Morgunblaðið - 18.07.1978, Page 41
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 1978
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 1978
23
Blikarnir sýna á sér fararsnið
EKKI er lantít í það. að staða Breiðabliks verði slíkt, að ÓKerningur verði fyrir þá að rífa sig upp. Eftir
helKÍna standa þeir uppi með enn eitt tapið á bakinu og var þó varla á bætandi. Nú gegn ÍR, 0—3 á
heimavelli. ok ekki vænkaðist hagur þeirra við það að á sama tíma var KA að berja á FH fyrir norðan
ok er því munurinn á UBK og hinum botnliðunum í stigatali orðin gífurlegur. En Blikarnir voru með
hressara móti í fyrri hálfleik og fengu þeir þá tvívegis alger dauðafæri sem þeim mistókst að skora úr.
Þrátt fyrir það voru Skagamcnn heldur sterkari og þeir klúðruðu fleiri færum í fyrri hálfleik heldur
en heimamenn.
Sem fyrr segir, voru Blikarnir
með allra sprækasta móti í fyrri
hálfleik og nokkur færi sköpuðu
þeir sér, t.d. átti Hákon gott skot
rétt fram hjá á 22. mínútu og
þremur mínútum síðar átti Þór
Hreiðarsson stangarskot eftir
fyrirgjöf frá Hákoni, knötturinn
hrökk út til Sigurðar en skot hans
var beint á Jón markvörð og því
hættulaust. A síðustu mínútu
hálfleiksins var Sigurður enn í
dauðafæri eftir skemmtilegan
samleik þeirra Þórs Hreiðarssonar
og Gísla Sigurðssonar, en að þessu
sinni hitti hann ekki markið. En
þrátt fyrir þokkalegan leik UBK á
köflum, voru það Skagamenn sem
höfðu undirtökin og virtust þeir
lítið hafa fyrir því að mola niður
vörn Blikanna sem var eini hluti
liðsins sem engin batamerki voru
á frá fyrri leikjum liðsins. Það var
einkum Karl Þórðarson, sem með
dyggilegri aðstoð bakvarðarins
Arna Sveinssonar sundraði vörn
mótherjanna á vinstri vængnum
aftur og aftur. Er með ólíkindum
hvað Karl virðist hafa lítið fyrir
þessu og oft voru ekki færri en
3—4 Blikar sem að honum sóttu,
en það skipti ekki máli, hann lék
á þá alla stundum eins og þeir
væru þar alls ekki. En Skaga-
mönnum tókst ei að skora í fyrri
háifleik frekar en Blikunum og
kom þar ýmislegt til, svo sem
afleit hittni úr langskotum, góð
markvarsla Sveins Skúlasonar,
auk þess sem oft tókst vörn UBK
að hreinsa á síðustu stundu.
Allt fram í miðjan síðari hálf-
leik var mikið jafnræði með
liðunum og var leikurinn þá
jafnframt leiðinlegastur á að
horfa, hnoð á vallarmiðjunni og
æsileg atvik við mörkin engin. En
úr öllu rættist á 21. mínútu og eins
og vænta mátti kannski, voru það
Skagamenn sem brutu ísinn, Karl
tók hornspyrnu frá hægri og eftir
mikið þóf í markteignum tókst
Kristni Björnssyni að skalla
knöttinn í netið. Svo sem nærri má
geta, var þetta gífurlegt áfall fyrir
heimamenn, en þeir börðust þó
áfram af kappi, eða þar til
rothöggið kom 10 mínútum síðar.
Þá var dæmd hornspyrna á
Blikana og notaði Kirby, þjálfari
Í A, þá tækifærið og setti Andrés
Ólafsson inn á fvrir Matthías.
