Morgunblaðið - 18.07.1978, Side 3
Mjög tvísýnt
um úrslit í
heimsmeistara-
einvígmu í skák
Sjá svör vegfarenda á hls. 5
□----------------------------------------------□
ÞAÐ hefur eflaust ekki farið fram hjá mörsum að
heimsmeistaraeinvígið í skák er nú að hefjast á
Filippseyjum þar sem þeir keppa um heimsmeistaratit-
ilinn í skák Anatoly Karpov, 27 ára gamall, or Viktor
Korchnoi, 46 ára. Morsunblaðinu þótti fróðlegt að
kanna álit lærðra á því hver færi með sigur af hólmi
í þessari keppni og fara niðurstöður þeirrar könnunar
hér á eftir, en einnijí var leitað álits vegfarenda í
miðbænumi
segja sem minnst um þetta.
Annars held ég að það verði
mjög tvísýnt um úrslit."
„Frekar
jofn
viðureign
Friðrik Ólafsson>
„Að mínu mati verður þetta
frekar jöfn viðureign og um er
að ræða skákmenn sem báðir
hafa hæfileika á svipuðu stigi.
Þó held ég að Karpov hafi betri
líkur til sigurs vegna aldurs-
munarins, því hann hefur ef-
laust betra úthald. Korchnoi á
það líka til að komast í tíma-
hrak og getur það reynst honum
hættulegt í keppni sem þessari.“
„Vil sem
minnst um
þetta segja
Guðlaug Þorsteinsdóttiri
„Ég hef nú ekkert hugsað um
þetta og hef því ekki myndað
mér neina skoðun á því hver
vinnur. Ætli sé þá ekki best að
„Taugakerfi
keppenda
skiptir
miklu máli”
Guðmundur Arnlaugssoni
„Það er ákaflega erfitt að spá
nokkru um þetta, því þetta
virðist allt vera svo mikið
taugastríð. Keppnin virðist líka
fara að miklu Ieyti fram utan
við skákborðið og taugakerfi
keppendanna skiptir ákaflega
miklu máli.
Annars hallast ég nú frekar
að því að Karpov vinni þessa
keppni, því hann hefur verið
jafnari og virðist alltaf vera að
bæta við sig. Hann er líka yngri
og ætti að hafa meira úthald.
Samt virðist hann nú ekki vera
neinn bógur, því hann er frekar
smávaxinn."
„Flestir
hallast að
því að
Karpov sé
sterkari”
Ingvar Ásmundssoni
„Það er ákaflega erfitt að
segja nokkuð til um það hvor
sigrar í kepnninni. Samt held ég
að allar líkur séu á því að þetta
verði venjuleg keppni þannig að
Karpov vinni og held ég að
flestir skákmenn hallist að því
að Karpov sé sterkari. Karpov
hefur líka fleiri alþjóðleg skák-
stig (ELO) og á því að vera betri.
Líkur eru á því að sá betri vinni
ef keppnin dregst eitthvað á
langinn eins og líklegt er.
Allt bendir einnig til þess að
pólitík og taflmennSka utan við
skákborðið verði e.t.v. ennþá
hatrammari en verið hefur áður
og held ég að það geti haft
einhver áhrif Korchnoi í vil.“
„Heppni ef
Korchnoi
tekst að
vinna
yy
Gunnar Gunnarssom
„Ég spái Karpov sigri — hann
er yngri maður. Þó er aðal-
ástæðan fyrir því að ég spái
Karpov sigri sú, að hann hefur
staðið sig svo geysilega vel
undanfarið og unnið hvert mótið
á fætur öðru. Ég held að það
sé þá bara heppni ef Korchnoi
tekst að vinna hann.
Ég hugsa líka að það komi
Karpov mjög til góða sú mikla
aðstoð sem hann fær frá
Sovétríkjunum. Það má raun-
verulega segja að hann sé
beinlínis mataður á öllum upp-
lýsingum í skákheiminum og um
það sjá flestir bestu skáksér-
fræðingar heims."
„Báðir
frábærir
skákmenn”
Helgi Ólafssoni
„Ég held að það sé ekkert
vafamál að Karpov vinni, ein-
faldlega vegná þess að hann er
sterkari og heilsteyptari skák-
maður. Annars eru þetta báðir
frábærir skákmenn.
Það hefur líka eitthvað að
segja að Karpov er yngri og ætti
því að hafa meira úthald ef
keppnin dregst eitthvað á lang-
inn. Aldursmunurinn kemur því
Karpov til góða.“
„Spái
Karpov
sign
„Ætli ég verði ekki að spá
Karpov sigri," sagði Margeir
Pétursson, sem skrifar um skák
í Mbl. en hann tekur nú þátt í
skákmóti í New York.
„Karpov er yngri og ætti því
að hafa úthaldið með sér“, sagði
Margeir. „Og hann hefur náð
frábærum árangri á mótum að
undanförnu.
Hins vegar hefur Korchnoi
einnig sýnt miklar framfarir,
þannig að einvígið verður mjög
spennandi og jafnt og sigur
Karpovs verður naumur."
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 1978
L