Morgunblaðið - 30.05.1978, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGINN 30. MAÍ 1978.
27
HM I knattspyrnu hefst á fimmtudaginn:
Búist við að 1000 milljónir
fylgist með úrslitaleiknum
Argentina '78
HEIMSMEISTARAKEPPNIN í knattspyrnu
hefst í Argentínu á fimmtudag, 1. júní. Flestar
Þjóðir eiga sína þjóðaríþrótt og þann sess
skipar knattspyrnan víðast hvar. Iþróttavið-
burður þessi ber því höfuð og herðar yfir alla
aðra svo ekki sé meira sagt. Áhugi fólks á
keppninni er með ólíkindum. Ekki verður
meira rætt eða ritað um nokkurn annan
viðburð á meðan á keppninni stendur.
Sjónvarpað verður beint frá öllum leikjum
keppninnar, bæði í Evrópu og í Ameríku, og
er áhuginn slíkur að búast má við að götur
stórborganna tæmist á meðan sjónvarpsút-
sending stendur yfir. Áætlað er að 1 milljarður
sjónvarpsáhorfenda fylgist með úrslitaleikn-
um, sem verður sendur beint út í litum í
gegnum gervihnött um allan heim. Aðeins
tungllending Apollós 11 á sínum tíma hefur
dregið að sér jafn marga áhorfendur.
Spámenn áætla að samanlagðar tölur sjón-
varpsáhorfenda að öllum leikjum keppninnar,
25 talsins, þar með talinn úrslitaleikurinn 25.
júní, kunni að verða allt upp í 20 billjón.
• Knattspyrnumaðurinn Pele er án efa sá bezti, sem fram hefur komið í Heimsmeistarakeppni. Pele
var aðeins 17 ára þegar hann sló í gegn í HM í Svíþjóð 1958 og varð heimsfrægur á svipstundu.
Hann varð þrisvar heimsmeistari á sínum ferli og meðfylgjandi mynd er frá úrslitaleik IIM í Mexíco
1970. þegar Brasilíumenn unnu ftali í úrslitaleiknum 1.1. Pele skoraði eitt markanna og sjást félagar
hans fagna honum eftir markið. Pele er númer 10 en númer 11 er Revelino, sá eini úr HM-liði Brasilíu
1970, sem keppir í HM í Argentínu nú í júní.
í Bandaríkjunum verða leik-
irnir t.d. sýndir víða á stóru
tjaldi í kvikmyndahúsum og í
leikhúsum, þar sem áhorfendur
hvetja áfram sín lið eins og þeir
væru á vellinum og leikmenn-
irnir gætu heýrt í þeim. Fólk
mun rísa á fætur er þjóðsöngvar
þeirra landa eru leiknir. 1970,
þegar Brasilía sigraði í keppn-
inni, hóf fjöldi fólks sem horft
hafði á úrslitaleikinn í Madison
Square Garden í New York,
mikla sigurhátíð.
DÖNSUÐU GONGA
IJppselt hafði verið í húsið og
því miklir troðningar. Eina
leiðin til að koma fólkinu út á
götu var að fá viðstadda til að
mynda röð og dansa conga með
tilheyrandi trumbuslætti og
danshreyfingum, þar til allir
voru búnir að yfirgefa húsið.
En tilfinningar fólks geta líka
haft alvarlegar afleiðingar í för
með sér og síður en svo ánægju-
legar. Nestor Krally, sem mikið
hefur ritað um knattspyrnu,
varð vitni af því að Brasilíumað-
ur, áhorfandi á HM í Svíþjóð 58,
hafði lofað því að fremja sjálfs-
morð af gleði sigraði Brasilía í
keppninni.
Brasilía sigraði og maðurinn
stóð við sitt og framdi sjálfs-
morð.
ÓHEMJU MIKILL
UNDIRBÚNINGUR
Undirbúningurinn sem fram
fer áður en keppnin hefst er með
ólíkindum mikill. Það er dýrt að (
fjármagna keppnina og til þess
þarf mikið vinnuafl. Argentínu-
menn sem stríða við mikla
fátækt og verðbólgu, hafa byggt
þrjá nýtískulega knattspyrnu-
velli og endurskipulagt og bætt
þrjá gamla. Þá hafa þeir eytt
óhemju fé í að endurbyggja
vegakerfið og flugvelli. Þeir
hafa byggt ný hótel. 50 milljón-
um dollara var eytt í nýtt
litsjónvarpsútsendingarkerfi,
því að þeir sem sjá um keppnina
verða að geta sent út í lit.