UBK - IA 0:3
Texti og myndi
Guðmundur Guðjónsson
Andrés skokkaði inn í vítateiginn
og tók sér þar stöðu. „Dekkið
varamanninn", hrópaði lítill gutti
sem stóð fyrir aftan markið og
Blikarnir hefðu betur hlustað á
þann stutta, því að þegar knöttur-
inn barst fyrir markið kastaði
Andrés sér fram og skallaði í
netið, 2—0. Fjaraði nú allt líf úr
Blikunum og yfirburðir Skaga-
manna urðu algerir. Og þeir fengu
ógrynni góðra færa sem þeir
misnotuðu, þar af Pétur Pétursson
þrjú, áður en hann fann leiðina í
markið á síðustu mínútu leiksins.
Enn var skorað eftir hornspyrnu
frá Karli og Pétur skallaði örugg-
lega og glæsilega í netið, enda
hirtu Blikarnir lítið um að gæta
mótherjanna lokakaflann. Stórsig-
•ur var í höfn.
Það mátti sjá nokkra góða
punkta hjá Blikaliðinu, einkum í
fyrri hálfleik. Hákon er snjall
útherji og Þór Hreiðarsson var
góður í fyrri hálfleik. Gísli Sig-
urðsson lék nú með að nýju og átti
nokkrar góðar rispur. Hann verður
liðinu örugglega mikill styrkur er
á líður og Sveinn markvörður
verður ekki sakaður um mörkin og
hann varði vel á milli. Hins vegar
er ekki ástæða til að hrósa vörn
Blikanna.
Karl Þórðarson vár yfirburða-
maður á vellinum.
í STIITTU MÁLIi
Kópavogsvöllur. 1. deild UBK — ÍA. 0—3
(0-0).
Mörk ÍAi Kristinn Björnsson (67.). Andrés
Ólafsson (77.) og Pétur Pétursson (90.).
Áminningari engin.
• Eitt merkilegasta mark sumarsins, Andrés Ólafsson var aðeins búinn að vera inn á leikvanginum í
um 30 sekúndur er hanr. kastaði sér fram og skallaði hornspyrnu Karls Þórðarsonar í netið. Þetta var
annað mark ÍA og reyndist vera það sem úrslitum réði, því að Blikarnir voru sem höfuðlaus her það
sem eftir lifði leiks.
KA vann sinn fyrsta heimasigur
KA vann sinn fyrsta sígur á heimavelli í ár pegar FH-ingar komu í
heimsókn á laugardaginn. Sigurinn var reyndar mjög naumur eða 1:0 en
hann var fyllilega verðskuldaður og markamunurinn hefði getaö verið mun
meiri, pví Akureyringarnir misnotuðu fjöldann allan af dauðafærum í
leiknum. Þessi sigur gefur KA-mönnum auknar vonir um aö halda sæti
sínu í 1. deild en pær vonir voru orönar harla litlar vegna lélegs árangurs
liösins í heimaleikjunum.
Veður var gott til knattspyrnu-
iðkunar á Akureyri á laugardaginn,
bjart og hlýtt en hæg noröangola.
FH-ingarnir léku undan golunni í fyrri
hálfleik og sóttu þá öllu meira en
sóknin var ósköp ráðleysisleg og
árangurslítil. KA-menn bðröust
grimmilega, greinilega ákveðnir í aö
seija sig dýrt i þetta sinn. Þeir náöu
annað slagið afar hættulegum sókn-
um og þeir áttu mun hættulegri
tækifæri en FH-ingarnir.
Gunnar Blöndal átti tvö góð skot
að markinu snemma í leiknum en
Friðrik markvöröur FH var vel á veröi.
Gunnar átti síðar skot í áttina að
mannlausu markinu eftir að Friðrik
hafði hætt sér of langt út á völlinn en
hann hitti ekki markið. Undir lok
hálfleiksins komst Elmar Geirsson
þrívegis í mjög gott færi en mistókst
að skora. Friðrik varði eitt skotið en
tvö fóru naumlega framhjá markinu.
Óskar Ingimundarson átti einnig gott
skot að markinu en það fór sömu-
leiðis naumlega framhjá.
FH-ingarnir voru tvisvar nærri því
að skora. Ólafur Danívalsson komst
í gegnum vörn KA á 28. mínútu og
skaut þrumuskoti aö markinu. Þor-
bergur var í góðri aðstööu til þess aö
verja skotiö en hann missti boltann
yfir en þversláin kom til bjargar í
þetta skipti. Þá átti Jón Hinriksson
bakvörður gott skot að marki KA en
boltinn sleikti stöngina utanveröa.
