Morgunblaðið - 29.03.1978, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. MARZ 1978
11
Káta ekkjan
Káta ekkjan er nú í annað
sinn uppfærð hér á Islandi.
Fyrri uppfærslan var gerð 1956,
undir stjórn dr. Victors Urbanc-
ic, og eru það þó nokkur tíðindi,
að Magnús Jónsson syngur nú
sama hlutverk og þá. Hljóm-
sveitarstjóri er nú Páll P.
Pálsson og verður ekki annað
sagt en að Páll „depúteri" sem
óperustjórnandi með glæsibrag.
Káta ekkjan er ekki erfitt
viðfangsefni, en Páll hefur
mikla reynslu í stjórnun og
Þjóðleikhúsið ætti að sækjast
eftir því að fastráða slíkan
starfskraft, því hann gæti staðið
fyrir erfiðum uppfærslum og um
leið endurnýjað Þjóðieikhúskór-
inn og veitt honum aðhald, sem
hann hefur ekki notið um
áratuga skeið. Með Pál P.
Pálsson sem stjórnanda gæti
Þjóðleikhúsið boðið upp á
vandaðar óperu- og ballettsýn-
ingar og ekki síður flutning
stærri kórverka. Þjóðleikhúsið
hafði á að skipa fastráðnum
hljómsveitarstjóra fyrir tuttugu
árum og ætti slíkt ekki að þykja
nein ósköp í dag.
Aðalhlutverkin, Hanna
Glawari og Danilo greifi, voru
sungin af Sieglinde Kahmann og
Sigurði Björnssyni. Sigurður
skilaði sínu mjög vel og vár
framburður söngtextans hjá
honum mjög skýr. Aftur á móti
átti Sieglinde Kahmann í erfið-
leikum með íslenska textann, en
hún bætti það svo sannarlega
upp með frábærum söng sínum.
Mikro Zeja barón og konu hans
Valencienne sungu Guðmundur
Jónsson og Ólöf Harðardóttir.
Barónninn á að vera auli, sem
einn sér ekki að kona hans er
honum ótrú og frúin hégómlegt
fiðrildi, sem hefur ekki hugrekki
til að hlýða kalli ástarinnar. í
þessum ástaklúbb er Camille de
Rosillon, sem sungin er af
Magnúsi Jónssyni, nokkurs kon-
ar fimmta hjól á vagni. Efnis-
lega er verið að fjalla um ástina,
framhjáhald, peningagræðgi og
hið ljúfa líf og er í rauninni
furðulegt hve góð skemmtan er
í þessari endemis þvælu. Fag-
lega unnin og ljúfleg og létt
tónlistin eftir Franz Léhár, í
góðum flutningi, hefur skapað
þessari óperettu meiri vinsældir
en flestum öðrum söngverkum.
Árni Tryggvason leikari, fór
með hlutverk Njegusar kansil-
ista og snerist kringum ástar-
kvintettinn með helst til mikl-
um skrípatilburðum. Önnur
hlutverk voru framfærð af
söngvurum úr kórnum og vant-
aði allan borgarbrag á fram-
komu þeirra og engu líkara en
þeir væru í pappafötum, sem
ekki þyldu of mikla hreyfingu.
Það litla sem kórinn söng gerði
hann þokkalega, nema innkoma
tenóranna eftir aðalaríu
Glawari, sem stakk óþægilega í
stúf við fallegan söng Sieglinde
Kahmann augnabliki fyrr. Is-
lenski dansflokkurinn söng og
dansaði og lífgaði upp á sýning-
una, en ótímabær dansatriði í
millispili söngatriða verkuðu
truflandi, þó atriðið sjálft væri
ekki ósnyrtilega gert. Danshöf-
undur er Yuri Chatal og var
mesta furða hvað dansarnir
voru. Það er eins með dansa og
söngva, að blær þeirra er ekki að
öllu leyti fólginn í réttri gerð,
heldur fíngerðari venjum máls
og atferlis, sem ekki verða
numin í einni svipan, en eru
mjög áberandi og afmarkandi
fyrir ýmis menningarsvæði.
Álistair Powell er höfundur
leikmyndar og búninga og var
sviðsmyndin mjög við hæfi.
