Morgunblaðið - 16.03.1978, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. MARZ 1978
QLÖM
VIKUNNAR
UMSJÓN: ÁB.
Blóm í beðjaðra
og breiður
Hinn silfurgrái loðni
fjaðurskipti
silfurkambur er tilvalin
jurt bæði í beðjaðra og
stórar breiður vegna hins
sérkennilega litar. Nafn
dregur hann af hinum
kambskiptu blöðum sem
eru allstór með þéttum
ljósum hárum báðum
megin. Stöngull harður
neðst og greinóttur.
Silfurkambur er
ræktaður sem einær jurt
og má fjölga honum með
græðlingum og fræsán-
ingu. Er þá sáð til hans
*inni og jurtin gróðursett
út í garðana þegar tíð er
orðin góð. Einar Helgason
garðyrkjumaður ræktaði
silfurkamb en um langt
árabil hefur hann verið
sjaldséður þangað til ný-
lega að garðyrkjustöðvar
tóku til að rækta hann og
þrífast hér prýðiiega móti
sól í sæmilegu skjóli.
Þetta er eiginlega ein
tegund, stundum kölluð
skrautnál og afbrigði af
henni. Hæðin er aðeins
10—20 sm. Blómin eru
mjög smá en mörg saman
í klasa og hunangsilmur
af þeim. Algengast hér er
afbrigðið Benthamii
compactum lágt og þétt-
vaxið með snjóhvítt blóm.
Annað algengt afbrigði er
Violet queen með fjólublá
blóm. Þá eru einnig til
afbrigði með mislit blöð.
Nálablómin eru mjög
hentug í bryddingar og
breiður og þurfa að
gróðursetjast all þétt, en
með því móti geta þau
myndað fallegar lágar
breiður þegar kemur
fram í júlí mánuð. Ef
visin blóm eru numin
Silfurkambur — Cineraria maritima
hafa á boðstólum á vorin.
En þið getið einnig sáð til
hans sjálf. Vísindanafnið
er: Senecio maritima eða
Cineraria maritima og
skal nota það ef pantað er
fræ frá útlöndum. Silfur-
kambur er eingöngu
ræktaður vegna blaðanna
en litur þeirra og lögun
eru góð tilbreyting,
grænka og skrautleg blóm
fara vel við hinn silfur-
gráa lit. Sumir rækta
silfurkamb sem innijurt,
flytja litlar jurtir úr
garðinum inn þegar líða
tekur á sumar.
Nálablómin eða garða-
nálarnar (Alyssum
maritima) eru lágvaxnar
jurtir með djúpar rætur.
Vaxa oft í smábrúskum.
Blöðin eru smá og gráleit
af stjörnuhárum. En
aðalskaut þessarar jurtar
eru hvít eða ljósfjólublá
blómin. Þessi nálablóm
eru einærar jurtir sem
burt jafnóðum eða klippt
ofan af þegar flest blóm
eru fallin getur jurtin
blómgast að nýju ef tíð er
góð. Nálablómin geta
einnig farið vel í steinhæð
og þá sérstaklega
bergnálin (Alyssum
saxatile) sem er fjölær,
hálfrunnakennd og ber
mikinn fjölda af gulum
blómum. Hið himinbláa
brúðarauga (Lobelia)
bláklukkuættar er einnig
ágætt í Iágar breiður og
bryddingar. Einær jurt
sem sá þarf til snemma,
mun fyrr en til skrautnál-
ar. Ýmis afbrigði eru til,
sum dökkblá, önnur
fagurblá eða jafnvel hvít,
Einnig hæf sem stofujurt.
Ættuð frá S-Afríku en
nálablómin frá Mið-
jarðarhafslöndunum,
silfurkambur frá Suður-
Evrópu. Jú, margt þrífst á
íslandi ef hlúð er að því!
I.D.
Margeir og Larsen eigast við í síðustu umferð Reykjavíkurskákmótsins. Ljósm
Konráð S. Konráðsson.
