Morgunblaðið - 18.07.1978, Page 38

Morgunblaðið - 18.07.1978, Page 38
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 1978 • SÍKurður SÍKurðsson Ármanni sigrar með yfirburðum í100 m hlaupinu. Sigurður sigraði einnig í 200 m. Til hægri er Magnús Jónasson Á sem varð annar. Léleg mæting í flestar greinar 1>AÐ setti leiðinlegan svip á meistaramótið og gerði starfsmönnum þess erfitt fyrir hve skráning í flestar greinar var alröng. Áður en mótið hófst var talað um fjölmennt mót með keppcndum á annað hundrað. I>að er engum til góðs að vera að blekkja sjálfan sig með mikilli skrásetningu í mót. I>etta er ekki nýtt af nálinni, þetta hefur viðgengist í mörg ár. Ætti fólk að sjá sóma sinn í því að vera ekki að skrá sig til keppni ef það mætir ckki. Það væri ekki úr vegi hjá FRÍ að taka upp strangar reglur um þessi atriði og þó fyrr hefði verið. Iljá knattlcikssamböndunum eru félögin beitt sektum ef lið mæta ekki til leiks. Sem dæmi má nefna. að ef flokkur mætir ekki þá er viðkomandi félag sektað um 25 þúsund krónur. Jafnvel þótt að það sé 4. fl. eða yngri sem hlut á að máli. Ekki væri ósanngjarnt að 2000 krónur væru greiddar fyrir hvern þann keppanda sem ekki mætir til leiks og hefur ekki hoðað lögleg forföll á meistaramóti. þ_ Utan bæjarfól kið ^ stóð sig vel á ~“e ÁRANGUR á meistaramóti íslands í frjálsum íþróttum sem fram fór á Laugardalsvellinum um helgina var allþokkalegur í flestum greinum og góður í nokkrum. Ekkert nýtt íslandsmet var sett og ekkert jafnað, þó var veður til keppni nokkuð gott. Það sem setti frekar leiðinlegan svip á mótið var hve illa var mætt í margar greinar. Ættu forráða- menn félaganna að sjá sóma sinn í því að vera -ekki að skrá keppendur til leiks ef þeir ætla sér ekki að mæta. Keppni i hlaupa- greinum mótsins var skemmtileg og hart var barist. Þar vann enginn sigur fyrirhafnarlaust. Athyglisvert var hversu lands- byggðin kom sterk frá mótinu og lofað það góðu fyrir landsmót UMFI á Selfossi um n.k. helgi. Borgfirðingar, Þingeyingar, Akur- eyringar og Austfirðingar vöktu mikla athygii, og fengu þessi sambönd marga meistara. Svo sem vænta mátti vann Hreinn Halldórsson besta afrek mótsins með því að varpa kúlunni 19.89 metra. Það telst nú varla til tíðinda þótt Hreinn varpi um 20 metra, en afrek hans eru engu að síður stórglæsileg og á heimsmæli- kvarða. Við getum verið stolt yfir að eiga slíkan afreksmann. Von- andi nær Hreinn sér sem fvrst af meiðslum þeim er hafa hrjáð hann svo að hann geti beitt sér af alefli í grein sinni. Ef nefna ætti nokkrar greinar sem skemmtileg- ar voru á mótinu, voru það 110 metra grindahlaup, þar sem Stef- án Hallgrímsson gerði allt hvað hann gat til að sigra Elías Sveinsson. Stefán kom örþreyttur úr 400 m í hlaupið, þannig að frammistaða hans var mjög góð. Þá var skemmtileg keppni í 800 m og 1500 metra hlaupi karla og kvenna. Þar var geysileg barátta allt frá upphafi til enda, ekki aðeins um sætu sigurvegarans heldur og um flest önnur sæti í hlaupinu. Sigurvegari í 800 m hlaupi karla varð Steindór Tryggvason, ÍA, eftir harða bar- áttu við Stefán Hallgrímsson, sem náði sínum langbesta tíma í 800 m. Ekki er vafi á því að Stefán gæti stórbætt tíma sinn í 800 metrum ef hann legði rækt við hlaupið. í 1500 metra hlaupinu sigraði Haf- steinn Óskarsson, en hörð barátta var um næstu sæti. Sigfúsi Jóns- syni tókst að tryggja sér annað sætið og þriðji varð bráðefnilegur hlaupari að norðan, Jónas Clausen. Tíminn í 400 m var góður, þar sigraði Stefán Hallgrímsson, hljóp