Morgunblaðið - 06.05.1978, Side 15
MÖRGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. MAÍ 1978
15
FíUiarmóníukórinn
Eínisskrá.
Sinursvcinn D. Kristinsson
Greniskógurinn
Zoltan Kodaly
Tc Deum
Johannes Brahms
Triumphlied
Greniskógurinn eftir Sigur-
svein er áheyrileg tónsmíð með
góðum sprettum en ber vott um
reynsluleysi í gerð stærri tón-
verka og er auk þess, að því er
varðar kórinn, mótuð af alþýðu-
tónlist. Eitt af einkennum al-
þýðutónlistar er sú skipan að
eitt atkvæði er sungið við hverja
nótu og í gerð stærri tónverka,
þar sem margvíslegur hraði og
lengda tónboga lýtur öðrum
lögmálum en í samþjappaðri og
hrynskýrri gerð alþýðulagsins,
verkar atkvæðastíllihn sundur-
höggvandi og andstuttur í söng.
Einkenni atkvæðastílsins í ís-
lenzkri hljóðfæratónlist kemur
fram í hljómskiptum við hvern
lagtón og verða hljómskiptin
eins konar fram og til baka ferli
utan um markaða lagmiðju, sem
bútar verkið í sundur. Hver
kafli fyrir sig getur verið góður
en þeir mynda ekki samfellda
framvindu. Te Deum eftir Kod-
aly er fallegt verk einkum
niðurlagið, sem var fallega
sungið af Sieglinde Kahmann.
Tónleikunum lauk með
Triumphlied eftir Brahms en á
flutning þess vantaði mjög
mikið. Söngsveitin Fílharmonía
er vel samstilltur hópur og er
auðheyrt aö Marteinn H. Frið-
riksson kann sitt fag. Það sem
vantar á að kórinn geti flutt
verk eins og Triuphlied er meiri
raddstyrkur og samfelldari tón-
mótun. Yfir tónleikunum í heild
var eins konar „Mezzoforte"
andi, þar sem ekki voru dregin
skýr mörk milli blæbrigða og
sterk túlkun látin víkja fyrir
Marteinn II. Friðriksson
þægilegum og slysalausum
flutningi. Einsöngvararnir
gerðu sitt vel, einkum þó Hall-
dór Vilhelmsson og Sieglinde
Kahmann. Sigurður Björnsson
og Rut L. Magnússon sungu með
í Te Deum og skiluðu sínu litla
vel.
Rögnvaldur Sigurjónsson
Rögnvaldur er mikill píanisti
og í leik hans má oft finna stóra
hugsun, sem slegið sé með
miklum þunga á hin stóru
gjöllin, en í síkvikri og órólegri
leit hans eftir hinu stóra verður
honum oft á að meðhöndla
minnstu gjöllin ógætilega. Það
hefur vafist fyrir mönnum að
skilgreina hvað sé hugsun og í
listsköpun er það ráðgáta
hvernig hugmyndir verða til.
Túlkun, sem er eins konar
tilraun til að skilgreina, verður
ávallt upplifun túlkandans og
niðurstaða hlustandans er svo
þriðja stig upplifunarinnar.
Þekking á tónsmíðinni, leikni-
kunnátta í meðferð tóngjafans
byggist á meðvitaðri þjálfun en
upplifun og túlkun eru þættir,
sem eru samofnir allri upplifun
mannsins og þess vegna jafn
marglitir og ólíkir sem fjöldi
einstaklinganna.
Ópus 28 eftir Beethoven er
fallegt og elskulegt verk og hefst
á stefi sem í hljómsetningu er
gætt eins konar fráhvarfseðli,
krefjandi um áframhald, spurn-
ingu sem ekki verður svarað og
endar fyrsti kaflinn á þessari
ósvöruðu spurningu. Annar
kaflinn er eins og óaflátanleg
hægferðug framvinda tímans,
en þriðji kaflinn er andstæða
hans, síkvik snæljós og hröð
upplifun augnabliksstunda.
Tónllst
eftir JÓN
ASGEIRSSON
Sónötunni lýkur með söng,
sem hvorki er söngur hamingj-
unnar né sorgarinnar, aðeins
leikandi fegurð í tónum. Flutn-
ingur Rögnvalds var fyrir undir-
ritaðan of órólegur og ekki
staldrað nóg við hin minni
gjöllin til að huga að blæbrigð-
um þeirra. Ógreinilegt tóntak,
ójafn hrynur og víxlun á stef-
röðun, er eitthvað sem hægt er
að fjalla um og skilgreina, en
hvort slíkir hlutir eru jafngildir
öðrum þáttum, eins og túlkun,
sem kemur fram í slökun og
spennu, blæbrigðum og mótun
stefja, verður aldrei svarað.
Vægi þessara þátta mynda hinn
margbreytilega grunn, sem hver
einstaklingur dæmir list eftir.
Fyrir undirritaðan eru minni
tónverk Chopin ofin fíngerðum
þráðum, en viðhorf margra er að
slíkur vefnaður skuli ekki gædd-
ur tilfinningasemi en lögð á-
herzla á tæra, skýra og ó-
persónubundna túlkun. Mark-
mið með tónsmíð ætti að vera
mótandi fyrir túlkun hennar.
