Morgunblaðið - 18.07.1978, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 1978
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. JULI 1978
27
Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjórí Haraldur Sveinsson.
Ritstjórar Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson.
Fréttastjóri Björn Jóhannsson.
Auglýsíngastjóri Baldvin Jónsson
Ritstjórn og afgreiðsla Aðalstræti 6, sími 10100.
Auglýsingar Aöalstræti 6, sími 22480.
Áskriftargjald 2000.00 kr. ó mánuói innanlands.
í lausasölu 100 kr. eintakiö.
Alþýdubanda-
lagið í f orystu
í landsmálum?
Astæða er til að vekja athygli á því, í sambandi við þær viðræður
um m.vndun vinstri stjórnar, sem nú eru að hefjast, að
forsendurnar fyrir myndun slíkrar stjórnar nú eru allt aðrar en áður
hafa verið. Þegar vinstri stjórnir voru rjjyndaðar 1956—58 og 1971—74
var Framsóknarflokkurinn öfluf<astur þeirra flokka, sem að þeim
ríkisstjórnum stóðu. Framsóknarflokkurinn var óumdeilanlegur
forystuflokkur á þeim tíma, næststærsti stjórnmálaflokkur þjóðarinnar
og enginn þurfti að draga í efa, að Framsóknarflokkurinn réði ferðinnii
Nú þegar viðræður hefjást enn um myndun vinstri stjórnar eru
aðstæður allt aðrar. Þegar að samningaborði er gengið, er
Framsóknarflokkurinn minnstur þeirra flokka, sem þátt taka í
viðræðunum, bæði minnsti þingflokkurinn og sá flokkur, sem minnst
fylgi hefur meðai þjóðarinnar. Alþýðubandalag og Alþýðuflokkur eru
að vísu jafn stórir með jafnmarga þingménn og Alþýðubandalagið örlítið
meira fylgi meðal kjósenda, en fram hjá því verður ekki horft, að
Alþýðubandalagið byggir á traustari grunni en Alþýðuflokkurinn.
Sveiflurnar í fylgi Alþýðuflokksins í kosningum á þessum áratug hafa
verið mun meiri en sveiflur í fylgi Alþýðubandalagsins og Ijóst er, að
það flokkskerfi, sem stendur að baki þingflokkí Alþýðubandalagsins er
mun 'sterkara en það sem Alþýðuflokkur byggir á og þarf ekki annað
en benda á stöðu málgagna þessara tveggja flokka því til staðfestingar.
Þótt Alþýðuflokkur og Alþýðubandalag séu jafnstórir flokkar verður
samt að líta svo á, að innviðir Alþýðubandalagsins séu mun sterkari
en innviðir Alþýðuflokksins. Það þýðir í raun, að takist samningar um
myndun nýrrar vinstri stjórnar er þar um að ræða vinstri stjórn sem
ekki lýtur forystu Framsóknarflokksins, ekki heldur Alþýðuflokksins,
heldur Alþýðubandalagsins. Þá væri komin upp sú staða í íslenzkum
þjóðmálum, að Alþýðubandalagið væri í forystu bæði í ríkisstjórn og
í borgarstjórn Re.vkjavíkur. Frá sjónarmiði borgaralega sinnaðs fólks
væri hér um mjög alvarlega þróun að ræða, sem hlyti að kalla á
margvísleg viðbrögð.
