Morgunblaðið - 18.07.1978, Side 25
33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 1978
Tónhvísl
eftir GUÐMUND
EMILSSON
stundum kom þessi spurninfj í
hugann er laglínur drukknuðu í
brambolti fyljjiradda, eins og í
lajjinu Franziska. Og nú skulum
við tala um Da capo! Da capo-upp-
finningin var gerð með það í huga
að skapa mótvægi eða andstæðu í
tónverk. Þessi einföldu sannindi
misskildi Sigursveinn í þremur
ungverskum þjóðliigum. þar sem
annað lagið er gert, í þessari
ákveðnu útsetningu, að milliþætti
í fyrra laginu, sem síðan er
endurtekið. Þessi milliþáttur var
fluttur of hratt; var of keimlíkur
því sem á undan kom og eftir fór.
I Vinarspegli var brotin önnur
einföld regla. Ef tónverk, sungið
án undirleiks, er alltof hátt skrifað
fyrir viðkomandi kór, á annað
tveggja að velja annað lag ellegar
lækka tónhæð. Vinarspegill hefði
notið sín þríund neðar! Að lokum
skal getið tveggja atriða er betur
hefðu mátt fara. Hér um ræðir
„dramatískar" þagnir og „styrk-
leikabólgur“. Þetta eru íslensk
fvrirbrigði núorðið, en eiga rætur
að rekja til norrænna hljóðritana
frá fyrri hluta þessarar aldar, sem
Gufuradíóið hefur verið iðið við að
leika f.vrir þjóðina. Hið fyrra,
„dramat'skar" þagnir, skýrir sig
sjálft. Þær voru tvær í þremur
ungverskum þjóðlögum. og hefðu
mátt vera tveimur færri. „Styrk-
leikabólga" átti sér stað í lokin á
laginu A Roving. Þá tóku allir, að
tilefnislausu, að syngja lokahljóm-
inn smátt og smátt hærra, og
síðan smátt og smátt lægra. Þetta
þótti víst sérdeilis spennandi hér
fyrrum, en flokkast undir „klisjur"
núorðið. Sigursveinn hlýtur að
eiga eitthvað nýrra að moða úr.
Sigursveinn K. Magnússon hef-
ur, þrátt fyrir umdeilanleg afrek í
Vestmannaeyjum að þessu sinni,
sýnt og sannað að hann er efni í
mikinn stjórnanda. Tónleikar Tón-
skóla Sigursveins D. Kristinssonar
í vor tóku af öll tvímæli um það.
Þar stjórnaði Sigursveinn bæði
kór og hljómsveit með miklum
glæsibrag. Stjórn hans var næm á
smáatriði, skýr og full af krafti og
snerpu. Gefi hann sér tíma frá
erilsömum kennarastörfum til að
þroska leiðtogahæfileika sína og
tileinka sér þá tækni, sem stjórn-
endur þurfa að hafa á takteinum,
má vænta mikils af honum í
framtíðinrfi. Á fjörur okkar hefur
rekið fágætan efnivið.
JákvæðustU hliðarnar á stjórn
Sigursveins K. Magnússonar í
Vestmannaeyjum að þessu sinni
voru þær sem áður hafa verið
aðalsmerki hans. Samkór Vest-
mannaeyja söng með skýrum
textaframburði, ákveðnum áhersl-
um og mótaðri hrynjandi sem þó
var alltaf sveigjanleg.
Tónskáld Dufþekju
Sigursveinn P. Kristinsson á
það sammerkt með gestgjöfum
sínum, Eyjamönnum, að hann
hefur unnið mikið þrekvirki við
mikið mótlæti. Því rís hann eins
og klettur upp úr ládeyðu ís-
lenskra tónmennta, og gerir
starfsbræðrum sínum skömm til
óviljandi. Misjafnari sögur fara af
tónskáldskap Sigursveins í vand-
fundnum frístundum. Dufþekja
varð t:d. til í vor í páskafríi frá
skólastjórastörfum. Sigursveinn
lauk verkinu eftir skólaslit í vor.
Það er um 10—15 mínútur að
lengd.
Úm Dufþekju mætti margt
segja. Undirrituðum þótti verkið í
þeild lítið spennandi. Þar örlaði
ekki á neinu sem ekki er búið að
jórtra á í áratugi! Framsögumann
er þar að finna. Hann kom eins og
skrattinn úr sauðarleggnum, var
eiginlega úti á þekju! Hljóðfæra-
raddir voru illa fallnar að einstaka
hljóðfæri, og líkt eins og skrifaðar
fyrir píanó fremur en blásara —
síst málmblásara. Þær lágu hátt
og voru þrotlausar. Stíllinn var
langlokulegur og um leið flókinn.
