Morgunblaðið - 18.07.1978, Síða 10

Morgunblaðið - 18.07.1978, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. JULl 1978 Pylsunum voru gerö góÖ skil ekki borðað sinnep ” Staldrað við í Y atnaskógi: hafa alltaf unniö, ÍBK eru beztir," svarar hinn og þaö er ekki laust viö hann sé montinn af eigin rökvísi. „Úúúúúú á Keflavík,“ heyrist í Ara, „Valsmenn vinna þá alltaf, Vals- menn eru beztir,“ og þar með er þaö mál útrætt. Kristján Búason forstöðumaður sumarbúöanna spyr nú strákana í borösalnum hvort þeir viti hver reki sumarbúöirnar í Vatnaskógi. „K.F.U.M.," heyrist margraddaö úr salnum. „Alveg rétt, en vitið þiö hver stofnaöi K.F.U.M.?“ „Séra Friðrik Friöriksson,“ svara strákarnir. „En K.F.U.M. var ekki fyrst stofnað á íslandi, heldur hvar?“ spyr Kristján. „Danmörku, Danmörku," svara nokkrir. „Nei, ekki alveg rétt," svarar Kristján. „Svíþjóö, Noregi" kalla aörir og alltaf hristir Kristján höfuöið. „Englandi," hljómar drengsrödd í salnum. „Það er rétt,“ segir Kristján, „og nú ætla ég aö segja ykkur svolítiö af K.F.U.M. í Eng- landi um miöja síöustu öld,“ heldur Kristján áfram og byrjar aö tala um George Williams. Boröhaldinu er aö Ijúka og Kristján biður drengina aö klappa Sigvalda í eldhúsinu lof í lófa fyrir vel unnin störf. „Klappið líka fyrir Stínu," segir Kristján og Kristín Guömundsdóttir, matráöskona, kemur fram úr eldhúsinu til aö taka á móti þökkum strákanna. „Þaö vantar sjálfboöaliöa til aö þvo upp," segir Kristján, „þeir sem vilja hjálpa til rétti upp hönd.“ Nokkrar hendur sjást á lofti og Kristján biöur eigendur þeirra aö verða eftir, þegar hinir fara. „Þeir sem vilja styrkja skálasjóðinn eru beönir að skilja allar tómar gosdrykkjaflöskur eftir,“ heldur Kristján áfram, en krakkarnir byrja aö tínast út. En þaö er ekki aöeins boröaö í Vatnaskógi. Dagurinn líður þannig, aö klukkan 8.30 eru drengirnir vaktir og hefst þá morgunþvottur. Klukkan níu er fánahylling og því næst er setzt að morgunverðar- boröinu. Er morgunverði lýkur er tekiö til við biblíulestur, en tímabil- inu frá klukkan tíu fram aö hádegi er aö mestu variö í leiki og annaö í þeim dúr. Knattspyrnuvöllur er í Vatnaskógi svo og íþróttahús og eru þar stundaðar ýmsar íþróttir. Þá er farið í bátsferöir og göngu- feröir og einn daginn var farið í ratleik um Vatnaskóg. Aö loknum hádegisverði tekur viö frjáls tími, en kiukkan 19.00 er fánahylling og á eftir henni kvöld- veröur. Þá tekur kvöldvakan viö, Framhald á bls. 37. Leikþáttur fluttur í gamla skólanum Fáninn hylltur i Vatnaskógi Allt frá árinu 1920 hefur K.F.U.M. rekiö sumarbúöir í Vatnaskógi. Fyrat í staö var hafzt við í tjöldum, en er fram liðu stundir var reistur skáli í Vatnaskógi, og síðan hafa húsin risið Þar hvert á fœtur öðru. Nú eru Þarna starfræktar sumarbúöír frá maí-lokum fram yfir miðjan ágúst og eru um 90 drengir í hverjum dvalarflokkí. Það var lokadagur einna sumarbúðanna er Mbl. brá sér norður í Vatnaskóg peirra erinda að kynna sér lítillega Þá starfsemi, sem par fer fram. Það stóð yfir fánahylling í Vatnaskógi er Mbl. renndi þar í hlaö. Meö hendurnar í fánakveöju sungu drengirnir „Fáni vor sem friðarmerki, fara skaltu á undan nú,“ meðan fáninn var dreginn hægt og tígulega niöur stöngina. Fánahyllingu þessa tók séra Friö- rik Friöriksson, stofnandi K.F.U.M., upp á sínum tíma og er hyllingin rómönsk. Svipuö kveöja var tekin upp í Þýzkalandi og ítalíu á tímum Hitlers og Mussolinis, en fánahylling þessi þekkist nú hvergi annars staðar hvorki hérlendis né erlendis. Líklega hefur hún þótt of lík kveöjum nazistanna og fasist- anna til aö hún næði verulegri útbreiöslu, en allt um þaö viröuleg er hún og er þá ekki tilganginum náð? Fánahyllingin er á enda og drengir þramma í einfaldri röð inn í matsalinn. í dag er síöasti dagur þeirra í sumarbúöunum og í tilefni af því eiga þeir aö fá pylsur í kvöldmat. Drengirnir skrafa sín á Kristján Búason, for- stööumaöur sumarbúö- milli um hvaö margar pylsur þeir ætla aö boröa og af oröum þeirra má ráöa aö nú eigi aö gera matnum góö skil. Áöur en tekiö er til við pylsurnar er farið með borðbæn og Kristján Búason, forstöðumaður sumarbúöanna í Vatnaskógi, hringir bjöllu einni til merkis um aö hann vilji fá algjört hljóð. Því næst er fariö meö bænina, en aö henni iokinni ganga foringjar um meö föt af heitum pylsum og bjóöa drengjunum. Flestir telja sig geta torgaö tveimur pylsum en einstaka drengur tekur aöeins eina. Síöan er aö ná í sinnepiö og tómatsósuna og brauðið og þá er pylsan tilbúin til átu. „Réttu mér djúsiö, sinnepiö er svo sterkt," segir einn drengjanna viö annan. Sá hlær viö og réttir honum könnu meö djúsi í, en sá þriöji kallar yfir boröiö: „Hann er aumingi, hann getur ekki boröaö sinnep." Háværar umræöur um sinnepið og aumingjaskap fylgja i kjölfariö en umræðurnar hætta, er foringjarnir bjóöa strákunum fleiri pylsur. „Ari, þú vilt pylsu ef ég þekki þig rétt,“ segir einn foringj- anna viö búlduleitan strák. En Ari hristir aðeins höfuöiö og foringinn hverfur á braut, gáttaöur á lystar- leysi Ara. Áfram heldur máltíðin og strákarnir kýta hver viö annan um allt milli himins og jaröar. „Vogarn- ir eru bezta land í heimi,“ segir strákur úr Vogunum. „Já, en Keflavíkingar vinna þá alltaf í fótbolta," segir ungur Keflavíking- ur og þykist aldeilis hafa skotiö hinn í kaf. „Keflavík og Vogarnir hafa aldrei keppt í fótbolta,“ segir sá úr Vogunum, steinhissa á fáfræöi Keflvíkingsins. „Já, og þaö er þess vegna sem Keflvíkingar anna. ■ „Hann er aumingi hann getur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.