á 49.5 sek., góður tími því brautin var þung eftir miklar rigningar. Annar varð Aðalsteinn Bernharðs- son, hljóp á 50.1 sek. Hljóp Aðalsteinn vel og var það ekki fyrr en á síðustu metrum hlaupsins sem Stefáni tókst að pressa sig fram úr með því að taka á öllu sem hann átti til. I spretthlaupunum var Sigurður Sigurðsson, Ár- manni, öruggur sigurvegari, og ógnaði engin veldi hans í greinun- um, þar sem Vilmundur Vil- lijálmsson dvelur erlendis. I stökk- greinum karla var árangur frekar slakur, þó náði Stefán Friðleifsson þokkalegum árangri í hástökkinu. Þeir sterku stóðu fyrir sínu í kastgreinunum. Hreinn í kúlu- varpinu og Óskar sem kastaði yfir 18 metra. Þá var ánægjulegt að sjá Guðna Halldórsson í sinni fyrstu keppni eftir langvarandi meiðsli. Óskar sigraði í kringlukastinu, spjótkastinu og sleggjukastinu. I kvennakeppninni var mikil keppni í flestum greinum. 100 m hlaupið var hnífjafnt fram á síðustu metra og stútkurnar sem voru í 2. til 4. sæti, hlutu sama tíma. Jafnara getur það varla verið. I hástökki sigraði Þórdís Gísladóttir og setti nýtt meistara- mótsmet, stökk 1.71 m. Keppni í 400 m kvenna var skemmtileg og hörð, þar sigraði Sigríður Kjart- ansdóttir, KA, setti nýtt stúlkna- met, 58.1 sek. í öðru sæti varð Ruth Ólafsdóttir, FH, setti nýtt telpnamet, 58.5 sek. Vissulega setti það svip sinn á mótið að hópur af góðu frjáls- íþróttafólki dvelur erlendis við æfingar og keppni. En engu síður kom fram á sjónarsviðið ungt og efnilegt afreksfólk. Mótið gekk nokkuð hægt fyrir sig, en þegar sumir keppendur eru í mörgum greinum er sjálfsagt erfitt að reka um of á eftir mönnum. Þó valda allir þessir dauðu punktar milli greina bið fyrir þá fáu áhorfendur sem leggja leið sína á frjálsíþróttamótin. Ekki er hægt að skilja við mótið án þess að minnast á Berþóru Benónýsdóttur, frá HSÞ, bráðefnilega frjáls- íþróttastúlku sem lét mikið að sér kveða á mótinu og krækti sér í þrjá meistaratitla. Sigraði hún í 100 m hlaupi, 100 m grindahlaupi og svo langstökki. Lætur Bergþóra sjálfsagt mikið að sér kveða á "'aE-*.aK1 • Þarna er einn hálfíimmtugur á ferðinni í stangarstökki. Og ekki vantar iéttleikann. Hver skyldi kappinn vera, jú engin annar en kempan Valbjörn Þorláksson sem varð þriðji í stönginni með 4.00 m. Þeir eru ekki margir á þessum aldri sem mundu leika þetta eftir. Landsmótinu um næstu helgi. í boðhlaupum karla sigruðu sveitir Ármanns með miklum yfirburð- um. í kvennaboðhlaupunum var keppni mun jafnari og skemmti- legri. HSÞ bar sigur úr býtum í 4x100 og í 4x400 sigraði sveit Úí A. • óskar Jakobsson sigraði í þrem kastgreinum á mótinu. Kringlukasti. spjótkasti og sleggjukasti. Hér sést hann þeyta kringlunni úr rennblautum kasthringnum. • Stefán Hallgrímsson ÚÍA var örmagna er hann kom í mark eftir 800 metra hlaupið. Féll Stefán á brautina yfirkeyrður af mæði. Stefán náði sínum besta tíma 157.7 mín. Hér er komið til aðstoðar. 21 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 1978 Úrslit á Meistaramóti Islands FYRRI DAGUR, KARLAR, 400 m grindahlaup, sck Stefán Hallgrímsson ÚÍA 53.3 Þráinn Hafsteinsson Á 57.1 Kristján Þráinsson IISÞ 57.6 Kúluvarp, m Hreinn Halldórsson KR 19.89 Óskar Jakopsson ÍR 18.03 Guðni Halldórsson KR 17.12 200 m hlaup, sek Sigurður Sigurðsson Á 22.1 Jakop Sigurólason HSÞ 22.4 Jón Sverrisson UBK 23.5 Guðni Tómasson Á 24.5 5000 m hlaup, mín Sigfús Jónsson ÍR 15.09.8 Ágúst Þorsteinss. UMSB 15.37.5 Brynjólfur Hilmarss. ÚÍA 16.24.6 Pétur Eiðsson ÚÍA 16.48.4 Spjótkast, Óskar Jakobsson ÍR