Morgunblaðið - 30.05.1978, Side 7
r
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGINN 30. MAÍ 1978.
7
~l
Umsögn
Vísis
Vísir birti forystugrein t
gær, þar sem fjallaö er
um úrslit borgarstjórnar-
kosninganna í Reykjavík.
Blaöið segir:
„Einhver sögulegustu
kosningaúrslit aldarinnar
liggja nú fyrir. Sjálfstæð-
ismenn í borgarstjórn
Reykjavíkur hafa misst
meirihlutann, sem hefur
veriö í þeirra höndum frá
öndveröu. Þetta er mesta
kosningaáfall, sem Sjálf-
stæöisflokkurínn hefur
oröið fyrir bæði fyrr og
síðar.
Þessi úrslit marka
Þáttaskil í íslenskri
stjórnmálasögu. Þau eiga
eftir að hafa djúptækar
afleiðingar. Alþýðu-
bandalagið hefur fengið
umboð til Þess að hafa
forystu um sósíalíska
uppbyggingu Reykjavík-
ur. Þaö er sú hlið, sem
snýr beint að Reykvíking-
um. En úrslitin geta einn-
ig haft áhrif inn á við í
Sjálfstæöisflokknum.
Meirihluti Sjálfstæðis-
manna í borgarstjórn
Reykjavíkur hefur veriö
styrkleikamerki og ein-
ingartákn flokksins. Það
Þarf örugglega sterka
forystu til Þess að halda
flokknum saman eftir
Þetta áfall. Þessi úrslit
veröa Því mikil prófraun á
innviði Sjálfstæðisflokks-
ins. Hættan á klofningi
hefur aldrei verið meiri.
j raun og veru féll
ríkisstjórnin í þessum
kosningum. Kosningarn-
ar í gær eru eins konar
undirréttardómur um
verðbólgu síðustu ára og
Kröfluævintýri. Ýmislegt
bendir til, aö Þessi dómur
verði ekki mildaður með
Þeim hæstaréttardómi,
sem felldur veröur í al-
Þingiskosningunum eftir
mánuð.“
Ekki dómur
kjósenda
yfir stjórn
borgarinnar
Síöan segir Vísir:
„Bírgir ísleifur Gunn-
arsson hafði að því er
borgarmálefni varðar
góða vígstöðu í þessum
kosningum. Það er ekki
dómur kjósenda yfir
stjórn borgarinnar, sem
fellt hefur meirihluta
sjálfstæðismanna. Al-
Þýðubandalagið dró
efnahags- og kjaramálin
mjög kröftuglega inn í
kosningabaráttuna og
hefur haft eríndi sem
erfiði.
Úrslit kosninganna t
bæjarstjórnum og kaup-
túnum um allt land
benda til Þess, að kjós-
endur hafi verið að gera
upp sakir við ríkisstjórn-
ina. Þaö á ekki hvað síst
við um Reykjavík. í annan
stað hefur pað ugglaust
haft áhrif, að minnihluta-
flokkarnir, sem áöur
voru, héldu pví mjög á
lofti í kosningabarátt-
unni, að útilokað væri aö
fella meirihluta Sjálf-
stæðismanna.
Sjálfstæðismenn í
borgarstjórn og víöa um
landið veröa að bíta í Það
súra epli, að kjósendur
voru í gær aö kjósa um
landsmál. Tap Framsókn-
arflokksins í Reykjavík,
Þar sem hann baröist
fyrir þremur mönnum, en
fékk einn, og áföll í
flestum bæjarfélögunum
er einnig til merkis Þar
um.“
Stjórnar-
andstaöan
vinnur á
Loks segir í forystu-
grein Vísis:
„Stjórnarandstöðuflokk-
arnir, Alþýöuflokkur og
AIÞýðubandalag, vinna
á hinn bóginn verulega
á. Hlutfallslega er ávinn-
ingur Alþýðuflokksins
mestur, en á Það er
aö líta að hann er að
vinna upp fylgishrun
síðustu kosninga. Sig-
ur Alþýðubandalagsins
nú er athyglisverður
fyrir Þá sök aö Það het-
ur verið að sækja á
undanfarin ár. Alþýðu-
bandalagið á nú 30%
atkvæða í Reykjavík og
Þriðjung borgarfulltrúa.