Gervin voru flest nokkuð góð,
nema Magnúsar Jónssonar.
Bæði hárið og gervið í heild
verkaði truflandi á undirritað-
an. Benedikt Árnason og reynd-
ur leikstjóri og hefur tekist að
gefa sýningunni léttan og
gamansaman blæ og greinileg
forðast leiktilburði, sem bæði
gætu spillt verkinu og auk þess
er erfitt að koma til skila, með
að mestu leyti óreyndu og
óleikhæfu fólki. Sýningin
mæddi mest á Guðmundi Jóns-
syni og Árna Tryggvasyni í
leiktilburðum en sönglega á
Ólöfu Harðardóttur, Magnúsi
Jónssyni, Sigurði Björnssyni og
Sieglinde Kahmann. Magnús
söng sama hlutverk fyrir 22
árum og var söngur hans nú
mjög góður. Ólöf hefur fallega
rödd og af þessari frumraun
hennar má hiklaust ætla henni
framtíð sem óperusöngkonu.
Möndlupersónur verksins voru
Sieglinde Kahmann og Sigurður
Björnsson. Sieglinde var frábær
og vill undirritaður leggja
áherslu á, að hún og Páll P.
Pálsson áttu kvöldið.
VULCAN
Skátar í 10
daga rannsókn-
arleiðangri
BANDALAG íslenzkra skáta
mun í sumar gangast fyrir 10
daga rannsóknarleiðangri á
Öskjusvæðinu í samvinnu við
skáta frá hinum Norðurlöndun-
um og Norrænu eldf jallastöðina.
Hefur leiðangurinn hlotið heitið
„Vulcan projekt Island 1978“ og
er það framhald af samvinnu
eldri skáta á Norðurlöndum,
sem hvað hæst bar er þeir stóðu
saman að alheimsmóti skáta,
Nordjamb 1975, eins og segir í
frétt frá undirbúningsnefnd.
Um 100 skátar frá Danmörku,
Finnlandi, Færeyjum, Noregi,
Svíþjóð og íslandi, 18 ára og
eldri, munu ferðast um og kanna
svæði sem afmarkast af Mývatni,
Jökulsá á Fjöllum, Vatnajökli og
Skjálfandafljóti. Á ferðinni
munu skátarnir vinna að athug-
un á gróðri og dýralífi svo og
kanna jarðsögu svæðisins. Nord-
isk Ungdomsforbund hefur veitt
styrk til verkefnisins og mun
hann verða notaður til að jafna
ferðakostnaði erlendra þátttak-
enda.
Yfirlýsing
EFTIRFARANDI yfirlýsing, sem
fylgja átti grein Ragnars Björns-
sonar, sem birtist í blaðinu s.l.
fimmtudag, féll því miður niðun
„Reykjavík 10. febr. 1978.
Ég undirrituð, sem hefi verið
formaður Tónlistarfélags Kefla-
víkur í 18 ár og starfað allan þann
tíma með Ragnari Björnssyni, sem
var skólastjóri Tónlistarskólans í
Keflavík, gef honum mín bestu
meðmæli og þakka honum gott
samstarf allan þann tíma. Ragnar
vann ómetanlegt brautryðjanda-
starf við skólann.
Þau vita allt um
Hafir þú hug á að kynnast betur
hinum nýju IB-lánum og IB-veð-
lánum, skaltu bara koma eða hringia.
IB-ráðgjafar okkar kunna svör við
spurningum þínum. Sé þess óskað,
geta þeir einnig rætt og ráðlagt um
hve lengi sparað er og hversu há
upphæð.
Að ýmsu þarf að hyggja til að sparn-
aðaráætlunin standist.
Hvað þarf lánið að vera hátt til að
takmarkinu verði náð? Hvað eru líkur
á að hægt sé að leggja mikið inn
mánaðarlega?
Svör við þeim spurningum ráða mestu
um hve langt sparnaðartímabilið þarf
að vera.
Kynntu þér möguleikana betur.
Hafðu samband við IB-ráðgjafana
í aðalbanka eða einhverju útibúanna.
Fyrirhyggja léttir framkvæmdir.
Vigdís Jakobsdóttir'