Morgunblaðið - 16.03.1978, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. MARZ 1978
23
Erítrea:
Stjórnarherinn
ad hef ja sókn?
Róm — 15. marz — Reuter.
T?—HERMENN stjórnar-
hersins í Eþíópíu hafa byrjað
meiriháttar hernaðaraðgerð-
ir í því skyni að komast út úr
borginni Asmara, sem er
stærsta borg héraðsins, en
umsátur aðskilnaðarsinna,
sem hafa Erítreu að mestu
leyti á valdi sínu, hefur nú
staðið í marga mánuði. Frá
þessu stkýrði talsmaður að-
'■kilnaðarsinna í Rómaborg í
dag. Hann sagði aðaðskiln-
aðarsinnum hefði tekizt að
hefta sókn stjórnarhersins og
hrekja hann aftur inn í
borgina.
Hér er um að ræða óstaðfesta
fregn, en síðan stjórnarherinn
náði yfirhöndinni í Ogaden, hefur
verið búizt við því að stjórnarher-
inn sækti í sig veðrið í Erítreu.
Aðskilnaðarsinnar fullyrða að í
Asmara sé um 25 þúsund manna
lið.
Elízabet II Bretadrottning sést hér á myndinni ásamt gesti sínum,
Tító Júgóslavíuforseta, í veizlu í Buckinghamhöll á föstudagskvöld.
Ilægra megin við drottninguna má sjá eiginmann hennar. hertogann
af Edinborg. en milli drottningar og Títós er James Callaghan.
forsa-tisráðherra Breta.
Dökkar horfur
í V-Þýzkalandi 55 fangar létust
í Buenos Aires
Bonn, 15. marz, Reuter.
LEIÐTOGAR verkalýðsfélaga og
atvinnurekenda hunzuðu í dag
tilmæli stjórnvalda um að hverfa
aftur að samningaborðinu í
tveimur meiriháttar vinnudeil-
um. sem mjög hafa spillt sambúð-
Fœddist
með
byssukúlu
við mœnuna
Bordeaux, 15. marz, Reuter.
LÆKNUM tókst í dag að
bjarga ungabarni sem fæddist
með byssukúlu rétt við mæn-
una. að því er talsmaður
sjúkrahúss í Bordeaux skýrði
frá í dag. Barnið var tekið með
keisaraskurði snemma á
sunnudag, en skömmu áður
hafði slysaskot hlaupið úr
skammbyssu föður þess í maga
móðurinnar.
Móðurinni og barninu heils-
ast vel, að því er skýrt var frá
á sjúkrahúsinu.
ínni á vinnumarkaðnum
ur-Þýzkalandi.
Aðeins nokkur dagblöð komu út
í öllu Vestur-Þýzkalandi í kjölfar
verkbanns útgefenda á prentara
og u.þ.b. 100,000 málmiðnaðar-
menn lögðu niður vinnu í Stutt-
gart og nágrenni eftir að kom til
verkfalls í morgun.
Þótt horfur á sáttum í deilum
þessum séu allt annað en bjartar
hefur ríkisstjórnin neitað að
skerast í leikinn milliliðalaust af
ótta við að skerða sjálfsforræði
verkalýðsfélaga og atvinnurek-
enda í samningaviðræðum.
Meira en ein milljón málmiðn-
aðarmanna í Baden-Wurtemberg
og Norður-Wetfalen hafa hótað að
fara í verkfall ef nauðsyn krefur.
Veður
víða um heim
Amsterdam 8 rigning
Apena 15 skýiað
Berlín 12 skýjað
Brussei 9 skýjaö
Chicago 3 skýjað
Frankfurt 11 rigning
Genf 9 skýjað
Helsinki -1 heiöríkja
Jóh.borg 25 sólskin
Kaupm.h. 6 skýjað
Lissabon 17 sólskin
London 11 skýjað
Los Angeles 21 skýjað
Madrid 15 sólskin
Málaga 18 heiðskírt
Miami 26 heiðríkja
Moskva 2 skýjað
New York 12 heiðríkja
Ósló 3 snjókoma
París 12 skýjað
Palma 15 skýjað
Róm 15 heiðríkja
Stokkh. 3 skýjað
Tel Aviv 18 heiðríkja
Tókýó 12 sólskin
Vancouver 9 heióríkja
Vínarborg 13 skýjað
Buenos Aires, 15. marz, Reuter
- AP.