Sérstakar öryggissveitir hafa
verið myndaðar til að vernda
leikmenn og áhorfcndur, en
þrátt fyrir stranga öryggisgæslu
sprakk sprengja í aðalstöðvum
blaðamanna fyrir um það bil 10
dögum og lögregluforingi lét
lífið. — Við þurfum að sýna
umheiminum að þær hugmyndir
sem útlendingar hafa um land
og þjóð eru ekki réttar, sagði
stjórnmálamaður nokkur ekki
alls fyrir löngu og nú er rétti
tíminn. Kostnaðurinn við allt
þetta nemur um 500 milljónum
dollara. Eftir að hafa gefið út
7000 blaðamannaskírteini var
ákveðið að stoppa og veita ekki
fleiri. Þegar dregið var í riðla
keppninnar mættu 350 blaða-
menn frá Brasilíu svo dæmi sé
nefnt. Ekkert land kemur til
með að eiga fleiri blaðafulltrúa
en einmitt Brasilía. Á keppninni
sjálfri koma þaðan 489 blaða-
menn, 199 frá Ítalíu, 177 frá
Frakklandi og 111 frá Spáni.
Frá Svíþjóð koma 95, og svona
mætti áfram telja. Allt þetta
umstang hefur sín áhrif, verð á
hótelherbergjum hækkar gífur-
lega og mun kosta 25 þúsund
krónur nóttin, ef þú getur þá
hugsanlega fundið þér eitt.
Kaupmaður einn sagðist
skammast sín fyrir hvað verðlag
í öllum búðum hækkaði skyndi-
lega til að hægt væri að hagnast
á ferðamönnunum. Um það bil
100.000 Brasilíumenn munu
koma og knattspyrnuáhuga-
menn víðs vegar að. Frá Islandi
koma að minnsta kosti fjórir
sem vitað er um með vissu.
IIVATNINGAHRÓPIN GETA
DIJGAÐ TIL SIGURS
Eitt hefur verið mjög athygl-
isvert við keppnina frá upphafi,
og það er hve miklu áhorfendur
fá orkað. Það er engu líkara en
að þeir geti með hvatningaróp-
um fært liðum sínum sigur.
Heimsbikarinn hefur nær alltaf
hafnað í þeirri heimsálfu þar
sem keppnin fer fram. í sjö
skipti af tíu hefur bikarinn
unnið sú þjóð sem um keppnina
hefur séð eða nágrannaþjóð. Það
er ekki auðvelt að komast í
úrslitin. 146 þjóðir hefja undan-
keppnina og þegar henni er lokið
hafa 16 þjóðir unnið sér rétt til
lokaþátttöku. Þjóðirnar leggja
metnað sinn í að vel takist til og
upphæðir þær sem fara í liðin
eru hreint ótrúlegar. Oft verða
stórþjóðir á knattspyrnusviðinu
að sætta sig við að sitja heima.
Samanber England sem ekki
hefur tekist að kom í lokakeppn-
ina síðustu tvær keppnir.
Sagt er að leikmenn fyllist
mikilli þjóðerniskennd þegar
þeir klæðast landsliðsbúningi.
Margir af bestu knattspyrnu-
mönnum heims leika ekki í
þjóðlandi sínu heldur þar sem
þeir fá bestu launin. Það er þeim
því mikilvægt að standa sig vel
og verða þjóðhetjur er þeir leika
með landsliði. Alan Ball hefur
sagt að enginn knattspyrnumað-
ur fái betra tækifæri á að sýna
hvað í honum býr en einmitt í
svona keppni. — Þú ert að keppa
a, móti þeim bestu í veröldinni,
þú verður að standa þig, þú
getur ekki brugðist áhorfendum.
Þegar ég lék í HM í Englandi
fannst mér ég ekki vera að
keppa fyrir England, mér fannst
ég vera England og ég fann
styrk áhorfendaskarans á bak
við mig, þeir voru hluti af mér.
Hvergi í veröldinni er knatt-
spyrnan í jafn miklu öndvegi og
í Suður-Ameríku. í Brasilíu er
knattspyrnan menning að
þeirra dómi. Hvergi fyrirfinnast
eins blóðheitir áhorfendur. Lít-
um á nokkru atburði sem eru
einstæðir en átt hafa sér stað.
Eftir uppþot í kjölfar víta-
spyrnu á leikvelli nokkrum í
Argentínu, var dómaranum
bjargað um borð í lögregluþyrlu
á síðustu stundu, en leikmönn-
um tókst naumlega að halda
aftur af æstum mannfjöldanum
meðan þyrlan var sótt. Óðum
áhorfanda á leik í Brasilíu
blöskraði svo vítaspyrnudómur,
að hann hljóp inn á völlinn og
beit í annað eyrað á dómaran-
um.