Fyrstu 20 mínútur seinni hálfleiks
voru KA menn í stanzlausri sókn og
skall oft hurð nærri hælum við mark
KA - FH 1:0
Texti og myndi
Sigtryggur Sigtryggsson
FH. Ólafur Haraldsson bakvöröur átti
lúmskt skot í bláhorni'ð uppi og
stefndi boltinn í markið þegar Friðrik
tókst á síðustu stundu aö slá boltann
í þverslá. Ólafur haföi áður átt góða
sendingu fyrir markið á Gunnar
Blöndal, sem var í dauöafærl en skot
hans fór í varnarmann FH og
hættunni var bægt frá.
Á 18. mínútu seinni hálfleiks kom
loksins markið, sem legið hafði í
loftinu svo lengi. KA menn fengu
hornspyrnu frá hægri. Gunnar
Gunnarsson framkvæmdi spyrnuna
mjög vel og gaf boltann á Eyjólf
Ágústsson, sem var í vítateignum.
Eyjólfur skallaði boltann inn á
markteigslínu og þar var Gunnar
Blöndal á réttum staö og nikkaði
boltanum taglega í markiö.
Eftir þetta mark slökuðu KA-menn
mikið á og FH-ingarnir fóru að sækja
í sig veðrið á nýjan leik. Þeir fengu
þó engin hættuleg marktækifæri og
KA-menn voru nær því að bæta við
marki en FH að afna. Guöjón
Haröarson átti tvö skot naumlega
framhjá og tveimur mínútum fyrir
leikslok komst Gunnar Gunnarsson í
dauðafæri en Friörik Bjargaði vel
með úthlaupi.
Akureyringarnir voru mjög baráttu-
glaöir í þessum leik, ákveðnir í að
vinna og það tókst þeim. Vörnin var
óörugg til að byrja með en sótti síöan
í sig veörið. Eyjólfur Ágústsson var
traustur í miðvaröarstööunni og
nýliðinn Ólafur Haraldsson átti prýði-
legan leik sem bakvörður. Guöjón
Haröarson gætti Janusar Guðlaugs-
sonar mjög vel og bar lítiö á honum
í leiknum. í framlínunni voru þeir
Gunnar Blöndal og Elmar Geirsson
mjög sprækir og Elmar spilaði þarna
sinn bezta leik fyrir KA en hann var
fyrirliði liðsins í fyrsta skipti í þessum
leik. Þá er aðeins ógetið Þorbergs
markvarðar sem var mjög traustur að
vanda.
FH-liðið var slakt að þessu sinni.
Sérstaklega voru FH-ingarnir daprir í
seinni hálfleik. Aðeins tveir menn
stóðu upp úr meðalmennskunni,
Friðrik Jónsson markvörður og
Gunnar Bjarnason miðvöröur.
í STUTTU MÁLIi
íslandsmótiö 1. deild, Akureyrarvöllur !5.
jólí, KA - FH 14) (041).
Mark KAi Gunnar Blöndal á 63. mfnútu.
Áminningi Guðjón Harðarson KA bókaður.
Áhorfenduri 546.
VALSMENN halda áfram sigur-
göngu sinni í 1. deild. Ellefti
sigurinn í jafnmörgum leikjum f
íslandsmótinu var staðreynd á
sunnudagskvöldið þegar Valur
mætti Víkingi á Laugardalsvell-
inum. Sigur Vals var stór, 3i0,
fullstór miðað við gang leiksins.
En Valsmenn gerðu það sem
Víkingunum tókst ekki, þ.e. að
nýta tækifærin og það gerði
gæfumuninn. Það hefur ekki
gerst áður í íslandsmóti að lið
hafi unnið 11 fyrstu leikina og
hafa Valsmenn þar með sett met,
sem erfitt verður að bæta f
framtfðinni ef að líkum lætur.