1 huga manns komu alls óskyld
tónskáld eins og Debussy, Jón
Leifs, Gabrieli og Perotin, svo
einhver séu nefnd. Langur og
krefjandi sögu-söngtexti batt tón-
skáldið á klafa. Tónskáldið tók
textann einnig of bókstaflega.
Þannig varð „trölla hlátur" að
tröllahlátri í ógurlegu veldi. Tón-
verk sem myndskreytir texta lið
fyrir lið nær aldrei tilgangi sínum
sem sjálfstætt listaverk. Heldur
verður það eins þræll. Tónverkið
Dufþekja er eins þrælbundið texta
sínum og Dufþakur var bundinn
Hjörleifi forðum.
Sterkasta hlið þessa nýja tón-
verks var kórhlutverkið. Sigur-
sveinn er vanur að vinna með
kórum. Hann kann á þá lagið. Veit
hvað þeir geta og geta ekki. Þar
var stærsta sigur Sigursveins að
finna.
Um 500 manns sóttu tónleikana.
Flytjendum var óspart klappað lof
í íófa.
sennilega enskur og hefur verið
uppi um aldamótin 1800, ef ekki
seinna. Voluntary var engu að
síður vel leikið og raddbeiting
látlaus og vel við hæfi.
Germanir
Bergamasca Samuels Scheidt,
eitt veraldlegra tónverka hans, var
hins vegar kaffært í síðómantísku
raddvali sem virkaði afkáralega í
svo tæru samhengi. Og þó hér sé
um stílfærðan sveitadans að ræða
og Samuel Scheidt hafi verið
frumlegastur orgelleikara síns
tíma, er mér hitt til efs, að
tilfæringar Guðmundar hefðu fall-
ið tónskáldinu í geð, eða þær
samrýmst tíðarandanum. Prelódía
Georgs Böhm, eða litla Bachs eins
og hann er stundum kallaður, var
hins vegar eyrnayndi á köflum. Ef
ekki hefði komið til óskýrt hljóm-
fall í erfiðari köflum tónverksins,
hefði hressilegur leikur Guðmund-
ar notið sín til fulls, og náð reisn
samboðinni verkinu. Sálmforleik-
ur J.S. Bachs, Ich ruf dir Ilerr
Jesu Christ, fór hins vegar fyrir
ofan garð og neðan. Ekki veit ég
hvort það er til siðs hjá hámennt-
uðum orgelleikurum að nota víbra-
sjón/gjögt rödd í cantus firmus
sálmaforleikja Bachs, og því síður
hvort hægt sé að færa sönnur á að
meistarinn hafi gert það sjálfur á
tilteknum stað og stund. Hins
vegar verður það að segjast, að
fátt er hjákátlegra en einmitt
þetta. Guðmundur lék sálmforleik-
inn af miklum þokka, ef gjögtið er
undanskilið. Sömu sögu er að segja
um Prelódíu og Fúgu í D-dúr.
eftir J.S. Bach. Ekki skorti nema
herslumun að Guðmundi tækist að
skila verkinu lýtalausu. Að lokn-
um aðsópsmiklum inngangi, sem
leikinn var af reisn og öryggi tók
við fúga, sem virtist ætla taka
flugið þegar geysierfitt pedalaspil
varð fjötur um fót. Framsögu
fúgustefs í pedalrödd var flýtt,
sem er öfugt.við það sem vænta
mátti. Þetta kom reyndar fyrir
tónleikana á enda. En varla voru
pedal-torfærurnar yfirstignar er
allt féll í Ijúfa löð á ný, sérstaklega
hljóðfallið.
Frakkar
Um frönsku tónverkin er þetta
að segja: Priere a’Notre Dame.
eftir Léon Boellmann, reyndist
með afbrigðum væmið stykki.
Uppfullt af síðrómantískum tísku-
vörum, svo sem styrkleikabreyt-
ingum, hljómsveitarraddbeitingu,
óvæntum tóntegundabreytingum a
la Liszt, stækkuðum sjöundar-
hljómum og efnisþráðum! Öðru
máli gegnir um Piece heroique.
eftir César Franck, sem þrátt fyrir
þunglamaheit er heilsteypt og ber
mark alvöru tónskálds. Og þrátt
fyrir harðar „sviðsskiptingar" í
Piece heroique tókst Guðmundi H.
Guðjónssyni að framkvæma það
Framhald á bls. 37.
Þessi heimilislega mynd er aí einum bænum í Rangárþingi, hestar á beit við bæinn
og þvottur á snúrum. Ljósmynd Mbl. á.j.
polyvlies
SAMBANDIÐ BYGGINGAVQRUR
SUÐURLANDSBRAUT 32- EINNIG INNAKSTUR FRÁ ARMÚLA29
. ÓD.ÝR
GOLFDUKUR
Verð pr. ferm.: 1400 1980 2246
og 2330