Morgunblaðið - 18.07.1978, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 1978
Njarðvík:
Albert Sanders endur-
ráðinn bæjarstjóri
Á FUNDI bæjarstjórnarinnar í
Njarðvíkum í gær var tekin fyrir
ráðning bæjarstjóra, en í síðustu
kosningum missti Sjálfstæðis-
flokkurinn þar meirihluta sinn og
við héfur tekið meirihlutastjórn
Alþýðuflokks, Framsóknarflokks
og Alþýðubandalags. Var ákveðið
að auglýsa eftir bæjarstjóra og
bárust sex umsóknir, þar á meðal
umsókn frá Albert Sanders, sem
gegnt hefur bæjarstjórastarfinu í
Njarðvíkum undanfarið. Var á
fundinum samþykkt að endurráða
Albert.
Töluverð ölvun
í Skógarhólum
„VIÐ IIÖFUM þurft að hafa sjúkrahús í Reykjavík. Bílarnir
töluverð afskipti af ölvuðu fólki,
en kannski furðu lítið miðað við
þann mikla fjölda, sem sótt hefur
mótið. A mótssvæðinu hafa hins
vegar ekki orðið nein alvarleg
óhöpp,“ sagði Tómas Jónsson,
lögrögluvarðstjóri, sem hafði með
höndum stjórn löggæzlu á lands-
móti hestamanna í Skógarhólum
Um helgina.
eru mikið skemmdir.
Þá var ekið á tvo hesta skammt
frá mótssvæðinu, og þurfti að
aflífa annan, eins og áður hefur
komið fram.
Lögreglan þurfti að flytja
nokkra mótsgesti til Reykjavíkur
vegna ölvunar, og eitthvað var um
að ökumenn væru teknir vegna
gruns um ölvun við akstur.
Ólafur er sagður brosa, en flokksbræður hans Steingríxnur Hermannsson og Tómas
Árnason skellihlæja þar sem þeir setjast til viðræðna við æðstukratana Benedikt
Gröndal og Kjartan Jóhannsson. Það virðist allt í lukkunnar velstandi í ríkinu íslandi
Jarðefnarannsóknir hf. stofnaðar með þýzkri þátttöku:
Stefnt að útflutningi vikurs
Einnig að reisa steinullaryerksmiðju og vinnslu
stuðlabergs ef rannsóknir gefa góða raun
Aðfaranótt sunnudags varð all-
harður árekstur milli tveggja
bifreiða á Gjábakkavegi. Varð að
flytja konu úr öðrum bílnum í
Rekkarnir hjá skattstofunni í
Reykjavfk. fullir af skatt-
skýrslum borgaranna.
Fyrstu
skatt-
skrárnar
1 dag
GERT ER ráð fyrir að í dag
verði lagðar fram skattskrár í
Vestfjarðafjórðungi og Norð-
urlandi eystra. Stutt er í
framlagningu skattskrár á
ýmsum öðrum stöðum, og t.d.
er búizt við að skattskráin í
Vestmannaeyjum verði lögð
fram á morgun, miðvikudag,
og á Austf jörðum, Suðurlandi,
Reykjaneskjördæmi og
Reykjavík eru skattskrárnar
nú í tölvuvinnslu. Hins vegar
er lítið eitt lengra í skrárnar
á Vesturlandi og Norðurlandi
vestra, t.d. má gera ráð fyrir
að skattskráin í síðarnefnda
landshlutanum verði ekki lögð
fram fyrr en eftir mánaðamót-
in._________________
Humaraflinn
mejri en
í fyrra
Höfn, Hornafirði — 17. júlí
FRÁ ÞVÍ humarvertíð hófst og til
15. júlí er humarafli Hornafjarð-
arbáta orðinn 137 tonn. Er það um
10 tonnum meira en á allri
vertíðinni í fyrra.
Á sama tíma er bolfiskaflinn
orðinn 1180 tonn í hin ýmsu
veiðarfæri. Handfærabátar hafa
aflað vel, mest stórþorsk. Einn
bátur, Þórir, er nú í söluferð til
Englands með 50 tonn og er það
togfisksafli. _ Gunnar.
NÚ HEFUR verið gengið form-
lega frá stofnun hlutafélagsins
Jarðefnarannsóknir hf., sem
byggt er á samvinnu íslenzkra og
þýzkra aðila og er tilgangur þess
að vinna að útflutningi á vikri,
steinullarframleiðslu og vinnslu
og útflutningi stuðlabergs. Stefnt
er að því að ljúka rannsóknar
verkefnum þeim sem þetta varðar
á næstu 12 mánuðum.
Hlutafélagið er stofnað að for-
göngu Jarðefnaiðnaðar hf., Holta-
hreppi, sem er félagsskapur sveit-
arfélaga á Suðurlandi og all-
margra áhugamanna en aðild að
því eiga jafnframt fjögur v-þýzk
fyrirtæki — DKG Denzinger
Ingenierugeselleschaft mbH, FGU
KKRONBERG Unternnehmensbe-
ratung GmbH, Basalt Gerela
GmbH og Gutehoffnungshútte
Sterkrade AG. Heimili og varnar-
þing Jarðefnarannsókna hf. verður
í Hvammshreppi í V-Skaftafells-
sýslu. Félagið er stofnað sam-
kvæmt íslenzkum lögum og er háð
þeim að öllu leyti.
í fréttatilkynningu frá félaginu
segir, að tilgangur félagsins sé að
stunda rannsóknir og kannanir á
möguleikum til námuvinnslu, úr-
vinnslu, framleiðslu, flutninga og
sölu á sunnlenzkum jarðefnum og
framleiðsluvörum úr þeim. Rann-
sóknir þær, sem í undirbúningi eru
á vegum félagsins, beinast einkum
að vinnslu vikurs á Mýrdalssandi
með útflutning fyrir augum, nýt-
ingu á Hekluvikri, möguleikum á
steinullarframleiðslu og vinnslu
stuðlabergs.
