Morgunblaðið - 30.05.1978, Qupperneq 19
'TTORGJJNBLÆBIÐ ÞRIÐJUDAGINN 30. MAÍ 1978.
19
Hvað segja Reykvíkingar um úrslitin?
Sigurður Halldórsson
ur með að sjálfstæðismenn skyldu
tapa meirihlutanum í Reykjavík
og að sama skapi er ég mjög
óánægður með tap Framsóknar-
flokksins,“ sagði Sigurður Hall-
dórsson, lögfræðingur. „Lands-
málin hafa ótvírætt haft áhrif á
úrslit þessara kosninga en ég held
að sjálfstæðismenn hafi átt von á
þessum úrslitum, því léleg kosn-
ingaþátttaka var þeim í óhag.
Hinir nýju meirihlutaflokkar
þurfa að fá frið til að koma sér
saman um sína stefnu og ég tel að
þeim ætti að takast það. Um tap
okkar framsóknarmanna get ég
aðeins sagt það, að ég hélt að þetta
væri ágætur listi enda farin af
honum ýmis hægri öfl, sem ég
taldi að drægju úr fylgi flokksins
og ég hélt að listinn væri því
jákvæður gagnvart félagshyggju-
sinnuðu fólki og vinstra fólki.
Varðandi alþingiskosningarnar
held ég að þar sæki aftur í sama
horf og við fyrri kosningar. Ég
vona að Alþýðuflokkurinn fái ekki
jafn mikið og nú en Framsóknar-
flokkurinn ætti að bæta við sig
einhverju. Alþýðubandalagið fær
tæplega jafn mikið og nú en
Sjálfstæðisflokkurinn tapar frá
síðustu kosningum, þó ekki eins
miklu og við borgarstjórnar-
kosningarnar nú,“ sagði Sigurður
að síðustu.
„Meirihluti Sjálf-
stæðisflokksins
hefði Þjönað
borginni betur“
„Þessi úrslit eru tvísýn og slæm.
Ég held að hreinn meirihluti
sjálfstæðismanna hefði þjónað
borginni og málefnum Reykvík-
inga betur en þessi breyting,"
sagði Eiríkur Magnússon,
starfsmaður hjá Véladeild SÍS.
„Það er eins og oft áður andvara-
leysi fólks, sem hefur áhrif á
úrslitin og það er líka víst að
landsmálin hafa haft áhrif. Sjálf-
Eirikur Magnússon
stæðismenn hafa alltaf tapað
fylgi, þegar þeir hafa setið í
rikisstjórn og ekki síst þegar við
verulega erfiðleika hefur verið að
fást i þjóðmálunum. Ég er ekki
kominn til með að segja að úrslit
alþingiskosninganna verði á sama
veg, því framsóknarmenn koma til
með að búa að sínu fylgi og það er
merkilegt að Alþýðuflokkurinn er
að ná sér aftur og það er Vel,“
sagði Eiríkur að síðustu.
„Fyrst og fremst
álit kjó$enda
á landsmála-
pólitíkinni“
„Með þessum úrslitum liggur
fyrst og fremst fyrir álit kjósenda
á landsmálapólitíkinni. Sjálfur er
ég sjálfstæðismaður og varð því
fyrir vonbrigðum með úrslitin. Ég
átti von á nokkru fylgistapi
Sjálfstæðisflokksins en ekki jafn
miklu og raun varð á,“ sagði Hans
Kristján Arnason,
framkvæmdastjóri. „Kjósendur
hafa með þessum kosningum
viljað koma á framfæri gagnrýni
sinni á efnahagsstefnu ríkisstjórn-
arinnar. Varðandi þá flokka, sem
nú taka við stjórn Reykjavíkur, er
víst að verulegir erfiðleikar eiga
eftir að koma fram á næstu
mánuðum, þegar þeir þurfa að ná
samstöðu um fjölmörg málefni. Ég
held að þessi úrslit gefi ekki með
öllu rétta mynd af úrslitum
væntanlegra alþingiskosninga og
ég trúi því ekki að sjálfstæðis-
menn tapi jafn miklu í þeim og nú.
Ég veit að margt fólk, sem fylgir
sjálfstæðismönnum að máli, sat
heima við kosningarnar á sunnu-
dag. Afhroð Framsóknarflokksins
en tel hins vegar að aðrir eigi að
fá tækifæri til að reyna sig við
stjórn hennar," sagði Þórhallur
Már Sigurðsson, prentari. „Þessi
úrslit eru skýr þó munurinn sé
lítill og ég er ékki í vafa um að
niðurstöðunni hafa landsmálin
ráðið enda hafa bæði Alþýðuflokk-
ur og Alþýðubandalag lagt áherzlu
á landsmálin í sinni kosningarbar-
áttu. Það er skoðun mín að þrátt
fyrir að skipt verði um meirihluta
í borgarstjórn, verði ekki miklar
breytingar á stjórn borgarinnar.
Sjálfstæðismenn koma hins vegar
ekki til með að tapa jafn miklu í
alþingiskosningum, því þessar
kosningar eru ólíkar og í borgar-
stjórnarkosningum er t.d. ekki
kosið um utanríkismál," sagði
Þórhallur að lokum.
Hans Kristján Árnason
er heldur meira en hjá sjálfstæðis-
mönnum en þeir eiga sjálfsagt
eftir að rétta við hvað snertir
heildarniðurstöðuna, þegar sveit-
irnar koma inn í dæmið. Úrslitin
eru áfall fyrir sjálfstæðismenn en
við verðum bara að standa okkur
betur,“ sagði Hans Kristján að
lokum.