Engin trygging
Margir virðast haldnir þeim misskilningi, að þátttaka Alþýðubanda-
lagsins í ríkisstjórn sé nauðsynleg til þess að tryggja samstarf
verkalýðshreyfingarinnar við ríkisstjórn og Alþingi. Reynslan frá
tveimur vinstri stjórnum sýnir, að þátttaka Alþýðubandalagsins í
ríkisstjórn er nákvæmlega engin trygging fyrir því, að verkalýðssamtök-
in eigi eðlilegt samstarf við þá ríkisstjórn sem situr. Vinstri stjórnin
fyrri hrökklaðist frá völdum í árslok 1958 vegna þess, aö hún náði ekki
samkomulagi við Alþýðusamband Islands um stefnuna í efnahags- og
kjaramálum, og átti þó þáverandi forseti Alþýðusambands íslands sæti
í þeirri ríkisstjórn. Vinstri stjórnin fyrri fór frá völdum með þeirri
yfirlýsingu forsætisráðherra hennar, að stjórnarflokkarnir hefðu engin
úrræði til þess að leysa efnahagsvanda þjóðarinnar.
Vinstri stjórnin síðari missti tökin m.a. vegna þess, að í febrúar 1974
voru gerðir fjarstæðukenndir kjarasamningar, sem voru langt umfram
greiðslugetu þjóðarbúsins. Þessir samningar voru gerðir, þótt þrír
ráðherrar sætu yfir samningamönnum verkalýðsfélaganna, og þótt
forseti Alþýðusambands Islands væri einn af ráðherrum í ríkisstjórn-
inni. Þremur mánuðum eftir að þessir samningar voru gerðir setti
vinstri stjórnin síðari bráðabirgðalög, sem tóku vísitöluna úr sambandi.
Þessi tvö dæmi frá fyrri vinstri stjórnum sýna, að þátttaka
Alþýðubandalagsins í ríkisstjórn er engin trygging fyrir því að
verkalýðssamtökin eigi eðlilegt samstarf við ríkisstjórnina. í báðum
þessum ríkisstjórnum hafa forsetar ASÍ átt sæti og það'dugði heldur
ekki. Þar við bætist nú, að þingflokkur Alþýðubandalagsins, sem
skipaður er 14 þingmönnum, er að yfirgnæfandi meirihluta í höndum
menntamannaklíku flokksins. Þar er nú aðeins einn verkalýðsmaður,
Eðvarð Sigurðsson. Vitað er, að nú þegar eru verkalýðsforingjar
Alþýðubandalagsins mjög óánægðir með þá stefnu, sem þessi
þingflokkur hefur tekið í stjórnarmyndunarviðræðum. Þegar fengin
reynsla óg aðstæður innan Alþýðubandalagsins nú eru hafðar í huga
verður ljóst, að þátttaka Alþýðubandalagsins í ríkisstjórn er engin
trygging fyrir því, að verkalýðssamtökin taki raunsærri afstöðu til
kjaramála en þau hafa gert á undanförnum árum.
Ruddaleg framkoma
Ruddaleg viðbrögð Alþýðubandaiagsins við tilmælum Benedikts
Gröndals formanns Alþýðuflokksins, um þátttöku í viðræðum um
myndun svonefndrar nýsköpunarstjórnar hafa vakið þjóðarathygli
og þá ekki síður áframhaldandi viðbrögð Alþýðubandalagsins við óskum
formanns Alþýðuflokksins um skýringará þessari afstöðu Alþýðubanda-
lagsins. Þessi ruddalegu viðbrögð Alþýðubandalagsins virðast miða að
því að auðmýkja Alþýðuflokkinn og tryggja að tilraun hans til
stjórnarmyndunar mistakist. En þau eru líka til marks um hversu
hræddir Alþýðubandalagsmenn eru við að taka þátt í ríkisstjórn. Sú
hugsun hlýtur að leita á kjósendur Alþýðubandalagsins hvaða tilgangi
það þjóni að kjósa flokk, sem ekki þorir að taka á sig þá ábyrgð, sem
af kjörfylgi hans leiðir.