Valur hefur slíka yfirburði yfir
önnur lið en Akranes um þessar
mundir að það er allt eins líklegt
að fleiri vinningar falli þeim f
skaut áður en sigurgangan stöðv-
ast sem auðvitað verður einhvern
tfma.
Þrátt fyrir að Valsmenn hafi
fullt hús stiga eftir 11 leiki hafa
þeir sýnt misjafna leiki í mótinu
til þessa. Leikurinn á sunnudags-
kvöldið var langt frá því að vera
sá bezti, sem Valsmenn hafa sýnt
í sumar en það komu kaflar þar
sem þeir sýndu allt si'tt bezta.
Valsmennirnir byrjuðu leikinn af
miklum fítonskrafti og áður en
stundarfjórðungur var liðinn
höfðu þeir skorað tvö mörk.
. i
|S|HM
• •*> ?**
■
v*2t
200 leikja mennirnir, Diðrik Ólafsson og Ingi Björn Albertsson. eigast hér við í háloftunum, en urmull
leikmanna fylgist með framvindu mála á jörðu niðri.
Ellefti sigur Vals í röð
Tvö Valsmörk
á skömmum tíma
Fyrra markið kom á 12. mínútu.
Hörður Hilmarsson tók auka-
spyrnu nálægt hliðarlínu. Hann
gaf boltann til Sævars Jónssonar,
sem ekki var seinn að senda
boltann inn í vítateiginn til Inga
Björns Albertssonar, sem var einn
og óvaldaður fyrir miðju markinu.
Víkingarnir stoppuðu, hafa vafa-
laust talið Inga rangstæðan. Ingi
skaut, Diðrik varði mjög vel en það
var ekki nóg, boltinn skoppaði í
markið. Það var ekki laust við að
rangstöðulykt væri af þessu marki
en línuvörðurinn, sem var í góðri
aðstöðu, gerði enga athugasemd.
Tveimur mínútum síðar tók
Albert Guðmundsson hornspyrnu
frá hægri. Hann gaf góðan bolta
inn í vítateiginn, þar sem Ingi
Björn var fyrir gæzlulaus. Ingi
skaut að markinu, Diðrik varði en
hélt ekki boltanum og það var Dýri
Guðmundsson, sem át.ti síðasta
orðið er hann skaut þrumuskoti í
markið af tveggja metra færi í
gegnum þvögu.
Maður hélt að Víkingarnir
myndu alveg gefast upp við
mótlætið og Valsmennirnir myndu
raða mörkunum en sú varð ekki
raunin. Víkingarnir voru allt eins
mikið með boltann úti á vellinum
og þeir áttu ágætar sóknarlotur af
og til en þegsfr kom að vítateignum
hjá Val fór allt í baklás. í nokkur
skipti fengu Víkingarnir ágæt
tækifæri en skot þeirra voru
grútmáttlaus eða þá víðs fjarri
markinu. Næst því að skora voru
Gunnar Örn Kristjánsson, sem
átti hörkuskot á mark Vals á 22.
mínútu sem Sigurður varði vel og
hinn ungi framherji Arnór Guð-
johnsen átti fallegan skalla á
markið á 26. mínútu en boltinn fór
naumlega yfir.
Undir lok hálfleiksins urðu
Víkingsvörninni tvívegis á herfileg
mistök sem höfðu nærri kostað
mörk. Fyrst komst Guðmundur
Þorbjörnsson í dauðafæri en skaut
framhjá og Ingi Björn komst
einnig í dauðafæri en Diðrik varði
skot hans mjög vel.
