Morgunblaðið - 04.03.1978, Side 48
AUÍÍIASINÍÍASÍMINN ER:
22480
AUííLÝSINGASÍMINN ER:
22480
LAUGARDAGUR 4. MARZ 197&
Verkfallsaðgerðimar 1. og 2. marz:
Þorri BSRB-manna vann —
misjöfn viðbrögð annarra
L.IÓST er að allur þorri opinherra starfsmanna kom til vinnu dagana 1. og 2. marz þrátt fyrir
áskoranir flestra forystumanna launþegasamtaka í landinu um að fólk legði niður vinnu. Þó munu
mest forfiill hafa verið meðal kennara. þótt jafnsóðar upplýsingar um forföll þeirra og annarra liggi
ekki enn fyrir. Talið er að um 80% iðnverkafólks hafi sótt vinnu háða dagana, en verkfallið varð
svo til algjiirt meðal Dagshrúnarverkamanna. enda Dagshrún eitt þriggja verkalýsðfélaga á landinu.
sem hoðaði opinherlega verkfall. Ilin fcliigin tvö voru Ilið íslenzka prentarafélag og Verkalýsðfélagið
á Stokkseyri. sem hoðaði verkfall hjá hluta félagsmanna sinna.
A hlaðsíðum lö, 17, 18 og 19 í
l)laðinu í dag, eru fréttir urn
vcrkfallið háða dagana. Ljóst er
að í hinum ýmsu hlutum landsins
varð mjög hreytileg þátttaka í
verkfallsaðgerðunum. Suður-
nesjamenn ákváðu t.d. að fara í
verkfall aðeins fyrri daginn, en þó
felldi verkaiýðsfélagið í Grindavík
|)áttti)ku í þeim aðgerðufn. Á
Vesturlandi Var verkfallsþátttaka
nokkuð misjöfn eftir stöðum, en
almennust mun hún hafa verið á
Akranesi og í Borgarnesi.
Á Vestfjörðum felldu öll verka-
lýðsfélögin nema tvö aðild að
aðgerðunum. Verkalýðsfélag
Tálknafjarðar tók enga afstöðu,
en á fundi í Verkalýðsfélaginu
Baldri á ísafirði var verkfall
samþykkt með 18 atkvæðum gegn
15. Þrátt fyrir þá samþykkt var
óveruleg þátttaka verkafólks r
vinnustöðvuninni.
Prófkjör sjálfstæðismanna í Reykjavík
Kosið á 7 kjörstöðum
víðsvegar um bæinn
•JRÓFKJÖR Sjálfstæðisflokks-
ins í Reykjavík um skipan
framboðslista Sjálfstæðisflokks-
ins í borgarstjórnarkosning
unum í maí 1978 hefst í dag
kl. 11.00 á sjö kjörstöðum í
hænum og vcrður kosið fram á
mánudagskviild. Atkvæðisrétt
í prófkjiirinu hafa allir
stuðningsmenn D-Iistans í
borgarstjórnarkosningunum,
sem náö hafa 20 ára aldri 28.
maí 1978. og lögheimili áttu
í Reykjavík 1. desember 1977,
svo og allir meðlimir Sjálf
stæðisfélaganna í Reykja
vík. sem lögheimili áttu í
Reykjavík 1. desember 1977.
Kjörstaðir verða sjö talsins á
eftirtöldum stöðum: KR-heimil-
inu við Frostaskjól, Grófinni 1,
Templarahöllinni við Eiríksgötu,
samkomusal Kassagerðar
Reykjavíkur við Kleppsveg, Val-
höll, Háaleitisbraut 1, Verk-
smiðjunni Vífilfelli við Dragháls
í Árbæjarhverfi og í Breiðholti,
að Seljabraut 54.
Til þess að kosning verði
bindandi fyrir kjörnefnd, þurfa
rúmlega 8000 manns að taka þátt
í prófkjörinu og auk þess þurfa
einstakir frambjóðendur að fá
minnst 50% greiddra atkvæða. I
sambandi við útfyllingu atkvæða-
seðils ákal það tekið fram, að á
atkvæðaseðli er nöfnum fram-
bjóðenda raðað eftir stafrófsröð.
Kjósa skal fæst 8 frambjóðendur
og flest 12, en það skal gert með
Framhald á bls. 30.
Á Norðurlandi var einnig mjög
misjöfn þátttaka, en einna mest
mun hún hafa orðið í Siglufirði og
á félagssvæði Einingar í Eyjafirði.