Nýsköpunarst j órnin
„Nýsköpunarstjórn, „viðreisnar-
stjórn", „vinstri stjórn“ eru
hugtök sem nú er haldið fram
í sambandi við stjórnarmynd- i
unarviðræður flokkanna. Ekki
eru þetta þó ný hugtök sem |
menn eru að finna upp heldur
er um að ræða heiti sem fyrri
ríkisstjórnir hafa fengið og er |
tilvísun til þeirra nú byggð á
samsetningunni einni saman, j
þ.e. „nýsköpunarstjórn" vísar
til samstjórnar Sjálfstæðis-
flokks, Alþýðuflokks og Alþýðu-
bandalags. Slík stjórh var
annað ráðuneyti Ólafs Thors,
sem tók við af utanþingsstjórn
21. október 1944 og stóð til 10.
október 1946 að Olafur baðst
lausnar, en ráðherrar hennar
gegndu embættum áfram þar
til ný stjórn tók við 4. febrúar
1947.
U tanþingsst jórn
og tólf manna
nefnd flokkanna
Eftir aö stjórnmálaflokkarnir
höfðu árangurslaust reynt að
mynda ríkisstjórn eftir haust-
kosningarnar 1942 skipaði
Sveinn Björnsson ríkisstjóri ut-
anþingsstjórn á ríkisráðsfundi
16. desember 1942. Þetta er eina
utanþingsstjórnin sem setið hef-
ur á Islandi og það kom í hennar
hlút að hafa með höndum allar
framkvæmdir í sambandi við
uppsögn sambandslaganna við
Danmörku og stofnun lýðveldis-
ins 17. júní 1944. Töluvert var
reynt til þess að mynda þingræð-
isstjórn, ekki sízt rétt fyrir
stofnun lýðveldisins, en án
árangurs.
Eftir lýðveldisstofnun þótti mörg-
um bæði innan þings sem utan að
nú mætti ekki lengur við svo búið
standa og seint í júlímánuði var
enn hafizt handa við að athuga
möguleikana á ríkisstjórn sem
þingflokkarnir fjórir stæðu allir
að. Kusu flokkarnir þriggja
manna nefndir í málið og gengu
þessir menn undir nafninu Tólf
manna nefndin. Dýrtíðarmálin
voru efst á blaði þeirra vanda-
mála sem við var að glíma.
Umræður Tólf manna nefndar-
innar stóðu sem hæst þegar
Alþingi kom saman í byrjun
september og fékk til meðferðar
frumvarp utanþingsstjórnarinn-
ar um dýrtíðarmálin. Tóku al-
þingismenn því svo þunglega, að
í útvarpsumræðum um þau 11.
september, sagði dr. Björn Þórð-
arson forsætisráðherra, m.a. að
stjórnin hefði ákveðið að leggja
fyrir forsetann lausnarbeiðni
' sína ef þingið eða meirihluti þess
hefði ekki fyrir 15. þess mánaðar
bent á nýja stjórn eða lýst yfir
því eða samþykkt að gera þær
ráðstafanir í dýrtíðarmálum,
. sem stjórnin teldi „að við megi
hlíta“. Alþingi gerði hvorugt og
16. september lagði ’dr. Björn
fram lausnarbeiðni fyrir sig og
ráðuneyti sitt.
Forseti Islands ræddi samdægurs
við Gísla Sveinsson forseta
sameinaðs Alþingis um viðhorfin
sem upp voru komin og síðan við
þá Ólaf Thors formann Sjálf-
stæðisflokksins, Eystein Jónsson
formann þingflokks Framsókn-
arslokksins, Einar Olgeirsson
formann þingflokks Sósíalista-
flokksins og Harald Guðmunds-
son formann þingflokks Alþýðu-
flokksins. Að loknum viðræðun-
um lýstu talsmenn flokkanna því
yfir að þingflokkarnir myndu
halda áfram tilraunum sínum til
stjórnarmyndunar.
