Morgunblaðið - 29.03.1978, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 29.03.1978, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. MARZ 1978 3 Nígeríuskreiðin: Frétta að vænta frá Nígeríu 1. „ÞAÐ IIEFUR enn ekkert nýtt gerst í skreiðarsölumálum til Nígeríu. en cins ok áður hefur komið fram, þá kom fram á síðustu viðræðufundum okkar við stjórnvöld í NÍKeríu, að skrciðar sölumálin yrðu athuguð með nýju fjárhagsári, sem hefst 1. apríl n.k. þar í landi." sagði Bjarni Mannússon framkvæmdastjóri ís- lenzku umboðssölunnar h.f. þegar Morgunblaðið ræddi við hann í gær. Bjarni Magnússon sagði að fyrstu frétta vegna skreiðarmáls- apríl n.k. ins yrði jafnvel að vænta á fimmtudaginn, þ.e. 31. marz, því þann dag flytur forseti Nígeríu ávallt ræðu, og er jafnvel gert ráð fyrir að hann komi inn á skreiðar- málin að þessu sinni. Eins og Morgunblaðið hefur margoft skýrt frá liggur skreið hér á landi fyrir um 8 milljarða króna, sem Nígeríumenn voru búnir að semja um kaup á, en stjórnyöld þar í landi hafa ekki heimilað innflutning á þrátt fyrir ítrekaðar viðræður við kaupendur og stjórn- völd þar í landi. Ekkí veruleg röskun á flugi MORGUNBLAÐIÐ hafði sam band við Arnarflug í gær og innti frétta af stöðunni hjá flugfélag- inu eftir óhappið sem önnur vél félagsins varð fyrir í London um helgina. Gunnar Þorvaldsson kvað búið að koma öllum farþeg- um félagsins út sem til hefði staðið að flytja og öllum ís- lendingum heim nema 19 manns frá ísrael. sem hefðu þurft að stanza í Luxemburg. en þeir eru væntanlegir heim í dag. Gunnar kvað Arnarflug aðallega vera með flug erlendis um þessar mundir og væri nú verið að kanna möguleika á leiguflugvél i þær Þessi mynd var tekin á skírdag s.l. af þeirri flugvél Arnarflugs sem lenti í óhappinu í London, en vélin var þá tilbúin til leiguflugs fyrir Air Malta og var búið aö mála vélina í litum þess flugfélags. Amarflugs 4—6 vikur sem það mun taka að gera við vél félagsins í London. Hin vélin er hins vegar í Kenya og verður þar út apríl. Gunnar kvað litla röskun verða á flugi Arnar- flugs hér heima, því Flugleiðir tækju að sér hluta þess flugs og önnur ráð yrðu höfð þar sem vandi væri. óleystur. Þungt haldin eft- ir umferðarslys ELDRI kona liggur þungt haldin á gjörgæzludeild Borgarspítalans eftir um- ferðarslys, sem varð seinni partinn á miðvikudag fyrir viku siðan. Konan, sem er 74 ára gömul, var á leið austur yfir Rauðarárstíg á móts við húsið númer 48 þegar hún varð fyrir bifreið, sem var á leið norður Rauðarárstíginn. Konan slasaðist mjög mikið, fótbrotnaði á báðum fótum, höfuðkúpubrotnaði og axlarbrotnaði. Ásbjörn RE50; Nýr skuttog- ari væntanleg- ur í gærkvöld Hinn nýi skuttogari ísbjarnar- ins h.f. í Reykjavík Ásbjörn RE 50 var væntanlegur til Reykjavíkur um kl. 21 í gærkvöldi, en Asbjörn er annar tveggja skuttogara, sem Isbjöfninn hefur látið smíða í Noregi, hinn fyrri, Ásgeir RE 60, kom til Reykjavíkur í desember s.l. Ásbjörn er smíðaður hjá Flekke- fjord slipp og maskinfabrikk og er tæplega 500 lestir að stærð, eins og Asgeir, en þessir togarar eru sams konar og Gyllir frá Flateyri. D-listinn á Akureyri ákveðinn FRAMBOÐSLISTI Sjálfstæðis- flokksins við hæjarstjórnar- kosningarnar á Akureyri var ákveðinn á fundi fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna þar nyrðra að kvöldi mánudagsins 20. marz. Listinn er þannig skipulagður. 1. Gísli Jónsson menntaskóla- kennari, 2. Sigurður J. Sigurðsson framkvæmdastjóri, 3. Sigurður Hannesson byggingameistari, 4. Gunnar Ragnars framkvæmda- stjóri, 5. Tryggvi Pálsson fram- kvæmdastjóri, 6. Ingi Þór Jóhannsson framkvæmdastjóri, 7. Margrét Kristinsdóttir skólastjóri, 8. Björn Jósef Arnviðarson lög- fræðingur, 9. Rafn Magnússon húsasmíðameistari, 10. Þórunn Sigurbjörnsdóttir húsmóðir, 11. Freyja Jónsdóttir húsmóðir, 12. Hermann Haraldsson bankafull- trúi, 13. Steindór G. Steindórsson ketil- og plötusmiður, 14. Jónas Þorsteinsson skipstjóri, 15. Drífa Gunnarsdóttir húsmóðir, 16. Odd- ur C. Thorarensen apótekari, 17. Óli G. Jóhannsson listmálari, 18. Hrefna Jakobsdóttir húsmóðir, 19. Jón V. Guðlaugsson lyfjalæknir, 20. Friðrik Þorvaldsson forstjóri, 21. Bjarni Rafnar læknir og 22. Jón G. Sólhes alþingismaðúr. nordíHende Gerum tilboð í magnkaup, yður að kostnaðarlausu BUÐI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.