Morgunblaðið - 18.07.1978, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 18.07.1978, Blaðsíða 36
Hrinan afetaðin— nýr umgangur hafinn Krafla: „Þessi hrina er afstaðin, land er byrjað að rísa á nýjan leik og næsti um- gangur hafinn,“ sagði Páll Einarsson, jarðeðlisfræð- ingur, þegar Mbl. náði tali af honum við Kröflu í gær. Kvaðst Páll því eiga von á að næstu hrinu væri að vænta eftir svo sem um fjóra mánuði. Að sögn Páls hafa þeir jarðvísindamenn kannað svæðið kringum Gjástykki töluvert að undanförnu, og má þar merkja mikið jarð- rask, einkanlega kringum sprunguna sjálfa en þar er einnig mikil hveravirkni um þessar mundir og gras- svörðurinn hreinlega soðinn á köflum. Þá sagði Páll að landið hefði nú gliðnað töluvert norðar en áður eða fyrir norðan Mófeil, enda hefði kvikuhlaupið nú allt leitað þangað norður eftir. Taldi Páll reyndar ekki útilokað að Gjástykki gæti enn tekið við meiru. w Isinn angrar loónu- skipin AÐEINS einn loðnubátur heíur tilkynnt loðnuafla enn sem komið er — Sæbjörgin er fékk 400 tonn og hélt með aflann til Siglufjarð- ar. Margir bátar munu vera komnir með slatta. og var mikið kastað í gærkvöld, svo að búast má við fleiri bátum með afla í dag. Loðnubátarnir komu á miðin að kvöldi föstudags og hafa verið að síðan. Isinn hefur gert mönnum á loðnumiðunurn gramt í geði, enda má segja að Vestfjarðamiðin séu ófær bátunum og þeir halda sig nú allir í grennd við Kolbeinsey. LANDSMOT IIESTAMANNA — Hestamenn héldu landsmót sitt í Skógarhólum um heigina og er talið að um 15 þúsund manns hafi sótt mótið, þegar flest var. Er það álit manna að sjaidan eða aldrei hafi verið saman komnir á einum stað jafnmörg úrvalshross. Nánar segir frá mótinu á bls. 16—17. Viðræður um vinstri stjórn hefjast væntanlega á morgun BENEDIKT Gröndal, formaður Alþýðuflokksins reit í gær for- manni Alþýðubandalagsins, Lúð- vík Jósepssyni, og formanni Framsóknarflokksins, Ólafi Jóhannessyni, bréf, þar sem hann bauð þessum tveimur flokkum til stjórnarmyndunarviðræðna þess- ara þriggja flokka. Bréfin voru stutt og þar var ekki farið inn á önnur efnisatriði. Strax að lokn- um þingflokksfundi Alþýðu- bandalagsins barst Benedikt svarbréf frá Lúðvík Jósepssyni, sem var jákvætt, en í gærkveldi hafði svarbréf ekki borizt frá Ólafi Jóhannessyni, en Benedikt Gröndal kvaðst á grundvelli fyrri yfirlýsinga framsóknarmanna gera ráð fyrir því að svar þeirra yrði jákvætt. Stefnt er að því að Steingrímiir Hermannsson, ritari Framsóknarflokksins: Skiptar skoðanir innan Fram- sóknarílokks um stjómaraðild „I‘AÐ MÁ segja, að það séu skiptar skoðanir innan Fram- sóknarflokksins um það, hvort hann eigi að vera í stjórnar- samstarfi," sagði Steingrímur Hermannsson, ritari Fram- sóknarflokksins í samtalí við Morgunblaðið í gær. „Allir flokksmenn vilja mjög einbeita sér að flokksstarfinu — og er þetta mjög svipað ástand og hjá Sjálfstæðisflokknum að þessu leyti. Menn vilja gcra þar stórt átak og skoða það niður í kjöiinn. Mönnum er ljóst að það er betra tóm til slíks að sumu leyti í stjórnarandstöðu. Hins vegar er það staðreynd, að FramsóknarfIokkur.inn hefur aldrei látið á sér standa í vinstri stjórn og hvað sem kaila má þessa stjórnarhug- mynd, þá ber hún slfkan keim. Komi viðunandi málefnasamn- ingur úr þessum stjórnarmynd- unarviðræðum, held ég að það sé almenn skoðun innan flokks- ins, að þá verði nánast að taka því. Hins vegar munum við einnig kunna ágætlega við okkur utan stjórnar,“ sagði Steingrímur. Steingrímur Hermánnsson sagði um fundinn með Alþýðu- flokknum í gærmorgun, að hann hafi verið ákaflega svipaður þeim fundi, sem framsóknar- menn hafi átt með Alþýðu- bandalaginu í fyrri viku. Al- þýðuflokksmennirnir hafi skýrt lauslega frá viðræðum sínum við Alþýðubandalagið og þar sem Alþýðubandalagið hafi hafnað nýsköpunarstjórn vildu þeir nú fara inn á þá leið að ræða um samstjórn þessara þriggja flokka. „Spurðu þeir, hvort við værum tilbúnir til slíkra viðræðna og svöruðum við á sama hátt og þegar rætt var við Alþýðubandalagið, að þar sem hlutleysistilboð okkar hefði ekki fengið hljómgrunn, værum við reiðubúnir til þess. Við lögðum áherzlu á, að málefna- samningur myndi að sjálfsögðu ráða okkar endanlegu afstöðu til slíks stjórnarsamstarfs. Þar lögðum við einnig áherzlu á að Framhald á bls. 29. fyrsti viðræðufundur flokkanna þriggja hef jist á morgun klukkan 10, en klukkán 17 í dag verður þingflokksfundur framsóknar- manna, þar sem m.a. verður kjörin viðræðunefnd flokksins. Kjörin hefur verið viðræðunefnd Alþýðuflokks og Alþýðubandalags. í viðræðunefnd Alþýðuflokksins sitja formaður flokksins, varafor- maður og ritari. Eru það þeir Benedikt Gröndal, Kjartan Jóhannsson og Karl Steinar Guðnason, vararitari, sem tekur sæti Björns Jónssonar í veikinda- forföllum hans. I viðræðunefnd Alþýðubandalagsins eiga sæti Lúðvík Jósepsson, Ragnar Arnalds og Svavar Gestsson, en varamenn Framhald á bls. 29. Alþýðuflokkur þakkar Sjálf- stæðisflokki BENEDIKT Gröndal, formaður Alþýðuflokksins hefur ritað Geir Hallgrímssyni, formanni Sjálf- stæðisflokksins bréf, þar sem hann þakkar Sjálfstæðisflokknum fyrir að taka jákvætt undir boð um viðræður til að kanna möguleika á stjórnarmyndun Alþýðuflokks, Al- þýðubandalags og Sjálfstæðis- flokks, en þar sem Alþýðubanda- lagið hefði hafnað slíkum viðræð- um, hafi ekki getað orðið af þeim.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.