Sjálfstæðisflokkurinn skrifar svo
hinum bréf 14. september með
ákveðnum tillögum um málefna-
legan samstarfsgrundvöll og
fundarhöld í Tólf manna nefnd-
inni héldu áfram. A fundi 2.
október tilkynnti Eysteinn Jóns-
„Þessi vinsœlasta og
gifturíkasta stjórn
sem ísland hefur átt”
(Einar OÍKeirsson)
son að Framsóknarflokkurinn
teldi þýðingarlaust að halda
viðræðunum áfram þar sem
sýnilegt væri að Sjálfstæðis-
flokkur og Sósíalistaflokkur ætl-
uðu sér að ganga til stjórnar-
myndunar án ákveðinnar fjár-
málastefnu eða stefnu í atvinnu-
málum.
Ólafur myndar
nýsköpunar-
stjórnina
Með brotthvarfi Framsóknar-
flokksins var þjóðstjórnarmögu-
leikinn úr sögunni og ákvað
forseti Islands að fela Ólafi
Thors að gera tilraun til stjórn-
armyndunar. Ólafur snéri sér
fyrst til Framsóknarflokksins,
sem geröi tillögu um það að
flokkarnir stæðu saman um
ríkisstjórn undir forsæti dr.
Björns Þórðarsonar. Sjálfstæðis-
flokkurinn hafnaði þessu og 4.
október snéri Ólafur Thors sér
til Alþýðuflokks og Sósíalista-
flokks og lagði fyrir þá drög að
málefnasamningi, sem var i
meginatriðum sá sami og lagður
hafði verið til grundvallar í
þjóðstjórnarviðræðunum.
14. október tókst að koma á
málefnasamningi milli Sjálf-
stæðisflokks, Alþýðuflokks og
Sósíalistaflokks með þeim höf-
uðmarkmiðum að tryggja sjálf-
stæði og öryggi íslands út á við
og hefja stórvirka núsköpun í
atvinnulífi þjóðarinnar. Af
hálfu Alþýðuflokksins voru sett
skilyrði um launakjör, al-
mannatryggingar o.fl. sem fall-
izt var á en engin skilyrði voru
sett af hálfu Sósíalístaflokks-
ins. Verkaskipting innan ráðu-
neytis var svo rædd og 21.
október var stjórnin mynduð.
í ritinu Stjórnarráð Islands
1904—1964, sem stuðzt er við
hér, segir höfundur Agnar Kl.
Jónsson: „Það er væntanlega
engum gert rangt til, þótt því sé
haldið fram, að það sé engum
einum manni jafnmikið að þakka
og formanni Sjálfstæðisflokks-
ins, Ólafi Thors, að það tókst,
Ólafur Thors
þrátt fyrir mjög mikla erfiðleika
að mynda þingræðisstjórn
flokka með jafn ólíkum sjónar-
miðum og stefnum er hér var um
að ræða, og það var samkvæmt
tillögu hans, að hver hinna
þriggja flokka án tillits til
þingfylgis skyldi hafa tvo menn
í stjórninni. Um það sagði
Ólafur Thors að það sem fyr.ir
sér vekti, væri að slá því föstu
að formi og efni, að hér störfuðu
þrír aðilar, jafnir að rétti,
skyldum og ábyrgð. Urðu ráð-
herrarnir því alls sex, sem
skipaðir voru áðurnefndan dag,
hinn 21. október".
Ráðherrarnir voru; Ólafur Thors
forsætis- og utanríkisráðherra
og Pétur Magnússon viðskipta-
og fjármálaráðherra frá Sjálf-
stæðisflokknum, frá Alþýðu-
flokknum Emil Jónsson sam-
göngumálaráðherra og Finnur
Jónsson félagsmála- og dóms-
málaráðherra og frá Sósíalista-
flokknum Brynjólfur Bjarnason
menntamálaráðherra og Áki
Jakobsson atvinnumálaráðherra.
