Morgunblaðið - 16.03.1978, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. MARZ 1978
3
„VIÐ fengum fyrstu vítn-
eskju um eldinn í flugvélinni
frá mönnum í snjóruðnings-
deild okkar, sem voru að
störfum úti á flugvellinum.
Fyrsti bíll frá okkur, sem
alltaf er staðsettur úti á
flugbrautunum við flugtök og
lendingar, fór auðvitað beint
á vettvang og fóru menn á
Hægri vængoddurinn
rakst í flugbrautina og
allt varð að einu báli
honum í að hjálpa áhöfninni
út úr flugvélinni. Allt
slökkviliðið fór svo á staðinn
og ætli það hafi ekki liðið um
hálf mínúta frá því fyrsta
kallið kom, þar til allir voru
lagðir af stað. Þegar við
komum að flugvélinni var
hún alelda og ekki um það að
ræða að bjarga henni, en við
lögðum kapp á að verja
vinstri vænginn og það tókst.
Slökkvistarfið sjálft tók rétt
innan við hálftíma," sagði
Sveinn Eiríksson slökkviliðs-
stjóri á Keflavíkurflugvelli í
samtali við Mbl. í gær.
„Svo virðist, sem hjóla-
búnaðurinn hægra megin
hafi brotnað og hjólabúnað-
urinn vinstra megin þá gefið
sig,“ sagði Sveinn. „Vængirn-
ir eru allir einn bensíntankur
og þeir voru fullir af 145
okteina flugvélabensíni, enda
flugvélin að fara í loftið.
Þegar hægri vængoddurinn
rakst í flugbrautina sprakk
bensíntankurinn í loft upp og
bensínið lak út og allt varð að
einu báli.
Við slökkistarfið notuðum
við léttvatn og þurfti um 4000
lítra af því til að slökkva í
flugvélinni, verja' vinstri
vænginn og slökkva ýmsa
smáelda, sem loguðu í hlut-
um úr brakinu. Léttvatninu
er blandað saman við vatn í
hlutfallinu einn á móti tíu,
þannig að til slökkvistarfsins
þurftum við um 40 lítra af
vatni.“
Flugvélin sem eyðilagðist í eldinum. Ljósmi Baldur Sveinsson.
Slökkviliðinu á Keflavíkurflug-
velli tókst að verja vinstri
vænginn.
Ljósm> Varnarliðið.
í slökkviliðinu á Keflavík-
urflugvelli eru 68 menn og
ræður það yfir 16 bílum. Um
20 slökkviliðsmenn eru á vakt
í einu, en auk þeirra tóku
menn úr hliðardeildum
slökkviliðsins; snjóruðnings-
deild og loftvöruflutninga-
deild, þátt í slökkvistarfinu
og notuðu þeir til þess níu
bíla, auk þess sem menn frá
slökkviliðinu í Keflavík komu
á vettvang með einn tankbíl.
„Það má segja, að starf
okkar hafi tekizt vonum
framar, þar sem okkur tókst
að bjarga vinstri vængnum,"
sagði Sveinn, „en upp úr
gnæfir þó björgun allrar
áhafnarinnar."
Slökkviliðið á Keflavíkur-
flugvelli hefur nokkrum sinn-
um hlotið verðlaun sem bezta
slökkvilið á vegum banda-
ríska sjóhersins og á síðasta
ári var það valið bezta
slökkviliðið allra herja, sjó-
hers, landhers og flughers,
Bandaríkjanna og eitt af tíu
beztu slökkviliðum Banda-
ríkjamanna og Kanada.
Flugvélin, sem eyðilagðist í
eldinum, var af gerðinni DC
121. Varnarliðið hefur jafnan
þrjár slíkar á Keflavíkurflug-
velli og tvær til viðbótar í
Florida og mun vél þaðan
koma í stað þeirrar, sem
eyðilagðist í gær.
Varnarliðið gat í gær ekki
gefið Mbl. upplýsingar um
verðmæti flugvélarinnar,
sem eyðilagðist, né tækja-
búnaðarins, en þessar flug-
vélar eru búnar miklum og
margbreyttum radartækjum,
enda notaðar sem hreyfan-
legar radíóstöðvar.