Morgunblaðið - 30.05.1978, Side 48
/
AIKÍLÝSINÍÍASIMINN ER:
22480
aik;lYsin<;asíminn er:
22480
Fridrik með 6
vinninga eftir
sjö umferðir
Friðrik Ólafsson er einn í 1.
sa*ti á skákmótinu í Las Paimas
og er með 6 vinninga eftir 7
umferðir. í sjöundu umfcrðinni.
sem tcfld var í gær. vann Friðrik
Sersio Cabera frá Spáni í 35
leikjum.
Önnur úrslit í sjöundu umferð-
inni urðu þessi: Garcia 'h — Cson
'k Perez vann Tatai, Westerinen
vann Lezano, skák Rodrigues og
Mestres fór í bið og sömuleiðis
Medina og Rubio.
Staðan eftir 7 umferðir er þessi:
I. Friðrik Ólafsson 6v., 2 Cson
5!/2v., 3. Padron 5v., 4. Rodriguez
4'/2v., 5. Westerinen 4v., 6.-7.
Medina og Tatai 3v., 8. Mestres
2 '/2V., 9,—10. Perez og Lezcano 2v.,
II. —12. Cabera og Rubio l'hv.
Hvalveiðar hafnar;
Þrír hvalir fengust í gær
ÍSLENZKU hvalbátarnir fjórir
héldu til veiða á sunnudags-
kvöld og síðari hluta dags í gær
Kolmunnaskipin
hætta veiðum
ÍSLENZKU kolmunnabátarnir sem
eru á veiðum við Færeyjar hafa lítið
sem ekkert fengið undanfarna daga.
Morgunblaðinu var tjáð í gær, að
skipin væru í þann veginn að hætta
veiðum og var vitað að Sigurður er
væntanlegur til íslands f dag með
einhvern afla. Bjarni Ólafsson,
Börkur og Víkingur voru enn á
miðunum við Færeyjar í gær. en gert
var ráð fyrir að þessi skip myndu
halda heimleiðis f dag eða á morgun
ef ekki rætist frekar úr aflabrögð-
um.
var vitað að þeir voru búnir að
fá 3 hvali. 1 langreyði og 2
búrhvali.
Eins og komið hefur fram í
fréttum, þá hafa Greenpeace-sam-
tökin hótað að reyna að koma í veg
fyrir hvalveiðar bátanna í sumar,
en í gær var ekki vitað hvort skip
samtakanna, Rainbow Warrior,
var lagt af stað á íslandsmið.
Morgunblaðinu er kunnugt um að
síðustu daga hefur Rainbow
Warrior haft viðkomu í nokkrum
hafnarborgum Evrópu og þar hafa
Greenpeace-félagar rekið áróður
gegn hvalveiðum Islendinga. Sam-
kvæmt upphaflegri áætlun sam-
takanna á Rainbow Warrior að
koma á Islandsmið þann 4. júní
n.k.
ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 1978
p,
Frá talningu atkvæða í Austurbæjarskólanum í fyrrinótt.
Endurtalningin kl. 2 í nótt:
Engar veruleg-
ar breytingar
ÞEGAR Morgunblaðið fór í I borgarstjórnarkosninganna I vík ákvað eftir að lokið var
prentun kl. 2 í nótt höfðu í Reykjavík, en þá var vart við að telja atkvæði í borgar-
engar verulegar breytingar búizt við að endurtalningu stjórnarkosningunum í gær-
komið fram við endur- lyki að fullu fyrr en kl. 03. morgun að láta endurtelja
talningu atkvæða vegna | Yfirkjörstjórnin í Reykja- I Framhald á bls. 30.
Geir Hallgrímsson um úrslit kosninganna:
Hljótum að keppa að þvi að ná
aftur meirihluta í borgarstjóm
Eigum mikið verk fyrir höndum næstu vikur að
skýra störf og stefnumál Sjálfstæðisflokksins
— l>að er engum blöðum um
það að fletta. að megináfallið
er að missa meirihiutann f
Reykjavík. sagði Geir
Hallgrimsson. forsætisráð-
herra. er Morgunblaðið ræddi
við hann í gærkvöldi, en
íorsætisráðherra er nú staddur
í Washington. þar sem hann
mun sitja fund leiðtoga At-
lantshafsbandalagsrfkjanna.
