Morgunblaðið - 18.07.1978, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 1978
17
Þrjár efstu hryssurnar sex vetra og eldri. — Magni Kjartansson á Snældu lengst til
vinstri, Sigurður Gunnarsson á Sunnu og Sigurður Haraldsson á Rakel.
Fjööur frá Tungufelli fékk heiöursverðlaun fyrir afkvæmi. Birkir Þorkelsson situr hér
Fjöður og heldur á verölaunagripnum, Glettubikarnum. Við hlið hans er Þorkell
Þorkelsson á Sindra, pá Bjarni Þorkelsson á Fáfni, Gylfi Þorkelsson á Djölni og Hreinn
Þorkelsson á Stelpu.
stigatölu urðu einnig Blesa frá
Hlíð og Elding frá Akureyri. Ein
hryssa í þessum flokki fékk II.
verðlaun en það var Nös frá
Skáney, sem fékk 7.75 stig.
Enn grípur
Náttfari skeiðið
Þeir landsmótsgesta, sem einnig
höfðu verið á síðasta landsmóti,
fengu á ný að sjá stóðhestinn
Náttfara 776 frá Ytra-Dalsgerði
taka snarpa og glæsta skeiðspretti
en Náttfari vakti mikla athygli á
síðasta landsmóti fyrir góð tilþrif
á skeiði, þá aðeins fjögurra vetra
gamall. Að þessu sinni stóð
Gustur, sem Björn Baldursson
situr hér, sígraöi í 800 metra
stökki en Mósi, sem Ingimar
ísleifsson situr, veitti honum
haröa keppni.
Náttfari efstur í flokki stóðhesta
sex vetra og eldri með meðaleink-
unnina 8.54 en þess má geta að
hann fékk 10 fyrir skeið og
samtals 9.08 fyrir hæfileika. Eig-
andi Náttfara er Sigurbjörn Ei-
ríksson, Stóra-Hofi, Rangárvalla-
sýslu, en faðir Náttfara er Sörli
653 frá Sauðárkróki og móðir er
Elding frá Ytra-Dalsgerði. Annar
var Sörli 876 frá Stykkishólmi,
eign Jónasar Þorsteinssonar,
Ytra-Kóngsbakka, með einkunn-
ina 8,18 og þriðji varð Þáttur 722
frá Kirkjubæ, eign Sigurðar Har-
aldssonar, Kirkjubæ, með eink-
unnina 8,08. Alls voru sýndir 10
stóðhestar í þessum flokki og
fengu þeir allir fyrstu verðlaun
nema einn. Af stóðhestum fimm
vetra stóð efstur Gáski 920 frá
Hofstöðum, eign Kristfríðar
Björnsdóttur, Hofstöðum, Borgar-
firði. Gáski er undan Grána 445
frá Vilmundarstöðum og Freyju
frá Hofstöðum. Af fjögurra vetra
stóðhestunum varð efstur Hlynur
910 frá Hvanneyri, eign Sigur-
borgar Jónsdóttur, Báreksstöðum,
Borgarfirði en Hlynur er undan
Þætti 722 frá Kirkjubæ og Flugs-
vin frá Hvanneyri. Alls voru 13
stóðhestar sýndir í flokki fimm
vetra stóðhesta og 8 í flokki
fjögurra vetra stóðhesta.
Eyfirskur sigur
hjá hryssunum
Það var sannarlega eyfirskur
sigur í sýningunum á kynbóta-
hryssunum, því fyrstu hryssurnar
bæði í flokki hyssa sex vetra og
eldri og í flokki fimm vetra hryssa
Gæðingurinn Hlynur frá Akureyri sigraði bæði í flokki klárhesta með
tölti og í töltkeppninni. Knapi á honum er Eyjólfur ísólfsson.
voru úr Eyjafirði. Sú hryssa, sem
stóð efst af hryssum sex vetra og
eldri, var Snælda frá Árgerði, eign
Magna Kjartanssonar í Árgerði í
Eyjafirði með einkunnina 8,33 en
Snælda er undan Dreng frá
Litla-Garði og Litlu-Jörp frá
Árgerði og er þannig í báðar ættir
út af Svip 385 frá Akureyri. Önnur
í þessum flokki varð Sunna frá
Kirkjubæ, eign Guðmundar Gísla-
sonar, Torfastöðum, Árnessýslu,
og þriðja Rakel frá Kirkjubæ, eign
Sigurðar Haraldssonar, Kirkjubæ.
