Morgunblaðið - 06.05.1978, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 06.05.1978, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. MAÍ 1978- Hverfafundir borgarstjóra... Hverfafundir borgarstjóra Nokkuö á Þriöja hundrað manns sótti hverfafund borgarstjóra s.l. miðvikudagskvöld, en Þá hélt hann fund með íbúum Háaleitis-, Fossvogs-, Smáíbúða- og Bústaðahverfa. í upphafi flutti Birgir ísleifur Gunnarsson borgarstjóri framsöguræðu Þar sem hann greindi frá ýmsu Því er gerzt hefði í málefnum og framkvæmdum á vegum borgarinnar á síðustu árum. Að lokinni ræðu hans báru fundargestir fram fyrirspurnir og komu fyrirspurnir frá yfir 20 fundargestum. Guölaugur Tryggvi Karlsson spurði hvers vegna húsagatan meö- fram Háaleitisbraut hefði verið gerð að einstefnuakstursgötu. Það hefði verið rétt að gera vissar breytingar á Háaleitisbrautinni sjálfri til aö minnka slysahættu, en sér fyndist rétt aö gangbrautarljósin ættu aö ná yfir húsagötuna einnig og því mætti bre.yta henni aftur í tvístefnugötu. Borgarstjóri sagði að ástæðan fyrir því að húsagatan var gerð að einstefnuakstursgötu væri sú aö hún heföi verið einn liður í því að draga úr slysahættu á Háaleitisbrautinni, en þar væri mikil umferð gangandi barna t.d. á leið í Álftamýrarskóla. Kvaðst borgarstjóri hafa orðiö var viö nokkra óánægju vegna þess aö íbúar viö götuna þyrftu aö taka á sig nokkurn krók ef þeir færu t.d. suöur úr hverfinu, en væri nú í athugun að opna húsagötuna fyrir umferð í báöar áttir, a.m.k. efri hluta hennar. Guðlaugur Tryggvi Karlsson spurði ennfremur hvort búið væri aö úthluta öllum lóðum undir hesthús í Víðidalshverfinu. Nýjar hesthúsalóöir í Seljahverfi Borgarstjóri sagði að borgin væri búin að úthluta öllum þeim lóðum er hún hefði yfir að ráða á því svæði, hugsanlega væri hægt aö fá þar viðbótarland, er væri í einkaeigu, en ekki hefðu enn tekist samningar um það við eigendur. Einnig væri mögulegt að taka undir hesthús svæði þar sem nú væri grjótnám, en það yröi vart á næstu árum, þar eð það væri eitt bezta efni er nú fengizt til malbiksblöndunar og yröi því notað sem slíkt enn um sinn. Næsta svæði undir hesthús yrði í Seljahverfi. Árni Jóhannsson spuröi hvort ekki hefði veriö leitað hagkvæmari leiða fyrir húsnæði undir fiskverkun Bæjar- útgeröar Reykjavíkur, en að breyta gamalli niðursuðuverksmiðju í hrað- frystihús, hvað t.d. með Granda- skála. Borgarstjóri svaraði því til að sú lagfæring sem gerð hefði verið á húsnæöi B.Ú.R. hefði haft mun minni kostnað í för með sér en að reisa nýtt hús eða útvega annað, húsnæöi útgerðarinnar hefði aö verulegu leyti verið endurbyggt, t.d. kaffistofa og hreinlætisaöstaöa starfsfólks og vinnslusalnum breytt á þann veg að nú væri hægt að vinna þar tvær fisktegundir í senn. Um Grandaskála og Bakkaskemmu sagöi borgarstjóri að ákveðið hefði verið aö taka á leigu Bakkaskemmu til fiskmóttöku fyrir BÚR og aðra fiskverkendur og Grandaskála til þess að hafa þar aðstöðu fyrir nótaveiðimenn, sem væri vaxandi útgerð frá Reykjavík á næstu árum. Árni Jóhannsson spuröi einnig hvað liði athugun á því að selja 3 svonefnda Spánartogara BÚR og fá í þeirra staö t.d. 5 togara af minni gerö. Borgarstjóri gat þess að athugun þessi væri á byrjunarstigi, könnun á sölumöguleikum Spánartogaranna og því að fá nýja togara í þeirra staö tæki nokkdrn tíma. 2,6% ómal- bikað af hinu skipu- lagða gatnakerfi Smábátahöfnin ekki truflandi Árni Jóhannsson spuröi aö lokum varðandi smábátahöfn, sem sam- þykkt hefði verið í borgarstjórn að gerð yrði í Elliðavogi. Sagöi Árni að