Vaiur - Víkingur 3:
Textii
Sigtryggur Sigtryggsson
Myndi
Kristinn Ólafsson
Seinni hálfleikur
Seinni hálfleikuririn var svipað-
ur þeim fyrri. Jafnræði var með
liðunum úti á vellinum lengst af en
áberandi var hve sóknaraðgerðir
Valsmannanna voru markvissari
og betur útfærðar en sóknarlotur
Víkinganna. I byrjun hálfleiksins
komst Jóhannes Bárðarson í gott
færi en í stað þess að skjóta að
• Aðdragandinn að sigurmarki KA.
síðar hafði Gunnar Blöndal (lengst
i 1
Eyjólfur Ágústsson skallar með tilþrifum að marki FII og andartaki
til hægri) skilað boltanum í netið, einnig með skalla.
marki Vals ætlaði hann að komast
í enn betra færi með þeim
afleiðingum að boltinn var hirtur
af honum. Rétt á eftir átti Dýri
hættulegan skalla að Víkings-
markinu og bæði Guðmundur og
Ingi Björn virtust hafa möguleika
á því að senda boltann í netið en
báðir misstu boltann fram hjá sér.
Ekki liðu nema nokkrar mínútur
og þá komst Gunnar Örn í
dauðafæri en skaut þá framhjá.
Jón Einarsson var nærri því að
skora þegar hann varð á undan
Diðrik í boltann en skalli hans fór
yfir mannlaust markið. Á 24.
mínútu seinni hálfleiks fékk Arnór
Guðjohnsen gullið tækifæri til
þess að skora fyrir Víking þegar
hann komst einn inn fyrir Vals-
vörnina. I stað þess að skjóta
ætlaði hann að leika á Sigurð
markvörð en Sigurður sá við
honum og náði að handsama
knöttinn.
Á 27. mínútu seinni hálfleiks
skoruðu Valsmenn þriðja mark
sitt og var það mark gjöf dómar-
ans. Róbert Agnarsson og
Guðmundur Þorbjörnsson bitust
um boltann og var greinilegt að
Guðmundur hindraði Róbert á
STAÐAN
STAÐAN í 1. deild eftir leiki
helgarinnar er þessit
UBK - ÍA 0.3
Þróttur — Fram 0.1
Víkingur - Valur 0.3
KA - FH 1.0
Valur
ÍA
Fram
ÍBV
Þróttur
Víkingur
FII
KA
ÍBK
UBK
Markhæstu leikmenn.
Ingi Bj. Albertss. Val
Matthías Ilallgrímss. ÍA
Pétur Pétursson ÍA
Arnór Guðjohnsen Vík.
Gunnar Örn Kristjánss. Vík.
Atli Eðvaldsson Val
Guðmundur Þorbjörnss. Val
Leifur Ilelgason FII
Janus Guðlaugsson FH
11 11 0 0 32.5
11 9 1 1 31.10
11 6 1 4 14.13
10 4 2 4 14.15
11 - 2 5 4 15.17
11 4 1 6 18.22
11 2 4 5 17.23
11 2 4 5 9.25
10 2 3 5 11.16
11 1 1 9 9.29
óleyfilegan hátt þannig að hann
missti jafnvægið og datt. En
Guðmundur náði boltanum og
brunaði upp. Þrír Valsmenn sóttu
að tveimur varnarmönnum Vík-
ings og það var Albert Guðmunds-
son sem rak endahnútinn á
sóknina með góðu skoti sem fór í
gegnum klofið á Diðrik markverði
og inn er hann reyndi að bjarga
með úthlaupi. Dómarinn dæmi
markið gilt en það sáu allir að
Guðmundur braut þarna gróflega
á Róbert og hefði aukaspyrna
verið rétti dómurinn. Skömmu
síðar munaði minnstu að Valur
bætti enn einu marki við er Ingi
Björn skallaði glæsilega að mark-
inu en naumlega yfir.
Liðin
Þrátt fyrir að Valsmenn hafði
ekki leikið eins og þeir bezt geta
að þessu sinni komu kaflár í
leiknum, þar sem þeir sýndu
stórgóða knattspyrnu. Boltinn
gekk samherja á milli með hnit-
miðuðum og öruggum sendingum
og þegar þessi gállinn var á
Völsurunum átti Víkingsvörnin í
hinu mesta basli með þá. En það
sem skipti sköpum að þessu sinni
var að Valur nýtti færin sín en
Víkingur ekki. Að þessu sinni áttu
beztan leik Sigurður Haraldsson,
Grímur Sæmundsen, Dýri
Guðmundsson, Hörður Hilmars-
son og Ingi Björn Albertsson, sem
nú lék sinn 200. leik fyrir Val. Svo
skemmtilega vildi til að Diðrik
Ólafsson lék líka sinn 200. leik
fyrir Víking. Þeir voru fyrirliðar
þetta kvöld Ingi og Diðrik og þeir
færðu hvor öðrum blóm í leikbyrj
un.
