Morgunblaðið - 29.03.1978, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. MARZ 1978
21
er nú lyrst <>k fremst
til þess að halda lffi í giinKunni.
sem (“K er aú dunda þetta.“
sajfði Páll Guðbjörnsson, er
Mbl. ra>ddi við hann að lokinni
30 km jíönsunni. en Páll var sá
eini ..ölduntianna" sem tók þátt
í háðum ííönKunum ok hoð-
xönKunni. en hann er nú 19
ára. Hinir „iildunjíarnir" voru
bróðir Páls. Ilermann. sem
stendur á fimmtugu. og Gunn-
ar Pétursson. ísafirði. 18 ára.
sem nú keppti á sínu 30.
landsmóti.
„Ég var fyrst með á landsmóti
1949 í Reykjavík og þá í 17—19
ára flokknum með Gunnari
Péturssyni," sagði Páli. „Þá varð
ég í fjórða sæti á eftir þremur
ísfirðingum; Gunnari, Oddi
Páll Guðbjörnsson
Mikill söknuður,
þegar Þingeyingar
hættu í göngunni
. __..... U.„ . U
segir Péll Guðbjörnsson, 49 ára, sem keppti í
göngugreinunum nú
bróður hans og Ebenezer
Þórarinssyni. Á þessu móti
keppti ég fyrir Siglufjörð. Ég
var svo meö til 1953 að ég hætti,
en 1961 keppti ég aftur á
landsmóti og var svo einstaka
sinnum með og þá sem Fljóta-
maður, en síðustu fimm árin hef
ég alltaf keppt og þá fyrir
Reykjavík.
Það var nú fyrst og fremst
hugsunin hjá mér, þegar ég
byrjaði aftur hér syðra að lífga
við gönguna í Reykjavík og nú
er svo komið, að við eigum um
helming skráðra keppenda í
Við spurðum Pál, hvort hann
merkti einhvern mun á göngu-
keppninni nú og fyrr. „Það get
ég ekki sagt, svaraði hann.
„Þetta er alltaf sami barningur-
inn og svo segir smurningin sitt,
þegar menn eru jafnir. Eg held
að þetta sé ósköp svipað allt
saman.
Þó hefur ein breyting átt sér
stað og hún er sú, að nú æfa
toppmennirnir allt árið. Það var
ekki hér áður fyrr.“
— Hvaða göngumenn erun
þér nú helzt minnisstæðir af
öllum þeim fjölda, sem þú hefur
keppt við?
„Mér er nú nærtækast að
nefna til Fljótamennina Trausta
göngu. Mér fer því að vera óhætt Sveinsson og Magnús Eiríksson,
aö gefa þettá frá mér, en samt sem reyndar er nú Siglfirðingur
reikna ég nú með að taka þátt
í næsta landsmóti. Og svo veit
enginn, hvað maður gerir, ef
heilsan helzt góð. Ætli ég sé
bara ekki orðinn of gamall til að
hætta þessu. Það mætti segja
mér það,“ og Páil brosir
kankvíslega.
núna. Báðir öruggar og harðar
kempur.
Nú svo gekk ég alitaf með
Þingeyingunum. Þeir voru
gevsilega duglegir göngumenn
og Jón Kristjánsson sigursæll ár
eftir ár. Það var mikill söknuð-
ur, þegar þeir hættu að keppa.“
Gekk miklu betur
en ég bjóst við
- segir yngsti
Vngsti keppandinn á skíða-
mótinu var Nanna Leifsdóttir
frá Akureyri, 11 ára.
„Þetta hefur gengið miklu
betur. en ég bjóst við." sagði
Nanna. er Mbl. ræddi við hana
að mótinu loknu. „Ég náði
fjórða sætinu í stórsviginu og
svo unnum við flokkasvigið,
þar sem ég náði bezta saman-
lagða tímanum.
Nanna Leifsdóttir
Leifsdóttir frá Akureyrí
En í sviginu klikkaði ég
eitthvað. enda var þetta bara
drulla. sem við vorum að keppa
í."
Nanna sagði að draumurinn
væri að komast til útlanda til
þjálfunar og keppni. „Ég fór út
um jólin, til Italíu, í ferðahópi
Ármenninga. Við vorum með
þjálfara og það var fínt að vera
þarna á skíðum. Auðvitað er það
draumurinn að komast út. Það
er svo allt annað að vera þarna
úti, heldur en hér heima. Og við
sjáum það, að fólkið, sem
stendur sig bezt hér, eru þeir,
sem hafa fengið ta'kifærin
erlendis."
Þegar við spurðum Nönnu,
hvort Islandsmeistaratitill í
einstaklingsgrein væri tak-
markið, svaraði hún. „Mér hefur
nú aldrei tekizt að ná fvrsta
sadi á unglingameistaramóti,
þótt ég hafi unnið punktamót.
Ég veit það ekki. Ég reyni bara
alltaf að gera mitt bezta, hvaða
móti ég svo sem tek þátt í
hverju sinni.“
Þorði ekki að smyrja aftur
því Halldór var á eftir mér
- segir Haukur Sigurðsson, íslandsmeistari í öllum göngugreinum á landsmótinu
„IIANN á afmæli í dag. Hann
á afmæli í dag ...." sungu
Ólafsfirðingar hástöfum. þegar
Haukur Sigurðsson var
kominn í mark sem öruggur
íslandsmeistari í 30 km
göngunni. en sú keppni fór
fram á páskadag. 26. marz, en
þann dag varð Haukur 22ja
ára. Haukur sannaði sig sem
okkar bezta göngumann. því
hann sigraði einnig í 15 km
göngunni og þá auðvitað
einnig í tvíkeppni í göngu, auk
þess sem hann var í sigursveit
Ólafsfirðinga í boðgöngunni.
