Morgunblaðið - 16.03.1978, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 16.03.1978, Blaðsíða 7
 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. MARZ 1978 7 r 1 Friðun landhelgi af erlendri veiðisókn Núverandi ríkis- stjórn færði fiskveiði- lögsögu okkar út í 200 sjómílur. Hún fylgdi þessum lokaáfanga okkar til fullra yfir- ráða yfir landgrunn- inu eftir með þeim hætti, að margra alda veiðisókn brezkra og vesturþýzkra á ís- landsmið er úr sögunni í dag. Sá mikilvægi sigur er og verður áhrifamesta vernd of- veiddra nytjafiska, sem mikilvægt er að nái á ný eðlilegri stofn- stærð, er gefi hámarks- afrakstur í þjóðarbú okkar í náinni framtíð. En sagan er ekki þar með fullsögð. Jafn- hliða tókst að tryggja íslenzkum sjávarafurð- um greiðari leið á Evrópumarkað með lækkun og niðurfell- ingu ýmissa tollmúra EBEríkja. í þessu mikilvæga máli, er varðar afkomu og fjár- hagslegt sjálfstæði þjóðarinnar um langa framtíð, hafa íslenzk l^stjórnvöld, studd af um á sviði hafréttar mála, unnið þann sig- ur, sem skráður verður gullnu letri á spjöld þjóðarsögunnar. Friðunar- aðgerðir í kjölfar sigra í land- helgismálum hefur verið gripið til marg- háttaðra friðunar aðgerða heimafyrir. Má þar nefna lokun hrygningarsvæða og uppeldissvæða ung- fisks (bæði skyndi- og langtímalokanir), tímabundnar veiði- stöðvanir hjá fiskveiði- flotanum, ströng ákvæði um möskva- stærð og veiðarfæri, tilraunaveiði og vinnslu lítt nýttra fisk- tegunda, til að létta veiðisókn af ofveiddum tegundum. Veiði loðnu allt árið, með tilheyr andi árangri fyrir fisk- bræðslur nyrðra, og raunar þjóðarbúið í heild, er árangur þeirrar viðleitni. Eng- inn sjávarútvegs- ráðherra hefur fylgt friðunarsjónarmiðum jafn fast og Matthías Bjarnason, þó hann hafi ekki misst sjónar á atvinnulegri og efna- hagslegri þýðingu fisk- veiða fyrir sjávarpláss og þjóðarbúið á líðandi stund. En stærsta fisk- verndin er, sem fyrr segir, friðun íslenzkra fiskimiða af erlendri veiðisókn. Sjávarút- vegurinn og þjóðarkjörin Fiskveiðar og fisk- vinnsla eru og verða um langan aldur lang- drýgsta tekjulind þjóð- arinnar. Þessar at- vinnugreinar eru hreint út sagt megin- uppistaða þeirrar verð- mætasköpunar í þjóð- arbúinu, sem lífskjör þjóðarinnar grundvall- ast á, og þeirrar gjaldeyrisöflunar, sem ber uppi innflutning nauðþurfta okkar (um 40% nauðþurfta okkar eru innfluttar), inn- flutta fjárfestingavöru og rís undir erlendri skuldasöfnun okkar, sem verið hefur óhóf- lega mikil. Útfærsla fiskveiðilandhelginnar og ráðstafanir til verndunar fiskstofn- um vóru því tímabærar stjórnvaldsaðgerðir núverandi ríkisstjórn- ar. Allir viðurkenna gildi sjávarútvegs fyr- ir íslenzkt þjóðarbú og almannaheill. Þegar kemur að hinu að tryggja rekstrar grundvöll fiskvinnsl- unnar, sem hafði að hluta til stöðvast og var sem heild á barmi rekstrarstöðvunar, náði skilningurinn ekki jafn langt, því miður. Stöðvist fisk- vinnslan fæst að vísu fram „friðunargjörð44, varðandi veiðisókn, en verðmætasköpun