Tvö verkalýðsfélög á Norðurlandi,
félögin á Blönduósi og Kópaskeri,
höfnuðu algjörlega öllum verk-
fallsaðgerðum og mörg önnur
verkalýsðfélög leiddu málið hjá
sér.
Á Austurlandi er sömu sögu að
segja og á Vesturlandi og Norður-
landi um misjafna þátttöku. Þar
felldu tvö verkalýðsfélög tillögur
um þátttöku, félögin á Bakkafirði
og Eskifirði. Á Austurlandi varð
þátttaka hvað almennust í Nes-
kaupstað, þótt menn hafi þar
tekið á móti loðnu. Þá skiptust
iðnaðarmenn þar mjög í tvo hópa.
Tvö verkalýðsfélög á Suðurlandi
höfnuðu þátttöku í aðgerðunum,
félögin í Vík í Mýrdal og á
Eyrarbakka. Einna almennust
mun þátttakan hafa orðið á
Hornafirði og í Vestmannaeyjúm.
I Þorlákshöfn stóð verkfall yfir
aðeins fyrri daginn.
Það er misjafnt mannanna
fasið enda misjafnt sem
fyrir þeim vakir og á
myndinni eru góð dæmi.
Konan á fullri ferð í áttina
að Lækjartorgi, en maður-
inn staldrar við í rólegheit
um og skoðar málverk af
konu með barn eftir
Blöndal í glugga Klaustur-
hóla.
Samkomulag um landanir ísl. skipa í Hull:
Getum selt allt að 15-20
þús. tonn af ísfisk á ári
Fyrsta íslenzka fiskiskipið er á leid til Bretlands med afla
BREZKUR fiskmarkaður er nú á nýjan
leik opinn íslenzkum fiskiskipum,
par sem í fyrradag var gengið frá
samkomulagi milli fulltrúa Lands-
sambands ísl. útvegsmanna og full-
trúa brezka flutningaverkamanna
sambandsins um landanir íslenzkra’
fiskiskipa á ísfiski í brezkum höfnum.
í samkomulaginu er gert ráð fyrir að
íslenzk fiskiskip landi allt aö 15—20
púsund tonnum á ári en par af fái
Hull 75% aflans. íslenzku fulltrúarnir
lýstu pví yfir að reynt yrði að tryg<jja
sem jafnastar landanir en á móti
kæmi að íslenzku fiskiskipin fengju
alla hina sömu pjónustu og brezk
fiskiskip.
Fram kom í fréttaskeytum að
fulltrúar Breta sem að pessu sam-
komulagi stóðu telja að landanir
íslenzku fiskiskipanna muni tryggja
atvinnu púsunda manna í Bretlandi,
og annar af fulltrúum LÍÚ í viðræðun-
um sagöi í samtali við Mbl. í gær að
með pessu samkomulagi væru is-
lendingar að nýju búnir að ná fótfestu
á brezka fiskmarkaðnum. Fyrsta
íslenzka fiskiskipið, Valpór frá Siglu-
firði, er pegar farið áleiðis til Hull
meö um 60 tonn af fiski, mestmegnis
Búvöruverðið
í yfimefnd:
Bændur ófús-
ir að hækka ullina
SÁTTASEMJARI ríkisins átti í gærdag
fund méð 6-mannanefnd Fram-
reiðsluráðs landbúnaðarins, sem
ákveða skal nýtt landbúnaðarverð, er
taka átti gildi hinn 1. marz s.l.
Ágreiningur er hins vegar innan
nefndarinnar millí fulltrúa neytenda
annars vegar og bænda hins vegar.
í framhaldi af fundinum með sátta-
semjara í gær var ákveðiö á vísa
málinu til yfirnefndar.
Fyrir liggur að hækkun verðlags-
grundvallarins nú er um 9% tæplega.
Afráðið mun að niðurgreiðslan sem
ákveöin er um 1300 milljónir skuli
renna til að greiöa niður sauðfjárafurð-
Grundvöllurinn
hækkar um 9%.
ir og þá einkum kindakjötiö, en með
því er talið að söluskatturinn á þeirri
afurð jafnist nokkurn veginn út, að
sögn Guömundar Sigurjónssonar,
skrifstofustjóra í landbúnaðarráöu-
neytinu.
