Morgunblaðið - 30.05.1978, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGINN 30. MAÍ 1978.
5
Útför Jónínu Guðmundsdóttur. sem var formaður Húsmæðra-
félags Reykjavíkur í fjölda ára. var gerð frá Dómkirkjunni í
gær. Konur úr Sjáifstæðiskvennaféiaginu Hvöt, Húsmæðrafélagi
Reykjavíkur og Bandalagi ísl. kvenna báru kistuna úr kirkju.
ruddust fram, bókstaflega
sópuðust niður og undir vélina, en
vélin nálgaðist markið mjög hægt
og sígandi, nokkrir metrar í
klettana, en nær varð hún að fara,
miklu nær. Undirritaður sat á milli
flugmannanna, á þeim sáust engin
svipbrigði, aðeins alvara og ein-
beitni. Fet eftir fet nálgaðist vélin
bergvegginn, spaðaendarnir voru
rétt ofan við klettabrúnina og
búkur vélarinnar tvo til fimm
metra frá bergveggnum, þar héldu
þeir henni fastri, og maður var
látinn síga niður á nefið þar sem
hinn slasaði var fyrir ásamt þeim
sem með honum var og einum úr
björgunarsveitinni. Þegar maður-
inn hafði losað sig við taugina úr
vélinni færði hún sig frá klettun-
um. Aftur fór hún svo að þegar
karfan var send niður, þegar hinn
slasaði var tekinn upp, og þar með
snjöllu nákvæmnisverki lokið, sem
aðeins er fært þrautþjálfuðum
mönnum með fullkomnustu
tækjum.
Það var einróma álit allra sem
sáu þessa björgun, að þeir hefðu
ekki trúað því að óreyndu, að hægt
væri að sýna slíka leikni við stjórn
þyrlu við þessar aðstæður. Vél og
áhöfn stóðust því þessa prófraun í
björgun við fuglabjörg okkar með
ágætum og sendum við þeim og
húsbændum þeirra beztu þakkir
fyrir.
Þórður.
Maðurinn var lagður inn á
slysadeild Borgarspítalans og við
nánari rannsókn kom í ljós að
hann var minna meiddur en haldið
var í fyrstu, t.d. hafði hann ekki
höfuðkúpubrotnað eins og haldið
var og er líðan hans nú eftir
atvikum.
Hrapaði 20 metra í Bjarnarnúpi:
Látrum 28. maí
ÞAÐ óhapp varð á iaugardag-
inn er 3 menn fóru að gamni sínu
niður á svokallað Heimrasetur í
Bjarnanúpi til eggjatekju í fjalli
milli Látra og Breiðavíkur að
einn maður hrapaði 15—20 m og
hlaut við það skurð á höfði og
fleiri meiðsl.
Óhappið bar að með þeim hætti
að maður var að draga sig í
handvað upp af nefndu Setri, en er
hann var kominn langleiðina upp
urðu honum með einhverjum hætti
lausar hendur á vaðnum og féll þá
og kom niður á kálhnúsk með
höfuð og herðar, en stakkst svo
aftur kollhnís og kom þá í aur-
skriðu sem í var eggjagrjót og
skarst þar á höfði og rann áfram
en þá hljóp til maðurinn sem var
með honum niðri og náði í öxl hans
og stöðvaði þar með hrapið. Það
blæddi mikið úr höfuðsárinu en
félagi hans fór úr skyrtu sinni og
vafði um höfuð hans og stöðvaði
blóðrennslið, hagræddi svo hinum
slasaða sem var þá varla með
meðvitund. Þriðji maðurinn sem
gætti vaðarins ofar í fjallinu fór nú
heim að Látrum að sækja hjálp.
Haft var samband við lækni á
Patreksfirði, og hann beðinn að fá
aðstoð Björgunarsveitarinnar á
Patreksfirði, og hann kæmi á
staðinn með sjúkrakörfu og
sjúkrabíl.
Samtímis símaði undirritaður í
neyðarsíma Slysavarnafélagsins,
þar var á vakt Óskar Þór Karlsson,
og bað um að fá senda björgunar-
þyrlu ef mögulegt væri, með lækni,
ef takast mætti að ná hinum
slasaða beint af slysstað í þyrluna.
Eftir skamma stund, símaði
Hannes Hafstein og sagði að
þyrlan kæmi.
Björgunarsveitin á Patreksfirði
brá hart við og var komin á
sjúkrabíl eftir klukkustund, en því
miður með engan lækni, en það
kom ekki til mála að hreyfa
manninn til að draga hann upp
klettana nema læknir væri með í
ráðum. Það var því farið með teppi
og fatnað til að hlúa að hinum
slasaða. Björgunarsveitin gerði allt
klárt til að ná hinum slasaða upp
úr klettunum ef þyrlan kæmist
ekki svo nærri berginu, en það var
sjáanlega mjög áhættusamt fyrir-
tæki.
Eftir eina og hálfa klukkustund
frá því haft var samband við
Siysavarnaf. Isl. var þyrlan lent á
flugvellinum á Látrum, og undir-
ritaður fór um borð, fullur eftir-
væntingar um hvernig þetta
undratæki mundi reynast i þeirri
prófraun sem framundan var við
hengiflug okkar fuglabjarga um
hávarptímann þegar allt er mor-
andi í fugli. Allt var tilbúið og
undirritaður vísaði á staðinn svo
hófst aðflugið.
Þyrlan kom að staönum í 100 m
hæð, hundruð þúsunda af fugli
Það var á þessari nös sem maðurinn hrapaði.
Þyrlan aðeins 2 metrafrá
klettaveggnum þegar
maðurinn var hífður upp
F
A
T
er
tækifærið
Úrval nýlegra bíla
Greiðslukjör við allra hæfi
Bílaskipti — Aldrei meira úrval.
Látiö ekki happ úr hendi sleppa, og kaupiö góöan bíl fyrir sumariö.
Opió
FIAT EINKAUMBOO A ISLANDI
laugardag
Davíð Sií*urðsson hf’.
SIOUMULA 35. SIMAR 38845 — 38888