sú umferð er henni fylgdi hlyti að trufla laxagengd í Elliðaánum, sem ekki mætti l^ggjast niður, og hvort ekki hefði verið hagstæöara að taka svæði undir smábátahöfnina í landi Gufuness. Birgir ísl. Gunnarsson sagöi aö þessi smábátahöfn hefði verið deilu- efni og fyrir borgarstjórn hefðu legið greinargerðir sérfræöinga um það að höfnin myndi ekki hafa truflandi áhrif á laxveiöar i Elliðaánum og því heföi liann greitt atkvæöi meö því að höfnin yrði staðsett í Elliðavoginum. Jónas Bjarnason sagði aö svo virtist sem einhvers konar bílaiönaö Birgir ísleifur Gunnarsson borgarstjóri í ræðustóli. Fundarritarar voru Tryggvi Viggósson lögfræðingur og Unnur Arngrímsdóttir húsmóðir. Fundarstjóri, Gunnar Björnsson trésmiður, situr næst ræðustólnum. Næsta stórátak í gatna- gerð er tengíng Breið- holts og Árbæjarhverfa ætti að hýsa í húsi við Rauðagerði, þar sem Efnablandan hefði eitt sinn verið til húsa, og spurðist hann fyrir um það hvort fyrir lægi leyfi til að reka einhvern bílaiðnað í þessu húsi og ef svo væri hvert væri álit borgarstjóra á slíkri ráðstöfun. Borgarstjóri sagðist ekki vita til þess að umsókn fyrir bifreiðaiðnað lægi fyrii■ á þessum stað, en leyfi þyrfti að fá t.d. fyrir rekstri bílasölu og bílaverkstæðis. Þó væri hugsan- legt að setja upp vissa starfsemi án leyfis, en um umsókn í því sambandi sagðist hann ekki vita. Syðri akrein Bústaöavegar Jakob Þorsteinsson spuröi hvað liði framkvæmdum á syðri akrein Bústaðavegar, en því hefði verið lofað fyrir alllöngu. Einnig spurði hann hvað liöi framkvæmdum á brú yfir Kringlumýrarbraut þar sem Bústaðavegur ætti að framlengjast, hvaö væri með fyrirhuguð undirgöng undir Bústaðaveg móts við Grímsbæ, hvað liði ákvörðunum um hraðbraut í Fossvogsdalnum og hvenær mætti búast við annarri akrein á Háaleitis- braut á kaflanum frá Hvassaleiti að Sléttuvegi, en það væri brýn fram- kvæmd. Benedíkt Árnason spurði um hvað færi fyrirhugað í gatnaframkvæmd- um við Bústaðaveg. Rafn Sigurðsson spuröi hvaö væri fyrirhugað um uppsetningu umferð- arljósa á Bústaöavegi. Magnús Björnsson spurði hvort ekki þætti nauðsynlegt aö setja upp umferöarljós á mótum Stjörnugrófar og Bústaðavegar, en þar væri mikil slysahætta. Borgarstjóri svaraði þessum spurningum aö nokkru leyti saman og sagði hann m.a. að framkvæmdir á Bústaöavegi og við hraðbraut um Fossvogsdalinn væri svo nátengdar að þær yrðu ekki aöskildar. Umferöin sem í dag væri frá Elliðaánum og vestur á Seltjarnarnes þyrfti á fleiri möguleikum að halda en einungis Miklubraut, eins og nú væri. Hægt væri t.d. að gera Miklubrautina að 6 akreina götu en það þýddi að hún yrði þung og mikil umferðargata og heföi í för með sér dýrar fram- kvæmdir við slaufur og brýr viö gatnamót. Samþykki beggja Oarf Gert er ráö fyrir því, sagði borgarstjóri, í samningum við Kópa- vog að samþykki beggja aðila þurfi til að ráðist verði í framkvæmd hraðbrautar; það hefur ekki verið athugaö að fullu og endanleg ákvörð- un því ekki verið tekin. Þá sagði borgarstjóri að verði Bústaöavegur gerður að of mikilli umferðargötu þá væri sú hætta fyrir hendi að hann skæri um of sundur byggðina í Fossvogi og við t.d. Hæðargarð, Hólmgarð og göturnar þar í kring. Um brúna yfir Kringlumýrarbraut sagði borgarstjórl að ekki hefði enn verið tekin ákvörðun, en gert væri ráð fyrir að Bústaðavegurinn fram- lengdist niöur með bensínstöð Shell við Öskjuhlíð og áfram niður undir Sóleyjargötu. Sagöi borgarstjóri að næsta stórverkefni í gatnageröarmál- um Reykjavíkur væri tengibraut milli Árbæjar- og Breiðholtshverfa, er kæmi á