— Almcnnt hafa úrslitin vald-
ið okkur vonbrigðum, þótt
nefna megi ýmsa staði, þar
sem Sjálfstæðismenn hafa
haldið vel sínum hlut.
Þótt við gerum okkur grein
fyrir þessu, skulum við líka
minnast þess, sagði Geir
Hallgrímsson, að við erum að
bera úrslitin saman við hag-
stæðustu úrslit, sem Sjálf-
stæðisflokkurinn hefur nokkru
sinni fengið í sveitarstjórnar-
kosningum þ.e. 1974. — Sagt er
að með þessum úrslitum hafi
borgarstjórnarflokkur Sjálf-
stæðismanna tekið á sig skell,
sem ríkisstjórn og þingflokkur
hefðu átt að taka.
— Ég tel, að borgarstjórnar-
flokkur sjálfstæðismanna með
Birgi ísl. Gunnarsson í broddi
fylkingar hafi staðið sig framúr-
skarandi vel og byggt upp sterka
málefnastöðu í borgarmálum og
hafi ekki átt skilið annað en
endurkjör og endurnýjað traust
borgarbúa. Það var vitað mál,
að andstæðingar Sjálfstæðis-
flokksins í borgarmálum lögðu á
J>að áherzlu eins og ég gat um
í viðtali við Morgunblaðið dag-
inn fyrir kosningarnar að ræða
landsmálin en ekki borgarmálin.
Við sjálfstæðismenn töldum
hins vegar borgarmálin eiga það
skilið óg borgarbúar, að við
einbeittum okkur sem mest
dagana og vikurnar fyrir
borgarstjórnarkosningar að
borgarmálum og beindum þeim
eindregnu áskorunum til
borgarbúa að láta þau ráða
atkvæði sínu í borgarstjórnar-
kosningum. Af þessu leiddi, að
við sinntum e.t.v. ekki sem
skyldi að svara ýmsum rang-
færslum, útúrsnúningum og
árásum á aðgerðir ríkisstjórnar-
innar eins og t.d, þegar
kommúnistar reyndu að koma
því inn hjá fólki að nýju
bráðabirgðalögin hefðu
skerðingu á kjörum fólks í för
með sér miðað við efnahagsráð-
stafanirnar í febrúar sl. Svo
virðist sem þetta herbragð
kommúnista hafi heppnast og er
uggvænlegt til þess að vita, að
þeim mönnum sé nú falin forsjá
málefna Reykvíkinga, sem komu
sér undan umræðum um borgar-
mál.
Við sjálfstæðismenn höfum
við hverjar einustu borgar-
stjórnarkosningar sagt að
borgarbúar yrðu að gera sér
grein fyrir því, að meirihluti
Sjálfstæðismanna væri í hættu
og við höfum gert okkur grein
fyrir því, að svo kynni að fara,
að hann glataðist. Nú hefur það
gerzt og er um mikla afturför
fyrir Reykjavík að ræða að hafa
ekki heilsteypta meirihluta-
stjórn við stjórnvölinn. Við
hljótum að keppa að því að ná
þessum meirihluta aftur í
borgarstjórn, þannig að borgar-
búar verði ekki ofurseldir sömu
óvissu um stjórn málefna sinna
eins og aðrir landsmenn.
Við næstu alþingiskosningar
er ekki útlit fyrir að neinn
stjórnmálaflokkanna muni lýsa
fyrirfram yfir því hvaða flokki
eða flokkum hann hyggst ná
samstöðu með um stjórn
landsins eftir kosningar. Það er
mjög miður farið, að kjósendur
viti ekki hvert stefnir. Við
Sjálfstæðismenn verðum að
keppa að því, þótt á móti blási í
bili að skapa þennan valkost í
landinu fyrir kjósendur eins og
hann hefur verið til staðar í
Reykjavík.
— Hvaða ályktanir er hægt að
draga af úrslitum þessara
kosninga um þingkosningar
þær, sem framundan eru?
— Þar er á brattann að sækja.
Úrslit þessara kosninga sýna, að
Framhald á bls. 30.