Morgunblaðið - 16.03.1978, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 16.03.1978, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. MARZ 1978 Ekki hafa verið gerðar margar tilraunir á íslandi til Þess aö leggja járnbrautir. Á Árbæjarsafninu má þ6 líta einn af örfáum vögnum, sem notaðir voru á sínum tíma í Reykja- vík. í mörgum Evrópulöndum gekk Þróun járnbrautanna heldur hægt og voru menn ekki á eitt sáttir um ágæti peirra. Kostnaðurinn var mikill og margir töldu, að „heimur- inn“ parfnaðist margs annars miklu fremur en hraðskreiðra járnbrauta. Sjöunda desember, 1835 var fyrsta járnbrautin vígð i NUrnberg í Þýskalandi, en Þróunin Þar varð Þó heldur hægfara eins og víða annars staðar. Hins vegar er Það varla ofsögum sagt, að Þróun járnbrauta varð Sambandsríkjum Ameríku fjár- hagsleg björgun á margan hátt. Fyrsta Kyrrahafs „línan" var vígð árið 1869, og lá á milli Omaha og San Francisco. Hún var 5320 kílómetrar og til Þess að Ijúka viö helming lagningarinnar voru ráðnir um 10.000 Kínverjar! Og eins og sjá má af myndinni óku járnbrautirnar sums staðar yfir fjöll og dali og komust menn Þá stund- um í hann krappann, Þegar sveitir Indíána ráðust á vagnana. Járnbrautír eru víða hið Þarfasta Þing, en oft reknar með miklum halla, sem greiddur er af ríki og sveitarfélögum. Það eru Því margir sem spá járnbrautunum ekki langra lífdaga. Barna- og fjölskyli Wrlr S. Gudbergsson Rúna Gísladöltlr Heilabrot fyrir alla fjölskylduna Aðeins ein eldspýta! Margir hafa notfært sér ágœtt skíðafœri að undanförnu og hefur oft verið mannmargt á skíðasvæðum í nágrenni höfuðborgarinnar. Pétur ætlaði líka á skíði um daginn. Hann var einn á ferð og fór á undan félögum sínum til þess að hita ujrp húsnæð- ið. Hann bar inn eldivið, tók niður oliu og hellti á lampann — og auk þess var lítill kertisstubbur á borðinu. En sér til mikillar skelfingar uppgötvar Pétur allt í einu, að hann er aðeins með eina eld- spýtu í stokknum! Og nú lendir hann í miklum vanda, sem þið getið eftil vill hjálpað honum með! Á hverju á hann að kveikja fyrst? Hvað voru systkinin mörg? sagði, að hdn ætti jafn margar systur og bræður, en elsti brdðir hennar, Guðmundur sagðii Eg á helmingi færri bræður en systur! Nií getið þið reynt að leysa þessa Jbraut í sam- einingu. Hvað voru bræðurnir margir? En systurnar? Lausn er annars staðar á opnunni. juvagCf uvuunjsfls ud ‘mmJ naoa amangæag jiuuniddspjd p vfqtoaq qv iaf p vCaflq qv anjpj aiafíf jsaq ava vBojiuudg> — uvjhdspjj <uin;joqn{idq qia usnnq * * < rf \ — Ég má alls ekki sulla í piillunum — mamma segir, að ég megi ekki blotna! Um neglur Þeir vísu eru alltaf að uppgötva eitthvað nýtt. Nú þykir sannað, að á rétthentum mönnum vaxi neglur örar á hægri hendi en hinni vinstri. Á örvhentum vaxa hins vegar neglurnar hraðar á vinstri ^ hendi. Neglurnar á mið-fingrunum vaxa örast. Þá veiztu það... ORÐ UM KÆffLEIKA Þótt fjöllin færist úr stað og hálsarnir riði, mun miskunnsemi mín ekki færast úr stað, og friðarsáttmáli minn ekki raskast, segir Drottinn, sem augsýnir þér miskunn. Jesaja 5U,10. VEGIR OG VÉLAR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.