Þessi ríkisstjórn, sem gekk undir
nafninu „nýsköpunarstjórnin,
vegna aðalstefnu sinnar um
stórkostlega nýsköpun atvinnu-
lífsins með innkaupum og smíð-
um á nýjum framleiðslutækjum
fyrir atvinnuvegina, hafði sterka
aðstöðu á þingi. Hún naut
stuðnings allra 7 þingmanna
Alþýðuflokksins, 10 þingmanna
Sósíalistaflokksins og 15 þing-
manna Sjálfstæðisflokksins en
fimm þingmenn hans snérust
gegn stjórninni, þeir Gísli
Sveinsson, Ingólfur Jónsson, Jón
Sigurðsson á Reynistað, Pétur
Ottesen og Þorsteinn Þorstein-
son. Framsóknarflokkurinn var á
móti stjórninni sem naut því
stuðnings 32 þingmanna af 52.
Einn þingmanna Framsóknar-
flokksins, Jónas Jónsson, frá
Hriflu bar strax án vitundar
flokks síns eða samráðs við hann
fram vantrauststillögu á ríkis-
stjórnina. Við atkvæðagreiðslu í
sameinuðu Alþingi var tillagan
felld með 31 atkvæði gegn 1
atkvæði flutningsmanns og sátu
aðrir stjórnarandstæðingar því
hjá atkvæðagreiðsluna.
Nýsköpunin
„Eftir hálfs mánaðar þinghlé tók
nýsköpunarstjórnin til óspilltra
málanna og hratt mörgum og
merkum málum af stokkunum
samkvæmt hinni sameiginlegu
stefnuskrá", segir Agnar Kl.
Jónsson í riti sínu. „Þrátt fyrir
hin ólíku sjónarmið og skoðanir
tókst öll samvinna furðanlega
vel“. Um mál nýsköpunar-
stjórnarinnar nefnir Agnar Kl.
Jónsson að 1943 var samið um
smíði á 45 fiskibátum í Svíþjóð
sem seldir voru einkaaðilum og
bæjar- og sveitarfélögum, og
síðar 5 bátum til viðbótar.
Innanlands var að tilhlutan
ríkisstjórnarinnar hafinn
undirbúningur að smíði 30
fiskibáta. En stærsta skrefið til
aukningar á fiskiskipastólnum
voru þó samningar ríkis-
stjórnarinnar við brezkar skipa-
smíðastöðvar um smíði 30 tog-
ara. Auk þessa hófst ríkis-
stjórnin handa um öflun flutn-
ingaskipa og ennfremur var
hafinn undirbúningur að bygg-
ingu nýrra verksmiðja til
vinnslu á sjávarafla, og Ný-
byggingarráð var sett á laggirn-
ar til að fara með uppbyggingu
á sviði landbúnaðar og iðnaðar.
Nýsköpunarstjórnin á ríkisráðsfundi.
Þegar komið var framundir lok
þingsins 1945—46 báru forystu-
menn Framsóknarflokksins,
Hermann Jónasson og Eysteinn
Jónsson, fram vantrauststillögu,
sem var svo felld eftir töluverðar
umræður með 33 atkvæðum gegn
14.
22. júlí 1946 var Alþingi kvatt
saman til aukafundar að nýaf-
stöðnum kosningum til að ræða
tillögu ríkisstjórnarinnar um
inntökubeiðni Islands í
Sameinuðu þjóðirnar. Hannibal
Valdimarsson bar þá fram
breytingartillögu þess efnis að
ríkisstjórnin krefðist þess að
herlið það sem enn dveldi í
landinu hyrfi þegar á brott og
síðan kom fram þings-
ályktunartillaga frá öllum
þingmönnum Sósíalistaflokks-
ins um brottför Bandaríkja-
hers. Þessi tillaga varð ekki
útrædd en Ólafur Thors sagði
ríkisstjórnina mundu hefja
umræður við stjórn Banda-
ríkjanna um fullnægingu og
niðurfellingu herverndarsamn-
ingsins frá 1941 og tilkynna
Alþingi um árangurinn, er það
kæmi saman aftur. Inntöku-
beiðni Islands í S.Þ. var sam-
þykkt.
