Morgunblaðið - 25.02.1978, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. FEBRUAR 1978
3
Óskar Vigfússon:
Sjómenn geta ekki verið
með vegna sérstöðu sinnar
„Framkvæmdastjórn Sjómanna-
sambandsins í samfloti með Far-
manna- og fiskimannasamband-
inu mótmælti þessum lögum á
sínum tíma og skoraði á aðiidar-
félög sfn að segja upp launaliðum
kjarasamninganna," sagði Óskar
Vigfússon, formaður Sjómanna-
sambands Islands, en hann sat
hjá við atkvæðagreiðslu í mið-
Óskar'Vigfússon
stjórn ASI um fyrirhugaðar verk-
fallsaðgerðir.
„Sjómannasamband Islands er
aðili að ASÍ. Ég hef sem formaður
Sjómannasambandsins athugað
alla möguleika á því að sjómenn
tækju þátt í þessum aðgerðum, en
i miðstjórn ASl taldi ég mig ekki
sem fulltrúa sjómanna geta rétt
upp höndina og samþykkt aðgerð-
Þórhallur Halldórsson
ir, sem minir félagar geta ekki
framkvæmt.
Sérstaða sjómanna er sú, að
þeir geta ekki lagt niður vinnu úti
á sjó, þar sem alræðisvald skip-
stjórans ræður lofum og lögum.
Ég varð því að sitja hjá við þessa
atkvæðagreiðslu, enda þótt
persónulega væri ég hjartanlega
sammála þessum aðgerðum."
Guðmundur H. Garðarsson
AUOLÝSINGASIMINN ER:
22480 kjí1
IHorgunblabit)
Pétur Sigurðsson
Jónas Bjamason:
Jónas Bjarnason
Stjórn BHM
stendur ekki
að aðgerðum
„ÞAÐ ER launamálaráð rfkis-
starfsmannadeildar BHM, sem
ákvað að vera með í fyrirhuguð-
um aðgerðum verkalýðshreyfing-
arinnar, en stjórn bandalagsins
stendur ekki að þeim," sagði
Jónas Bjarnason, formaður BHM,
í samtali við Mbl. „Til þessa
hefur stjórnin ekki tekið aðra af-
stöðu en þá að benda á að þetta sé
bara ákvörðun launamálaráðs-
ins.“
„BHM eru ekki aðeins laun-
þegasamtök," sagði Jónas, „þann-
ig að innan þess eru mjög mis-
munandi skoðanir.
Mín persónulega skoðun er sú,
að endurheimt samninganna í
þessari stöðu, sem nú er, sé að
sjálfsögðu mikið mál, en ekki
nægileg forsenda til ólöglegra að-
gerða. Menn verða að hafa fyrir
augúm ákaflega skýr markmið
með aðgerðunum. Igrip í kjara-
samninga hafa veríð æ ofan í æ og
eru í sjálfu sér ekkert nýtt fyrir-
brigði. Málefnamarkmiðið yrði að
vera að beina geiri sínum að
grundvallaratriðum, sem eru at-
vinnuleg uppbygging og skipan
fjárfestingarmála. Gagnrýni á
lagasetninguna nú beinist áð mín-
um dómi ekki að kjarna vanda-
málanna."
Guðmundur H. Garðarsson:
Leggjum áherzlu á
að landslög séu vírt
„Það var haldinn fundur í stjórn
og trúnaðarmannaráði Verzlunar-
mannafélags Reykjavíkur á
miðvikudag og þar var samþykkt
að leggja tillögu fyrir félagsfund
á mánudagskvöld um að kaup-
gjaldsákvæðum samninganna
verði sagt upp með eins mánaðar
fyrirvara eins og samningarnir
kveða á um,“ sagði Guðmundur
H. Garðarsson, formaður VR. ,,A
þessum fundi kom ekki fram ein
einasta rödd um það að efna ætti
til ólöglegra verkfalla og forysta
félagsins mun ekki hvetja til
slíks, heldur leggur hún áherzlu
á, eins og stjórn Landssambands
verzlunarm. að landslög séu virt.“
Pétur Sigurðsson:
Sjómenn taka ekki
þátt í vinnustöðvuninni
A FUNDI fulltrúaráðs verkalýsð-
félaganna í Reykjavík nýlega var
samþykkt tillaga þar sem hvatt
var til stuðnings við verkfallsað-
gerðir ASI1. og 2. marz n.k. Pétur
Sigurðsson, sem sat þennan fund,
sagði í samtali við Mbl., að á hon-
um hefðu verið ákaflega fáir, eða
um 60 manns, þar sem hefðu átt
að vera jafnvel nokkur hundruð.
