Morgunblaðið - 06.05.1978, Side 39

Morgunblaðið - 06.05.1978, Side 39
Spönsk hátíð Grísaveisla Fegurðarsamkeppni íslands Bolungarvík, laugardagskvöld 6. maí Félagsheimilinu kl. 19.00 Súgandafjörður, sunnudagskvöld 7. maí, Félagsheimilinu kl. 19.00 Flateyri, sunnudag 7. maí, Félagsheimilinu kl. 14.00 (fjölskylduskemmtun, sama dagskrá aö undan- skilinni grísaveislu og dansleik). Dagskrá: 1. Grísaveisla, spánskir hátíöarréttir 2. Ferðakynning 3. Litkvikmyndasýning 4. Tískusýning, feguröardrottning íslands 1977 og Karon samtök sýningarfólks sýna nýjustu tískuna. 5. Feguröarsamkeppni íslands. Útnefndur fulltrúi til þátttöku í úrslitakeppni, þar sem valin veröur ungfrú íslands 1978. 6. Skemmtiatriði 7. Stórbingó. Vinningar glæsilegar sólarlanda- ferðir og rétturinn til aö keppa um aukavinninginn á Sunnukvöldum vetrarins, ítalska sportbílinn Alfa Romeo. 8. Dansleikur. i?, CTTIC&' Missið ekki af ódýrri og góðri skemmtun. Velkomin á Sunnuhátí Hefur rúið 2000 fjár Syðra-Langholti, 28. apríl. í HRUNAMANNA- HREPPI hefur vetr- arrúning aukizt mikiö og er mikill áhugi hjá bændum aö gera Þau verö- mæti úr ullinni sem unnt er. Sauðfjár- ræktarfélagið hefur verið með rúnings- námskeið undan- farin ár og rýja margir fé sitt sjálfir, en einn er sá maður sem mikiö ferðast og víða rýr; Ásgeir Gestsson, bóndi Kaldbak, sem með- fylgjandi mynd er af. Hefur hann nú rúið um 2000 fjár í pessari lotu og einn daginn rúði hann 68 kindur. Ullin er send tafarlaust á markað. Sig. Sigm. MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. MAÍ 1978 Kaktus í Selfossbíói í kvöld. Sætaferð frá B.S.Í. kl. 9. Kaktus. Námskeið fyrir verk- stjóra á saumastofum I REYKJAVÍK stendur nú yíir námskeið fyrir verk- stjóra á saumastofum sem vinna úr prjónavoð. Nám- skeiðið er haldið á vegum Útflutningsmiðstöðvar iðnað- arins í samvinnu við verk- stjórnarfræðsluna, Rann- sóknastofnun iðnaðarins og Hannarr s.f. Námskeið þetta er hugsað sem fyrri hluti fjögurra vikna verkstjórnarnámskeiðs og verður seinni hlutinn væntan- lega haldinn í haust. Megin- kennslugreinar á námskeiðinu eru sauma- og sníðatækni, sem kenndar eru aðallega í verk- legum æfingum í smáhópum og fer sú kennsla fram í húsakynnum Rannsóknastofn- unar iðnaðarins á Keldnaholti. Þá er „framleiðsluskráning og vinnurannsóknir", þar sém lögð er áherzla á að skýra tilgang og notagildi skráning- ar við stjórnunarstörf, eins og þegar gera þarf framleiðslu- áætlanir og taka ákvarðanir um framleiðsluna. Þá eru kennd undirstöðuatr- iði í hjálp í viðlögum og verkstjórn, þar sem lögð er áherzla á að auka þekkingu og jákvæð viðhorf verkstjóra á atriðum eins og tengslum við starfsfólk, skipulagningu eigin starfa, verkkennslu og fleira. Alls sækja námskeiðið 18 verkstjórar af prjónastofum víðs vegar af landinu. Halldór Jónsson, verkfrædingur: stúdentar séu yfirleitt hvorki mæltir á frönsku né þýzku, hvað þá spænsku, þó þeir geti lesið dönsku og færeysku, illa sænsku og alls ekki finnsku. Svo hvað eru Norðurlönd í augum æskunnar? Sósíalistaparadísir með dýru brennivíni sem verzla lítið við Islendinga eða eru beinir keppni- nautar okkar? Hver er norrænn menningaráhugi blánefjaðra púls- karla sem flykkjast til suðurs með Sunnu? Eg held að við ættum að reyna að hugleiða svolítið betur hvað ísland og Norðurlönd eigá í rauninni sameiginlegt og hvað ekki áður, en við sláum einhverju föstu í menn- ingarmálum. Við erum einu sinni landamærabúar tveggja heimsálfa og getum ekki alhæft um æskilega menningarstrauma. En aukin þekking og lærdómur af okkur lengra komnum tækniþjóðum er okkur nauðsynleg, ef við þá viljum betri lífskjör. Að lokum vil ég lýsa vonbrigðum mínum með þau ummæli frú Ragr.hildar að skoðanakönnunin um varnarliðsstyrktar fram- kvæmdir í samgöngumálum við prófkjörið i Reykjavík sanni ekk- ert um það að stefna Sjálfstæðis- flokksins í varnarmálum sé breytt. Mikið rétt, hin opinbera stefna hans hefur ekkert breytzt og svo verður áfram ef frú Ragnhildur er Sjálfstæðisflokkurinn, og þá svo- nefndur flokkseigandi með fleir- um. En ýmsum finnst ástæða til þess að ætla að breytinga sé óskað, þegar um 80% af stuðningsmönn- um svara á þann hátt sem þeir gerðu. Séu þessi 80% þvílík börn, sem helst er að skilja á frúnni og reyndar fleiri forystumönnum, að þeir hafi ekki skilið spurninguna, því spyr hún þá ekki aftur og þá á skýlausan hátt? Er hún kannski hrædd um að svarið kunni að verða óþægilegt fyrir áður gefnar stefnuyfirlýsingar? En þá spyr ég: Hvort eru stjórnmál vilji fjöldans eða prívatskoðanir einstöku for- ystumanna? 