brú yfir Elliðaár. Væri ráðgert að hefja þær framkvæmdir á næsta ári og þær myndu taka um tvö ár og ekki yrði um aörar stórframkvæmdir að ræða á meðan. Um syðri akrein Bústaðavegar og framlengingu á viðbótarakrein á Háaleitisbraut til suðurs væri því það að segja að ekki Vatnsveitan á Jaðars- svæðinu tek- ur við af Gvendar- brunnum væri vitað með vissu hvenær að þeim framkvæmdum kæmi, en þær væru ekki á fjárhagsáætlun þessa árs. Ákvarðanir um slíkar framkvæmdir yrðu teknar eftir athuganir fróðra manna á t.d. umferðarmagni og síöan ráöist í þær framkvæmdir er mest væru áríðandi á hverjum tíma. Magnús Björnsson spuröi um biðskýli viö Bústaöaveg og Ólafur Hannesson spuröi hvort stöðvaðar hefðu verið framkvæmdir við biðskýli viö Bústaöaveg, sem hafnar hefðu verið og hvort kjósendur gætu gengiö óhindrað um svæðiö til kosninga í vor eftir aö mokað hefði verið ofan í skurði. Borgarstjóri sagöi að biðskýlið við Markland á Bústaöavegi þyrfti að hverfa, það væri á lóð fjölbýlishúss- ins viö Marklandið og kannaö heföi verið hvar hægt væri að hafa biöskýli. Framkvæmdir hefðu hafizt áður en endanleg leyfi hefðu fengist og væri slíkt e.t.v. sök beggja aðila, þ.e. borgaryfirvalda og byggjenda. Nú væri verið í samningaviðræðum um þessi mál en þau heföu tafizt nokkuð. Forkaupsréttur borgarinnar Guðrún Guðlaugsdóttir spurði hve lengi borgarstjórn hygðist halda forkaupsrétti sínum á húsum viö Tunguveg, Réttarholtsveg og Ásgarð, hvernig nýttist húsnæðið og hvernig gengi aö selja þessar íbúðir. Halla Gísladóttir spuröi hvenær fyrirhugaö væri að aflétta þeirri kvöð er bundin væri húsum í Bústaða- hverfi og með hvaða hætti. í svari borgarstjóra kom fram að þessar íbúöir heföu verið seldar meö nokkru hagstæðari kjörum en tíök- aöist á hinum almenna markaði og því heföu fengiö þær til ráöstöfunar fólk er minna mætti sín tekjulega séð. Þegar fólk síðan vildi hverfa úr þessum íbúðum væru þær metnar og keypti borgin þær síðan skv. því mati. Fyrir 3—4 árum hefði þessum matsreglum verið breytt nokkuö til hækkunar og miðaðist matið m.a. nokkuö við hve lengi menn hefðu átt íbúöirnar. Um hugmyndir sem fram hefðu komið að borgin léti þennan forkaupsrétt af hendi, sagði borgar- stjóri að væri uppi nokkur ágreining- ur, því þessar íbúöir hefðu nýtzt til ráðstöfunar fyrir það fólk sem minna mætti sín, þ.e. að borgin keypti af eigendum og greiddi út í hönd, en eftirléti síöan öðrum með þeim kjörum að greitt væri á einu ári kaupverðið. Nokkuð mörg erindi um þessi mál hafa borizt borgarráði og sagöi borgarstjóri að svars við þeim bréfum væri að vænta á næstunni. Árni Jóhannsson spurði hvenær væri við því að búast að hægt væri að stunda skautaíþróttina allt árið. Fullhannað skautasvell á útisvæði lá fyrir 1974, sagöi borgarstjóri, og var leitað í það tilboöa sem þá reyndust mun hærri en við var búizt og var því fallið frá framkvæmdum í bili. Sagði borgarstjóri aö þessi framkvæmd væri á lista yfir æskileg- ar framkvæmdir á sviði íþróttamála, en ekki væri vitað hvenær af henni yrði, nema það að af henni yrði ekki á þessu ári. Örnólfur Ornólfsson spyr hvenær Ijúki framkvæmdum við gangstéttir og bílastæði við Gautland, sem byrjað var á í fyrrasumar en er ólokiö. Ég geri ráð fyrir að þessum framkvæmdum verði lokið í vor og í sumar, sagði borgarstjóri, en þær fylgjast að við framkvæmdir við Efstaland og voru einnig hafnar í fyrrasumar og náð var samkomulagi um við íbúa þessara gatna. Nærri 180 íbúðir fyrir aldraða teknar í notkun á þessu ári

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.