Morgunblaðið - 29.03.1978, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIOVIKUDAGUR 29. MARZ 1978
25
Risaolíuskipið Amoco Cadiz, þar sem það marar í hálíu kafi út af strönd Bretagne-skaga.
Beðið færis með að
sprengja olíuskipið
Portsall, Frakklandi,
28. marz. Reuter-AP.
HVASSVIÐRI rnikið neyddi
franska kafara til að fresta
því að sprengja risaolíuskip-
ið Amoco Cadiz, svo að þau
20.000 tonn af olíu, sem eftir
eru í geymum skipsins, gætu
runnið í sjóinn.
Talsmaður franska sjó-
hersins sagði veðurofsann
hafa verið það mikinn að
ekki hefði verið talið hægt
að koma fyrir sprengju-
hleðslum á kili skipsins án
þess að stofna lífi kafaranna
í hættu. Kafararnir éru
reiðubúnir að sprengja upp
skipið jafnskjótt og lægir,
en franska stjórnin mælti
svo fyrir í gær að skipið
skyldi sprengt upp.
Síðan risaolíuskipið strandaði út
af strönd Bretagne-skaga hinn 16.
þ.m. hafa 200.000 tonn af hráolíu
runnið í sjóinn og mengað um 200
kílómetra af strandlengju Frakk-
Fengu ekki
landgönguleyfi
Darwin. AP.
VÍETNAMSKIR flóttamenn
sem komu á togbáti til Darwin
í Ástralíu fengu ekki leyfi til
landgöngu þar. Var flóttamönn-
unum gefið að sök að hafa rænt
bátnum undan Saigon. Áströisk
stjórnvöld rannsaka nú hvernig
flóttamennirnir komust yfir
farkostinn en stjórnin í Ilanoi
segir bátinn eign stjórnvalda.
Hanoistjórnin kallar flótta-
mennina sjóræningja og segir
þá hafa hent áhöfn bátsins fyrir
borð undan strönd Malasíu.
Áströlsk stjórnvöld segja ekk-
ert benda til þess. Báturinn
liggur enn í Darwin.
Myndin sýnir afstöðu olíuskipsins Amoco Cadiz, en það strandaði fyrir
12 dögum síðan.
lands. Um 3.000 hermenn og
fjölmargir sjálfboðaliðar vinna nú
að því að hreinsa sjóinn af olíu, og
herma fregnir að á hverjum degi
séu 2.000 tonn af olíunni hreinsuð
úr sjónum, en við hvert flóð berst
meira af olíu að ströndum lands-
ins.
Óttast var á tímabili að olíu-
mengunin næði til Erma-
sunds-eyja Bretlands en sú hætta
leið hjá í gær er breytti um vindátt
og veður versnaði. Er nú aðeins
lítil olíubrák út af Ermasundseyj-
unni Guernsey, en sérfræðingar
telja að brákin muni hverfa á
tveimur til þremur dögum, haldist
veður óbreytt.
Flugvallar-vígslu
frestað í Tókíó
Á mánudag fóru um 15.000
manns í kröfugöngu í borginni
Brest og kröfðust þess að tekin
væri upp harðari afstaða gegn
olíumengun. Sló í brýnu milli um
2.000 mótmælenda og lögreglu
fyrir utan ráðhús borgarinnar, en
ekki er vitað til þess að neinn hafi
meiðst alvarlega.
Mengunin mun hafa mikil og
slæm áhrif á fiskimiðin út af
strönd Bretagne-skaga, en fisk-
veiðar eru helzti atvinnuvegurinn
þar. Þá mun mengunin einnig
spilla dýralífi á svæðinu, sem og
sólbaðsströndum og öðrum ferða-
mannastöðum, en jdretagne-skagi
er vinsæll ferðamannastaður.