Larsen lagður að velli
Ein af þeim skákum, sem
hvað mesta athygli vakti á
Reykjavikurskákmótinu var
viðureign Margeirs Pétursson-
ar og Bent Larsens í síðustu
umferð. Larsen hafði tapað
tveimur næstu skákum á undan
og þar með forystunni í mót-
inu, en með jafntefli eða sigri
gegn Margeir hefði Larsen
hafnað í efstu sætunum. Svo fór
að Margeir vann skákina ör-
ugglega og varð Larsen að láta
sér lynda að dcila 3.-6. verð-
launum með þeim Friðrik
Olafssyni. Hort og Lombardy
- að vísu ekki í kot vísað meö
félagsskapinn, en engu að si'ður
úrslit, sem fáir reiknuðu með
og sennilcga sízt Larsen sjálf-
ur, sem kominn var með hálfs
annars vinnings forskot á
tímabili. Þessi örlagarika skák
fer hér á eftir með skýringum
Margeirs Péturssonar.
Hvítti Margeir Pétursson
Svarti Bent Larsen
Katalan hyrjun
1. c4 - e6, 2. g3 - Rf6, 3. Bg2
- d5, 4. RÍ3 - Be7
(4.... dxc4 er vafalaust örugg-
asta leið svarts til tafljöfnunar
í þessari stöðu)
5. 0-0 - 0-0, 6. d4 - Rbd7, 7.
Dc2 - c6, 8. Hdl
(Þessum leik er sérstaklega
beint gegn næsta leik svarts.
Það liggur í augum uppi að eftir
8. b3 — b5 er 9. cxb5 ekki eins
hagstætt hvítum og í skákinni,
því að eftir opnun c-línunnar
gæti svartur náð fótfestu á c3)
b5!?
(Larsen hafði af skiljanlegum
ástæðum ekki áhuga á hinu
hefðbundna rólega framhaldi
8.... b6, 9. b3 - Bb7, 10. Bb2
- Hc8,11. Rc3 - Dc7,12. Hadl)
9. cxb5!
(Þessi leikur hefur ekki áður
komið fyrir í tefldri skák. Hann
er þó án efa sterkasti leikur
hvíts í stöðunni. Eftir 9. b3 —
bxc4, 10. bxc4 — Ba6 hefur
svartur náð því takmarki sem
hann setti sér með 8.... b5 og
eftir 9. c5 — Re4, 10. Rc3 — f5
Skák
eítir MARGEIR
PfeTURSSON
er hrókurinn á dl illa fjarri
góðu gamni á kóngsvæng)
cxb5,"10. Dc6 - Hb8. 11. Bf4
- Hb6. 12. Dcl
(Mun lakara væri 12. Dc2, þvl að
eftir 12.... Bb7!, 13. Bc7? - Dc8
er það hvítur sem tapar liði)
Re8
(Eftir 12.... Bd6, 13. Rc3 - a6
getur hvítur unnið úr stöðuyfir-
burðum sínum á skemmtilegan
hátt: 14. a4! - b4, 15. a5 - Hc6.
16. Bxd6 - Hxd6, 17. Rbl! og
svartur er í mikilli klemmu. T.d.
hótar hvítur 18. Dd2 í stöðunni)
13. Rbd2 - Bb7
(13.... a5, 14. a4 bætti ekki
stöðu svarts)
14. Rb3 - IIc6, 15. Dd2 - b4
(Hvítur hótaði Ra5)
16. Hacl - Db6, 17. Rel!
(Báðir riddarar hvíts stefna nú
á aðalveiluna í svörtu stöðunni,
c5 reitinn)
Ref6
(Þessi leikur hefur verið mjög
gagnrýndur. Það er þó vel
skiljanlegt að svartur hafnaði
framhaldinu 17.... Rd6, 18.
Bxd6 - Bxd6, 19. Rd3 - Hfc8,
20. e3, því að þá njóta hvítu
riddararnir sín mjög vel, vegna
þess hversu staðan er lokuð.
Hvítur stendur einnig betur
eftir 17.... Bd6, 18. Rd3, vegna
þess hve riddarar hans eru
fljótir að hertaka c5 reitinn.)
18. Rd3 - Re4?
(Grófur afleikur sem leggur
svörtu stöðuna í rúst. Bezt var
18.... Hfc8, þó að hvítur standi
samt sem áður betur eftir 19.
Rbc5! — a5, 20. a3!)