Af fimm vetra hryssunum stóð
efst Elding frá Höskuldsstöðum,
eign Sigurðar Snæbjörnssonar,
Höskuldsstöðum í Eyjafirði. Eld-
ing er undan Neista 587 frá
Skollagróf og Lögmanns-Gránu
frá Höskuldsstöðum.
Góður gæðingur
og áhugi og
elja bóndans
Besti alhliða gæðingur lands-
mótsins var dæmdur Skúmur,
Sigfinns Pálssonar, bónda í Stóru-
lág, með einkunnina 8,94. Var
Sigfinnur hylltur af viðstöddum
með lófaklappi, þegar Sigurður
Haraldsson frá Kirkjubæ, sem
kynnti úrslit keppninnar, benti á
að þessi úrslit sönnuðu að það
væru ekki einungis hreinir fag-
menn, sem lítt fengjust við annað
en þjálfa hross, sem leitt gætu
góðhross til verðlauna. Þarna færu
saman góður gæðingur og áhugi og
elja bóndans í Stórulág. Annar
varð Frami, Skúla Steinssonar,
Eyrarbakka með einkunnina 8,86
og þriðji Garpur Harðar G.
Albertssonar, Reykjavík sem Sig-
urbjörn Bárðarsonar sat, með
einkunnina 8,84.
Kom, sá og
sigraði
í klárhestum
Þegar kom að klárhestum með
tölti átti máltækið kom, sá og
sigraði, vel við því þar sigraði
hestur, sem með öllu var ókunnur
nema þá í sinni heimabyggð,
Eyjafirði. Það duldist engum, sem
sá er Hlyn frá Akureyri var riðið
um dómhringinn, að þarna var á
ferðinni einhver glæsilegasti gæð-
ingur, sem lengi hefur sést enda
bar dómur hans þess vott. Þessi
eyfirski gæðingur, sem fram til
þessa hefur mest verið notaður af
konu eigandans, Reynis Björgvins-
sonar, Bringu í Eyjafirði, var
dæmdur besti klárhestur mótsins
og einnig sigraði hann í töltkeppn-
inni á mótinu. Knapinn á Hlyn var
Eyjólfur Isólfsson. Annar í þess-
um flokki varð Brjánn, eign
Harðar G. Albertssonar Reykja-
vík, setinn af Sigurbirni Bárðar-
syni, og þriðji Náttfari, eign
Guðmundar Jónssonar, Höfn
Hornafirði og knapi Reynir Aðal-
steinsson.
Framhald á bls 28.
Albert Jónsson situr hér Náttfara frá Ytra-Dalsgerói, sem varð efstur
í flokki stóóhesta sex vetra og eldri. Skeiósprettir Náttfara vöktu
verðskuldaóa athygli mótsgesta.
Sveinn Guömundsson á Sauöárkróki veitir hér viðtöku Sleipnisbikarnum úr hendi landbúnaóarráðherra
Halldórs E. Sigurössonar. Milli peirra má sjá stóðhestinn Sörla og að baki má sjá frá vinstri Jónas
Þorsteinsson á Sörla frá Stykkishólmi, Jóhann Friðriksson á Náttfara, Trausta Þór Guðmundsson á Svip,
Sigurjón Gestsson á Drottningu frá Akureyri og Ragnar Hinriksson á Elísu.