Morgunblaðið - 16.03.1978, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. MARZ 1978
17
Málm- og skipa-
smiðir vilja
að endurskoðuð
verði verðlagning
útseldrar vinnu
NÝLEGA var haldinn almcnnur
fundur Sambands málm- og
skipasmiðja og fjallaði hann um
yfirvofandi rekstrarstöðvun
vegna tapreksturs eins og segir
í frétt frá SMS. Á fundinum var
eftirfarandi tillaga samþykkti
„Vegna aðgerðaleysis stjórn-
valda og óviðunandi rekstrarskil-
yrða málmiðnaðarfyrirtækja,
sem leitt hafa til langvarandi
tapreksturs, samþykkir almenn-
ar fundur Sambands málm- og
skipasmiðja að fela aðildarfélög-
um sínum að afla nú þegar
heimilda til handa framkvæmda-
stjórn S.M.S. til að fylgja eftir
framkomnum hugmyndum.
Þar með taldar eru aðgerðir,
sem leitt geta til allsherjar-
stöðvunar atvinnurekstrarins, ef
ekki næst fram endurskoðun og
úrbætur á verðlagningu útseldrar
vinnu og öðrum þeim þáttum sem
ráða rekstrarafkomu
fyrirtækjanna."
AÐ Vallagerði 36 í Kópavogi efndu þessir krakkar til hlutaveltu
til ágóða fyrir Styrktarfél. lamaðra og fatlaðra. Söfnuðu
krakkarnir rúmlega 2300 kr. Krakkarnir heitai Gyða
Eyjólfsdóttir, Friðþjófur Eysteinsson og Bergdís Eysteinsdóttir.
ÞESSIR krakkari Soffía ó. Ketilsdóttir, Lísa R. Guðmundsdóttir,
Axel Guðmundsson, og Hildur S. Ragnarsdóttir öll til heimilis
í Hlíðahverfi. efndu þar til hlutaveltu til ágóða fyrir
Blindrafélagið. Söfnuðu krakkarnir tæplega 6400 krónum.
tæki í Breiðholti
Ogaden-
striðinu
lokið
— segir bandaríska
utanríkisráðuneytið
Washingon — 14. marz —
Reuter-AP
BANDARÍSKA utanríkisráðu-
neytið lýsti því yíir í dag að
bardagar í Ogaden væru hættir
og mætti telja að styrjöldinni
milli Eþíópíu og Sómala á Afríku-
horninu væri lokið. Um leið var
frá því skýrt af hálfu ráðuneytis-
ins að nefnd háttsettra erindreka
væri á förum til Sómalíu.
Kúbumenn viðurkenndu í dag í
fyrsta skipti þátttöku í styrjöld-
inni í Ogaden, en þar er talið að
sé um 12 þúsund manna kúbanskt
herlið um þessar mundir. Enn
hefur ekki frétzt að liðsauka, sem
er á leiðinni frá Kúbu, hafi verið
snúið við, þrátt fyrir yfiriýsingar
Sovétmanna um að þeir ætli að
beita áhrifum sínum til að fá
Kúbumenn til að hætta við frekari
afskipti af ófriðnum.
Júgóslavneska fréttastofan
Tanjug greindi frá því í dag, að
stjórnarherinn í Eþíópíu væri nú
kominn fast að landamærum
Sómalíu, og hefði hann náð á sitt
vald sex bæjum úr höndum
Sómala undanfarna daga.
JC kynnir og
selur eldvarna-
JUNIOR Chamber Breiðholti er
um þessar mundir að hefja kynn-
ingu og sölu á eldvarnatækjum í
Breiðholtshverfum.
Ástæðan fyrir því að félagið
hefur ráðist í þetta viðamikla
verkefni, er fyrst og fremst vegna
hinna tíðu bruna, sem orðið hafa
að undanförnu bæði á geymslum
og íbúðum, í hverfunum.
Félagsmenn vilja leggja á það
áherslu að í Breiðholti er engin
slökkvistöð og að það taki slökkvi-
liðið a.m.k. 10—15 mínútur að
komast á brunastaö innan Breið-
holtshverfa, frá því að hringt er.
Ef rétt gerð af slökkvitækjum eru
fyrir hendi, þegar eldur kviknar,
má í flestum tilfellum hefta
útbreiðslu hans eða jafnvel
siökkva á þeim biðtíma, sem líður
áður en slökkviliðið kemur á
staðinn.
Samkvæmt upplýsingum frá
Eldvarnaeftirlitinu eru eldvarnir
í Breiðholtshverfum í molum og
því þörf á skjótum úrbótum. Þá er
einnig rétt að benda á það, að
peningunum er ekki kastað á glæ
meö því að kaupa eldvarnatæki,
heldur er hér um góða fjárfestingu
að ræða, því flest tryggingafélög
veita afslátt af iðgjöldum fyrir þá
sem hafa eldvarnir sínar í góðu
iagi.
En þar sem ekki er nóg að selja
eldvarnatæki til aðila sem kannski
kunna ekki með þau að fara, þá
hafa 20 félagar úr JC Breiðholt nú
sótt námskeið, þar sem þeim var
kennt að kenna öðrum meðferð
tækjanna og viðhald. En erfitt er
að kenna fólki að slökkva eld,
nema eldur og tæki séu fyrir
hendi. Þess vegna hefur félagið
gengist fyrir því, að Eldvarnaeftir-
lit Reykjavíkurborgar verði með
eldvarnasýningar eða sýnikennslu
í því hvernig eigi að slökkva
mismunandi elda. Sýningarnar
verða sem hér segir:
Fyrir Breiðholt I við Breiðholts-
skóía fimmtud. 16.3 kl. 20.00; fyrir
Breiðholt III við Fellaskóla
fimmtudaginn 30. 3. kl. 20.00; fyrir
Breiðholt II við Alaska fimmtu-
daginn 13.4 kl. 20.00.
Á öllum sýningunum verða
kveiktir eldar og slökktir með
viðeigandi aðferðum. Breiðholts-
búar eru hvattir til að mæta á
sýningarnar.
Þá verður öllum hverfisbúum
sent bréf þar sem gerð verður
nánari grein fyrír framkvæmd
þessa mikla og þarfa verkefnis.
Eftir að bréfið er komið til
viðtakanda munu JC félagar síðan
ganga í allar íbúðir Breiðholts-
hverfa og kynna íbúunum rétt
viðbrögð gegn eldsvoðum og jafn-
framt bjóða þeim til sölu slökkvi-
tæki af mismunandi stærðum og
reykskynjara af mismunandi
gerðum, allt á mjög hagstæðu
verði, en öll þau tæki sem verða
boðin til sölu eru viðurkennd af
Eldvarnaeftirliti Reykjavíkur-
borgar.
Yfirumsjón með verkefninu hef-
ur Byggðarlagsnefnd JC
Breiðholts.
(Fréttatilkynning).