Morgunblaðið - 04.03.1978, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. MARZ 1978
15
mmm / L Wm d aPS mmAi
ímmM
Ilér er unsílinKalúðrasveitin að leika í Laugarnesskóla. en þar hélt
hún tónleika í janúar s.l.
Lúðrasveitin Svanur
á hljómleikum í dag
Lúðrasveitin Svanur hefur nú á
annað ár starfrækt unglinga-
lúðrasveit og skipa hana 30
unglingar á aldrinum 12—15 ára.
Mun unglingalúðrasveitin leika á
opinberum tónleikum Lúðrasveit-
arinnar Svans er verða í Há-
skólabíói laugardaginn 4. marz
kl. 14. og munu báðar sveitirnar
leika saman í Stykkishólmi hinn
11. marz n.k. Stjórnandi lúðra-
sveitanna er Sæbjörn Jónsson og
formaður Eiríkur Rósberg.
Kirkjukaffi á
æskulýðsdaginn
Kvenfélag Breiðholts efnir til
kaffisölu sunnudaginn 5. mars kl.
3 í anddyri Breiðholtsskóla.
Ágóði sölunnar rennur til
kirkjubyggingarinnar, sem í
vændum er. Framkvæmdir á
kirkjulóðinni eru nú í þann
veginn að hefjast og fyrsti áfangi
byggingarinnar á að rísa í sumar.
Með mikilli prýði hefur verið
staðið að nauðsynlegum og tíma-
frekum undirbúningi verksins, og
þökk sé öllum, sem þar lögðu
hönd að. En það átak, sem nú er
framundan íþessu brýna máli
hverfanna mun reyna ennþá
meira á dugnað og fórnarlund
safnaðarmanna allra, — og eftir
því verður leitað.
Kvenfélag Breiðholts hefur
þegar margoft lagt kirkjubygg-
ingu og safnaðarstarfi lið, fyrst
með gjöfum, síðar með fjársöfn-
un og sjálfboðastarfi. Fleiri félög
mættu fara sömu braut. Safnast
þegar saman kemur.
Á sunnudagiunn máttu bjóða
vinum og vandamönnum upp á
góðan kaffisopa (börnin fá gos)
og gómsætar tertur og annað
bakkelsi, — því að ekki bregða
kvenfélagskonur vana sínum,
hvernig allt verður af hendi reitt.
Þú styrkir þetta átak þeirra góðu
máli til stuðnings, en nýtur
sjálfur ánægjustundar við frá-
bærar veitingar.
Vertu hjartanlega velkominn í
þrjúkaffið hjá Kvenfélagi Breið-
holts á Æskulýðsdaginn.
Blessi Drottinn framkvæmd og
árangur.
Lárus Halldórsson.
SÁÁ með fund í
Njarðvíkum í dag
Á laugardag, 4. marz, kl. 14
e.h., munu Samtök áhugafólks
um áfengisvandamálið — S.Á.Á.,
gangast fyrir fundi í Safnaðar-
heimili Ytri-Njarðvíkur til kynn-
ingar á starfsemi sinni og til að
ýta undir umræður um áfengis-
vandamálið í heild.
Fundarstjóri á Njarðvíkur-
fundinum verður Tómas Tómas-
son, forseti bæjarstjórnar Kefla-
víkur, og framsögumenn þau
Magnús Torfason, tannlæknir,
Þórdís Skarphéðinsdóttir, hús-
móðir, John Aikman, stórkaup-
maður, Sigurður Þ. Guðmunds-
son, læknir, Tómas Agnar
Tómasson, framkvæmdastjóri
S.Á.Á., og Hilmar Helgason,
formaður samtakanna og aðal-
hvatamaður að stofnun þeirra.
Að framsöguræðum loknum
verða frjálsar umræður.
Suðurnesjafólk er eindregið
hvatt til að sækja þennan fund og
kynna sér starfsemi og viðhorf
S.Á.Á. í áfengismálum.
(Fréttatilk. frá S.Á.Á.)
Byggja við Kópasel
Lionsklúbbur Kópavogs heldur
hlutaveltu í Hamraborg í Kópa-
vogi á sunnudag, 5. marz, til
ágóða fyrir viðbyggingu við
sumardvalarheimilið Kópasel í
Lækjarbotnum. Klúbburinn
beitti sér fyrir byggingu hússins
fyrir nokkrum árum og fjár-
magnaði hana að mestu leyti.
Kópasel hefur lengst af verið
notað sem sumardvalarheimili og
komið í góðar þarfir, enda sífellt
erfiðara fyrir fólk að koma
börnum sínum fyrir til sumar-
dvalar í sveit, eins og kunnugt er.
Undanfarna vetur hafa skóla-
nemendur sótt þangað í æ ríkari
mæli með kennurum sínum um
helgar. Húsið er nú orðið allt of
lítið og byrjuðu Lionsfélagar á
viðbyggingu við húsið í haust.
Fjöldi góðra vinninga verður á
hlutaveltunni, sem hefst klukkan
14. Þar verða engin núll og ekkert
happdrætti, en aðalvinningur er
60 þúsund króna ferðavinningur
eftir eigin vali vinnanda.
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
ÖRYGGI ER ÓMETANLEGT
BMW bifreiðar eru byggðar fyrir meiri hraða og álag en flestar aðrar bifreiðar.
Stefna BMW verksmiðjanna er að sameina eiginleika sportbíls og þægindi einkabíls.
BMW er viðbragðsfljótur, lipur, stöðugur í akstri, rúmgóður með stórum rúðum
og þægilegur fyrir ökumann og farþega.
Góðir aksturseiginleikar tryggja öryggi í akstri.
BMW BIFREIÐ ER ÖRUGG EIGN.
KRISTINN GUÐNASON Hf.
SUÐU RLAN DSBRAUT 20, SÍMI 86633
BMW
i nýjum búningi
Vetrarvör u r
Shell!
Sterktvopn í baráttunni við Vetur konung
Startgas ísvari fyrir blöndunga Sætaáklæði í flesta bíla
Rakaþerrir
Gluggahreinsiefni
Frostlögsmælir
Ljóskastarar í bíla/ Tjöruhreinsiefni
íseyðir fyrir rúðusprautur
Margar gerðir / / / ;
af luktum / //Lásaolía, hindrar ísingu i bílaskrám
og vasaljósum //// Silikon á þéttilistana
Fjölmargar gerðir
af gúmmímottum
Issköfur, margar gerðir
Dekkbroddar, skyndikeðjur, 3 gerðir
i Fást á bensínstöðvum Shell
Olíufélagið Skeljungur hf
Shell
Smávörudeild
Sími 81722