Ekki er gert ráð fyrir að
Jarðefnarannsóknir hf. muni
sjálft annast vinnslu jarðefna eða
framleiðslu úr þeim en hluthafar
hins vegar muni hafa rétt til þess
að öðru jöfnu að gerast aðilar að
framleiðslufélögunum, er taka
kunna við niðurstöðum félagsins í
samræmi við íslenzk lög á hverjum
tíma. Félagið mun fá verulegan
styrk frá Þýzka sambandslýðveld-
inu til rannsóknarstarfsemi sinnar
og sömuleiðis samþykkti ísl. ríkis-
stjórnin í vetur sem leið að veita
félaginu fjárstuðning. Hlutafé
félagsins er 88,5 millj. króna og
skiptist þannig að Jarðefnaiðnað-
ur hf mun eiga 52% en þýzku
fyrirtækin 48% eða 12% hvert
fyrirtæki.
Þýzku fyrirtækin eru sérhæfð
hvert á sínu sviði, og í greinargerð
um samstarf hinna þýzku og
íslenzku aðila kemur fram að
sameiginlegt átak þeirra og ís-
lenzkra vísinda og tæknimanna
eigi eftir að gefa marktæka
vísbendingu um framleiðslumögu-
leika og útflutningstækifæri fyrir
íslenzk jarðefni.
Þegar hafa verið gerðar frum-
rannsóknir á gæðum jarðefna víðs
vegar á Suðurlandi og með tilliti
til þeirra hefur verið ákveðið að
vinna á fyrsta stigi að rannsóknar-
verkefnum og athugunum í fernu
lagi, að því er segir í greinargerð-
inni:
1. Útflutningi vikurs af Mýr-
dalssandi í miklum mæli. Verkefn-
ið nær til hráefnisrannsókna,
flutnings- og dreifingarathugana
og markaðskönnunar.
2. Rannsóknum á Hekluvikri,
framleiðslu vikurvara fyrir inn-
lendan markað og útflutning og til
annarrar hagnýtingar, sem hag-
kvæm reynist. Kannaðir verða
heppilegir framleiðslustaðir,
SKÁTAFÉLAGIÐ Landnemar
heldur sitt tuttugasta félagsmót
að Úlfljótsvatni um næstu helgi og
er þetta afmælismót félagsins,
segir í frétt frá Mótstjórn.
Ennfremur segir, að til mót-
haldsins verði vandað að mætti og
verður þar fjölbreytt dagskrá.
Aðaláherzla verður lögð á „skáta-
flokkinn" sem starfsheild, og
byggjast dagskrárliðir upp á því
flutningsmöguleikar og fram-
leiðslutækni, hver sé æskilegasta
framleiðslan og markaðir.
3. Steinullarframleiðslu. Þar
verður kannað, hver sé hagkvæm-
ust verksmiðjustærð, hvar verk-
smiðja gæti risið, rannsökuð
verður rafbræðslutækni, gerð
áætlun um flutningskostnað og
markaðir kannaðir.
4. Vinnslu og útflutning stuðla-
bergs. Leitað verður að hentugum
námum, kannaðir markaðir og
flutningsmöguleikar.
Stefnt er að því að ljúka þessum
rannsóknum á næstu 12 mánuðum.
I fyrstunni mun athyglin bein-
ast hvað mest að Mýrdalssandi,
sem framleiðslu- og útflutnings-
stað. Sambandslýðveldið
Þýskaland notar langmest af vikri
allra landa til bygginga. Er
notkunin nú talin vera um 3—4
milljónir lesta á ári. Æ erfiðara er
að ná í góðan vikur til bygginga í
Þýskalandi sjálfu og ætti því að
vera unnt að selja þangað mikið af
vikri.
Sá er þó hængur á, að flutnings-
Framhald á bls 28.
viðfangsefni. Að venju verða
varðeldar bæði kvöldin.
Til mótsins er boðið öllum
skátum á skátaaldri, en að auki
verða fjölskyldubúðir til staðar,
þar sem foreldrar og eldri skátar
geta dvalist.
Fararstjóri verður frá hverju
skátafélagi, og eru þeir skátar sem
ætla á mótið, en hafa ekki þegar
tilkynnt þátttöku sína, beðnir um
að snúa sér til þeirra hið fyrsta.
Mæðralaun
fremur en
dagheimili
ATHYGLI hefur vakið stól-
ræða sr. Þóris Stephensens,
dómkirkjuprests sl. sunnudag,
sem útvarpað var, en þar bar
prestur fram þá ósk- til nýkjör-
inna alþingismanna að þeir
breyttu stefnu í
dagvistarmálum
í ræðu sinni varpaði sr. Þórir
fram þeirri hugmynd sinni að í
stað þess að fjárframlögum væri
varið til að byggja dagvistunar-
stofnanir fyrir börn, yrði þeim
varið til að greiða mæðrum
ungbarna mæðralaun til að þær
gætu verið heima og gegnt
uppeldishlutverki sínu, svo að
stofnanir væru ekki látnar
annast uppeldi barnanna.
I samtali viö Morgunblaðið í
gær kvaðst sr. Þórir fyrst og
fremst hafa átt við dagheimilin,
þar sem börnin væru allan
daginn, enda hafi hann í ræðu
sinni vitnað í nýjustu rannsókn-
ir frægra barnasálfræðinga um
skaðsemi þessa. Hins vegar
kvaðst sr. Þórir vera mjög
hlynntur leikskólum, þar sem
börnin væru aðeins hluta úr
deginum.
Landnemamót
um næstu helgi