Hermálið klýfur
stjórnina
Þegar Alþingi kom saman aftur
19. september 1946 lagði for-
sætisráðherra fram tillögu til
þingsályktunar um heimild fyrir
ríkisstjórnina til að gera samn-
ing við Bandaríkin um niðurfell-
ingu herverndarsamningsins frá
1941 o.fl. en Bandaríkjunum
skyldi áfram heimilt að halda
uppi á Keflavíkurflugvelli þeirri
starfsemi sem nauðsynleg væri
talin til að Bandaríkin gætu innt
af hendi skyldur í sambandi við
herstjórn Þýzkalands. Þetta
heimildarákvæði sættj mikilli
gagnrýni og mótspyrnu og þá
einna mest frá Sósíalistaflokkn-
um sem snérist öndverður gegn
samningsuppkastinu og krafðist
skilyrðislausrar brottfarar her-
liðsins af Keflavíkurflugvelli.
Urðu mjög snarpar umræður á
þingi og utan þings urðu æsingar
með mönnum og óeirðir á götum
og var gerður aðsúgur að Álþingi
og einstökum alþingismönnum.
Þingsályktunartillaga forsætis-
ráðherra var samþykkt 5.
október með 32 atkvæðum gegn
19.
Að atkvæðagreiðslu lokinni lýsti
Brynjólfur Bjarnason mennta-
málaráðherra yfir að grundvöll-
ur stjórnarsamstarfsins væri
rofinn. Tveimur dögum síðar
rituðu ráðherrar Sósíalista-
flokksins Ólafi Thors bréf þar
sem þeir lögðu að honum að rjúfa
þing og efna til nýrra kosninga
og að ef hann ekki bæðist
lausnar fyrir ráðuneytið í heild
þá óskuðu þeir þess að hann
bæðist lausnar fyrir þá tvo.
Ólafur Thors svaraði á þá leið að
hann sæi ekki ástæðu til þingrofs
né heldur teldi hann að sam-
starfsgrundvöllurinn hefði verið
rofinn. Hins vegar yæri það
staðreynd að ráðherrar
Sósíalistaflokksins óskuðu lausn-
ar og þess vegna væri grundvöll-
ur stjórnarsamstarfsins úr sög-
unni þar sem ákveðið hefði verið
að það byggðist á fullri aðild
allra flokkanna þriggja. Sama
dag, 10. október, baðst Ólafur
Thors lausnar fyrir sig og
ráðuneyti sitt en ráðherrarnir
gegndu embættum sínum áfram,
ráðherrar sósíalista eftir um-
hugsunarfrest, þar til 4. febrúar
1947 að ráðuneyti Stefáns
Jóhanns Stefánssonar tók við
völdum.
Vonbrigði Ólafs
og eftirmæli
Einars Olgeirssonar
Aðdragandi nýsköpunarstjórnar-
innar og endalok drógu ýmsa
dilka á eftir sér auk þess sem
stjórnin sjálf var næsta einstæð
Framhald á bls 28.
Gorch Fock.
Siglt undir
þýzkum fána —
Skólaskipið Gorch Fock í heimsókn í Reykjavík
út um kýraugað kíkti sjó-
maður og blístraði glaðlega á
eftir kvenljósmyndara Morgun-
blaðsins. „Almáttugur" dæsfi
ljósmyndarinn um leið og hún
smeliti mynd af skólaskipinu
þýzka „Gorch Fock“ sem kom
til Reykjavíkur í gærmorgun.
Skipið „Gorch Fock“ úr þýzka
flotanum er í sinni 55. kennslu-
ferð og fer aftur héðan áleiðis
til Gautaborgar í Svíþjóð n.k.
föstudag. Það kom hingað frá
heimahöfn sinni í Kiel við
Kielarskurðinn með 197 manna
áhöfn og kennaralið. þar af 117
foringjaefni í þýzka sjóhern-
um. Fáir þeirra voru uppi á
þilfari er Morgunblaðið bar að
garði. en brosandi blaðafulltrú-
inn. Detlef Röber, hauð okkur
til sætis í einni káetunni, þar
sem skenkt var rússneskt
vodka og þýzkur bjór.
