Morgunblaðið - 18.07.1978, Side 1
44 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
152. tbl. 65. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Flugbann á ríki sem
vemda flugræningja
Fridar-
fundur í
gömlum
kastala
Maidstone Englandi 17. júlí. Reuter.
Utanríkisráðherrar ísraels og
Egyptalands Moshe Dayan og
Ibrahim Kamel komu í dag til
London til nýrra íriðarviðraeðna
í rammgerðum miðaldakastala.
Cyrus Vance utanríkisráðherra
Bandaríkjanna kom einnig til að
taka þátt í viðræðunum sem
hefjast á morgun þótt búizt væri
við að ráðherrarnir ræddust við
óformlega í kvöld í Leeds-kastala
þar sem umræðurnar fara fram.
Kastalinn er 1.000 ára gamall
og var valinn fyrir fundarstað af
ótta við hugsanlega árás pal-
estínskra öfgamanna. Kastalinn
er úti í miðju vatni og skóglendi
skilur hann frá næsta þorpi.
til London í gær.
Þetta verður fyrsti fundur utan-
ríkisráðherra ísraels og Egypta-
lands síðan í janúar. „Það er von
okkar að nýr skriður komist á
friðartilraunirnar," sagði Vance
við komuna.
Framhald á bls. 29.
Bonn. 17. júlí. Reuter.
SJÖ helztu iðnríki heims
tilkynntu í dag að þau hefðu
ákveðið að stöðva allar
flugferðir til landa sem
skjóta skjólshúsi yfir flug-
ræningja.
Samkvæmt opinberri yfir-
lýsingu sem Helmut Schmidt
kanzlari las á blaðamanna-
fundi ákváðu leiðtogar land-
anna jafnframt á fundi
sínum í Bonn að gera ráð-
stafanir til að binda enda á
ílug frá slíkum ríkjum.
Þessar ráðstafanir verða
gerðar gegn ríkjum „sem
neita að framselja eða lög-
sækja þá sem hafa rænt
flugvél og. eða skila ekki
slíkum flugvélum" að því er
sagði í yfirlýsingunni.
Önnur ríki eru hvött til
þess að gera slíkt hið sama í
yfirlýsingunni. Embættis-
menn í Bonn segja að þetta
sé í fyrsta skipti sem svona
Alcoentre, Portúgal, 17. júlí. AP.
UM 120 FANGAR, þar af ýmsir
sem hafa verið dæmdir fyrir
voldugur ríkjahópur hefur
tekið höndum sanan gegn
flugránum.
Akvörðunin byggði á til-
lögu sem forsætirsráðherra
Kanada, Pierre Trudeau, bar
fram á leiðtogafundinum í
gær.
alvarlega glæpi og eru álitnir
hættulegir flýðu frá Alco-
entre-fangelsi 80 km norður af
Lissabon í dag um göng sem þeir
grófu undir vegg að því er frá var
skýrt í dag.
Næstum því helmingur allra
fanga í fangelsinu tók þátt í
flóttanum scm minnir um margt
á sögur um flótta fanga í síðari
heimsstyrjöldinni. Embættis-
menn segja að fangarnir hafi
grafið 25 metra löng göng og
Framhald á bls. 29.
Iðnrikin sammála um
víðtækar ráðstafanir
Fjöldaflótti
úr fangelsi
Sovézkir
togarar
ásakaðir
Ósló. 17. júlí. Reuter.
NORSK yfirvöld sökuðu í dag
sovézka togara um brot á alþjóðleg-
um ákvæðum um möskvastærð á
Barentshafi.
Torben Foss forstöðumaður
norsku fiskimálastjórnarinnar sagði
að norsk varðskip hefðu staðið
sovézka togara að brotum á sam-
þykktum Norðaustur-Atlantshafs-
fiskveiðinefndarinnar sem Rússar
eru aðilar að um möskvastærð í
norsku fiskveiðilögsögunni.
Um 40 sovézkir togarar eru á
karfaveiðum í 200 mílna fiskveiðilög-
sögunni við Svalbarða að sögn Foss.