SAMIIERJARNIR
SLÓGUST
En það eiga sér ekki bara átök
milli dómara og leikmanna, það
sýnir okkur eftirfarandi atburð-
ur sem varð í leik í Argentínu.
Til áfloga kom milli leikmanna
í knattspyrnuleik nokkrum, og
þó að slíkt sé í sjálfu sér engin
nýlunda þar um slóðir var þessi
slagur óvenjulegur. Þeir sem
öttu kappi samán voru mark-
vörður og fyrirliði sama liðsins
og hófust lætin er fyrirliðinn
.skammaði markvörðinn fyrir að
fá á sig níunda markið í
leiknum.
Blaðamaður einn hafði látið
óvinsamleg orð falla um leik-
mann nokkurn á íþróttasíðu
sinni og næst er blaðamaðurinn
mætti til að skrifa um leik hjá
liðinu, prílaði leikmaðurinn inn
í blaðamannastúkuna og rotaði
„eiturpennan". Það hefur oft
soðið upp úr bæði hjá leikmönn-
um og áhorfendum. Eitt
gleggsta dæmið um skapofsann
kom fram í leik Argentínu og
Englands í keppninni 1966 í
Englandi. Argentínumenn komu
með mjög gott Iið til keppninn-
ar, sem ætlaði að gera stóra
hluti en þeir létu skapið hlaupa
með sig í gönur. Þeir kenndu
dómurunum um að hafa verið á
móti sér í leikjunum og er þeir
mættu Englendingum var búið
að leysa skapið úr læðingi áður
en leikurinn hófst.
SKAPOFSI
Strax á fyrstu mínútum leiks-
ins brutu þeir mjög gróflega á
leikmönnum Englands. Rattin
var vísað af leikvelli en hann
neitaði að yfirgefa völlinn.
Þegar hann loksins fékkst út af
gretti hann sig framan í áhorf-
endur og lét öllum illum látum.
England sigraði í leiknum 1—0.
Er leiknum lauk gerðu
Argentínumenn sig líklega til að
ráðast á dómarann og línuverð-
ina, en þeim var bjargað. Þeir
börðu dyrnar á búningsklefum
Englands og skoruðu á þá að
koma út og berjast eins og menn
með hnefum og hnúum. Þeir
spörkuðu, hrópuðu og hentu öllu
lauslegu í viðstadda. Sir Alf
Ramsey lét þau orð falla að
Argentínumenn væru villidýr-
um líkastir. Villidýr, þetta var
orð sem Suður-Ameríkumenn
gleymdu ekki. Mexíkóbúar,
Chilebúar, og Brasilíumenn
mundu vel það sem Ramsey
hafði sagt. Allir Evrópumenn
héldu að Suður-Ameríkumenn
væru villidýr. Þegar Englend-
ingar komu svo í keppnina í
Mexikó voru þeir nr. 1 á lista
yfir óvinsælustu liðin í keppn-
inni. Dagblöðin héldu því fram
að leikmennirnir væru drykkju-
menn og þjófar og áður en langt
leið hafði Bobby Moore verið
handtekinn og sakaður um
þjófnað í skartgripaversiun.
Síðar kom í ljós að hann var
alsaklaus, og reynt hafði verið
að setja þetta á svið til að koma
Bobby úr jafnvægi svo og öðrum
liðsmönnum. Engla..J lék sinn
fyrsta leik i keppninni á móti
Brasilíu. Kvöldið fyrir leikinn
safnaðist saman fyrir framan
hótelið, sem Englendingarnir
bjuggu á, mikill mannfjöldi og
bílar keyrðu sífellt hringi í
kringum hótelið og flautuðu án
afláts. Fólkið hrópaði: Brasilía,
Brasilía. Lögreglumenn sem
gættu hótelsins gerðu lítið
annað en að slá hring um hótelið
og varna fólki inngöngu og þeir
sem heyrðu vel gátu heyrt þá,
muldra Brasilía, Brasilía.
Daginn eftir tapaði England
1—0 fyrir Brasilíu og það var
snillingurinn Jaizimo sem skor-
aði sigurmark Brassanna.
Kramhald á bls. 35
• ÞETTA er River Plate leikvangurinn í Buenos Aires í
Argentínu. þar sem úrslitaleikur Heimsmeistarakeppninnar 1978
fer fram.