„Sjálfstæðismenn
tapa ekki jafn
miklu í alpingis-
kosningunum“
„Ég fór ekki til að kjósa, því ég
vildi vera hlutlaus. Ég er ekki
óánægður með stjórn borgarinnar
„Agætt aö
stokka spilin“
„Það er ágætt að stokka spilin
og ég fagna því að meirihluti
Matthildur Jónsdóttir
„Það er orðið
alltof rautt
í Reykjavík“
„Ég er ekki ánægð með þessar
niðurstöður, það er brðið alltof
rautt í Reykjavík. Það liggur allvel
fyrir að fólk hefur blandað saman
borgarmálefnum og landsmálum,
sem er rangt,“ sagði Matthildur
Jónsdóttir, bankastarfsmaður.
„Ég á ekki von á því að vinstri
flokkarnir verði lengi við stjórn-
völinn í Reykjavík. Þetta var í
fyrsta sinn, sem ég kaus og valið
olli mér ekki erfiðleikum. Um
úrslit alþingiskosninganna vil ég
ekki spá en ég vona sannarlega að
Sjálfstæðisflokkurinn tapi ekki
jafn miklu og nú.“
„Sofandaháttur ráð-
andi hjá fólki“
„Ég átti hreinlega ekki von á
þessu og er ekki ánægð með að
meirihluti sjálfstæðismanna í
Reykjavík féll. Ég er hreinlega
ekki búin að ná mér og get því fátt
sagt. Ég fæ ekki betur séð en
ánægt, það vill fá eitthvað nýtt, og
svo er náttúrlega augljóst að
landsmálin hafa haft áhrif á þessa
kosningu. Já, ég kaus það sama nú
og ég gerði síðast og býst við að
kjósa sama flokkinn í alþingis-
kosningunum."
„Akaflega
vonsvikinn"
„Ég er ákaflega vonsvikinn yfir
þessum úrslitum, því mér hefur
þótt stjórn borgarinnar vera í
góðum höndum. Það er ekki
vafamál að landsmálin spiluðu
mjög inn í þessar kosningar og víst
er að vinstri flokkarnir hafa ekki
sigraö á borgarmálastefnu sinni,“
Friðhjörn Jósafatsson
sjálfstæðismanna í Reykjavík
féll,“ sagði Friðbjörn Jósafatsson,
leigubílstjóri. „Þetta er vissulega
hálfgert vantraust á þá, sem áður
stjórnuðu og það hlýtur að verða
einhver breyting á stjórn borgar-
innar með tilkomu nýs meirihluta.
Við verðum að gera ráð fyrir því
að þeir nái samstöðu um stefnu í
borgarmálunum. Ég kaus það
sama og ég hef jafnan kosið og var
ekkert að rugla í þessu. Varðandi
alþingiskosningarnar í næsta
mánuði gæti ég trúað að breyting
á fylgi flokkanna yrði áþekk því
sem nú varð en við vitum þó að það
eru alltaf einhverjir, sem kjósa
ekki það sama í sveitarstjórnar-
kosningum og alþingiskosning-
um,“ sagði Friðbjörn að síðustu.
„Kaus ekki — finnst
ég ekkert vit hafa á
stjórnmálum“
„Já, ég er búin að fá kosninga-
rétt, en kaus samt ekki. Af hverju?
Mér finnst ég bara ekkert vit hafa
á stjórnmálum og þess vegna vil ég
ekki skipta mér af þeim. Nei, ég er
ekki búin að ákveða hvort ég fer
Þórhallur Már Sigurðsson
Lilja Jónsdóttir
einhver sofandaháttur hjá fólki
hafi verið ráðandi. Margt ungt fólk
kaus líka nú í fyrsta sinn og það
kann að hafa ráðið einhverju. Ég
vil sem minnst segja um hver
úrslit alþingiskosninganna kunna
að verða,“ sagði Lilja Jónsdóttir,
húsmóðir.
Hörður Hlöðversson
sagði Ilörður Hlöðversson. Um
það hvort vinstri flokkarnir ná að
vinna saman að stjórn Reykjavík-
ur verður framtíðin að segja til um
en ég vona sannarlega að úrslit í
komandi alþingiskosningum verði
ekki á sömu lund og þessar
kosningar."
„Stjórn sjálfstæðis-
manna ekki léleg,
heldur nauðsynlegt
að breyta til“
„Ég er ánægður með þessi úrslit
borgarstjórnarkosninganna og þá
sérstaklega að sjálfstæðismenn
skildu missa meirihlutann. Stjórn
þeirra á málefnum Reykjavíkur
hefur ekki verið léleg, heldur er
Ingibjörg Erlendsdóttir
á kjörstað í alþingiskosningun-
um,“ sagði Ingibjörg Erlends-
dóttir þar sem hún stóð við
afgreiðslu í Topptízkunni.
„Mér finnst ágætt að breyta til,
en ég hefði nú samt helzt viljað
hafa Birgi áfrarn," sagði Edda
Sigurgeirsdóttir. „Skýringin hlýt-
ur að vera sú að fólkið er ekki
Edda Sigurgeirsdóttir
Steinar Birgisson
nauösynlegt að breyta til i þessu
efni eins og öðrum,“ sagði Steinar
Birgisson. múrari. „Ég kann enga
eina skýringu á því hvers vegna
úrslit kosninanna urðu á þennan
veg en um það hvað nú tekur við
er ómögulegt að segja. Ég treysti
á að einhver breyting verði á
stjórn borgarinnar s.s. varðandi
byggingu dagvistunarstofnana og
það er hreinlega ekki um annað að
ræða fyrir vinstri flokkana en ná
samstöðu. Þetta var í fyrsta sinn,
sem ég kaus og mér var efst i huga
að koma sjálfstæðismönnum frá.
Ég vona að úrslit alþingiskosning-
anna verði áþekk þessum úrslit-
um,“ ságöi Steinar að lokum.