FANGELISYFIRVÖLD í
Buenos Aires skýrðu frá í
dag, að 55 fangar hefðu
látizt og þrír særzt í fanga-
uppreisninni í Villa
Devoto-fangelsinu í gær-
morgun. Skýrt var frá því,
að fangarnir hefðu ekki
fallið fyrir byssukúlum held-
ur látizt af brunasárum.
Sagt var að fimm fangaverð-
ir hefðu særzt 1 óeirðunum.
Kona sem var í heimsókn í
fangelsinu er óeirðirnar brutust
út, segir að byssuhvellir hefðu
kveðið við í fangelsinu, líkt og
skotið væri úr vélbyssum. Lögregl-
an skýrði svo frá j dag, að
fangarnir hefðu kveikt í dýnum
sínum og teppum í innganginum
að álmu þeirra. Lögreglan sagði,
að engin kúlnasár hef^u fundizt á
líkum fanganna 55, þeir hefðu dáið
vegna brunasára eða úr reykeitr-
un. Lögreglan segir hermenn,
fangaverði og lögreglu hafa skotið
úr byssum sínum upp í loftið.
Bandaríkin:
Nýtt bráðabirgðasamkomu-
lag í námaverkfallinu
ERLENT
Charleston, V-Virginíu
— 15. marz — Reuter.
FORVÍGISMENN kola-
námamanna eru fremur
bjartsýnir á að lausn sé
skammt undan í lengsta
námaverkfalli í Bandaríkj-
unum til þessa. í gær náðist
bráðabirgðasamkomulag
um lausn verkfallsins, sem
tekur til 160 þúsund verka-
manna. en það hefur nú
staðið í 100 daga.
Ef samkomulagsdrögin verða
samþykkt gengur endanlegt sam-
komulag í gildi í fyrsta lagi eftir
10 daga. Fyrst verður 39 manna
ráð samtaka kolanámamanna að
samþykkja drögin, en síðan fer
fram allsherjaratkvæðagreiðsla.
Hingað til hafa kolanámamenn
tvívegis fellt samningadrög sem
samninganefndin hefur samþykkt.
Ekki er vitað um efnisatriði þess
samkomulags, sem nú liggur fyrir,
en Cecil Roberts, einn helzti
forvígismaður námamanna, sagði í
dag að námaeigendur hefðu slakað
verulega á í afstöðu sinni til
kröfugerðarinnar.
Roberts sagði að samningurinn
nú væri margfalt hagstæðari en
fyrsta bráðabirgðasamkomulagið,
sem gert var. Treglega hefur
gengið að fá námamenn til að snúa
aftur til starfa eins og
Taft-Hartleylöggjöfin mælir fyrir
um, en Carter forseti hefur beitt
henni í því skyni að, binda enda á
verkfallið. Nokkuð hefur verið um
átök og erjur meðal verkamanna
vegna ágreinings um það hvort
lögunum skuli hlýtt, en ekki hefur
komið til alvarlegra átaka.
Kólera
í Kenýa
Nairobi, 15. marz, AP.
KÓLERA, sem orðin er að far-
aldri á afmörkuðum svæðum í
Tanzaníu, gerir nú vart við sig í
Kenýa. Barst veikin frá Tanzaníu
með konu er var í heimsókn í
Kenýa.
Heilbrigðismálaráðherra
Kenýa, James Osogo, skýrði frá
því í blaðaviðtali í gær að fyrsta
fórnarlamb veikinnar væri látið.
Hann sagði að grunur léki á um
nokkur fleiri kólerutilfelli og hafa
þrír menn verið sendir í einangrun
á sjúkrahús.
Yfirvöld í Tanzaníu hafa skýrt
frá því, að 300 manns hafi látizt
úr kóleru þar í landi, en óstaðfest-
ar fregnir herma þó að sá fjöldi sé
meiri.
Tongsun Park
gefur upp nöf n
Washington, 15. marz, Reuter.
