Morgunblaðið - 29.03.1978, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 29.03.1978, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. MARZ 1978 Ný-nasistar ætl- uðu að frelsa Hess Luenborg, Vestur-Þýzkalandi 27. marz. Reuter. LÖGREGLA tilkynnti í dag að hún hefði komist á snoðir um áætlanir þýzkra ný- nasista til að frelsa Rudolf Hess, fyrrum staðgengii Hitlers, úr Spandau-fangels- inu í Vestur Berlín. Hess sem er 84 ára að aldri, er eini fanginn í fangelsinu. Að sögn lögreglu hafa fimm ný-nasistar verið handteknir og leitað er nokkurra annarra. Upp komst um tilraunina þegar gerð var húsleit hjá tveimur Vest- ur-Þjóðverjum, sem eru í fangelsi fyrir til að hafa gert árás á herbúðir í Saxlandi í síðasta mánuði. - I ljos kom að tvimenn- ingarnir voru hægrisinnaðir öfga- menn og komst lögreglan fljótt á slóð samstarfsmanna þeirra. I árásinni á herbúðirnar yfirbuguðu grímuklæddir menn verði og stálu vopnum og skotfærum. Vopnin hugðust ný-nasistarnir nota til að frelsa Hess úr haldi. Kúluis fyrir mömmu og pabba óg barnaís og bamashake á bamaverði Rudolf Hess Hver af áskrifendum Vísis Kannski Gúndi á horninu, Steinka í mjólkurbúðinni eða jafnvel Bensi frændi (þó hann eigi það ekki skilið). Nú, það er tilfellið, þau eiga ölljafnmikla möguleika og ég, því öll erum við áskrifendur að Vísi, (égdreif mig að vísu í það í gœr). Þið hin sem ekki eruð áskrifendur fáið sjálfsagt bara að hlaupa apríl eins og venjulega. Ekki satt? Námamenn til vinnu Washington. Reuter — AP. FLESTIR 160 þúsund handa- ri'skra kolanámamanna hófu störf á ný í dag eftir 110 daga verkfall. Vinna gat þó ekki hafist að fullu því gagnasmið- ir eru áfram í verkfalli á nokkrum svæðum. í nýjum kaupsamningi fá námamennirnir nú 10 dollara og 20 sent á timann. Hækkuðu launin um 2,40 dollara á klukkustund. Ummælum hrundið Washington. Reuter. Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna vísaði á bug í dag ummælum í brezka blaðinu Daily Telegraph um að Rússar væru að byggja stöð fyrir kjarnorkukafbáta sína í hafn- arborginni Cienfuegos á Kúbu. Daily Telegraph sagði einnig að sterkur grunur léki á að Rússar hefðu einnig komið fyrir langdrægum eldflaugum á Kúbu í óþökk við Bandaríkin. Hert á gagnrýni Washington. Reuter. BANDARÍSK stjórnvöld herða nú á gagnrýni sinni á samkomulag Ians Smith for- sætisráðherra Rhódesíu við hófsamari leiðtoga svartra í landinu. Segja stjórnvöld sam- komulagið ólöglegt og veru- lega ábótavant. Talsmaður stjórnvalda sagði að stjórn Smiths hcfði komist til valda með ólöglegum hætti og allir samningar hennar í Rhódcsíu- deilunni því óiögmætir. r Atta manns fórust Zúrich — AP. AÐ minnsta kosti átta manns létu lífið af völdum snjóflóða í svissnesku Ölpunum um páska- helgina. Fjórir hinna látnu voru breskir hermenn. Drukknuðu í flóðum Maputo, AP. AÐ MINNSTA kosti 40 manns drukknuðu og 200 þúsund manns urðu heimilislausir í miklum flóðum í miðri Mozam- bique um páskana. Áin Zam- besi flæddi yfir bakka sína í kjölfar mikilia rigninga og eru flóðin sögð hin mestu í mannaminnum. Flóðin sem enn eru ekki í rénum hafa valdið miklum landspjöllum í Mozambique. Stutt við skæruliða Dar Es Salaam. AP — Reuter FORYSTUMENN svartra skæruliða í Ródesíu, Joshua Nkomo og Robert Mugabe, ræddu um helgina við leiðtoga fjögurra blökkumannaríkja er liggja að Ródesíu. í yfirlýsingu að fundinum loknum heita leiðtogar Tanzaníu, Zambíu, Botswana og Mozambique stuðningi við hernað fylkinga Nkomos og Mugabe. Bandaríkjamenn og Bretar eru hvattir í yfirlýsingunni til að sýna í verki afstöðu sína til friðar í Ródesíu og kalla sem fyrst saman fund leiðtoga til að koma samningaviðræðum í gang á ný.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.