Morgunblaðið - 18.07.1978, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 1978
37
fclk í
fréttum
+ Fyrsta verk hins nýkjörna íorseta Ítalíu. Sandro Pertinis (lengst til hægri). var að leggja blómsveig
aö minnisvaröa „Óþekkta hermannsins" í Rómaborg. Giuiio Andreotti, forsætisráðherra, gengur við
hlið hins 81 árs gamla þjóðhöfðingja. Pertini er sjöundi forseti Ítalíu. Kona hans hefur óskað eftir
því að flytjast ekki í forsetahöllina. Qurinai-höllina. — Við munum hafa daglegt samband, sagði
forsetinn. og ég mun heimsækja hana á hverjum degi. — Það er stutt á milli forsetahallarinnar og
gamla heimiiisins. þar sem forsetafrúin býr. Þau hafa vcrið gift frá því á árinu 1946.
+ Þetta er heimsmethafinn í úthafssundi. Walter Pönisch, Bandarikjamaður. sem sagt var frá í
sunnudagsblaðinu að synt hefði frá Kúbu til Bandaríkjanna. 165 km. leið. nestaður heillaóskum
Castros. Walter er 65 ára gamall. bakari að iðn. Hann lét þess getið er þessi mynd var tekin af honum
á a-fingu fyrir skömmu. að maraþonsundkonan Diana Nyad. sem ætiar að synda Kúbusund. hafi ætiað
að stela hugmynd hans og verða fyrri til að ljúka þessu sundafreki. (Sagt var frá henni hér um daginn.)
+ PRINSESSA. — Þetta er
ljósmyndin, sem Svíakóng-
ur, Karl Gústaf, tók af
Viktoríu litlu dóttur sinni á
eins árs afmæli hennar
síðastl. fimmtudag. —
Hann afhenti fjölmiðlum
myndina til birtingar.
Kóngurinn hafði áður til-
kynnt að hann myndi sjálf-
ur sjá um allar ljósmynda-
tökur á afmælinu og frábað
sér aðstoð blaðaljósmynd-
ara til þess. Ekki fylgdi það
textanum með myndinni
hvoru foreldrinu hún þyki
líkjast ^ieir.
— Hundaæði
breiðist út
Framhald af bls. 13
hvaöa hluta heilans sem er, eru
einkennin af öllu tagi.
Engin læknis-
aðferð fundin
Sem fyrr sagði, hefur enn engin
læknisaðferð fundizt viö hunda-
æði. Læknar hafa enn aöeins
getað gefið ráð um fyrirbyggjandi
aðgerðir, svo sem eftirlit með
innflutningi dýra, ónæmisaðgerðir
á helztu smitberum og takmörkun
á refastofnum á meginlandinu. Dr.
A. Haig segir í margumræddri bók:
„Sú staöreynd, aö hundaæöis-
veiran hefur haldið velli um
aldaraðir, þrátt fyrir allar breyting-
ar á útbreiðslu og hegðun dýra,
sýnir hvað hún býr yfir mikilli
aðlögunarhæfni."
— „Hann er
aumingi...,,
Framhald af bls. 10
en háttatími er klukkan rúmlega tíu
aö kveldi.
Og nú er kvöldvakan aö hefjast
og strákarnir hraða sér niöur í
gamla skálann. Tekið er til við
sönginn og fyrr en varir ómar
„Ljómandi lindarrjóöur" um allt
húsiö. Leikrit er næst á dagskrá og
það er eins og annað flutt af
drengjunum sjálfum. Aö þessu
sinni var fluttur leikþáttur um
soninn sem var skotinn í stríðinu
suður í Hafnarfirði og kemur heim
til mömmu sinnar. Vakti sýningin
mikinn fögnuð viöstaddra, sem
tóku þátt í henni af lífi og sál.
Degi er tekið aö halla og þaö er
víst kominn tími fyrir okkur að
halda heim á leið. En hljómfagur
söngurinn úr gamla skálanum ber
þess merki að drengirnir hafa lítinn
áhuga á aö fara aö sofa, jafnvel
þótt komið sé fram yfir háttatíma
þeirra.
— Tónhvisl
Framhald af bls. 33
sem leikmenn geta aldrei skilið:
Að vera allt í senn leikari,
sviðstjóri og hljómsveitarstjóri.
Þess ber að geta, að nýja orgelið
í Landakirkju er með þeim ósköp-
um gert að geta munað fyrirfram
ákveðið raddval. Það má kalla
fram án fyrirvara og handapats.
Ef frá er talið enn eitt víbrató í
Piece heroique. var hér um
verulega áheyrilegan flutning að
ræða. Guðmundur hefði mátt
minnast tvenns: Að ljúka tón-
hendingum í orgelleik et kúnst.
Það er enginn hljómbotn í orgel-
inu, eins og í píanóinu, til að brúa
bilið milli hendinga. Þetta verður
ennþá meira áberandi í kirkju eins
og Landakirkju, þar sem hljóm-
burður er nánast enginn.
Orgeltónleikar Guðmundar H.
Guðjónssonar í Landakirkju
krydduðu annars bragðdaufa
Menningardaga í Vestmannaeyj-
um. Tónhvísl sendir Guðmundi og
krikjukór Landakirkju óskir um
góða veiði í söngkeppni á Bret-
landeyjum.
Leiðrétting
I morgunblaðinu þann 16. þ.m.
er smáklausa undir fyrirsögninni
„Hvað er svo glatt" ásamt mynd-
urn frá niðjamóti í Ófeigsfirði. Þar
er sagt að afkomendur Péturs
Guðmundssonar frá Ófeigsfirði
hafi haldið þar ættarmót um fyrri
helgi. Hið rétta er, að þarna var
niðjamót Guðmundar Péturssonar
fyrrum bónda þar og hákarlafor-
manns, mikils athafnamanns á
sinni tíð, en á þessu ári voru liðin
125 ár frá fæðingu hans. Var hann
faðir fyrrnefnds Péturs og þeirra
systkina, en þau voru 10, sem til
aldurs komust. Ennfremur var
sagt í klausu þessari, að mótsgest-
ir hefðu verið á fjórða hundrað, en
hið rétta er, að þeir voru um 170,
að frátöldum nokkrum skátum frá
Vestmannaeyjum, er þar voru
staddir og sjóliðum frá varðskipi,
sem þá lá inni á Ingólfsfirði.
Líklegt má telja, að einhver lítt
kunnugur þarna hafi afhent blað-
inu þessa frétt, ef frétt skyldi
kalla. Annars eru núlifandi niðjar
Guðmundar um 340.
Leiðréttingu þessa bið ég blaðið
vinsamlegast að birta sem fyrst.
Virðingarfyllst,
Guðm. Guðmundsson
frá Ófeigsfirði.
SKYNDIMYNDIR
Vandaöar litmyndir
í öll skírteini.
bama&fjölsk/ldu-
Ijosmyndir
AJSTURSTRÆTl 6 SÍMI12644
Morgunblaðið óskar
eftir blaóburóarf ólki
Austurbær
Freyjugata 28—49,
Grettisgata 2—35,
Óöinsgata,
Skúlagata,
Laufásvegur 2—57,
Þingholtsstræti.
Kópavogur
Reynigrund
Upplýsingar í síma 35408
IttStÖtlSlillMbtb