19. Bxel — dxe4, 20. Rdc5!
(Larsen virðist gjörsamlega
hafa yfirsést þessi einfaldi
leikur)
Bc8!
(Bezta vörnin. Svartur komst
ekki hjá því að gefa peð.
Reyndar rambaði hann þegar á
barmi glötunar eins og eftirfar-
andi afbrigði sýna: a) 20....
Rxc5, 21. dxc5! — Bxc5? 22. Rxc5
— Hxc5, 23. De3 og vinnur
skiptamun. b) 20.... Rf6?, 21.
Rxb7 — Hxcl, 22. Hxcl — Dxb7,
23. Hc7 c) 20.... Hd8, 21. Ra5!!
— Rxc5, 22. Rxc6 — Dxc6, 23.
De3! og vinnur skiptamun.)
21. Rxe4 - IId8, 22. d5
(Staðan fyrir þennan leik var sú
sem olli mér mestum heilabrot-
um í skákinni. Ég leitaði alllengi
að afgerandi framhaldi, en
komst að raun um að hinum
nærtæka leik 22. De3 getur
svartur svarað með Bb7 og
hefur þá vissa mótspilsmögu-
leika, sem byggjast aðallega upp
á hvítreitabiskup hans, sem
gæti á hverri stundu vaknað til
lífsins. Hvítur yrði þá fyrr eða
síðar að leika f2-f3, en við það
yrði peðið á d4 valt í sessi. Það
varð því úr að ég ákvað að gefa
svörtum kost á að einfalda
taflið. Það var einnig mjög
freistandi að leika þvingandi
leikjum, því að þá hafði Larsen
engan kost á því að neyta
aflsmunar)
exd5, 23. Hxc6 - Dxc6, 24.
Dxd5 — Dc2?!
(Hér átti ég u.þ.b. sjö mínútur
eftir, en Larsen stundarfjórð-
ung. Flestir skákmenn hefðu því
vafalaust kosið framhaldið
24.... Dxd5, 25. Hxd5 - Bb7, 26.
Hd4 - Rf6, 27. Rxf6+ - Bxf6,
28. Hxd8+ — Bxd8. í því
endatafli sem þá kemur upp
hefur svartur vissa jafnteflis-
möguleika, sem byggjast upp á
biskup.apari hans. Möguleikar
hvíts til vinnings eru þó allgóð-
ir, hann getur leikið 29. Rcl og
stillt riddaranum síðan upp á
d3, þar sem hann er stórveldi.
Því væri síðan hægt að fylgja
eftir með f3 og e4, en að loknum
þeim leikjum verða jafnteflis-
möguleikar svarts að teljast
mjög litlir ef þeir eru þá fyrir
hendi)
25. IIcl
I)xe2?
(Tapleikurinn. Síðasti möguleiki
svarts var 25.... Dxb2. Þá
gengur, 26. Hxc8 tæplega vegna
26.... Hxc8, 27. Dxd7 — Dbl+
og nú yrði hvítur að leika 28. Bcl
— Hxcl+ 29. Rxcl — Dxcl+, en
eftir 30. Kg2 - Bf8, 31. Dxa7 -
B3! hefur hann mjög takmark-
aða vinningsmöguleika. Bezt
eftir 25.... Dxb2 er 26. Rg5!
Bxg5, 27. Bxg5 - He8, 28. Hxc8
- Hxc8, 29. Dxd7 - Dbl+ 30.
Kg2 - De4 31. Kh3 - He8, 32.
Rd4 og hvítur hefur tvo menn
fyrir hrók og vinningsstöðu)
26. Rd4!
(Því hefur verið haldið fram að
hvítur hafi einnig getað unnið
með 26. Hxc8. Það er þó fráleitt,
því að eftir 26.... Hxc8, 27.
Dxd7 — Del+ er það svartur
sem stendur með pálmann í
höndunum.)
Dxb2
(26.... Da6 var einnig haldlaust
vegna 27. Rf5 — Bf8, 28. Bg5 —
He8, 29. Rcd6 og svartur tapar
miklu liði)
27. Rc6. Hér sá Larsen sitt
óvænna og féll á tíma, enda
blasir mikið liðstap við honum.