Næturljóð Chopin eru, sam-
kvæmt skilningi undirritaðs,
ljóðræn tóntúlkun, en þó
Mazúrka sé dans, hafa þær
tónsmíðar verið taldar meira í
ætt við tóntakstilraunir, sem
eiga mjög margt sameiginlegt
með nútímatónlist. Næturljóð
op. 72 og Mazúrki op. 67 nr. 4 var
leikinn án allrar tilfinninga-
semi. Prelúdíurnar eru tóntaks-
leikir, þar sem fingratækni í
hraða og tónmótun er markmið
og þótt einkennilegt sé, þá
vantaði töluvert á þann þátt í
leik Rögnvalds í fyrstu, þriðju
og sautjánduprelúdíunum.
Aðalviðfangsefni tónleikanna
voru As-dúr Balláðan op. 47,
eftir Chopin og h-moll sónatan
eftir Liszt. I báðum verkunum
einkenndist leikur Rögnvalds af
stórri yfirsýn, sem hlýtur þó að
líða nokkuð fyrir ónákvæmni í
meðferð smáatriðanna. Leikur
hans var þrunginn spennu og
áhættu., sem lá við mörk
splundrunar. Það er þessi á-
hætta og átök, sem gera leik
Rögnvalds skemmtjlegan.
Þegar þremur umferðum var
lokið í íslandsmótinu í sveita-
keppni voru núverandi íslands-
meistarar, sveit Hjalta Elías-
sonar, efstir mcð 50 stig af 60
möguiegum. Sveif Stefáns Guð-
johnsens var með 47 stig og eru
þessar tvær svcitir í nokkrum
sérflokki hvað stigatölu snert-
ir. en þær hafa unnið alla sína
leiki. bó er of snemmt að spá
því að aðrar sveitir komi ekki
til greina með að berjast um
titilinn.
Stig annarra sveita eru þessi:
Guðmundur Hermannsson 38
Sigurjón Tryggvason 30
Guðmundur T. Gíslason 26
Steingrímur Jónasson 17
Jón Asbjörnsson 16
Ármann J. Lárusson 16
1. umferð:
Engin óvænt úrslit urðu í
þessari umferð. Spámenn héldu
því fram að hver leikur, jafnvel
hvert spil, gæti ráðið úrslitum í
mótinu. Urslit urðu þessi:
Hjalti — Guðmundur H. 12—8
Guðmundur T. — Jón 13—7
Sigurjón — Ármann 18—2
Stefán — Steingr. 16—4
2. umferð:
I þessari umferð spilaði sveit
Hjalta gegn sveit Jóns. Var
búizt við jöfnum og skemmtileg-
um leik. Raunin varð þó ekki sú.
Sveit Hjalta gerði fljótlega út
um leikinn og vann stærsta
sigur sem unnizt hafði í mótinu,
19—1. Önnur úrslit urðu þessi:
Stefán — Ármann 15—5
Guðmundur H. Steingr. 18—2
Sigurjón — Guðmundur
T. 11-9
Frá úrslitakeppni íslandsmótsins. Guðlaugur R. Jóhannsson (fyrir miðri mynd) og Örn Arnþórsson
spila hér gegn Gesti Jónssyni og Sigurjóni Tryggvasyni. Mikill áhorfendaskari fylgist með.
16—4. Önnur úrslit urðu þessi:
Steingrímur — Ármann 11—9
Guðmundur H. — Jón 12—8
Mótið hefir hingað til verið
mjög rólegt, en í gærkvöldi áttu
sveitir Stefáns og Hjalta að
spila saman. Ekki er hægt að
greina frá úrslitum þeirrar
umferðar vegna þess hve blaðið
fer snemma í prentun.
I dag verða spilaðar tvær
umferðir en mótinu lýkur á
morgun.
Eftirtaldar sveitir spila sam-
an í síðustu umferðunum:
5. umferð:
Steingrímur — Hjalti
Stefán — Jón
Sigurjón — Guðmundur H.
Ármann — Guðmundur T.
6. umferð:
Hjalti — Ármann
Jón — Steingrimur
Sigurjón — Stefán
Guðmundur H. — Guðmundur
T.
Tekst sveit Hjalta að verja
íslandsmeistaratitilinn?
Bridge
eftir ARNÓR
RAGNARSSON
3. umferð:
Enn var sveit Hjalta í sviðs-
Ijósinu, og nú gegn sveit Sigur-
jóns. Báðar sveitir voru með um
30 stig og höfðu unnið báða sína
leiki. í undankeppninni hafði
sveit Sigurjóns virzt mjög sterk.
En skemmst er frá því að segja
að sveit Hjalta gerði út um
leikinn í fyrri hálfleik og fékk
eins og í annarri umferðinni 19
stig gegn 1.
Sveit Stefáns vann þýðingar-
mikinn sigur gegn Guðmundi T.
7. umferð:
Guðmundur T. — Hjalti
Ármann — Jón
Steingrímur — Sigurjón
Stfán — Guðmundur H.
Áhorfendur hafa verið mjög
margir, en einn leikur er ætíð
sýndur á sýningartöflu.