Hins vegar snýst ágreiningurinn
innan 6-manna nefndar um verðlagn-
ingu á ullarvörum og gæru, en fulltrúar
framleiðenda, þ.e. bænda, eru ófúsir
til að hækka þessar afurðir til jafns viö
hækkun annarra landbúnaðarafurða
og rökstyðja það á þann hátt að
iðnaðurinn muni ekki bera þetta háa
verð, og hækkunin þannig ekki skila
sér aftur til bænda. Fulltrúar neytenda
í nefndinni munu hins vegar ekki geta
fallizt á þaö sjónarmið aö unnt sé aö
taka eina afurð út úr meö þessum
hætti.
Það kemur því væntanlega í hlut
yfirnefndar að skera úr um þetta
ágreiningsefni, en í yfirnefndinni
eiga sæti þeir Sveinn Tryggvason,
framkvæmdastjóri Framleiðsluráðsins
af hálfu framleiðenda, og Jón Þor-
steinsson hrl., af hálfu neytenda en
oddamaöur er Guðmundur Magnús-
son prófessor.
porski, og mun landa ytra á miðviku-
dag eða fimmtudag í næstu viku.
Brezka flutningaverkámannasam
bandið haföi á sínum tíma frumkvæðið
um að setja löndunarbann á íslenzk
fiskiskip í brezkum höfnum í kjölfar
þorskastríösins síöasta fyrir um þrem-
ur árum. Innan þessa sambands eru
löndunarverkamennirnir í brezku fiski-
bæjunum. Að sögn Ágústs Einarsson-
ar, hagfræðings hjá LIÚ, sem tók þátt
í þessum viðræðum ásamt Kristjáni
Ragnarssyni, formanni LÍÚ, fóru þess-
ar viðræður fram að beiðni brezku
aöilanna í kjölfar þess aö löndunar-
verkamennirnir >í Hull höfðu samþykkt
að aflétta löndunarbanninu á íslenzku
fiskiskipi en tillaga sama efnis hefur
hins vegar tvívegis verið felld í
Grimsby.
Viðræöurnar hófust eftir hádegi í
fyrradag, að því er Ágúst sagði, og var
John Prescott, þingmaöur frá Hull, í
forsæti á þessum fundi en helzti
talsmaöur brezku flutningaverka-
mannanna var David Cairns, sem fer
með málefni fiskveiðibæjanna innan
flutningaverkamannasambandsins.
Ágúst sagði að þeir Kristján hefðu
i komið til fundarins með' meginefni
samkomulagsins tilbúiö, og heföu
Bretarnir gert þær breytingar helztar
á textanum að tekið var inn skilyrði
þeirra um að 75% hins landaöa afla
færu um höfnina í Hull. Sagöi Ágúst
það mál hafa verið auðsótt, enda Hull
eina höfnin sem samþykkt heföi að
aflétta löndunarbanninu enn sem
komið væri en hins vegar væri hún ein
nægileg til að íslendingar næði aftur
fótfestu á brezka fiskmarkaönum.
Málefni Grimsby voru þó engu að
síöur rædd á fundinum, og sagöi
Ágúst að Cairns, sem fer eins og áður
sagöi með málefni allra brezku
fiskibæjanna innan verkalýðssam-
bands síns, hefði tvítekiö það á
fundinum að Grimsby myndi einnig
aflétta löndunarbanninu þegar fram
liði. Ágúst sagði, aö þingmaöur
Grimsby Austin Michel sem þátt hefði
tekiö í fyrri viöræðum LÍÚ-fulltrúanna
við brezku flutningaverkamennina fyrir
nokkrum vikum, hefði borið fram
mótmæli vegna þess að ekki skyldi
rætt viö þá Grimsby-menn í þessum
viðræðum, en Ágúst sagöi aö ekki
Framhald á bls. 30.
Spil bátsins
hjó hand-
legginn af
MJÖG alvarlegt slys varð á
ísafirði 1. marz s.l. þegar
fsfirskur sjómaður missti
annan handlegginn er hann
var að vinna við spil á
rækjubátnum Tjaldi ÍS 116.
Sjómaðurinn, sem heitir
Sigurður Helgason, var að
landa ásamt skipstjóra Tjalds,
en Sigurður var við bómuspil.
Lenti Sigurður með vinstri
handlegginn í spilinu með
þeim afleiðingum að hand-
leggurinn fór af nokkuð fyrir
ofan olnboga. Skiptjórinn,
Arnór Sigurðsson, brá mjög
Framhald á bls. 30.