Tokýó, 28. marz. AP — Reuter
JAPÁNSSTJÓRN írestaði í
dag um óákveðinn tíma
fyrirhugaðri opnun nýs al-
þjóðaflugvallar í nágrenni
Tókýó vegna skemmdar-
verka sem unnin voru á
flugturni vaflarins á sunnu-
dag. Frestunin nú er sú
tíunda frá 1971. Fimm
manns hafa látið lífið og yfir
8000 særzt í átökum and-
stæðinga flugvallarins og
lögreglu frá því að hafizt
var handa við lagningu
vallarins sem er um 60
kílómetra norður af Tókýó.
Um 6500 andstæðingar flugvall-
arins, þar á meðal námsmenn og
bændur, tókust á við lögreglu við
flugvöllinn á sunnudag og köstuðu
eldsprengjum, grjóti og stálbútum
að lögreglu.
Sex mótmælendanna komust
fram hjá öryggisvörðum inn í
flugturn vallarins vopnaðir sleggj-
um og bareflum. Lögðu þeir
Þingmenn í
Moskvu fóru á
fund gyðinga
Moskvu, 28. marz. AP.
BANDARÍSKIR þingmenn. sem
staddir eru í Moskvu á vegum
hermálanefndar bandan'sku full-
trúadeildarinnar. brugðu í dag út
af fyrirhugaðri dagskrá og ra'ddu
við nokkra sovéska gyðinga. sem
neitað hefur verið um brottfarar-
leyfi frá Sovétríkjunum.
Þingmennírnir, Henry Waxman,
Robert Carr og Patricia N. Chroeder,
ræddu meðal annars við móður
sovéska andófsmannsins Anatoly
Shcharansky, sem haldið hefur verið
í haldi í meira en eitt ár. Shchar-
ansky bíður þess enn að vera dreginn
fyrir dóm, sakaður um landráð.
Sagði móðir hans þingmönnunum að
hún vissi ekki hvenær réttarhöldin
hæfust, og að hún væri mjög kvíðin
yfir afdrifum hans.
rafeindabúnað og stjórntæki flug-
turnsins í rúst. Viðgerðir í flug-
turninum taka mánuð og frestast
opnun flugvallarins að minnsta
kosti sem því nemur.
Yfir 1000 lögreglumenn réðust í
gærkvöldi á • virki andstæðinga
flugvallarins sem þeir reistu við
völlinn. Yfirbugaði lögreglan mót-
mælendur og tók jdrkið í sinar
hendur. Handtók lögregla um 50
mótmælendur en margir komust
undan eftir leynilegum neðanjarð-
argöngum.
Etna gaus
Katanru. Reuter.
ETNA, stærsta virka eldfjall
Evrópu, tók skyndilega að gjósa
árla á mánudag. Kváðu við miklar
drunur og sprengingar frá miðgíg
fjallsins og hraun flæddi niður
hlíðar þess. Hraunrennsli náði
niður í skógabelti fjallsins og
kviknaði í nokkrum trjám, en
síðdegis sljákkaði í Etnu og var
byggð því aldrei í hættu. Þetta
örstutta gos í Etnu var hið 17. i
röðinni á níu mánuðum.
48 létust í
flugslysi
Rangoon. AP—Reuter.
FARÞEGAR og áhöfn burmanskr
ar flugvélar. 48 manns, létu lífið er
vélin hrapaði til jarðar skömmu
eftir ftugtak á Rangoon-flugvelli.
Sjónarvottar kváðust hafa heyrt
sprengingu er vélin klifraði. Flug-
vélin varð að eldhafi við lendingu.
Vélin var af Fokker Friendship
gerð. Orsakir slyssins eru ókunnar.
Páfinn messaði
Vatikaninu. AP—Reuter.
PÁLL páfi sjötti messaði á
sunnudagsmorgni á torgi
heilags Péturs að viðstöddum
rúmlega 100.000 manns af
mörgu þjóðerni. Páfi var
óstyrkur í röddu og af honum
dregið. Hann var og valtur á
fótum og studdur við hvert
skref. Páfi var nýstaðinn upp
úr flensu sem hrjáði hann í
tvær vikur. Mannfjöldinn á
torginu fagnaði páfa mjög í
lok 50 mínútna iangrar
messu hans.
Varð fyrir
skotárás
Tórínó. AP.