16. apríl 1978 Ég var að enda við að lesa þingræðu Ragnhildar Helgadóttur um íslenzka fjölmiðla og norræna fréttaþjónustu ásamt ályktun hennar um utanríkisstefnu Sjálf- stæðisflokksins í Morgunblaðinu 16. apríl 1978. Eg er ekki einn um það að vera aðdáandi glæsileiks og gáfna frú Ragnhildar, og því þykir mér hálf leitt að sjá hér ástæðu til athugasemda. Hún segir að „það hafi verulega þýðingu fyrir Islend- inga að halda áfram að styrkja þann þátt í okkar stjórnmálum og okkar menningu sem er norrænn", og litlu síðar að „vissulega eru á Norðurlöndum stórar og miklar fréttastofur, sem ég tel í raun og veru alveg fráleitt að við skulum ekki hafa beint samband við. Eg er nú eiginlega þeirrar skoðunar, að hinn norræni þáttur í stjórnmálum okkar sé alls ekki æskilegur. Ofstjórnartrú íslenzkra stjórnmálamanna er að mestu leyti fengin beint frá Skandinavíu, sömuleiðis hinar sósiölsku innrétt- ingar þeirra, sem koma í ljós við minnstu tilefni. Hvert sem auga er litið á Norðurlöndum sækir ráð- stjórnarhugsunin fram en framtak einstaklinganna hörfar. Menningu okkar telur frúin vera norræna. Ekki veit ég hvernig hún kemst að því, nema að vitað er að íslendingar éta sultutau með kjöti ásamt skandinövum einir þjóða. Tækni okkar er að mestu vestur- heimsk að uppruna. Lesefni okkar er jafnt Familie-Journal, Andrés Önd, Newsweek og Time eða alþjóðlegar bókmenntir og tímarit. Við leikum alþjóðlega tónlist og syngjum okkar „íslensku þjóðlög" samin í Þýzkalandi og víðar. Nema hún eigi við að við líkjumst, eða skörum fram úr Norðurlöndum í einangrunarsinnu, sbr. bjórinn okkar og þeirra. I mínum augum er Skandinavía einskonar annes út úr Evrópu, og fólkið þar hálfgert útskagafólk eins og við, þó við séum náttúru- lega fremri í þeirri grein. Þess vegna kunnum við svo vel að meta norrænt fólk. Þó hafa á Norður- löndum orðið miklar framfarir umfram ísland og þær þjóðir eru nú taldar iðnaðarþjóðir meðan við erum hjarð- og veiðimenn. Og hvað er menning þjóða annað en atvinnuhættir þeirra og hvernig þær vinna úr þeim efnivið sem lönd þeirra bjóða? Því að skáld- og listframleiðsla er nokkuð fast hlutfall af mannfjölda og sá sem skarar fram úr er þar með orðinn alþjóðlegur, fremur en þjóðlegur eða skandinavískur. Hvað norrænar fréttastofur snertir, geri ég ráð fyrir að þær fái sínar heimsfréttir frá sömu frétta- stofum og við. En vissulega er frá Halldór Jónsson þeim að fá skandinavískar fréttir sem ekki þykja fréttnæmar annars staðar. Ætti að vera vandalaust að útvega slíkar fréttir, ef Islending- ar hafa á annað borð áhuga fyrir þeim, sem er ekki eins sjálfgefið og frú Ragnhildur virðist halda. Það gæti verið fróðlegt að vita hver sé meðalaldur félaga í Norræna félaginu og félagafjöldi þess, ferðarmannafjöldi til Norðurlanda o.s. frv. í samanburði við sólar- landafarþega, gesti á Utsýnar- kvöldum og þess háttar. I sama tölublaði Morgunblaðs- ins er í leiðara vikið að nauðsyn dönskukennslu í skólum. Stað- reyndin er nú sú, að flestir Islendingar eru illa mælandi á dönsku vegna framburðarerfið- leika, þó að þeir geti almennt lesið dönsku, mest vegna áhrifa Andrésblaðanna, og skal ekki gert lítið úr því norræna menningar- framlagi Andrésar og Walt Disneys. Tungumálakunnátta er eyþjóð eins og Islendingum lífs- nauðsynleg og þarf að stórefla hana með öllum tiltækum ráðum. Það er skömm að því, að íslenzkir Norræna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.