Víkinganna bíður erfið barátta
næstu vikurnar að halda sér
deildinni. Eftir góða byrjun hefur
liðið dalað og fallhættan er
yfirvofandi. I þessum leik var það
fyrst og fremst skotfimin sem
brást, úti á vellinum léku Víking-
arnir vel saman oft á tíðum. Beztu
menn Víkings voru Diðrik
markvörður, Adolf Guðmundsson
og Gunnar Örn Kristjánsson.
í STUTTU MÁLI.
fslandsmótið 1. deild. Laugardalsvöllur 16.
júlí. Valur — Víkingur 3.0 (2.0).
Mörk Valsi Ingi Björn Albertsson á 12.
mínútu. Dýri Guðmundsson á 14. mínútu og
Alhert Guðmundsson á 72. mínútu.
Áminningari Sævar Jónsson. Adolf Guð
mundsson og Ragnar Gíslason (engu að sjá
gula spjaldið hjá dómaranum.
Ahorfendur. 2088.
Jafnt úti á
vellinum en
mörkin tala
EFTIR fimm leiki án taps og m.a. dýrmæta sigra á útivelli. kom að
því á laugardaginn að Þróttur tapaði í 2. deildinni í knattspyrnu.
Ilaukar sóttu þá Norðfi’rðinga heim og héldu suður með tvö stig. unnu
leikinn 2.0. Leikurinn var rétt í meðallagi knattspyrnulega og lengst
af í jaínva'gi úti á vellinum. Uppi við mörkin voru Ilaukarnir mun
aðgangsharðari og á lokamínútum leiksins hefðu þeir getað tryggt
sér stærri sigur í leiknum.
: Fyrra mark leiksins var mikið
klaufamark, sem skrifa verður á
markvörð Þróttara. Daníel Gunn-
arsson gaf fyrir mark þróttar frá
hægri og þó sending hans væri föst
virtist mönnum ekki að Ágúst
markvörður Þróttar myndi eiga í
neinum vandræðum með að ná
knettinum. Svo fór þó að af
markverðinum hrökk knötturinn
út í markteiginn og Árni Iler-
mannsson, sem fylgdi vel, renndi
boltanum í netið.
Mark Árna kom á 42. mínútu
fyrri hálfleiksins og á nákvæmlega
sama tíma í seinni hálfleiknum
skoruðu Haukarnir sitt annað
mark. Eftir hornspyrnu Ólafs
Tórfasonar skallaði hinn hávaxni
Daníel Gunnarsson knöttinn í net
Þróttara. Síðsutu 10 mínútur
leiksins virtust Þróttarar sætta
sig fyllilega við tap í leiknum og
Haukarnir áttu þá tvö gullin
tækifæri í viðbót, í annað skiptið
bjargaði Þórhallur á línu fyrir
Þrótt, en í hitt skiptið skaut Árni
Hermannsson yfir nánast af
marklínu eftir að Loftur Eyjólfs-
son hafði átt skalla í slá.
Haukaliðið er að ná sér á strik
eftir misjafnt gengi í mótinu.
Mikil forföll hafa verið í Haukalið-
inu frá því sem var í fyrra, en liðið
er á ný að ná saman sem heild.
Góð barátta var í öllum leikmönn-
um liðsins að þessu sinni, en
miðverðirnir Guðmundur Sig-
marsson og Ólafur Jóhannesson þó
kjölfestan í liðinu.
í liði Þróttar eru margir sterkir
leikmenn, en í heildina er leikur
liðsins ekki nægjanlega skipulagð-
ur og tilviljun virðist meira ráða
hvað gert er hverju sinni. Vörn
Þróttar opnaðist nokkrum sinnum
illa i leiknum, en eigi að síður
virkuðu miðverðirnir Þórhallur
Jónasson og Magnús Magnússon
traustustu menn liðsins og án
þeirra hefði farið enn verr.
