Morgunblaðið - 25.02.1978, Page 40

Morgunblaðið - 25.02.1978, Page 40
Al'íiLÝSINíiASÍ.MINN EK: 22480 ALíiLÝSINGASIMINN ER: 22480 JWírgunblníiiti LAUGARDAGUR 25. FEBRUAR 1978 ASI og BSRB; Hvetja til ólöglegra verkfalla 1. marz Vardar refsiábyrgd og launafrádrætti — segir fjármálaráduneyti A annarri myndinni sést kokkurinn á Guðmundi RE virðir hcr fyrir sér skemmdir er urðu í borðsal skipsins. A hinni myndinni sjást skemmdir á stefni Erlings Arnars VE. Ljósm. Sigurgeir. MIÐSTJORN Alþýðusambands fslands og svonefnd 10 manna nefnd þess hefur samþykkt að skora á aðildarsamtök ASl og félagsmenn þeirra að leggja niður vinnu 1. og 2. marz n.k. sem „fyrstu aðgerðir til að mótmæla þeirri gífurlegu kjara- og rétt- indaskerðingu, sem felst í lögum þeim um cfnahagsráðstafanir, sem meirihluti Alþingis hefur nýverið samþykkt fyrir forgöngu ríkisstjórnarinnar" að því er seg- ir í fréttatilkynningu ASl. Að því er talsmaður ASl upplýsti í Morgunblaðinu 17. febrúar sl. eru ákvæði í samningum ASl um mánaðaruppsagnarfrest. Þá hefur stjórn BSRB sent frá sér ávarp, þar sem segir, að stjórn BSRB „hvetur alla til þátttöku í aðgerð- unum en getur ekki fyrirskipað slíkt“. 1 viðtali við Morgunblaðið hinn 17. febrúar sl. sagði Kristján Thoriacius, formaður BSRB, að „okkar samningstimi er lögbund- inn til 1. júlí 1979. 1 kjarasamn- ingnum er ákvæði um endurskoð- unarrétt á launaliðum á samn- ingstímanum en honum fylgir ekki verkfallsréttur". Matthfas A. Mathiesen, fjár- málaráðherra, kallaði Kristján Thorlaeius, formann BSRB, og Jónas Bjarnason, formann BHM, á sinn fund f gær og skoraði á þá að hætta við hinar fyrirhuguðu aðgerðir, sem ráðherrann kvað ólöglegar og varða þá, sem þátt tækju í þeim bæði refsiábyrgð og frádrætti á launum, að því er seg- ir í fréttatiikynningu fjármála- ráðuneytis. Samband ístenzkra bankamanna hefur lýst þvf yfir, að það muni ckki hvetja félags- menn sína til þátttöku í þessum aðgerðum. A blaðamannafundi, sem efnt var tii á skrifstofum ASl í gær, iýsti Ingólfur Ingóifsson fullum stuðningi Farmanna- og fiski- mannasambandsins við þessar að- gerðir og Jón Hannesson, for- maður launamálaráðs BHM, sömuleiðis. A blaðamannafundin- um létu forráðamenn þeirra sam- taka, sem hér eiga hlut að máli eftirfarandi ummæli falla: Kristján Thorlacíus: „Við telj- um það algera nauðvörn að standa fyrir þessum aðgerðum gegn þeirri mjög svo óréttlátu lög- gjöf sem nú hefur verið samþykkt og vegur svo þungt gegn launþeg- um, en það er alger nauðsyn að varna því að núgildandi samning- ar verði rofnir.“ Ingólfur Ingólfsson: Lýsti full- um stuðningi Farmanna- og fiski- mannasambandsins við þær yfir- lýsingar sem formannaráðstefnur ASt og BSRB hafa gefið út og sagði jafnframt að þeir myndu taka að fullu þátt í væntanlegum mótmælaaðgerðum. Jón Hannesson: Lýsti einnig fullum stuðningi BHM við þær yfirlýsingar sem þegar hafa kom- ið frá ASÍ og BSRB og kvað BHM ætla að taka þátt í væntanlegum aðgerðum til að mótmæla hinni nýju löggjöf ríkisstjórnarinnar. Þá kom það fram á fundinum að Samband íslenzkra bankamanna sem tekið hefði þátt í starfi sam- starfsnefndar launþegasamtak- anna hefði lýst þvi yfir að stjórn Framhald á bls. 22. LOÐNUSKIPIÐ Guðmundur RE og netabáturinn Erlingur Arnar VE lentu í árekstri um kl. 5 í fyrrinótt skammt austur af Bjarnarey í Vestmannaeyjum. Guðmundur RE var á vesturleið með 700 af loðnu en Erlingur Arnar var á leið austur að vitja um net. Ekki er vitað um tildrög árekstursins þar sem sjóprófum var ekki lokið seint i gærkvöldi i Vestmannaeyjum, en stefni Erlings Arnars lenti á bakborðshlið Guðmundar og laskaði brúna og borðstokkinn. Meðal annars skekktust innréttingar í borðsai, og urðu meiri skemmdir á Guðmundi en Erlingi Arnari. Sjómenn, verzlunarmenn, bankamenn o.