og gjaldeyrisöflun stöðv- ast, sem þýðir innreið atvinnuleysis og kjara- rýrnun. í ljósi þessar- ar staðreyndar verður að líta efnahags- ráðstafanir núverandi ríkisstjórnar. Engin ríkisstjórn grípur til slikra ráðstafana að gamni sínu með tvenn- ar kosningar framund- an. Annarra kosta var einfaldlega ekki völ, ef tryggja átti að hjól atvinnulífsins snerist áfram. Sjálfstæðis- menn í fararbroddi Sjálfstæðismenn hafa verið í farar broddi sóknar í land- helgismálum allt frá því að landgrunnslög- in vóru sett, 1948, en á þeim hafa allar síðari gjörðir okkar í þessum efnum verið byggðar. Það var Ólafur Thors sem réð hafréttar- fyæðinginn Hans G. Andersen í þjónustu íslenzka ríkisins til að undirbúa sókn okkar á þessum vettvangi, en hann hefur verið far- sæll ráðgjafi íslenzkra stjórnvalda síðan. Illutur Sjálfstæðis- flokksins og forsætis- og sjávarútvegs- ráðherra hans í loka- áfanganum, 200 mílun- um, og samningum, er leiddu til lykta brezkr- ar og vesturþýzkrar veiðisóknar, er mönn- um í svo fersku minni, að óþarfi er að árétta hann sérstaklega. Mbl. hefur frá upphafi bar- izt eindregið fyrir út- færslunni í 200 mflur. Það kemur því spánskt fyrir sjónir er einn af þingmönnum F ramsóknarf lokksins reynir að gera lítið úr hlut Sjálfstæðis- flokksins á þessum vettvangi á flokks- þingi Framsóknarfl. Slík iðja er máske mannleg en alls ekki stórmannleg. Hún skiptir og litlu máli til lengri tima litið. Staðreyndirnar tala sínu máli nú og framvegis, hvað sem líður tísti slíkra. Lang og miöbylgja Bæði fyrir rafhlöður eða venjulegan straum Verð aðeins kr S PHILIPS heimilistæki sf HAFNARSTRÆTI 3 — 20455 — SÆTÚN 8 — 15655 Svipmyndir á svipstundu Svipmyndir í hvert skírteini Svipmyndir sf. Hverfisgiku 18 • Gegnt Þjóðleikhúsinu ÓSKAGJÓFIN er VASAREIKNIVEI :9IOO SKRIFSTOFDVELAR H.F. \u/ Hverfisgötu 33 Simi 20560 AKUREYRI — ítölsk hátíð — í Sjálfstæðishúsinu Akureyri, sunnudaginn 19. marz. ★ Kl. 19.30 Hátíðin hefst með borðhaldi. ítalskur veizlumatur. Verð aöeins kr. 2.850,- ★ Ferðaáætlun Útsýnar lögð fram og kynnt. ★ Sýndar verða myndir frá hinum vinsælu sólarströnd- um Spánar, ítalíu, Grikklands og Júgóslavíu. ★ Eiríkur Stefánsson og Helga Alfreðsdóttir syngja við undirleik Áskels Jónssonar. ★ Nemendur úr Dansskóla Heiðars Ástvaldssonar á Akureyri sýna nýjustu dansana. ★ Fegurðarsamkeppni — UNGFRÚ ÚTSÝN 1978 —. Forkeppni. Ferðaverðlaun að upphæð kr 1.000.000- ★ Ferðabingó. Spilað verður um þrjár sólarlandaferðir með Útsýn. ★ Dansað til kl. 1 ★ Missið ekki af óvenju glæsilegri og spennandi, en ódýrri skemmtun. ★ Hátíðin hefst stundvíslega og borðum verður ekki haldið eftir kl. 19.30. ★ Munið, alltaf fullt hús og fjör hjá Útsýn. ★ ENGINN AÐGANGSEYRIR. AÐEINS RÚLLUGJALD. Veriö velkomin. Góöa skemmtun. Kriitín Aðalsteinsdóttir, deiktarstjóri hópferóa- daildar Útsýnar veróur til viótals og gefur upplýsingar um feróir Útsýnar 1978 í verzlun- inni Bókaval, minudaginn 20. marz kl. 1—5.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.