKJA
Sunnudagaskóli kl. 11 árd. —
Munið skólabílinn. Guðsþjón-
usta kl. 2 síðd. Safnaðarfélagið
heldur fund í Kirkjulundi að
lokinni guðsþjónustu. Rætt
verður um trúmál og stjórnmál.
Sóknarprestur.
GRINDAVlKURKIRKJA
Messa kl. 2 siðd. Menn frá
Gideonfélaginu flytja ávarp og
kynna starfsemi félagsins.
Sóknarprestur.
HVALSNESKIRKJA Messa kl.
2 síðd. Sóknarprestur.
EYRARBAKKAKIRKJA Guðs-
þjónusta kl. 2 síðd. Altaris
ganga. Barnasamkoma kl. 10.30
árd. Sóknarprestur.
AKRANESKIRKJA Barnasam-
koma kl. 10.30 árd. Messa kl. 2
síðd. Vænst er þátttöku
fermingarbarna og foreldra
þeirra. Séra Björn Jónsson
Dalvik. Fyrir þann tima var þó
vinnsla hafin f Hrisey. Á þess-
um árum fengum við nótina
fyrir 300 tunnur af síld.
Mér er ætið minnistætt þegar
við fengum fullan bát í fyrsta
skipti og vissi ég vart mitt rjúk-
andi ráð með hvert ég ætti að
snúa mér. Þá söltuðu þeir Lúð-
vík Muller og Stefán Stefáns-
son í Hrfsey og var það einna
næst. Þangað fór ég og bað þá
um að veita síldinni viðtöku.
Þetta var áður en síldar-
söltunartímabilið hófst. Höfðu
þeir þá saltað einu sinni fyrir
tímann og setið uppi með óselj-
anlega síld. Voru þeir af þess-
um sökum óviljugir að salta á
eigin ábyrgð. Ég ákvað því að
láta slag standa og fór þess á
leit við þá að þeir söltuðu á
mína ábyrgð sem þeir og gerðu.
Þvi lyktaði öllu vel og var varla
lokið við að salta en hinir tveir
bátarnir lögðu upp bermifullir
af síld.
Um miðjan ágústmánuð sama
ár hætti svo síldin að vaða. Eg
gerði út á síld í þrjú sumur
siðan frá Dalvík. Veiðin var
fremur dræm og framan af
kunnu menn satt að segja lítið
til verka við síldarsöltun á Dal-
vík. Voru fjórar alvanar stúlk-
ur því fengnar anhars staðar að
til að salta.
1 kringum 1940 fór ég svo til
Vestmannaeyja og keypti þar
24 tonna bát af Gísla Johnsen
útgerðarmanni þar fyrir 3500
krónur. Þá var skipstjóri hjá
mér Sigvaldi Þorsteinsson. Ég
keypti síðan 34 tonna bát fimm
árum siðar. Það var mjög góður
bátur og er enn gerður út hér
Framhald á bls. 31
Við útgerð
í hálfa öld
BLÓNI
VIKUNNAR
VMSJÚN: ÁB. ®
Endíng
afskor-
inna
IRIS
Helstu afskornu blómin sem fáanleg eru um þessar
mundir eru ýmis laukblóm. ber þar mest á túlípönum,
páskaliljum og öðrum hátíðaliljum, íris og riddarastjörnu
(Hippeastrum). Auk þess örlar á hinum skemmtilegu gul-
blómstrandi forsythíugreinum og mímósu. Úrvalið er því
fremur fábrotið eins og reyndar er við að búast þegar tekið er
mið af árstímanum. Litasamsetning er þó margbreytileg og
eiga túlipanarnir þar stærstan þátt
Ending afskorinna blóma er mjög breytileg og fer það að
sjálfsögðu talsvert eftir tegundum, en meðferð þeirra i
höndum fólks ræður ekki síður miklu um hversu langlif þau
geta orðið
Sérhver sá sem eignast blóm gerir sér vissulega ætíð vonir
um að þau endist sem lengst en til þess að svo megi verða
þarf að fara vel með þau og sýna þeim svolitla hugulsemi
eins og öðru sem lifandi er. Hér skal i fyrsta lagi á það bent
að þegar laukblóm eru keypt er best að þau séu sem minnst
útsprungin Veljið fremur túlipana sem rétt aðeins eru að
byrja að sýna eðlilegan lit heldur en þá sem komnir eru i fulla
blómgun. Hugsanlega mun sumum finnast slik blóm heldur
óþroskuð einkanlega til gjafa af ákveðnu tilefni á ákveðinni
stund, en fyrir móttakandann geta þau ekki verið betur á sig
komin en áður var sagt. Og hvað gerir þá til þótt þau séu
ekki alveg á fullu blómgunarskeiði nákvæmlega á því
augnabliki sem þau eru gefin?
Svipuðu máli gildir um páskaliljur og aðra nákomna
ættingja þeirra Þessi blóm eru ferskust og best rétt í þann
mund að blómblöðin eru rétt að byrja að opnast og eiga þá
lengstu lífdaga fyrir sér Iris er einnig bestur á svipuðu stigi.
Getur munað nokkrum dögum hvað blóm á þessu skeiði
endast lengur en fullútsprungin blóm. Riddarastjarnan er á
besta sölustigi á meðan blómh|ífarblöðin eru enn alveg lokuð
eða aðeins að byrja að aðskiljast
Öll blóm á umræddu blómgunarstigi opna sig fljótt eftir að
þau koma í stofuhita og litur þeirra eykst og styrkist snarlega
ef meðferð þeirra er rétt.
REGLUR
Svo fljótt sem auðið er skal koma afskornum blómum fyrir
í vatni Veljið hentugan blómavasa, sem skola þarf vandlega
úr sápuvatni, hafi það ekki verið gert eftir siðustu notkun
Setjið ylvolgt vatn í vasann en hafið það ekki mikið fyrir
laukblóm Látið „plöntufæðu" í vatnið en sé hún ekki fyrir
hendi þá 1 tesk af sykri og annað eins af ediki i hvern Vi
litra, það tefur fyrir gerlagróðri og lengir þannig líf blóm-
anna
Skera skal lítið eitt af neðsta hluta stöngulsins á hverju
blómi. Á túlípönum og hátíðaliljum skal alveg nema burt
þann hluta stöngulsins sem kann að hafa verið i lauknum, en
oftast eru það 2—4 sm Skerið á ská, sárflöturinn verður þá
stærri og vatnsupptakan greiðari enda auðveldar nýr skurður
vatnsupptöku. Eins nemur þá aðeins blábroddur stöngulsins
við botn vasans en þarer jafnan örust sú gerlastarfsemi sem
komið getur i veg fyrir eðlilega vatnsupptöku. Fjarlægið öll
blöð sem kynnu að lenda undir vatnsyfirborði ella flýta þau
fyrir eyðileggingu blómanna. Séu túlipanar mjög linir við
móttöku er best að vefja þá i dagblað og setja þá djúpt i vatn
yfir nótt á svalan stað Ganga síðan frá þeim að morgni.
Þetta hentar einnig fyrir önnur blóm sem kunna að linast
upp í vasa. Geymið afskorin blóm á svölum stað á næturna
og munið að hagræða þeim aldrei í námunda við hitagjafa að
degi né heldur þar sem dragsúgs gætir.
Endurnýið vatn á blómunum annan hvern dag.
Ó.V.H.