Morgunblaðið - 16.03.1978, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. MARZ 1978
45
J,i
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 10— 11
FRÁ MÁNUDEGI
eftir hana Fredu Utley, sem fór
sem eldheitur kommúnisti til að
sjá sósíalismann gera Rússland að
himnaríki á jörð, þá saknaði ég
stalínistanna, sem ég var alltaf að
karpa við, því þarna gat ég sýnt
þeim aðgerðir kommúnismans sem
ekki var hægt að rengja. Þá barst
upp í hendurnar á mér Verkalýðs-
blaðið og það er auðséð að þeir
ritstjórar þurfa margt að læra. í
bókinni er sagt hvernig kommún-
isminn arðrænir verkamennina og
það eru engin vettlingatök sem þar
eru tekin.
Öll árin sem hún var í Rússlandi
mátti segja að allur almenningur
væri eins og Krúsjeff sagði 1938,
þegar Stalín skipaði honum sem
ritara flokksins að láta verka-
mennina í Moskvu auka vinnuaf-
köstin um 18% og ekkert áttu þeir
að fá fyrir það: „Þeir voru
hungraðir, klæðlitlir og kvaldir af
veggjalús." Hverjir hirtu arðinn af
þeirra þrældómi? Það voru félag-
arnir úr kommúnistaflokknum,
KGB, sem hét svo öðru nafni þá,
svo og Rauði herinn. Og mismun-
urinn á þeirra kjörum og verka-
mannanna var eins mikill og á lífi
aðalsins og almennings á dögum
keisarans enda segir hún að
kommúnistarnir hafi verið eins
blindir á þjáningar annarra eins
og aðallinn á dögum Katrínar
miklu.
Það sem hún furðar sig mest á
var hvernig útlenzkir ferðamenn
létu blekkja sig og svo sárnaði
henni við ensku kommúnistafor-
sprakkana. Þeir sátu á fínasta
hótelinu í Moskvu, átu og drukku
og töluðu svo á kvöldin um allt
þetta fina sem þeim hafði verið
sýnt, en að þeim dytti í hug að líta
í kringum sig...
Það flögraði ekki að þeim, enda
hefðu þeir kannski ekki verið alveg
eins froðufellandi þegar heim kom.
Sannleikurinn var nefnilega sá að
1914 voru kjör almennings miklu
betri en 1935. Útlendingum var
sagt að brauðið- væri fjórum
sinnum dýrara en þeim var ekki
sagt að kjötið væri 18 sinnum
dýrara. Utley hitti gamla konu
sem engar tekjur hafði og fá-
tækrastyrkurinn í Rússlandi var
enginn. Ég hef það ágætt, sagði sú
gamla, tveir synir mínir í Rúss-
landi geta ekkert látið mig hafa,
en hann sonur minn sem er
atvinnulaus í Bandaríkjunum
hann bjargar mér á styrknum
sínum. Hún gat nefnilega fengið
brauð 18 sinnum ódýrara af því
hún átti dollara. Óstjórnin á
fyrirtækjum var þannig að ekkert
gat borið sig. Þýzku kommúnist-
arnir komu unnvörpum, allir trúðu
þeir á kerfið en svo flýðu margir
nasistanna. Þeir komu með kunn-
áttu og verksvitið en þegar þeir
fundu hvernig sósíalisminn var í
framkvæmd þá fóru þeir að spyrja
og þá voru þeir teknir úr umferð
og kunnáttulausir félagar úr
flokknum tóku við og árangurinn
lét ekki á sér standa.
í finnsk-rússneska stríðinu þeg-
ar 1 milljón Rússa var fallin og
Stalín skammaði Vorisiloff þá
sagði hann bara: Það er búið að
drepa alla almennilega liðsfor-
ingja. Hér er aftur á móti arðránið
ekki meira en það, að mennta-
málaráðuneytið og tryggingarnar
taka tvo þriðju af öllu sem í
ríkiskassann kemur. Að lokum vil
ég segja að mig langar til að halda
áfrarrt með fræðsluna.
Húsmóðir.“
• Um vegamál
Ökumaður, sem mikið ekur úti
á landi, tjáði sig um vegamálin:
— Senn líður að því að vegir
taka að verða færir þ.e. án
snjóalaga, skriðufalla og fleira
þess háttar þótt það sé e.t.v. enn
of snemmt að tala um það. En það
sem mig langar að fá nokkra
umræðu um er almennt um
vegamál og fyndist mér fróðlegt að
heyra skoðanir þeirra sem mest
aka um vegina, langferða- og
vöruflutningabílstjóra. Mér finnst
nefnilega alltof lítið vera gert af
því að tala við þá menn sem einna
mest nota vegina, sérfræðingar
eru alltaf spurðir álits og látnir-
segja hitt og þetta, sem er
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á Noregsmeistaramótinu í
Bergen í fyrra kom þessi staða upp
í skák þeirra Helmers, sem hafði
hvítt og átti leik, og Ilarestads.
19. IIxeG! — Dxf4? (Skárra var
19.... Hxe6, þó að eftir 20. Df7+
— Kh8, 21. Rxf7 hafi hvítur
vinningsstöðu) 20. He8+ og svartur
gafst upp. Eftir 20.... Hf8, 21. Df7
mátar hvítur og eftir 20.... Hxe8,
21. Dxe8+ - Hf8, 22. Dxf8+! -
Kxf8, 23. Rg6+ vinnur hvítur létt.
Hinn tvítugi Knut Joran Helmers
frá Osló varð skákmeistari Nor-
egs, annað árið í röð. Leif Ögaard
varð í öðru sæti.
vissulega nauðsynlegt og gott, en
hvernig væri að fá viðtal við
nokkra slíka sem ég áðan nefndi
og bara heyra skoðanir þeirra
almennt á því hvernig stjórnun
vegamála hefur tekizt til hér á
landi á undanförnum árum.
Væntanlega hafa þeir eitthvað
kynnt sér áætlanir um vegamál og
gætu tjáð sig um þær líka.
HÖGNI HREKKVÍSI
Ekk...
með mús hingað.
Er ekki mús,
hamstur ...
MOSAIK
HARÐVIÐAR-
PARKET
Nýborg c§}
Byggingamarkadur
Ármúla 23 s. 86755
Bifreiöastilling,
Smiöjuveg 38, Kópavogi
sími 76400
Ljósaskoðun samstundis.
Bifreiöastilling,
Smiðjuvegi 38, Kópavogi,
sími 76400.
ÞORSKANET
''í 5 + ■>■ + ' ^ ^ \ * ,<SS Vs „ X
‘ GRÁSLEPPUNET
Tryggvagötu 2 Sími:21380
^■ORÁ^I
BAKAÐAR
BAUNIR
í tómatsósu