„Þettá var mjög erfitt. Það fór
svo fljótt neðan úr. Ég skipti um
skiði eftir tvo og hálfan hring og
það dugði,“ sagði Haukur, er
Mhl. ræddi við hann eftir
siguri.nn í 30 km göngunni. „Ég
þorði ekki að fara í það að
smyrja aftur. Halldór Matthías-
son var á eftir mér og það hefði
Haukur Sigurðsson kemur í mark sem sigurvegari í 30 km göngu
og þar með fjórfaldur íslandsmeistari í göngugreinum á
landsmótinu.
getað æst hann upp að sjá slíkt
til mín.
Það var afskaplega erfitt að
hafa hann á eftir sér. Hann er
svo reyndur keppnismaður. Ég
var orðinn mjög þreyttur, þegar
ég byrjaði síðasta hringinn, en
svo náði ég endasprettinum,
eins og venjulega, og þá gekk
dæmið upp.“
Haukur sagði, að hann hefði
æft geysivel í vetur: „Tvisvar á
dag síðan í september, á hverj-
um einasta degi. Við höfum
geysigóða atstöðu á Ólafsfirði,
meðal annars upplýstan 5 km
hring og þessi aðstaða hefur
auðvitað mikið að segja. Hitt er
svo aftur, að það er alltof lítið
af mótum fyrir göngumennina.
Við höfum þetta fimm mót á
vetri og þaö er alls ekki nóg.“
Ilaukur kvaðst hafa byrjað í
göngunni 14 ára gamall. „Ég
vann svo unglingaflokkinn, en
hætti. Maður þurfti svona að
skemmta sér og svo var ég að
byggja. En ég byrjaði aftur
síaðsta árið mitt í 17—19 ára
flokknum og vann þá allt. Þetta
er svo annað árið mitt í
karlaflokki, en í fyrra var ég
þriðji í öllu.“
— Hvað er svo framundan?
„Það eru eftir þrjú mót í
vetur; tvö á ísafirði og Skarðs-
mótið í Siglufirði. Ég býst við að
verða með í þeim öllum..“
— Hvað með utanlandsferð?
„Það verður einhvern tímann
af því að maður komist út.
Okkur vantar að læra svo mikið
í göngunni; alla snerpu og allt
það nýjasta sem menn eru
komnir með erlendis.“
ATTI HREINT EKKI
AÐ VINNA ÞETTA
- segir Björn Ólafsson, sem varð íslandsmeistari í stökki og norrænni tvíkeppni
„Ég átti hreint ekki aö vinna
þetta." sagði Bjiirn Þór Ólafsson
frá ólafsfirði. er Mbl. ræddi við
hann eftir sigur hans í stökkinu,
en með honum tryggði Björn Þór
sér einnig íslandsmeistaratitilinn
í norrænni tvíkeppni 20 ára og
eldri. „Ég hef ekki unnið eitt
einasta mót heima í vetur," sagði
Björn. „Þorsteinn er búinn að
taka mig í þeim öllum og hann
ætlaði líka að sigra hér. Eg var
að vísu ákveðinn í að veita honum
harða keppni. en var alveg sáttur
við annað sætið."
„Ætli ég hafi ekki helzt unnið
stökkið á því að ég var ekki eins
taugatrekktur og strákarnir,“
sagði Björn svo. „Við gátum ekki
séð pallinn frá rásmarkinu og
strákarnir voru eitthvað ragir við
það og einnig var þeim illa við
lyfturstaurinn fyrir naðan. Hvor-
ugt þessara atriða olli mér áhyggj-
um svo' ég gat einbeitt mér að
stökkinu sjálfu."
— Hvernig er skýringin á veldi
ykkar Ólafsfirðinga í norrænu
greinunum?
„Við höfum lagt mjög mikla
rækt við þessar greinar. í vetur
höfum við til dæmis verið með
upplýsta og troðna göngubraut á
Bjiirn Þór Ólafsson bætti sig
í hverju stökkh stökk 38
metra í reynslustökki fyrir
keppnina og 18 metra í
aukastökki eftir hana.
hverjum degi og í stökkinu höfum
við góða aðstöðu fyrir börnin. Hins
vegar vantar okkur ljós í brautina
fyrir þá stóru, en við höfum þetta
35—40 metra æfingapall að
stökkva á."
— Hvað með alpagreinarnar?
„Það er mikill áhugi á alpa-
greinunum á Ólafsfirði, og upp
gangurinn er ör. Við eigum rnikið
af einilegum unglingum og nú
erum við einmitt að brjótast í þv
að fá stóra skíðalyftu.“
— Þið stefnið þá að því að verða
stórveldi í öllum greinum?
„Að sjálfsögðu. Það er eina
takmarkið, sem er raunhæft."
— En hvað með þig sjálfan? Nú
sagöir þú að síðasta landsmóti að
það væri þitt síðasta.
„Já. Ég lét orð faila í þá vegu
Ég hef heldur ekki verið á fullu
vetur. Alls ekki líkt því, sem ég
æfði áður. En þegar ég sá fram á
fáa keppendur á þessu landsmóti
fannst mér ótækt annað en vera
með.“
— Ætlarðu á næsta landsmót?
„Aldurinn er að vísu farinn að
segja til sín. Ég er orðinn 36 ára
En ætli ég verði ekki að láta
reyna á mig einu sinni enn, fyrst
svona tókst til hér í dag.“