FYRRVERANDI borgarstjóri
Tórínó, Giovanni Picco, varð á
föstúdag fyrir skotárás tveggja
manna, sem yopnaðir voru vél-
byssum rétt við heimiii sitt.
Hlaut Picco skotsár á fótum,
höndum og á öxl. Picco er
áhrifamaður úr röðum kristi-
legra demókrata á Italíu. Maður
sem sagðist vera fulltrúi Rauðu
herdeildarinnar hringdi á fréita-
stofu og sagði hryðjuverkasam-
tökin bera ábyrgð á verknaðin-
K varti rússneskir verkamenn
yfir aðbúnaði á vinnustað
blasir geðVeikrahælið við
Mannréttindasamtökin
Amnesty International skýrðu
nýverið frá því, að nú væri
augljóst. að pólitísk misnotkun
geðlækninga í Sovétríkjunum
væri hluti þess bálks opinberra
ráðstafana sem gripið væri til
í viðureigninni við „erfiða
borgara". Samtökin halda
þessu nú fram í ljósi nýjustu
heimilda sem þeim hafa borizt
frá Rússlandi. Þessi skjöl sýna
fram á. að stjórnvöld hafa látið
fangelsa og sent óbreytta
verkamenn á geðveikrahæli
fyrir það eitt að kvarta yfir
aðhúð á vinnustiiðum.
Rússneskir verkamenn sem
gengið hafa fram í því að kvarta
jndan aðbúð á vir.nustöðum
stofnuðu nýlega með sér samtök
sem nefnast Samband frjálsra
verkalýðsfélaga í Sovétríkjun-
um. Félagar eru um 200 og þótt
samtökin leggi áherzlu á, að þau
séu ekki i hugmyndafræðilegri
andstöðu við hið opinbera þá
hafa félagar þess fundið litla
náð í augum valdhafanna í
Moskvu. Þeir hafa fengið óblíöar
móttökur þar, verið reknir frá
borginni eða sendir rakleitt á
geðveikraspítala úr biðsölum
ráðuneyta.
Samband frjálsra verkalýðs-
félaga í Sovetríkjunum hefur
ekki hlotið \ iðurkenningu valda-
manna í Kreml. Hefur sam-
bandið nú leitað eftir viður-
kenningu á tilveru sinni til
alþjóðasamtaka verkalýðsins. I
beiðni sinni til alþjóðasamtak-
anna segir rússneska samband-
ið, að opinber stéttarfélög í
Sovétríkjunum hvorki verndi
rótt sambandsfélaga né taki til
greina kvártanir þeírra.
Héízti talsmaður og aðál-
hvatamaður að stofnun Sam-
bands frjálsra verkalýðsfélaga í
Sovétríkjunum, Vladimir
Klebanov, hefur orðið illa fyrir
barðinu á aðgerðum stjórn-
valda. Þegar hann hafði lýst yfir
stofnun samtakanna á fundi
með erlendum blaðamönnum í
Moskvu 26. janúar s.l. fór hann
huldu höfði. Hann var ekki lengi
frjáls, því 7. febrúar handtóku
óeinkenniskheddir lögreglu-
menn hann á járnbrautarstöð.
Síðast fréttist af honum 22.
febrúar, þá var hann í algerri
einangrun á geöveikraspítala i
Donetsk.
I skýrslu HelSinki eftirlits-
hópsins sém Amhesty barst
fyrjr skennnstu 'segir, að lög-
regla flytji Í2.inanns á degi
hverjum í geðsjúkrahus úr
biðsölum ráðuneyta í Kreml.
Meðal dæma sem þar er að finna
segir frá Nadezhdu Gaidar,
vélvirkja frá Kiev. í maí 1975
fór hún til Moskvu til að kvarta
yfir óréttmætri uppsögn sinni.
Hún var flutt á geðsjúkrahús
númer 13 í Moskvu og þar
sprautað í hana Aminazin-lyfi.
Læknir tjáöi Nadezhdu að henni.
yrði haldiö á geðsjúkraluisinu
svo hún hætti kvörtununi sin
um. Frú Gaidar var tveggja
Kramhald á hls