„Það kom fram hjá nokkrum for-
mönnum verkalýðsfélaga að þeir
vöruðu við að fara i ólögleg verk-
föll og tel ég að ekki eigi að leggja
niður vinnu.
Ég benti á fundinum
á að sjómannastéttin gæti vart
tekið þátt i slíkum verkföllum þar
sem t.d. væri framundan vikulöng
róðrastöðvun i byrjun marzmán-
aðar og benti ég jafnframt á
ástandið í fiskvinnslufyrirtækj-
unum hér á Suðurnesjum og i
Eyjum og að vertíðin hér syðra
hefði ekki verið það góð, að búast
mætti við að sjómenn tækju þátt i
vinnustöðvuninni, nema af þeirri
ástæðu að ekki yrði unnið við
löndun þessa daga.
Þórhallur Halldórsson:
Tel að mitóll meirihluti
félagsmanna telji sér
skylt að virða landslög
„Það má vel vera að skoðanir
kunni að vera eitthvað skiptar
innan félagsins I afstöðunni til
þessara fyrstu aðgerða sem boðað-
ar eru, það er að segja vinnu-
stöðvunar 1. og 2. marz næstkom-
andi,“ sagði Þórhallur Halldórs-
son, formaður Starfsmannafélags
Reykjavíkurborgar." Ég tel þó að
mikill meirihluti félagsmanna St.
Rv. telji sér skylt að virða lands-
lög, þrátt fyrir aðför ríkis-
stjórnarinnar að nýgerðum kjara-
samningum opinberra starfs-
manna, en með þeirri ákvörðun
er verið að grafa undan trausti
launþega á gildi kjarasamninga
og skuldbindinga I landinu yfir-
leitt með ófyrirsjáanlegum af-
leiðingum.
Það er skoðun min, að Hersis
Oddsson, fyrsfi varaformaður
BSRB, og aðalfulltrúi bæjar-
starfsmannafélaganna í stjórn
samtakanna, hafi með mótat-
kvæði sínu gegn ályktun stjórnar
BSRB fyrst og fremst verið að
mótmæla þvi, að opinberir starfs-
menn skuli vera hvattir til þátt-
töku i ólöglegu verkfalli.
Á sameiginlegum fundi stjórn-
ar og fulltrúaráðs félagsins næst-
komandi mánudagskvöld mun
félagið marka sjálfstæða afstöóu
til máls þessa."
ÚTSÝNARKVÖLD
verður sunnudagskvöld
26. febrúar
að Hótel Sögu, Súlnasal
| Grísaveizla ]
f
■ -jf Kl. 1 9.00 Húsið opnað
— Sangria og aðrir lystaukar.
j Kl 1 9 30 Hátíðin hefst stundvíslega
I Matseðill:
p Spánskur veizlumatur
, Verð aðeins kr 2.850.—
Ferðaáætlun
Útsýnar 1978
lögð fram og kynnt.
Tizkusýning — Modelsamtökin sýna
Danssýning — Nemendur Dansskóla Heiðars
Ástvaldssonar sýna nýjustu dansana.
Fegurðarsamkeppni — „Ungfrú Utsýn
1978" — Forkeppni
Ferðaverðlaun að upphæð kr 1 000.000,—
Ferðabingó. Spilað verður um 3 sólarlanda-
ferðir með Útsýn fyrir tvo
Skemmtiatriði: Hinn frá-
bæri Ómar Ragnarsson
skemmtir af sinni al-
kunnu snilld
■jt Dans — Hin vinsæla
hljómsveit Ragnars
Bjarnasonar og Þuríður
leika og syngja
Missið ekki af óvenju glæsilegri og spennandi
en ódýrri skemmtun.
Hátíðin hefst stundvislega og borðum verður ekki haldið
eftir kl. 19.30.
Munið. alltaf fullt hús og fjör hjá Útsýn.
Tryggið ykkur borð hjá yfirþjóni á föstudag
frá kl. 1 5.00 i sima 20221.
Verið velkomin — Góða skemmtun.
I