SUÐUR-kóreski auð-
kýfingurinn Tongsun Park
hefur látið rannsóknarnefnd
öldungadeildar bandaríska
þingsins í hendur lista yfir
nöfn öldungadeildarþing-
manna, sem hann fjármagn-
aði meðan á kosningarbar-
áttu þeirra stóð.
Park skýrði frá því á þriðjudag,
að hann hefði gefið upp nöfn innan
við sex öldungadeildarþingmanna
og hefðu greiðslur hans til þeirra
verið fullkomlega löglegar. Millj-
ónamæringurinn, sem fyrrum
verzlaði með hrísgrjón, gaf blaða-
mönnum þessar upplýsingar eftir
að hafa svarað spúrningum siða-
nefndar þingsins fyrir luktum
d.vrum.
Auðmaðurinn hefur viðurkennt
að hafa borgað hundruð þúsunda
Bandaríkjadollara til ýmissa aðila
í Bandaríkjunum. Hann tók þó
fram, að mjög lítill hluti fjársins
hefði runnið í vasa öldunga-
deildarþingmanna. Yfirheyrslum
vfir Park verður haldið áfram.
Þetta gerðist
Þjóðverjar hafa að undanförnu reynt að lappa upp á dollarann. En
allt virðist koma fyrir ekki.
Dollar á sömu braut
London, 15. marz, AP.
DOLLARINN hjarnaði heldur
við á gjaldeyrismörkuðum í
Evrópu á miðvikudagsmorg-
un, en fór síðan að dala á ný
þegar leið á dag.
Að sögn verðbréfasala var
mikill handagangur í öskjunni
eftir að það spurðist út, að
japönsk yfirvöld hefðu ákveðið
að lækka forvexti, auka bindi-
skyldu og takmarka sölu yen-
hlutabréfa til útlendinga.
Japanski aðalbankinn mun
að sögn halda fund til að taka
ákvörðun um lækkun forvaxta
um þriðjung úr prósenti, niður
í 3,5%. Bindiskylda mun að
öllum líkindum verða aukin úr
50% í 100%.
1976 — Harold Wilson
segir áf sér sem for-
sætisráðherra Breta.
1968 — Öldungar-
deildarþingmaðurinn
Robert F. Kennedy seg-
ist ætla að keppa að
útnefningu sem forseta-
frambjóðandi Denió-
krataflokksins til að
reyna að breyta þvi sem
hann kallaði háskalega
stefnu Bandaríkja-
manna í Yíetnam og í
innanríkismálum.
1915 — Japanir gefast
upp gagnvart Banda-
ríkjamönnuni á Iwo
Jinta á Suður-Kvrrahafr.
1939 — Þjóðverjar taka
að sér „vernd" Slóvakíu
og Ungverjar slá eign
sinni á Rúmeníu.
1935 — Þjóðverjar neita
að taka (il greina. af-
vopnunarákvæði Ver-
salasáttmálans, sem
batt enda á heims-
styrjöldina fyrri.
1931 — Samningur
undirritaður í Róm miili
Itala. Austurríkismanna
og Ungverja um Dónár-
bandafag gegn vina-
bandalagi Tékka.
Rúmena og Júgóslava.
1921
Herir banda-
manna taka Konstantín-
ópel.
1917 — Níkulás II
Rússakeisari segir af sér
völdum og Georg Ivov,
prins, Paul Milikov og
Alexander Kerensky
mynda ráðuneyti í Rúss-
landi.
1812 — Austurríkis-
menn, r bandalagi við
Frakka, samþykkja að
sjá Napoleón Bonaparte
fyrir hernúmnuni.
1690 - Lúðvík XIV
Frakkakonungur sendir
her til írlands til að
berjast við James II.
1531 — Englendingar
slita öllu samhandi við
páfadóm rófnversk-ka-
þólsku kirkjunnar.
1521 — Portúgalski
sæfarinn. Ferdinand
Magellan, kemur til
.Filippseyja.
Afmæli eiga t dag.
James Madison, fyrr-
verandi forseti Banda-
ríkjanna (1751 — 1836)
Hugleiðing dagsins.
„Sigurinn er þeirra, sem
þrauka lengst“.
Napoieon Bonaparte
(1769 - 1821)
L