£L hafna ólög legum verkfallsaðgerðum FJÖLMENNAR stéttir munu ekki taka þátt í verk- fallsaðgerðum þeim, sem miðstjórn ASÍ og stjórn BSRB hafa hvatt til 1. og 2. marz n.k. Sjómenn, banka- menn, verzlunarmenn og fjölmargir aðrir launþega- hópar hyggjast ekki taka þátt í þessum aðgerðum að því er fram kemur í viðtöl- um Morgunblaðsins í dag við forsvarsmenn launa- þegafélaga víðs vegar um landið. Matthías Á. Mathiesen, fjármálaráðherra: Með ólöglegum aðgerðum fjöl- mennra almannasamtaka er vegið að rótum okkar litla samfélags Morgunblaðið sneri sér f gær- kvöldi til Matthiasar A. Mathie- sen, fjármálaráðherra, og leit- aði álits hans á þeirri ákvörðun stjórnar BSRB og launamála- ráðs B.H.M. að skora á opinbera starfsmenn að taka þátt f ölög- legum verkfalisaðgerðum hinn 1. og 2. mars n.k. Fjármálaráðherra sagði, að eins og fram kæmi í fréttatil- kynningu, sem fjármálaráðu- neytið hefði sent frá sér, hefði hann fyrr um daginn átt við- ræður við Kristján Thorlacíus, formann BSRB, og dr. Jónas Bjarnason, formann BHM. Ég gerði þeim grein fyrir því, að fyrirhugaðar aðgerðir BSRB og launamálaráðs BHM væru brot á þeim lögum, sem giida um samningsrétt opinberra starfs- manna. Ég hvatti þá til þess að falla frá fyrirhuguðum aðgerð- um, og benti þeim á þau viður- lög, sem gilda um óheimila fjar- veru opinberra starfsmanna frá störfum sínum þ.e. frádrátt frrá launum, og auk þess gæti það varðað refsingu. Það getur vissulega verið umdeilaniegt, hvernig á að taka á þeim efna- hagsvanda, sem við íslendingar eigum við að glíma, sagði Matt- hías A. Mathiesen. Hitt getur ekki verið umdeilt, að grfpi fjölmenn almannasamtök til ólöglegra aðgerða eða hvetja fólk til lagabrota er vegið að rótum okkar litla samfélags. Ég treysti því, að sú þjóðhollusta ríki meðal opinberra starfs- manna, að þeir láti ekki glepj- ast og hafni áskorun þeirra, sem í orði krefjast aðgerða gegn verðbólgu, en eru reiðu- búnir til þess að nota samtök sem þeim hefur verið trúað fyrir gegn ríkisstjórn og meiri- hluta Aiþingis sem nú beita sér fyrir virkum aðgerðum til lausnar þess vanda. Öskar Vigfússon, formaður Sjó- mannasambands íslands, sat hjá við atkvæðagreiðslu í miðstjórn ASÍ um þessar aðgerðir. Hilmar Jónsson, formaður Sjómanna- félags Reykjavíkur, segir, að sjó- menn séu undir sjólögum og geti ekki brotið þau lög og Sjómanna- félag Reykjavíkur geri ekki ann- að en það sem löglegt sé. Garðar Þorsteinsson, ritari FaVmanna- og fiskimannasambands islands, seg- ir, að Ingólfur Ingólfsson, formað- ur FFSl, hafi ekkert umboð til að lýsa yfir stuðningi samtakanna við aðgerðir ASÍ og BSRB. Sólon Sigurðsson, formaður Landssambands bankamanna, segir, að sambandið muni ekki hvetja til ólöglegra aðgerða. Guð- mundur H. Garðarsson, formaður Verzlunarmannafélags Reykja- víkur, segir, að forysta félagsins muni ekki hvetja til ólöglegra verkfalla. Jónas Bjarnason, formaður BHM, segir það sína skoðun, að ekki sé nægiieg forsenda til ólög- legra aðgeröa. Hersir Oddsson, 1. varaformaður BSRB, segist ekki geta tekið þátt í að hvetja menn til aðgerða, sem varða við lands- lög. Þessi viðhorf koma fram i viðtölum, sem Morgunblaðið átti i gær við forystumenn fjölmargra launþegafélaga um áskorun ASÍ og BSRB um ólögleg verkföll hinn 1. og 2. marz. Viðtöl þessi birtast á bls. 3 og miðopnu Morgunblaðsins í dag.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.