-áij.
STAÐAN
STAÐAN í 2. deild eítir leiki
helgarinnar er þessi.
Austri -
Þróttur
KR
Ilaukar
Austri
Þór
ÍBÍ
Fylkir
Þróttur
Ármann
Reynir
Völsungur
Markha'stu leikmenn.
Sverrir Herbertsson KR
Steíán Ö Sigurðsson KR
Þráinn Ásmunds;. Árm.
Jón Oddsson ÍBÍ
Sigurður Indriðas. KR
Birgir Guðjónsson KR
Jón Lárusson Þór
Bjarni Jóhanness. Þrótti
Lrmann 1.1
Ilaukar 0.2
10 7 2 1 25.3 16
10 4 3 3 13.9 11
10 4 3 3 8.7 11
10 1 3 3 9.9 11
9 4 2 3 13.11 10
10 4 1 5 10.13 9
10 3 3 4 12.17 9
10 4 1 5 12.17 9
11 3 2 6 10.17 8
10 2 2 6 9.20 6
Tveir sáu rautt
a Eskifiroi
AUSTRI og Ármann léku á Eskifjarðarvelli á sunnudaginn og varð
jafntefli í leiknum 1 — 1.
Austramenn hófu leikinn af kappi og fyrsta marktækifa'rið kom
þegar á fyrstu mínútu. Voru þeir óhcppnir að skora þá ckki. en
markvörður Ármanns. Egill Steinþórsson. bjargaði á síðustu stundu.
Austramenn sóttu sleitulaust og að því kom að þeir uppskáru mark
og gerðist það á 20. mínútu. er Bjarni Kristjánsson komst inn fyrir
vörn Ármanns. gaf góða sendingu fyrir markið á Sigurð Gunnarsson
sem skaut viðstöðulaust og skoraði fallegt mark. Áfram sótti Austri.
en á 30. minútu gerðist það atvik. að tveimur leikmönnum. þeim
Bjarna Kristjánssyni. Austra. og Oddi Hermannssyni. Ármanni. var
vísað af leikvelli fyrir handalögmái. Þetta atvik hafði mjög slæm áhrif
á Icjk Austra. leikur liðsins. sem hafði verið mjög góður. datt niður
og Ármenningar náðu tökum á spilinu án þess þó að skapa sér góð
marktækifæri. Fyrrri hálfleik lauk því eitt núll fyrir Austra.
Seinni hálfleikinn byrjuðu Ármenningar sfðan vcl og tókst þeim að
jafna strax á 3. mfnútu með marki Bryngeirs Torfasonar. sem skoraði
eftir hrikaleg mistök í vörn Austra sem annars heíur staðið sig mjög
vel í sumar. Var staðan þá orðin eitt eitt og Ármenningarnir höfðu
undirtökin. en þeir áttu þó í basli við að skapa sér tækifæri og voru
þau ekki nema kannski tvö eða þrjú allan hálfleikinn. Austramenn
áttu fleiri opin færi. sem nýttust ekki frekar en færi Ármcnninga t.d.
þegar Sigurður Gunnarsson lék í gegnum vörn Armenninga. lék á
markvörðinn. en féll síðan kylliflatur og íærið rann út í sandinn. Lið
Austra náði sér aidrei á strik í síðari hálfleik. en ef litið er á heildina.
verða úrslitin að teljast sanngjörn.
Skástir hjá Austra voru þeir Hjálmar Ingvason. Sigurður
Gunnarsson og Pétur ísleifsson. en hjá Ármanni markvörðurinn Egill
Steinþórsson svo og Arnlaugur Helgason. Varði Egill markið oft af
stakri prýði.
Dómari leiksins. Garðar Guðmundsson. átti ekki góðan dag að þessu
sinni. en sem betur fór. bitnaði það ekki á öðru liðinu fremur.
4 /Evar.
Islandsmótlö 2. delld