Röber og Karlheinz Krug
sendiráðunautur í þýzka sendi-
ráðinu á íslandi höfðu ofan af
fyrir blaðamönnum á meðan
komu skipstjórans var beðið.
Ræddu þeir um skipið, sem er
hið eina sinnar tegundar í þýzka
flotanum, tilgang þess og fleira.
Seglskipið Groch Fock er 1760
lestir að stærð og 90 metrar á
lengd. Því var hleypt af stokk-
unum í Hamborg árið 1958 ,og
hefur síðan verið notað sem
skólaskip fyrir þjálfun sjóliðs-
foringja í þýzka sjóhernum, sem
og óbreyttra.
Gorch Fock er annað skipið
sem ber þetta nafn. Það er skýrt
eftir sjóskáldinu Johan Kinau,
sem féll í Jótlandsorrustunni
19J6, en Gorch Fock var skálda-
nafn hans. Skipið er hið fimmta
sinnar tegundar í þýzka flotan-
um. Systurskip þess voru smíð-
uð af sama fyrirtækinu, Blomh
& Voss skipasmíðastöðinni í
Hamborg fyrir stríð og eru nú
notuð sem skólaskip í öðrum
löndum.
Möstrin eru u.þ.b. 45 metrar á
hæð og geta borið 23 segl,
þannig að seglbúnaðurinn er um
2000 fermetrar. Þess eru dæmi
að skipið hafi náð um sextán
hnúta hraða undir fullum segl-
um. Beztum árangri náði það í
49. æfingarferð sinni árið 1976
og sigldi þá 568 kílómetra undir
fullum seglum á einum sólar-
hring. Einu sinni sigldi Gorch
Fock alls 2295,5 kílómetra á
fimm sólarhringum (124 tímum)
á Norður-Atlantshafi.
Góður félagsandi
og sjálfsafneitun
I áhöfn skipsins nú eru
undirforingjaefni sem eru í
þjáifun frá aprílbyrjun til
septemberloka en þá tekur við
þjálfun sjóliðsforingjaefnanna
sem stendur skemur eða í sex
vikur. Áður en siglingar um
heimshöfin hefjast eru piltarnir
á nokkurra vikna námskeiði í
Kiel.
þilfari Gorch Fosk. t. frá vinstri. Pálmi Hlöðversson frá
landhelgisgæzlunni, Herwig yfirforingi, Karlheinz Krug sendiráðu-
nautur í þýzka sendiráðinu. skipstjórinn og blaðafulltrúinn Detlef
Röber.
Skipstjórinn Ilelmut Wind í
annað sinn í Reykjavík.
„Þeir læra hlýðni, samvinnu,
fá tilfinningu fyrir siglingum og
kynnast því að sigla undir fána
þýzka sambandslýðveldisins,"
sagði Röber blaðafulltrúi sem
hefur starfað á Gorch Fock í tvö
ár.“
Kjarni áhafnarinnar eru 72
sjóliðsforingjar eða yfirmenn,
undirforingjar og óbreyttir sjó-
liðar og sex óbreyttir borgarar.
Síðan skipið var tekið í notkun
fyrir tveimur áratugum og þar
til það fór í 52. kennsluferðina
hafa alls verið þjálfaðir um borð
7197 sjóliðsforingjar og sjóliðar.
Skipstjórinn Helmut Wind
hedur verið á Gorch Fock síðan
1966 en þá kom hann með
skipinu(til Reykjavíkur, að visu
Framhald á bls 28.
Þrjú þýzk undirforingjaefni á
•röngu við Reykjavíkurhöfn.
Jm í .
f f f f
'iSI