Korchnoi hló er rangur
þjóðsöngur var leikinn
Bonn 17. júlí. Reuter.
Sjö helztu iðnríki Vesturlanda urðu í dag ásátt um víðtækar
ráðstafanir um að auka hagvöxt, berjast gegn atvinnuleysi og
verðbólgu og spara orku og Carter forseti sagði að loknum tveggja
daga fundi æðstu leiðtoga landanna um efnahagsmáb „Árangurinn
fer fram úr okkar giæstustu vonum.“
Helztu atriði samkomulagsins eru loforð Bandarikjamanna um að
draga úr olíuinnflutningi. loforð Japana um að opna markaði sfna
fyrir erlendar vörur og sú ákvörðun Vestur-Þjóðverja að auka
verulega eftirspurn innanlands.
Bæði Bandaríkjamenn og
Vestur-Þjóðverjar gengu miklu
lengra en embættismenn höfðu
spáð að þeir mundu gera jafnvel
aðeins örfáum klukkustundum
áður en fundinum lauk. Hin ríkin
sem tóku þátt í viðræðunum —
Bretland, Frakkland, Ítalía og
Kanada — hétu því hvert um sig
að taka þátt í ráðstöfununum.
Þótt leiðtogafundurinn fjallaði
um efnahagsmál lýstu leiðtogarnir
einnig yfir loftflutningabanni á
ríki sem neita að framselja eða
lögsækja flugræningja (Sjá aðra
frétt).
Helmut Schmidt kanzlari hét
því að lokum á fundinum að gera
„verulegar ráðstafanir" sem
mundu taka til allt að eins af
hundraði innanlandsframleiðslu
til að auka eftirspurn og auka
hagvöxt þótt fyrri fréttir hermdu
að Vestur-Þjóðverjar mundu forð-
ast að tiltaka einhverja ákveðna
Framhald á bls. 29.
Fimm hinna sjö þjóðarleiðtoga sem sátu efnahagsráðstefnuna í Bonni Giulio Andreotti forsætisráðherra
Ítalíu. Takeo Fukuda forsætisráðherra Japans. Jimmy Carter Bandaríkjaforseti, Helmut Schmidt kanzlari
Vestur-Þýzkalands og Valery Giscard d'Estaing forseti Frakklands.
Baxuio. Filippseyjum 17. júlí. Reuter.
SKÁKMEISTARINN Viktor
Korchnoi skellihló í dag þegar
lúðrasveit lék
„Internasjónalinn“ í stað
sovézka þjóðsöngsins við setn-
ingu heimsmeistaraeinvigisins
í skák í Baguio á Filipseyjum.
Mistökin urðu til þess að
Korchnoi missti af tækifæri til
þess að snupra Rússa. Hann
hafði ætlað að setjast niður
þegar sovézki þjóðsöngurinn
væri leikinn til heiðurs heims-
meistaranum Anatoly Karpov.
Rétt áður en þetta gerðist
datt Korchnoi í lukkupottinn.
Dregið var um hvor ætti að
byrja með hvítu mennina í
einvíginu og Korchnoi dró hvítt.
Hann mun því hefja einvígið á
morgun og það er talið hafa
mikla sálræna þýðingu fyrir
hann. Gert er ráð fyrir því að
Korchnoi ætli sér að verða í
sókn í einvíginu frá byrjun og að
hann reyni að tryggja sér sem
fyrst sex vinninga og þar með
verðlaunin sem eru 350.000
dollarar.
Framhald á bls 28.
Korchnoi situr hlæjandi hjá
ritara sínum Petru Leeuweik
þegar „internasjónalinn" er
leikinn við setningu heims-
meistaraeinvígisins í Baguio á
Filippseyjum í stað sovézka
þjóðsöngsins. Karpov heims-
meistari. dr. Euwæ forseti
Alþjóðaskáksambandsins og
Ferdinand Marcos forseti Fil-
ippseyja standa meðan lagið er
leikið.