Úrslit hafa orðið á
sömu lund svo að segja
um allt land. Þau eru
mjög afdráttarlaus og
ótvíræð vísbending um
hvert stefnir í þingkosn-
ingunum. Krafan um nýja
ríkisstjórn er eiginlega
komin fram nú Þegar.
Þau umskipti hljóta Þó að
verða meö nokkuð öðrum
hætti en í borgarstjórn,
Því að gamla
vinstri-stjórnaruppskrift-
in gengur varla lengur.
Þaö á hins vegar eftir
aö koma í Ijós, hvernig til
tekst meö gömlu
vinstri-stjórnaruppskrift-
ina í meirihlutasamstarfi í
Reykjavík. En Þó að flest-
ir hafi afskrifað stjórnar-
samvinnu af Þessu tagi
er því ekki að leyna að
meirihlutamyndun í
borgarstjórn getur haft
veruleg áhrif á myndun
nýrrar ríkisstjórnar að
loknum Þingkosningum."
L_
FENNER
VALD POULSEN H/F
Suðurlandsbraut 10, sími 38520 - 31142.
Eigum ávallt fyrirliggjandi
Fenner reimar og reimskífur,
Fenner gírmótorar,
Fenner leguhús,
Fenner ástengi í miklu úrvali.
Látið okkur leiðbeina yður
um val á Fenner drifbúnaði.
Spóna-
plötur
Vatnsþéttar spónaplötur.
Hvítar plastlagöar spónaplötur
af ýmsum þykktum og geröum.
W
Timburverzlunin
Vöiundur hf.
KLAPPARSTÍG 1, SÍMI 18430 — SKEIFAN 19, SÍMI 85244
Fáksfélagar
Tekið verður á móti hestum í hagbeit sem ekki
verða notaöir í sumar, miövikudagskvöld kl. 20 við
hesthúsin í Selásnum.
Á fimmtudag verður tekið á móti hestum, sem eiga
að vera í Geldinganesi í sumar kl. 20 viö
Geldinganesrétt.
Þeir hestaeigendur, sem hafa veriö með hesta á
öðrum stöðum, (Völlum og Blikastöðum), hafi
samband viö skrifstofu félagsins fyrir 2. júní.
Greiðsla hagbeitar og félagsgjalds greiðist um leið
og hestar eru látnir í hagbeit.
Happdrætti:
Dregið var í happdrætti Fáks 27. maí. Upp komu
þessi númer:
208, hesturinn, 2314 flugfar, 26655 flugfar.
Hestamannafélagið Fákur.
Skíöanámskeiö í
Langjökli
Tvö námskeiö verða haldin í sumar.
10—15 júní 12 ára og yngri.
15—20 júní 13 ára og eldri.
Verö kr. 28.000,-
Upplýsingar hjá feröaskrifstofu Guömundar Jónasson-
ar h.f. sími 35215 og Tómasi Jónssyni sími 75706.
ÞAÐ SEM KOMA SKAL.
( stað jsess að múra húsið að
utan, bera á það þéttiefni og f
mála það síðan 2-3 sinnum,
getur húsþyggjandi unnið sjálfur, eða
fengið aðra til að kústa, sprauta eða rúlla
THOROSEAL á veggina, utan sem innan,
ofan jarðar sem neðan. Og er hann þá í
senn, þúinn að vatnsþétta, múrhúða og lita.
THOROSEALendist eins lengi og steinminn, sem það er sett á,
það flagnar ekki, er áferðarfallegt og ,,andar“ án j>ess að hleyþa
vatni í gegn, sem sagt varanlegt efni.
Og það sem er ekki minna um vert, það stórlækkar byggingakostnað.
Leitið nánari upplýsinga.
15 steinprýði
DUGGUVOGI 2 SIMI 83340
S:
II
c