Einar Vilhj.s. UMSB Óskar Thorarens. KR Þráinn Hafsteinsson Á 73.66 62.16 57.86 56.68 Hástökk, Stefán Friðleifss. ÚÍA 1.98 Elías Sveinsson KR 1.98 Karl West Fredrikssen UBK 1.95 Langstökk, m Sigurður Hjörleifsson HSH 6.37 Jón Oddsson HVÍ 6.33 Rúnar Vilhjálmsson 6.26 800 m hlaup, m Steindór Tryggvas. ÚÍA 1.57.7 Stefán Hallgrímss. ÚÍA 1.57.7 Hafsteinn Óskarss. ÍR 1.59.2 Björn Skúlason ÚÍA 2.02.2 4x100 m boðhlaup, sek Svcit Ármanns 43.4 Svcit HSÞ 46.1 Sveit HVÍ 46.7 m Þórdís Gísladóttir ÍR 1.71 nýtt meistaramótsmet María Guðnadóttir HSH 1.68 íris Jónsdóttir UBK _ 1.65 Arney Magnúsdóttir ÚÍA 1.60 Spjótkast, m María Guðnadóttir HSII 36.76 íris Grönfeldt UMSB 33.10 Dýrfinna Torfadóttir 30.50 Anna Alfreðsd. IISK 29.40 200 m hiaup, sek Sigríður Kjartansd. KA 25.09 Sigrún Sveinsd. Á 26.01 Ilólmfríður Erlingsd. UMSE 26.02 Ruth ólafsd. FH 26.08 Kúluvarp, m Dýrfinna Torfad. KA _ 9.64 Halldóra Jónsdóttir ÚÍA 8.98 íris Grönfeldt UMSB 8.77 100 metra grindahlaup, sek Bergþóra Benónýsdóttir IISÞ ' 15.4 Þórdís Gísiadóttir ÍR 16.4 800 m hlaup, sek Guðrún Sveinsdóttir ÚÍA 2.20.5 Aðalbjörg Ilafstd. HSK 2.22.4 Anna Hannesdóttir ÚÍA 2.23.0 4x100 m boðhlaup kvenna, Sveit HSÞ Sveit UBK Sveit ÍR SEINNI DAGUR, KARLAR, Stangarstökk, m Guðmundur Jóhannesson HSK 4.10 Karl West Fredrikss. UBK 4.00 Valbjörn Þorláksson KR 4.00 Elías Sveinsson KR 3.90 Þrfstökk, m Hclgi Hauksson UBK 13.78 Rúnar Vilhjs. UMSB 13.55 Kári Jónsson HSK 13.10 Unnar Vilhjs. UMSB 12.80 Kringlukast, Óskar Jakobsson ÍR Guðni Halldórss. KR _ Þráinn Hafsteinsson Á f-*«■ i*** V ■ PJB • Hart barist í 1500 m hlaupinu. Forystuna hefur Steindór Tryggvason ÚÍA. en hann sigraði í 800 m. Ilafsteinn Óskarsson sigurvegari í 1500 m er annar. sek 10.7 11.2 11.2 100 m hlaup, Sigurður Sigurðsson Á Magnús Jónasson Á Guðlaugur Þorsts. ÍR 1500 m hlaup, mín Hafsteinn Óskarss. ÍR 4.04.8 Sigfús Jónsson ÍR 4.05.4 Jónas Clausen KA 4.06.9 Steindór Tryggvason ÚÍA 4.07.4 110 m grindahlaup, Elías Sveinsson Stefán Hallgrímss. Þráinn Ilafsteinss. Á Sleggjukast, Óskar Jakobsson ÍR 400 m hlaup, Stefán Hallgrímss. ÚÍA Aðalsteinn Bernhs. UMSE Jakop Sigurólas. IISÞ ólafur Óskarss. Á 4x400 m boðhlaup karla, Sveit Ármanns Sveit ÚÍA Sveit HSÞ SEINNI DAGUR, KONUR, 100 m hlaup, Bergþóra Benónýsd. HSÞ 12.2 Kristín Jónsd. UBK 12.6 Sigrún Sveinsd. Á 12.6 Sigríður Kjartansd. KA 12.6 sek 15.5 15.7 16.2 sek 49.5 50.1 51.6 52.1 1500 m hlaup, mfn Guðrún Árnad. FII 4.55.8 Guðrún Sveinsd. ÚÍA 4.58.6 Iljördís Árnad. UMSB 5.15.0 400 m hlaup, sek Sigríður Kjartansd. KA 58.1 nýtt stúlknamct Ruth ólafsd. FH 58.5 nýtt^ ísl. telpnamet. Sigrún Sveinsd. Á 58.8 Kringlukast, m Kristjana Þorstd. Víði 35.16 Ilalldóra Jónsd. ÚÍÁ 27.55 Þorbjörg Aðalstd. IISÞ 25.86 Langstökk kvcnna, m Bergþóra Benónýsd. IISÞ 5.03 Bryndís Hólm 4.% íris Grönfeldt UMSB 4.89 4x400 m boðhlaup, Sveit ÚÍA Sveit KA Sveit UMSB • Þær nöfnur Guðrún Sveinsdóttir og Guðrún Arnadóttir, sigruðu í sitt hvorri hlaupagreininni. Þarna er það Guðrún Sveinsdóttir ÚÍA sem hefur forystu, en hún sigraði í 100 m hlaupinu. Guðrún Arnadóttir FII sigraði hinsvegar í 1500 m hlaupinu, en í því hlaupi var myndin tekin. • Þeir Elías Sveinsson KR og Stefan llallgnmsson UIA haðu mikið einvígi í 110 metra grindahlaupi. Elíasi tókst að halda forskotinu sem hann var búinn að ná er myndin var tekin. Ljósm. Król • Þórdís Gísladóttir ÍR sctti nýtt mcistaramótsmet í hástökki stökk 1.71. Hér sést hún í metstökkinu. og er hún vel yfir ránni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.